Fjórir tímar dugðu ekki og óvíst hvenær næsti fundur er Fundi Eflingar og Samtaka atvinnulífsins (SA) í Karphúsinu í gærkvöldi lauk rétt eftir miðnætti. Engin niðurstaða náðist, engin miðlunartillaga er í sjónmáli og óvíst er hvenær næsti fundur fer fram. Ríkissáttasemjari leggst nú undir feld að nýju. Innlent 28. febrúar 2023 06:31
Vaktin: Fundi slitið og ríkissáttasemjari lagstur undir feld Efling og Samtök atvinnulífsins (SA) funda í Karphúsinu ásamt settum ríkissáttasemjara í kvöld. Fylgst verður með þróun mála í vaktinni. Innlent 27. febrúar 2023 19:31
598 Þegar við undirrituðum skammtímasamning í desember síðastliðinn tóku einhverjir eftir að ég gaf ekki kost á mér í myndatöku með viðsemjendum okkar eftir undirritun samninga. Svo vel tóku sumir eftir að þeim þykir þetta athæfi mitt teljast til verstu synda í formannstíð minni. Skoðun 27. febrúar 2023 16:00
Agnieszka og Ólöf Helga á leið úr stjórn Eflingar Ekkert framboð barst til stjórnar stéttarfélagsins Eflingar fyrir utan lista sem trúnaðarráð samþykkti nýlega. Sá listi er sjálfkjörinn og hverfa Agnieszka Ewa Ziółkowska varaformaður og Ólöf Helga Adolfsdóttir ritari úr stjórninni. Innlent 27. febrúar 2023 12:58
Boðar deiluaðila á fund: Verkbanni frestað um fjóra daga Settur ríkissáttasemjari í kjaradeilu Eflingar og Samtaka atvinnulífsins hefur boðað samninganefndir á fund sinn í Karphúsinu í kvöld. Efni fundarins er möguleg ný miðlunartillaga en verkbanni SA hefur verið frestað um fjóra daga. Innlent 27. febrúar 2023 11:45
Kallar eftir viðbrögðum stjórnarliða við „efnahagslegum glæp“ Formaður Eflingar segir yfirvofandi verkbann Samtaka atvinnulífsins gagnvart Eflingafélögum vera grófan og skelfilegan efnahagslegan glæp. Hann segir magnað að enginn úr liði ríkisstjórnarinnar hafi neitt að segja um málið. Innlent 27. febrúar 2023 10:09
Að dýpka gjána Efling stendur nú í kjarabaráttu og ég óska þeim góðs gengis og vona að félagsmenn Eflingar nái skikkanlegum kjarabótum með sínum sjálfstæða samningarétti. Skoðun 27. febrúar 2023 08:31
Sakar SA um gerræði og boðar aðgerðir gegn verkbanni Formaður Eflingar sakar Samtök atvinnulífsins um gerræðislegar hótanir með verkbanni á félagsmenn þess. Efling ætlar að boða til aðgerða til að mótmæla verkbanninu þegar það tekur gildi á fimmtudag. Innlent 27. febrúar 2023 07:00
Ræðum orsökina en ekki afleiðinguna Umræðan sem heltekur þjóðina í dag eru kjaraviðræður Eflingar. Ólíklegt er að kaffistofa finnist þar sem verkföll og verkbönn hafa ekki verið rædd. Fólk flykkjast í fylkingar með og á móti aðferðafræði og baráttu Eflingar. Baráttu til árs. Barátta sem mun endurtaka sig aftur og aftur með skömmu millibili. Skoðun 27. febrúar 2023 07:00
Ógnarstjórn Samtök atvinnulífsins hafa lagt ótímabundið verkbann á Eflingu. Í því felst hótun um að félagsmenn Eflingar á almenna vinnumarkaðinum verða sviptir launum sínum frá og með fimmtudeginum í næstu viku, 2. mars. Skoðun 27. febrúar 2023 07:00
Veitingamönnum beri engin lagaleg skylda til að fylgja verkbanni Forseti ASÍ gerir ráð fyrir að niðurstaða vegna boðunar verkbanns SA, sem þau telja ólögmæta, liggi fyrir í Félagsdómi áður en verkbannið á að hefjast á fimmtudag. Framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í veitingarekstri segir veitingamenn ekki þurfa að hlýða boðuðu verkbanni. Þeim beri ekki lagaleg skylda til þess þar sem samtökin telja sig ekki hluta af kjaradeilunni. Samtökin hafa vísað viðræðum við Eflingu um eigin samninga til ríkissáttasemjara. Innlent 26. febrúar 2023 21:30
