Dagur og Alfreð unnu báðir á HM í kvöld en mjög ólíka sigra Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 17. janúar 2025 21:06 Króatíska landsliðið byrjar þetta heimsmeistaramót vel undir stjórn Dags Sigurðssonar. Getty/Igor Kralj/ Dagur Sigurðsson, þjálfari Króatíu, og Alfreð Gíslason, þjálfari Þýskalands, eru að byrja vel með sín lið á heimsmeistaramótinu í handbolta en báðir hafa fagnað tveimur sigrum í fyrstu tveimur leikjum sínum.
Króatía vann Argentínu í kvöld á sama tíma og Þjóðverjar unnu nágranna sína í Sviss. Þetta voru aftur á móti mjög ólíkir sigrar. Króatar höfðu mikla yfirburði en Þjóðverjar þurftu góðan endasprett til að klára sinn leik. Króatíska landsliðið fer á kostum á heimavelli á þessu heimsmeistaramóti en liðið vann öruggan fimmtán marka sigur á Argentínu í kvöld. Eftir fjórtán marka sigur í fyrsta leik vann Króatía 33-18 sigur á Argentínu í leik tvö. Króatar voru komnir með ellefu marka forskot í hálfleik, 18-7. Þýska liðið hefur fengið mun meiri mótstöðu frá Póllandi og Sviss í fyrstu tveimur leikjum sínum en liðið vann tveggja marka sigur á Sviss í kvöld, 31-29. Þjóðverjar byrjuðu ekki vel eins og í fyrsta leiknum en unnu sig inn í leikinn eins og í sigrinum á Pólverjum. Svisslendingar komust í 5-2 og 7-4 í upphafi leiks en Þjóðverjar voru komnir yfir í stöðunni 9-8. Þýska liðið var síðan einu marki yfir í hálfleik, 15-14. Liðin skiptust á því að hafa forystuna í seinni hálfleik en Þjóðverjar gerðu nánast út um leikinn með góðum 5-1 kafla þar sem þeir breyttu stöðunni úr 26-25 fyrir Sviss í 30-27 fyrir Þýskaland. Í báðum leikjum sínum á mótinu til þessa hafa Þjóðverjar sýnt styrk sinn á lokakaflanum. Norðmenn töpuðu á móti Brasilíu í fyrsta leik mótsins en unnu sinn fyrsta leik í dag. Noregur vann þá sextán marka sigur á Bandaríkjamönnum, 33-17, eftir að hafa verið 13-7 yfir í hálfleik. Ungverjar unnu stórsigur á Gíneu í fjórða leik kvöldsins. Ungverska liðið van ellefu mörkum yfir í hálfleik, 20-9 og vann að lokum sautján marka sigur, 35-18.
HM karla í handbolta 2025 Mest lesið „Þetta er eins og aftanákeyrsla“ Íslenski boltinn Ísak Bergmann trúlofaður Fótbolti Forseti FIFA móðgaði Ítali Fótbolti Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Enski boltinn Þýskaland - Curacao | Slá HM-met Íslendinga Fótbolti Fjörið og fegurðin var í fyrri hálfleik Fótbolti Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Körfubolti Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Körfubolti Potter spurður hvort það hafi hjálpað að vera ekki danskur Fótbolti Fær laun greidd en fær ekki að dæma Fótbolti Fleiri fréttir Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Sjá meira