Samningurinn felur í sér 6,75 prósent almenna launahækkun Kjarasamningur Samtaka atvinnulífsins við VR, Landssamband íslenskra verslunarmanna og samflot tækni- og iðnaðarmanna felur í sér 6,75 prósent almenna launahækkun sem afturvirk er frá 1. nóvember síðastliðnum. Skrifað var undir samningana fyrir stundu. Innlent 12. desember 2022 14:01
Bein útsending: Skrifað undir kjarasamninga í Karphúsinu Samkomulag náðist í nótt í kjaradeilu Samtaka atvinnulífsins við VR, Landssamband íslenskra verslunarmanna og samflot tækni- og iðnaðarmanna. Skrifað verður undir klukkan 13. Innlent 12. desember 2022 12:26
Boða til blaðamannafundar í Ráðherrabústaðnum klukkan hálf þrjú Forsætisráðherra, fjármála- og efnahagsráðherra og innviðaráðherra hafa boðað til blaðamannafundar í klukkan hálf þrjú í dag þar sem kynnt verður yfirlýsing stjórnvalda í tengslum við kjarasamninga á almennum vinnumarkaði. Innlent 12. desember 2022 11:57
Samningar óvænt í höfn í Karphúsinu Samningar hafa tekist í kjaraviðræðum Samtaka atvinnulífsins við VR, LÍV – Landsamband íslenskra verslunarmanna, samflot iðnaðar- og tæknifólks. Þetta staðfestir Elísabet S. Ólafsdóttur aðstoðarríkissáttasemjari. Skrifað verður undir samninga klukkan 13 og verður Vísir í beinni útsendingu frá Karphúsinu. Innlent 12. desember 2022 11:26
Fundi lauk á fimmta tímanum án samnings Fundi samninganefnda Samtaka atvinnulífsins og fulltrúa VR, Landssambands verslunarmanna og samflots iðnaðar- og tæknimanna lauk á fimmta tímanum í nótt án þess að samningar hefðu náðst. Innlent 12. desember 2022 06:02
Maraþonfundur hjá sáttasemjara stendur enn Enn einn daginn er fundað fram á kvöld í kjaradeilu Samtaka Atvinnulífsins við VR, LÍV og samflot iðn- og tæknifólks. Samkvæmt heimildum fréttastofu er allt eins líklegt að fundað verði áfram inn í nóttina. Innlent 11. desember 2022 22:54
Spennuþrungið andrúmsloft í Karphúsinu og viðræður á viðkvæmu stigi Ljóst er að fundað verður fram á kvöld í Karphúsinu en fjölmiðlabann er þar í gildi að beiðni ríkissáttarsemjara. Innlent 11. desember 2022 19:59
Reynt til þrautar að ná samningum í dag Kjaraviðræður aðila vinnumarkaðarins halda áfram í dag en boðaður var fundur hjá Ríkissáttasemjara núna klukkan 10:00. Innlent 11. desember 2022 10:45
„Þegar þolinmæðin þrýtur þá tekur þrautseigjan við“ Fundað var fram á kvöld í Karphúsinu í dag þar sem VR, samflot iðn- og tæknifólks og samtök iðnaðarins settust niður saman, enda mikið undir. Ríkissáttasemjari segir vinnuna reyna á þrautseigju fólks. Innlent 10. desember 2022 21:00
Svartsýnni nú en fyrir helgi Formaður VR segir enn svartsýnni á árangur í kjaraviðræðum í dag en hann var í gær. Viðræður virðast hreinlega ekkert þokast. Samflot VR og iðnaðarmanna fundar nú áfram með samtökum atvinnulífsins, fundur stóð fram eftir kvöldi í gær, en helgin mun ráða úrslitum um það hvort skammtímasamningur sé mögulegur. Innlent 10. desember 2022 12:10
„Maður vonar að vöfflurnar komi hér um helgina“ Jafnvel þótt samningar tækjust í kvöld á milli samflots VR og iðnaðarmanna við Samtök atvinnulífsins, þyrfti helgina til að klára þá. Það fór ágætlega á með þeim Kristjáni Þórði Snæbjarnarsyni formanni Rafiðnaðarsambands Íslands og Halldóri Benjamín Þorbergssyni framkvæmdastjóra Samtaka Atvinnulífsins fyrr í kvöld þegar fréttastofa Stöðvar 2 tók þá tali. Innlent 9. desember 2022 21:23
