Kompás

Kompás

Fréttaskýringaþáttur þar sem hin ýmsu málefni eru krufin til mergjar.

Fréttamynd

Mögu­leg tengsl við heilabilun

Sífellt fleiri rannsóknir benda til mögulegra tengsla milli langtímanotkunar vinsælla svefnlyfja og heilabilunar. Sérfræðingar leggja þó áherslu á að frekari rannsókna sé þörf. Hins vegar er þegar vel þekkt að meðal mögulegra aukaverkana algengra svefnlyfja eru minnisleysi og minnistruflanir.

Innlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Sér mest eftir full­yrðingum sínum um ein­hverfu

Stjörnuspekingurinn Gísli Bachman segir sig og fjölskyldu sína enn finna fyrir afleiðingum þess að fjallað var um ásakanir á hendur honum í fréttaskýringaþættinum Kompáss vegna hluta sem hann sagði í stjörnuspekitíma. Hann sér eftir hegðun sinni og orðum sem hann lét falla og hafi þurft að horfast í augu við sjálfan sig. Mest sjái hann eftir orðum sínum um einhverfu sem hafi litast af vanþekkingu og fáfræði.

Lífið
Fréttamynd

Skorti langtímarannsóknir á á­hrifum Ozempic og Wegovy

Læknir segir skynsamlegt að setja vinnureglur um hvenær skuli ávísa þyngdarstjórnunarlyfjum og hvenær ekki. Það muni taka nokkur ár í viðbót áður en góður skilningur fáist á langtímaávinningi og mögulegum aukaverkunum af lyfjunum.

Innlent
Fréttamynd

Sprautan um­deilda sem fólk er til­búið að borga fyrir út ævina

Sprenging hefur orðið í notkun þyngdarstjórnarlyfja á borð við Ozempic og Wegovy. Ætla má að þúsundir Íslendinga sprauti sig í von um að léttast. Lyfin eru sögð öflugt tól í baráttunni við offitu en aðgengi að þeim virðist stjórnlaust og læknir óttast misnotkun. Í Kompás skoðum við notkun þessara lyfja á Íslandi.

Innlent
Fréttamynd

Ætlaði að koma upp um barnaníðing en lenti í klóm hans

Karlmaður hefur verið dæmdur í átján mánaða fangelsi fyrir að nauðga pilti undir lögaldri. Pilturinn hafði ætlað að koma upp um barnaníðing eftir að hafa horft á fréttaskýringaþáttinn Kompás, þar sem barnaníðingar voru veiddir með notkun tálbeita.

Innlent
Fréttamynd

Hjólin éti upp árangurinn

Samhliða fjölgun rafhlaupahjólaslysa fjarlægjast Íslendingar markmið um fækkun umferðarslysa. Samfélagslegur kostnaður af umferðarslysum er talinn nema um fjörutíu milljörðum á ári.

Innlent
Fréttamynd

Tekur á móti minnst einum á mánuði vegna mis­taka við vara­fyllingu

Lýtalæknir segir minnst einn á mánuði leita til sín vegna mistaka við varafyllingu. Fagstéttir lýsa yfir þungum áhyggjum af því að heilbrigðisráðuneytið hafi ekki sett reglur um notkun fylliefna þrátt fyrir að bent hafi verið á alvarlega, og í sumum tilfellum hættulega stöðu í áraraðir. 

Innlent