Díselolía farin að klárast og skert þjónusta í boði Um fjórðungur bensínstöðva N1 er með skerta þjónustu sem stendur og díselolía farin að tæmast á nokkrum stöðvum. Ekki sé þó sami hamagangur hjá neytendum og í upphafi verkfalls og því gangi hægar á birgðirnar. Innlent 26. febrúar 2023 14:40
„Það þarf að bregðast hratt við“ Forseti ASÍ segir stefnu sambandsins gegn Samtökum atvinnulífsins vegna boðaðs verkbanns varða verkalýðshreyfinguna í heild en þau höfða málið fyrir hönd Eflingar. Hann býst við niðurstöðu fyrir fimmtudag, þegar verkbannið á að hefjast. Málið verður þingfest síðdegis á morgun og mun dómurinn skera úr um hvort boðunin hafi verið með lögmætum hætti. Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins er ósammála ASÍ og segir að þau muni taka til varna. Innlent 26. febrúar 2023 12:22
Félagsdómur verði snar í snúningum Kristján Þórður Snæbjarnarson forseti ASÍ segir að gera megi ráð fyrir að Félagsdómur kveði upp dóm í máli sambandsins gegn Samtökum atvinnulífsins í vikunni. Verkbann tekur að öllu óbreyttu gildi hinn 2. mars næstkomandi. Innlent 25. febrúar 2023 21:18
Mikilvægt að samningsaðilar nýti ljóstíruna sem birtist í gær Stjórnvöld ættu ekki að stíga inn í kjaradeilu Eflingar og Samtaka atvinnulífsins að svo stöddu, að mati formanns Viðreisnar. Þau þurfi þó að skerpa og auka heimildir ríkissáttasemjara þar sem vinnuumhverfi hans sé óviðunandi. Ný miðlunartillaga, sem ríkissáttasemjari íhugar nú, megi ekki leiða til höfrungahlaups og verðbólguspírals. Það veki vonir að eitthvað hafi rofað til í gær. Innlent 25. febrúar 2023 21:01
Alþýðusamband Íslands stefnir SA vegna verkbanns Alþýðusamband Íslands hefur ákveðið að stefna SA fyrir Félagsdómi til þess að fá boðað verkbann gegn félagsfólki Eflingar ógilt. Alþýðusambandið telur að ákvörðun um verkbann sé ógild. Málið verður þingfest á mánudaginn. Innlent 25. febrúar 2023 18:34
Efling beri ekki ábyrgð á staðfestri upplýsingagjöf Viðar Þorsteinsson, fræðslu- og félagsmálastjóri Eflingar, er harðorður í garð fyrirtækja innan Samtaka atvinnulífsins vegna lélegrar upplýsingagjafar í aðdraganda verkbanns. Allur gangur sé á hvort fyrirtæki hafi upplýst starfsfólk um afstöðu sína til verkbannsins. SA hafa áréttað að fyrirtæki hafi ekkert val um hvort taka eigi þátt í verkbanninu eða ekki. Innlent 25. febrúar 2023 14:56
„Ef að samfélagið fer að stöðvast þá verða stjórnvöld að grípa inn í“ Formaður Miðflokksins segir mikilvægt að ríkisstjórnin sé undirbúin fyrir það að hún gæti þurft að höggva á hnútinn í kjaradeilunni. Miðlunartillaga væri ein lausn og ríkisstjórnin þurfi í hið minnsta að vera tilbúin enda geti tekið tíma að bregðast við. Þingið og ríkisstjórnin geti ekki litið fram hjá vandanum þegar allt er að sigla í strand. Innlent 25. febrúar 2023 14:09
Með eða á móti Eflingu (og Sólveigu Önnu) Fyrst þegar Sólveig Anna tók við sem formaður Eflingar gat ég ekki annað en dást að henni fyrir skelegga framkomu og baráttuvilja hennar fyrir betri kjörum félagsmanna Eflingar. Hvernig hún barðist fyrir starfsfólk á leikskólum og annara í sínu verkalýðsfélagi. Hvernig hún bauð viðsemjendum sínum birginn og náði fram góðum samningum. Skoðun 25. febrúar 2023 14:01
Ekkert leyndarmál að ný miðlunartillaga sé í vinnslu Settur ríkissáttasemjari í kjaradeilu Eflingar og Samtaka atvinnulífsins segir ekkert leyndarmál að hann vinni að nýrri miðlunartillögu. Hann hefur ekki tekið ákvörðun um boðun nýs fundar í deilunni. Forsvarsmenn deiluaðila segjast tilbúinir að fresta verkbönnum og verkföllum ef kallið kemur. Innlent 25. febrúar 2023 12:05