Atkvæðagreiðsla um umtalaðan samning hafin og hljóðið gott Formenn þriggja félaga innan Starfsgreinasambandsins í ólíkum landshlutum segja jákvætt hljóð í sínu félagsfólki gagnvart kjarasamningnum við Samtök atvinnulífsins. Formaður Eflingar segir samninginn ófullnægjandi en myndi ekki leggjast svo lágt að beita sér fyrir því að einstaka félagsmenn greiddu atkvæði gegn samningnum. Innlent 9. desember 2022 16:18
Þolinmæðin orðin lítil og gera þurfi lokaatlögu að samningi Kristján Þórður Snæbjarnarson, forseti ASÍ, segir ljóst að þolinmæðin hjá liðsmönnum hans sé orðin lítil í kjaraviðræðum við Samtök atvinnulífsins. Innlent 9. desember 2022 11:17
Aðilar sem semji við SA þurfi að geta treyst því að línan haldi Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir að eftir eigi að útkljá mörg mál á fundi með samfloti iðn-og tæknifólks, VR og LÍV. Innlent 9. desember 2022 10:56
Samningur SGS: Kostir og gallar Forysta Starfsgreinasambandsins undirritaði nýjan kjarasamning við Samtök atvinnulífsins 1. desember síðastliðinn. Sautján af nítján aðildarfélögum SGS eru aðilar að samningnum. Lítið hefur komið fram um innihald samningsins en umræðan mest snúist um persónulegar kýtingar og aukaatriði, eins og hvort innihaldi hans hafi verið lekið til fjölmiðla fyrir undirritun. Skoðun 8. desember 2022 13:01
„Við erum að ræða saman og það er jákvætt“ Formaður VR segir að allir séu reyna að hugsa í lausnum en tíminn sé óneitanlega að hlaupa frá þeim og líklegt að framhaldið ráðist á morgun. Í dag er eiginlegur sáttafundur hjá ríkissáttasemjara ekki á dagskrá hjá VR, LÍV, samfloti iðnaðar- og tæknimönnum með Samtökum atvinnulífsins en þess í stað eru vinnuhópar á þeirra vegum að störfum í dag. Innlent 8. desember 2022 11:52
Verði að sjá til hvort vinnu ljúki fyrir jól Samflot iðnaðar- og tæknimanna og VR fundar fram á kvöld í Karphúsinu. Staðan er á viðkvæmu stigi en ríkissáttasemjari býst ekki við því að fundað verði langt fram eftir í kvöld. Innlent 7. desember 2022 20:03
Ætlar ekki niður á fjóra fætur til að ná samningi Formaður VR segir tímarammann fyrir skammtímasamning vera mjög knappan en klára þurfi slíkan samning á allra næstu dögum. Ef það takist ekki þurfi að ræða langtímasamninga og því kunni að fylgja átök. Þó markmiðið sé að klára samninga fljótt og vel segist formaðurinn ekki ætla að fara niður á fjóra fætur til að ná samningi fyrir jól. Innlent 7. desember 2022 14:29
Kallar eftir neyðarlögum um leigufélög og myndarlegri aðkomu ríkisins Formaður VR segir að það muni líklega ekki taka lengri tíma en daginn í dag til að meta hvort flötur sé á samningi við Samtök atvinnulífsins. Hann segir gríðarlega mikilvægt að ríkisstjórnin liðki fyrir viðræðum og helst með neyðarlögum um leigufélög. Staða til dæmis leigjenda og fólks með húsnæðislán með breytilegum vöxtum sé alvarlegri en svo að kjarasamningar einir og sér dugi til. Innlent 7. desember 2022 13:27
Efling vísar kjaradeilu til ríkissáttasemjara Stéttarfélagið Efling hefur vísað kjaradeilu sinni við Samtök atvinnulífsins (SA) til ríkissáttasemjara. Formaður Eflingar segir það óhjákvæmilega aðgerð. Innlent 7. desember 2022 12:58
