

Lögreglumál
Fréttir af verkefnum lögreglunnar á Íslandi.

Sauðaþjófarnir harðsvíruðu ganga enn lausir
Lögreglan leitar enn þeirra sem slátruðu lambinu í Dritvík, fláðu, elduðu og átu.

Lögregla eltist við trampólín í rokinu
Lögreglumenn á höfuðborgarsvæðinu og Suðurnesjum hafa ítrekað verið kallaðir út vegna foktjóns í nótt og í morgun.

Fresta lokun fangelsisins á Akureyri
Dómsmálaráðherra segist hafa farið fram á það við fangelsismálastjóra að lokun fangelsisins á Akureyri verði frestað til 15. september.

Grunaður um ölvunarakstur á tjaldsvæði en svarar ekki síma
Lögreglan á Vesturlandi hefur ítrekað reynt að ná í ökumann sem ók utan í aðra bifreið á tjaldsvæði í Húsafelli í júní.

Lamb drepið, úrbeinað og etið í Dritvík á Snæfellsnesi
Úrbeinað lamb fannst í fjörukambi í Dritvík þar sem gert hafði verið að því, það eldað og etið. Sauðfjárbændur æfir vegna málsins.

Þrír handteknir og 70 kannabisplöntur gerðar upptækar
Lögreglan á Suðurnesjum stöðvaði í fyrradag kannabisræktun í íbúðarhúsnæði í umdæminu.

Leituðu að innbrotsþjófi í Elliðaárdal eftir eftirför
46 mál voru bókuð hjá lögreglu frá klukkan 17 til 05.

Bruninn á Bræðraborgarstíg: Grunur um að eldsneyti hafi verið ausið á ganginn áður en kveikt var í
Grunur leikur á að eldsneyti hafi verið ausið á ganginn og kveikt í húsinu sem brann á horni Bræðraborgarstígs og Vesturgötu.

Karlmaður fannst látinn í bíl sínum á Ísafirði
Karlmaður fannst látinn í bíl sínum í miðbæ Ísafjarðarbæjar í gær.

Tvær líkamsárásir gegn ungmennum í nótt
Árásirnar áttu sér stað í miðbæ Reykjavíkur og í Árbæ.

Lögreglumaður á Selfossi missti af fæðingu dóttur sinnar vegna kórónuveirunnar
Símon Geirsson, lögreglumaður á Selfossi missti af fæðingu dóttur sinnar og útskrift sinni úr lögreglunámi við Háskólann á Akureyri á dögunum því hann þurfti að vera í einangrun vegna kórónuveirunnar.

Handtekinn grunaður um fjölda brota
Ökumaðurinn er grunaður um mörg brot.

Með hníf á lofti í Hlíðunum
Karlmaður með hníf á lofti var handtekinn í slagsmálum við annan mann í Hlíðunum í dag.

Ráðherrar vinni saman að afglæpun neysluskammta
Dómsmálaráðherra segir samhljóm milli sín og heilbrigðisráðherra um að ráðast í breytingar á fíkniefnalögum á næsta þingvetri.

Lögreglan á Vestfjörðum varar við grjóthruni
Lögreglan á Vestfjörðum varar við grjóthruni en talsvert hefur verið af tilkynningum um grjóthrun í og við fjalllendi á Vestfjörðum síðustu daga.

Ósáttur við afgreiðslu og sló starfsmann
Lögreglan þekkir deili á árásarmanninum.

Nánari svör hafi ekki fengist frá Ríkislögreglustjóra
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra segir að eftir að umsögn frá Kjara- og mannnauðssýslu ríkisins hafi fengist um kjarasamning sem Haraldur Johannessen gerði við undirmenn sína hafi ekki fengist nánari svör frá ríkislögreglustjóra.

Áreitti fólk á Austurvelli
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði afskipti af manni í mjög annarlegu ástandi við Austurvöll upp úr klukkan hálf sex í gærkvöldi. Sá hafði verið að áreita fólk.

Haraldur hafði ekki heimild til að semja um kjarabætur nokkurra lögregluþjóna
Haraldur Johannessen, fyrrverandi ríkislögreglustjóri hafði ekki heimild til að semja við yfirlögregluþjóna og aðstoðaryfirlögregluþjóna um kjarabætur.

Mánuð til viðbótar í gæsluvarðhaldi vegna brunans
Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurðaði í dag karlmann á sjötugsaldri, sem var handtekinn í kjölfar brunans mannskæða á Bræðraborgarstíg, í áframhaldandi gæsluvarðhald til 6. ágúst.

Rannsókn á máli lektorsins lokið
Rannsókn á máli Kristjáns Gunnars Valdimarssonar lögmanns og fyrrverandi lektors við Háskóla Íslands er lokið.

Bíll lenti á skilti og ljósastaur áður en hann valt
Klukkan 21:14 í gærkvöldi barst lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu tilkynning um slys á Reykjanesbraut í Garðabæ.

Segjast hafa fylgt öllum reglum en fengið morðhótanir fyrir
Tékknesku jeppakarlarnir segjast ekki hafa komið hingað Íslands til að tæta upp íslenska náttúru.

Þungir dómar í Hvalfjarðargangamálinu
Jaroslava Davidsson, ekkja Ásgeirs Davíðssonar - Geira á Goldfinger, hefur verið dæmd í þriggja ára fangelsi fyrir aðild sína að Hvalfjarðargangamálinu svokallaða. Fimm aðrir sakborningar í málinu fá þriggja til fjögurra ára fangelsisdóma.

Fundu amfetamín, tvo hnífa og öxi
Lögregla á Suðurnesjum fann umtalsvert magn af meintu amfetamíni í húsleit sem gerð var í íbúðarhúsnæði í umdæminu fyrr í vikunni.

Máli jeppakallanna lauk með tiltali
Máli sem snýr að meintum utanvegaakstri tékkneskra jeppakalla er lokið af hálfu lögreglunnar á Suðurlandi.

Veittist að konu og barni og beit tvo lögreglumenn
Óskað var eftir skjótri aðstoð lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu klukkan 18:25 í gærkvöldi vegna karlmanns Breiðholti. Sá var í mjög annarlegu ástandi og hafði veist að barni og konu.

„Þeir verða stoppaðir ef að sést til þeirra“
Hópur tékkneskra jeppakalla má vænta tiltals frá lögreglu eftir að hafa birtir myndir af eigin utanvegaakstri

Tveir menn féllu 3,5 metra af vinnupalli
Vinnuslys varð í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum í gær þegar vinnupallur gaf sig og tveir menn féllu á jörðina.

Fær hvorki 650 þúsund krónurnar né iPhone-símann til baka
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum þarf ekki að aflétta haldi af 650 þúsund krónum í reiðufé og iPhone-síma sem lagt var hald á er lögregla handtók mann vegna gruns um að hann hafi ekið undir áhrifum fíkniefna.