FH-ingar töpuðu 5-1 fyrir BATE í Hvíta-Rússlandi FH-ingar töpuðu illa fyrir BATE Borisov í fyrri leik liðanna í 2. umferð undankeppni Meistaradeildarinnar en leikið var í Borisov í Hvíta-Rússlandi í dag. BATE-liðið vann leikinn 5-1 og er komið með annan fótinn inn í næstu umferð. Íslenski boltinn 14. júlí 2010 17:45
Ísland hækkar á FIFA-listanum Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu tekur stórt stökk á nýjum styrkleikalista FIFA. Ísland er komið í 79. sæti af 207 þjóðum á listanum og hækkar sig um ellefu sæti frá síðasta lista. Kína er í sætinu á undan Íslandi og Mósambík í sætinu á eftir. Íslenski boltinn 14. júlí 2010 11:45
Aron með þrennu og sigurmark í uppbótartíma Fjölnismenn unnu 4-3 sigur á Leikni í 1. deild karla í kvöld og komu þar með í veg fyrir að Leiknismenn kæmust aftur á topp deildarinnar. Botnlið Gróttu vann 1-0 sigur á Njarðvík og er nú aðeins tveimur stigum frá öruggu sæti í deildinni. Íslenski boltinn 13. júlí 2010 21:56
Fylkir skoraði fimm á móti Blikum og Stjarnan burstaði Aftureldingu Fjórir leikir fóru fram í Pepsi-deild kvenna í kvöld og það voru skoruð alls 26 mörk í þessum leikjum. Valskonur eru komnar með sjö stiga forustu á toppnum eftir 7-2 sigur á Haukum en Fylkir og Stjarnan unnu flotta sigra í kvöld, Fylkir vann 5-3 sigur á Blikum og Stjarnan burstaði Aftureldingu 6-0. Íslenski boltinn 13. júlí 2010 20:42
Víkingur frá Ólafsvík sækir Íslandsmeistarana heim Spútniklið VISA-bikarkeppni karla, Víkingur frá Ólafsvík, mun mæta Íslandsmeisturum FH í undanúrslitum keppninnar en dregið var í höfuðstöðvum KSÍ nú í hádeginu. Íslenski boltinn 13. júlí 2010 12:26
Valur mætir Þór/KA í stórleik undanúrslita VISA-bikars kvenna Nú í hádeginu var dregið í undanúrslit í VISA-bikarkeppni kvenna. Í pottinum voru lið Vals, Þórs/KA, Stjörnunnar og ÍBV sem leikur í 1. deildinni. Íslenski boltinn 13. júlí 2010 12:24
Meiðsli hjá Valskonum Topplið Vals í Pepsi-deild kvenna þarf að spjara sig án tveggja sterkra leikmanna sem verða frá næstu vikurnar vegna meiðsla. Íslenski boltinn 13. júlí 2010 11:34
Mateja Zver best í fyrri hluta Pepsi-deildar kvenna Nú fyrir hádegi var tilkynnt um val á bestu leikmönnum fyrri umferðar Pepsi-deildar kvenna en það eru þjálfarar deildarinnar og Rúv sem standa að kjörinu. Íslenski boltinn 13. júlí 2010 11:19
KR og Fram í undanúrslitin annað árið í röð - myndasyrpa KR og Fram komust í gærkvöldi í undanúrslit VISA-bikars karla ásamt Víkingum úr Ólafsvík. Þetta er þriðja árið í röð sem KR-ingar komast svona langt í bikarnum en Framarar voru einnig í undanúrslitunum í fyrra. Íslenski boltinn 13. júlí 2010 06:00
Bjarni: Dramatíkin var með ólíkindum í lokin „Jú, jú," svaraði Bjarni Jóhannsson, þjálfari Stjörnunnar þegar Valtýr Björn Valtýsson, íþróttafréttamaður Stöðvar 2 Sport spurði hann hvort tapið á móti Víkingi Ólafsvík í kvöld hafi verið áfall. Stjarnan tapaði þá 4-5 í vítakeppni fyrir 2. deildarliðinu. Íslenski boltinn 12. júlí 2010 23:21
