

HM í handbolta karla fer fram í Króatíu, Danmörku og Noregi dagana 14. janúar til 2. febrúar 2025.
„Það eru blendnar tilfinningar eftir leikinn gegn Grænhöfðaeyjum þó svo við hefðum unnið stórt. Það kom tíu mínútna kafli þar sem var deyfð yfir þessu,“ sagði Gísli Þorgeir Kristjánsson á hóteli landsliðsins í Zagreb í dag.
Staffan Olsson stýrði hollenska landsliðinu til sigurs á Norður-Makedóníu á HM í handbolta í kvöld en það gekk mikið á í leiknum í Varazdin í Króatíu og það má búast við eftirmálum af honum.
Dagur Sigurðsson, þjálfari Króatíu, og Alfreð Gíslason, þjálfari Þýskalands, eru að byrja vel með sín lið á heimsmeistaramótinu í handbolta en báðir hafa fagnað tveimur sigrum í fyrstu tveimur leikjum sínum.
Aron Pálmarsson, fyrirliði íslenska handboltalandsliðsins, er klár í slaginn eftir að hafa misst af fyrsta leik liðsins á móti Grænhöfðaeyjum.
Egyptaland, Portúgal og Holland fögnuðu sigri í öðrum leik sínum á heimsmeistaramótinu í handbolta í dag en Tékkar og Pólverjar gerðu jafntefli í fjórða leiknum sem er lokið í dag.
Snorri Steinn Guðjónsson, landsliðsþjálfari karla í handbolta, var nokkuð brattur þegar fréttamenn bar að garði á hóteli landsliðsins í Zagreb í dag. Sigur á Grænhöfðaeyjum er að baki og stefnt að öðrum eins gegn Kúbu á morgun.
Slök prentvél í Kristianstad orsakaði það að Sveinn Jóhannsson gat ekki spilað meira en raun ber vitni í leik Íslands og Grænhöfðaeyja í fyrsta leik strákanna okkar á HM í Zagreb.
Sérfræðingar Besta sætisins voru gapandi hissa á atviki sem að kom upp í leik Strákanna okkar við Grænhöfðaeyjar á HM í handbolta í gær. Númerið og nafn Sveins Jóhanssonar, línumanns Íslands, flagnaði af treyjunni hans og ekki var varatreyja til reiðu sem olli því að Sveinn mátti ekki spila síðasta stundarfjórðung leiksins.
Strákarnir okkar í karlalandsliðinu í handbolta unnu 13 marka sigur á Grænhöfðaeyjum í fyrsta leik á HM í Zagreb. Farið var yfir sviðið í keppnishöllinni eftir leik í HM í dag.
Tölfræði á stórmótum í handbolta er ekki alltaf sú áreiðanlegasta. Það sannaðist enn og aftur í gær.
Elliði Snær Viðarsson spilaði aðeins í rúmar tíu mínútur þegar Ísland sigraði Grænhöfðaeyjar, 34-21, í fyrsta leik sínum á HM í handbolta þar sem hann fékk rautt spjald.
Afar tómlegt var um að lítast í stúkunni í Unity Arena í Bærum í Noregi þegar Svíar unnu Japani, 39-21, í fyrsta leik sínum á HM í handbolta.
Íslenska karlalandsliðið hóf vegferð sína á HM í handbolta með þrettán marka sigri gegn Grænhöfðaeyjum. Rætt var um frammistöðuna í Besta sætinu þar sem að sérfræðingar þáttarins létu þennan sigur á móti liði „sem ætti erfitt með að halda sér í Olís deildinni“ ekki slá ryki í augun á sér. Margt gott við leik íslenska liðsins en mikið rými til bætinga.
Íslenska karlalandsliðið í handbolta byrjaði heimsmeistaramótið á öruggum þrettán marka sigri í Zagreb í gærkvöldi. Fyrri hálfleikurinn var vissulega betri en sá síðari hjá strákunum en sigurinn var aldrei í hættu eftir 8-2 byrjun. Tólf leikmenn komust á blað og allir fengu að spila.
Þetta var skrýtinn handboltaleikur. Strákarnir okkar gerðu sitt, drápu allan vonarneista snemma og náðu í 13 marka sigur. Þetta var hins vegar ekki merkilegt eftir hlé.