„Ég held að það sendi boltann til löggjafans“ Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir túlkun Landsréttar á vinnulöggjöf í tengslum við miðlunartillögu ríkissáttasemjara nýja af nálinni. Hún segir brýnt að endurskoða löggjöf og eyða óvissu. Innlent 24. febrúar 2023 21:36
Sólveig Anna gæti fallist á nýja miðlunartillögu Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins og formaður Eflingar eru sammála um að tíminn til að ná samningum áður en Alþingi setji lög á deilu þeirra sé ekki langur og kostirnir ekki margir. Formaður Eflingar væri tilbúinn að setja rétt fram borna miðlunartillögu í dóm félagsmanna og bæði eru til í að ýmist aflýsa eða fresta verkföllum og verkbanni, boði ríkissáttasemjari þau til sáttafundar. Innlent 24. febrúar 2023 19:31
Stórhættulegt og beinlínis ólöglegt Þórður Guðjónsson framkvæmdastjóri Skeljungs segist hafa séð fleiri dæmi um að fólk dæli þúsundum lítra af eldsneyti á opna plasttanka. Hann biður fólk að hætta því hið snarasta enda athæfið bæði stórhættulegt og beinlínis ólöglegt. Innlent 24. febrúar 2023 18:37
Sólveig Anna og Halldór Benjamín til í að slíðra sverðin Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar og Halldór Benjamín Þorbergsson framkvæmdastjóri SA lýstu því yfir í Pallborði Vísis að þau væru tilbúin að aflýsa eða fresta bæði boðuðu verkfalli og vinnubanni ef boð komi frá sáttasemjara um að tekinn verði upp þráður í samningaviðræðum. Innlent 24. febrúar 2023 15:17
Boði ríkissáttasemjari til fundar fresti Efling og SA verkbanni og verkföllum Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar og Halldór Benjamín Þorbergsson framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins takast á um stöðuna í kjaradeilu þeirra í beinni útsendingu í Pallborðinu á Vísi og Stöð 2-Vísi klukkan tvö í dag. Ekki sér fyrir endann á deilunni sem harðnar dag frá degi. Innlent 24. febrúar 2023 12:31
Þetta þarftu að vita um kjaradeiluna Efling hefur sýnt okkur veikleika vinnumarkaðslaganna og Samtök atvinnulífsins er að sýna svo ekki sé um villst að ein samtök fyrir allt atvinnulífið er virkilega slæm hugmynd. Skoðun 24. febrúar 2023 12:00
Þetta er ekki eðlileg framkoma Sólveig Anna Jónsdóttir fer mikin hvar sem hún kemur. Hún rekur fólk sem hún vill ekki vinna með og svívirðir það ef hún getur ekki rekið það. Skoðun 24. febrúar 2023 07:31
„Þori ekki að ímynda mér hvernig ástandið verður eftir helgi” Bensínbirgðir tæmast hratt og forsvarsmenn helstu stöðva sjá fram á að birgðir af díselolíu verði senn á þrotum. Framkvæmdastjóri N1 segir að stöðvarnar munu loka hver á fætur annarri á næstu dögum og hefur áhyggjur af ástandinu sem kann að skapast eftir helgi. Innlent 23. febrúar 2023 23:01
„Við vorum úthrópuð kolruglað lið“ Formaður VR segir alveg ljóst að þeir kjarasamningar sem SA hafi þegar gert við önnur stéttarfélög en Eflingu séu ekki til þess fallnir að stýra viðræðum samtakanna við Eflingu nú. Um það hafi engin krafa verið gerð, né heldur samkomulag. Hann segir kjarabaráttuna ekki eiga að snúast um persónur og leikendur og hvetur fólk til að setja sig í spor þeirra lægst launuðu í þjóðfélaginu. Innlent 23. febrúar 2023 21:19
Efling vill að stjórnvöld þrýsti SA að samningaborðinu Efling krefst þess að stjórnvöld þrýsti á Samtök atvinnulífsins að draga boðað verkbann samtakanna til baka. Félagið boðaði til fjölmenns samstöðufundar í dag og hafði síðan uppi mótmæli við forsætisráðuneytið og Alþingi. Innlent 23. febrúar 2023 19:56