Reynir: Betra liðið vann í kvöld Valsmenn eru fallnir úr bikarkeppninni eftir 3-1 tap gegn erkifjendunum í Fram í kvöld. Mörk Framara komu öll á átta mínútna kafla í upphafi seinni hálfleiks. Íslenski boltinn 12. júlí 2010 23:17
Þorsteinn hetja Víkinga í kvöld: Ég titra bara af spenningi Víkingar úr Ólafsvík eru komnir í undanúrslit VISA-bikars karla eftir 5-4 sigur á Stjörnunni í vítakeppni í kvöld. Íslenski boltinn 12. júlí 2010 23:13
Halldór: Ætli ég setji ekki fleiri mörk í næstu leikjum „Það er leiðinlegt að lenda í langri bið eftir sigri en við vorum svo hungraðir í dag að ekkert annað en sigur kom til greina," sagði Halldór Hermann Jónsson sem átti flottan leik þegar Fram vann Val 3-1 í bikarnum í kvöld. Íslenski boltinn 12. júlí 2010 23:07
Hallur: Endurkoman hefði mátt byrja fyrr "Endurkoman hefði mátt byrja fyrr hjá okkur," viðurkenndi Hallur Hallsson, fyrirliði Þróttar eftir 3-2 tapið gegn KR í kvöld. Íslenski boltinn 12. júlí 2010 22:41
Logi: Menn voru farnir að spara kraftana fyrir Evrópuleikinn Logi Ólafsson, þjálfari KR, var sáttur með leik liðsins í 90 mínútur í kvöld. KR var 3-0 yfir gegn Þrótti en fékk á sig tvö mörk í lokin og var heppið að fá það þriðja ekki á sig. Íslenski boltinn 12. júlí 2010 22:26
Víkingar úr Ólafsvík í undanúrslit eftir sigur á Stjörnunni í vítakeppni Víkingar úr Ólafsvík urðu í kvöld fyrsta C-deildarfélagið í sögunni til þess að komast í undanúrslit bikarkeppninnar eftir 5-4 sigur í vítakeppni í ótrúlegum fótboltaleik í Ólafsvík. Íslenski boltinn 12. júlí 2010 19:00
Umfjöllun: Fram í undanúrslitin eftir að hafa yfirspilað Val Framarar tryggðu sér sæti í undanúrslitum með 3-1 sigri á Val í átta liða úrslitum VISA-bikars karla í kvöld. Fram komst þar með í undanúrslitin annað árið í röð. Íslenski boltinn 12. júlí 2010 18:15
Ótrúlegt sjálfsmark markmanns HK um helgina - myndband Ögmundur Ólafsson markmaður HK vill eflaust gleyma leiknum sem hann spilaði gegn Þór á Akureyri um helgina sem fyrst. Hann byrjaði leikinn á því að skora ótrúlegasta sjálfsmark íslenska boltans í ár og það var aðeins byrjunin á hrakförum hans í leiknum. Íslenski boltinn 12. júlí 2010 14:00
Umfjöllun: Lánið lék við kærulausa KR-inga KR var stálheppið að komast í undanúrslit VISA-bikars karla í kvöld. Liðið vann Þrótt 3-2 á heimavelli en fékk á sig tvö mörk undir lokin og það þriðja kom ekki þar sem Þróttarar skutu í eigin mann á línu KR-inga. Íslenski boltinn 12. júlí 2010 13:32
Helgi: Víkingar róa allir í sömu átt „Það eru núna komnir fjórir sigurleikir í röð í deildinni sem er jákvætt. Það er mjög mikilvægt að halda haus,“ sagði Helgi Sigurðsson sem skoraði bæði mörk Víkings í 2-0 sigri á KA í 1. deildinni í gær. Víkingur deilir þar með efsta sætinu með Leikni. Íslenski boltinn 12. júlí 2010 07:30