„Maður er ennþá að ná að jarðtengja sig aðeins. Maður er dálítið hátt uppi núna, eftir fyrsta leik á HM, en þetta er gott fyrir reynsluna,“ sagði Hafsteinn Óli Berg Ramos Rocha, sem afrekaði það að spila á móti Íslandi á HM í handbolta í kvöld.
Ísland vann þrettán marka sigur á Grænhöfðaeyjum, 34-21, í fyrsta leik sínum í G-riðli heimsmeistaramótsins í handbolta karla í kvöld. Flestir leikmenn íslenska liðsins spiluðu vel í sigrinum sem var mjög öruggur.
Íslenska karlalandsliðið í handbolta vann þrettán marka sigur á Grænhöfðaeyjum, 34-21, í fyrsta leik sínum á heimsmeistaramótinu í handbolta en þrátt fyrir öruggan sigur þá átti íslenska liðið engan stórleik. Liðið kláraði engu að síður verkefnið nokkuð sannfærandi og sigurinn var aldrei í hættu.
„Þetta var æðisleg upplifun, að spila sinn fyrsta leik á stórmóti. Þetta var mjög gaman,“ sagði Þorsteinn Leó Gunnarsson strax eftir sinn fyrsta leik á HM, í stórsigrinum gegn Grænhöfðaeyjum.
„Það var hrikalega skemmtilegt að byrja þetta mót, og á svona sigri,“ sagði hornamaðurinn Orri Freyr Þorkelsson eftir frábæran fyrsta leik sinn á HM í handbolta.
Leikir kvöldsins á HM í handbolta buðu ekki upp á nein óvænt tíðindi. Danir burstuðu til að mynda Túnis á heimavelli og Svíar hefja HM á sigri.
Strákarnir okkar hófu HM í handbolta algjörlega án vandræða með viðbúnum stórsigri á Grænhöfðaeyjum, 34-21, í Zagreb í Króatíu í kvöld.
Slóvenar byrjuðu heimsmeistaramótið í handbolta á stórsigri á Kúbverjum en þessar þjóðir eru með Íslendingum í riðli á mótinu.
Ekki má búast við mörgum Íslendingum í stúkunni þegar Ísland spilar fyrsta leik liðsins á HM karla í handbolta í Zagreb í Króatíu við Grænhöfðaeyjar klukkan 19:30 í kvöld. Nokkrir tugir voru saman komnir til að hita upp á knæpu í bænum.
Ásgeir Örn Hallgrímsson og Einar Jónsson segja að tími sé til kominn að kjarninn sem skipar íslenska karlalandsliðið í handbolta nái árangri á stórmóti.
Króatar, undir stjórn Dags Sigurðssonar, hófu HM í handbolta af krafti í Zagreb í gærkvöld og völtuðu yfir Bareinana hans Arons Kristjánssonar. Fyrrverandi aðstoðarþjálfari Króatíu hrósar Degi og fyrirliðanum Domagoj Duvnjak, sem var hylltur sérstaklega af áhorfendum en hann er á sínu síðasta stórmóti.
Ásgeir Örn Hallgrímsson og Einar Jónsson voru gestir Stefáns Árna Pálssonar í sérstakri HM-útgáfu af Pallborðinu. Íslenska karlalandsliðið mætir Grænhöfðaeyjum í fyrsta leik sínum á HM í kvöld.
„Það er mikil tilhlökkun að spila sinn fyrsta leik á stórmóti. Þetta hefur verið draumur síðan maður var lítill strákur þannig að þetta verður mikil skemmtun, vonandi,“ segir Þorsteinn Leó Gunnarsson sem þreytir frumraun sína á HM með íslenska karlalandsliðinu í handbolta í Zagreb.
Háskólinn í Reykjavík hitaði upp fyrir heimsmeistaramótið í handbolta í HR stofunni, í tilefni þess að íslenska karlalandsliðið leikur sinn fyrsta leik á mótinu í dag. Gestir HR stofunnar voru Patrekur Jóhannesson og Arnar Pétursson og þá kynnti Dr. Peter O‘Donoghue, prófessor við íþróttafræðideild HR, spálíkan sem hann hefur gert fyrir mótið.
„Tilfinningin er góð rétt fyrir mót,“ segir landsliðsþjálfarinn Snorri Steinn Guðjónsson við Vísi þegar rúmur sólarhringur var í fyrsta leik liðsins á HM í handbolta.