Seðlabankastjóri segir að fyrstu kjarasamningarnir séu „mjög jákvæð tíðindi“ Seðlabankastjóri sagði að fyrstu kjarasamningar sem gerðir voru í þessari lotu séu „mjög jákvæð tíðindi“ og auki fjármálastöðugleika. Hann sagði ennfremur bankarnir væru ekki lengur að fá „ódýra fjármögnun“ erlendis eftir áratug þar sem vextir voru neikvæðir í okkar helstu viðskiptalöndum. „Bankarnir verða að varpa þessu áfram til íslenskra aðila,“ sagði Ásgeir. Innherji 7. desember 2022 12:12
Voru ekki beðin um að fresta undirskrift: „Sirkus sem heldur bara áfram“ Formaður Framsýnar segir ekki rétt að forkólfar Framsýnar á Húsavík hafi verið beðnir um að fresta því að skrifa undir samning Starfsgreinasambandsins við Samtök Atvinnulífisins. Fulltrúarnir hafi einfaldlega ekki komist suður til að skrifa undir. Umræða um að Framsýn hafi ekki ætlað að vera með sé hluti af tilraunum fólks til að grafa undan samningunum. Innlent 7. desember 2022 10:14
Vilja stytta vinnuvikuna enn frekar Friðrik Jónsson, formaður BHM segir styttingu vinnuvikunnar hafa tekist mjög vel. Starfsfólk sé ánægt með breytinguna. Nú þurfi vinnulöggjöfin að breytast og óskað sé eftir því að vinnuvikan sé stytt enn frekar. Innlent 6. desember 2022 23:18
Ekki tímabært að ræða frekari styttingu Ekki er tímabært að ræða frekari styttingu á vinnuvikunni líkt og verkalýðshreyfingin kallar eftir, að mati fjármálaráðherra. Hann segir útfærsluna hafa verið áskorun. Innlent 6. desember 2022 19:20
Fundað eftir hádegi á morgun og fram eftir degi Samninganefndir VR, iðnaðar- og tæknimanna ásamt Landssambandi íslenskra verslunarmanna munu funda með Samtökum atvinnulífsins á morgun klukkan 13:15 og fram eftir degi. Innlent 6. desember 2022 18:29
Fagnar samningi SGS og vonar að hann ryðji brautina fyrir aðra Aðgerðir til að liðka fyrir kjaraviðræðum sem snúa að barnabótum og húsnæðismálum eru til umræðu í þjóðhagsráði að sögn fjármálaráðherra. Hann kveðst ánægður með nýgerðan samning Starfsgreinasambandsins. Innlent 6. desember 2022 15:24
Hefðu átt að fara sér hægar Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, gagnrýnir þann flýti sem settur var í að loka kjarasamningi milli Samtaka Atvinnulífsins og Starfsgreinasambandsins. Menn hefðu átt að fara sér hægar og ekki glutra niður góðu tækifæri. Innlent 6. desember 2022 13:18
Forystufólk einbeiti sér að eigin samningum í stað þess að rífa niður aðra Formaður Starfsgreinasambandsins segir formann Eflingar hafa tekið meðvitaða ákvörðun um að vera ekki í samfloti við aðra fyrir kjaraviðræður og leggur til að hún einbeiti sér að því að ná kjarasamnningi handa sínu fólki frekar en að rífa niður samning Starfsgreinasambandsins. Formaður Eflingar segir gagnrýni sína fullkomlega réttmæta og segir samninginn til marks um óþolinmæði. Innlent 5. desember 2022 23:09
Ekki mikill tími til stefnu Von um skammtímasamning er úti ef ekki tekst að semja á næstu dögum að mati formanns VR. Mikil ólga ríkir innan verkalýðshreyfingarinnar eftir að Starfsgreinasambandið samdi við Samtök atvinnulífsins um helgina. Innlent 5. desember 2022 18:43
Vill einbeita sér að samningum í stað þess að munnhöggvast við félaga sína Formaður VR segir stöðuna sem upp er komin eftir deilur milli formanns Eflingar og formanns Starfsgreinasambandsins sorglega og eitthvað sem hann átti ekki von á. Sjálfur ætli hann ekki að taka afstöðu og munnhöggvast við félaga sína en er þó gagnrýninn á samning Starfsgreinasambandsins við Samtök atvinnulífsins. Innlent 5. desember 2022 18:07