Ejub: Stór dagur fyrir ungu strákana í Ólafsvík „Ef við náum að komast yfir þá lofa ég hörkuleik,“ segir Ejub Purisevic, þjálfari Víkings í Ólafsvík sem etur kappi við Stjörnuna í átta liða úrslitum VISA-bikarsins í kvöld. Leikurinn fer fram í Ólafsvík og verður sýndur beint á Stöð 2 Sport. Íslenski boltinn 12. júlí 2010 06:30
Víkingur á toppinn - Þór skoraði sex mörk gegn HK Tveir leikir voru í 1. deild karla í dag. Víkingur vann 2-0 sigur gegn KA á heimavelli þar sem Helgi Sigurðsson skoraði bæði mörkin og þá vann Þór Akureyri sigur á HK í níu marka leik fyrir norðan, 6-3. Íslenski boltinn 11. júlí 2010 16:17
Sigursteinn Gíslason: Besti kækur sem þú færð er að vinna Sigursteinn Gíslason, þjálfari Leiknis, var ánægður með sigurinn gegn Fjarðabyggð í dag. Eðlilega, hann setti Leikni aftur á topp deildarinnar þar sem það sigur eitt og yfirgefið, í það minnsta þar til á morgun. Íslenski boltinn 10. júlí 2010 16:36
Umfjöllun: Þolinmæðissigur Leiknis í ausandi rigningu Leiknismenn styrktu stöðu sína á toppi 1. deildar karla með baráttusigri á Fjarðabyggð í dag. Leiknum leik með 1-0 sigri þar sem Brynjar Benediktsson skoraði eina markið og kórónaði þar með leik sinn í dag. Íslenski boltinn 10. júlí 2010 16:18
Tryggvi: Verð seint valinn vinsælasti keppandinn í deildinni Tryggvi Guðmundson ætlaði að fljúga með Keflavíkurliðinu í land eftir 2-1 sigur ÍBV á fimmtudaginn. Hann hætti þó snarlega við þar sem Keflvíkingar voru brjálaðir út í Tryggva. Ástæðan er sú að hann var viðriðinn atvik sem lauk með því að Guðjón Árni Antoníusson fékk rautt spjald áður en ÍBV tryggði sér sigur. Íslenski boltinn 10. júlí 2010 10:15
Kristján: Ætlaði ekki að kýla Matta Kristján Hauksson, fyrirliði Fram, fékk að líta rauða spjaldið í leiknum gegn FH á fimmtudag.Matthías Vilhjálmsson FH-ingur hékk þá í treyju Kristjáns sem í kjölfarið baðaði út handleggnum sem endaði í andlitinu á Matthíasi. Íslenski boltinn 10. júlí 2010 08:45
1. deild karla: Jafnt hjá ÍA og ÍR Þrír leikir fóru fram í 1. deild karla í knattspyrnu í kvöld. ÍR gerði 1-1 jafntefli við ÍA og komst þar með aftur upp að hlið toppliði Leiknis og Víkinga en hefur leikið tveimur leikjum meira. Íslenski boltinn 9. júlí 2010 21:52
ÍBV komst í undanúrslit í VISA-bikar kvenna Átta liða úrslit VISA-bikars kvenna fóru fram í kvöld. Valur, Stjarnan, Þór/KA og ÍBV tryggðu sér sæti í undanúrslitum keppninnar. Íslenski boltinn 9. júlí 2010 21:13
Rasmus Christiansen hjá ÍBV út næsta sumar Danski miðvörðurinn Rasmus Christiansen verður áfram hjá ÍBV út næsta tímabil. Christiansenhefur leikið mjög vel með liðinu í sumar en hann var í láni frá danska úrvalsdeildarliðinu Lyngby. Íslenski boltinn 9. júlí 2010 19:45
Vítaklúður Arnars - myndband Arnar Gunnlaugsson fékk gullið tækifæri í gær til þess að tryggja Haukum sinn fyrsta sigur í Pepsi-deildinni í ár. Hann tók þá vítaspyrnu í stöðunni 2-2 en klikkaði á spyrnunni. Íslenski boltinn 9. júlí 2010 14:30