

Fréttir af flugi
Allt það helsta sem viðkemur flugi.

Bein útsending: Kynning á uppgjöri annars ársfjórðungs hjá Play
Flugfélagið Play mun kynna uppgjör sitt fyrir annan ársfjórðung á opnum kynningarfundi sem hefst klukkan 8:30. Þar mun þau Birgir Jónsson forstjóri og Þóra Eggertsdóttir fjármálastjóri kynna uppgjörið og svara spurningum.

Rekstrartekjur fara ört vaxandi en tap nam tveimur milljörðum á öðrum ársfjórðungi
Tap flugfélagsins Play nam 14,3 milljónum Bandaríkjadala, eða 2,02 milljörðum króna, á öðrum ársfjórðungi 2022.

Flugmenn sofnuðu og gleymdu að lenda
Tveir flugmenn þotu flugfélagsins Ethiopia Airlines sofnuðu og gleymdu að lenda þotunni á flugvellinum í Addis Ababa í Eþíópíu á dögunum.

Lenti á Reykjavíkurflugvelli á leið sinni í kringum jörðina
Mack Rutherford, sem ætlar að verða yngsti flugmaðurinn til að fljúga einsamall hringinn í kringum jörðina, lenti á Reykjavíkurflugvelli laust fyrir klukkan fjögur í dag.

Veðja á hljóðfráar farþegaþotur að nýju
Bandaríska flugfélagið American Airlines hefur lagt inn pöntun fyrir allt að tuttugu hljóðfráun farþegaþotum frá flugvélaframleiðendanum Boom Supersonic. Hljóðfráar farþegaþotur hafa ekki verið í notkun frá því að hætt var að fljúga Concorde vélum snemma á þessari öld.

Gunni og Felix að bugast vegna hávaða frá þyrlum
Gósentíð er nú hjá þyrlufyrirtækjum vegna gossins á Reykjanesi. En ekki eru allir kátir með ónæðið sem er því samfara; þeir eru reyndar fjölmargir sem vilja segja hingað og ekki lengra. Þeir Gunni og Felix skemmtikraftar eru þeirra á meðal.

Skúli svarar Óttari fullum hálsi
Athafnamaðurinn Skúli Mogensen segist hvorki vera auðmaður né gjaldþrota í svari við bakþönkum Óttars Guðmundssonar geðlæknis. Óttar sagði í bakþönkum sínum á laugardag að Skúli hefði sett flugfélagið Wow air „glæsilega á hausinn“ með tilheyrandi tapi fyrir þjóðarbúið. Skúli segir Wow hafa skilað meiru í ríkiskassann en allur áliðnaðurinn árið 2018.

Óvissuflugið þarf að enda
Reykjanesskagi hefur enn á ný bært á sér. Jarðvísindamenn halda því fram að eldgosið í Meradölum og gosið í Geldingardölum gætu verið upphafið að löngu eldgosatímabili á Reykjanesskaga. Ekki er útilokað að þetta gostímabil gæti virkjað eldstöðvar nær Reykjavík þótt litlar líkur séu þó á því. Við vitum ekki hvað framtíðin ber í skauti sér, en með vitneskju um mögulega ógn af hraunrennsli næstu ár er eðlilegt að við hugum að því hvaða uppbyggingu við viljum fjárfesta í á svæðinu.

Myndir úr óleyfilegri myndavél varpa ljósi á hrap herflugvélar í Noregi
Myndir úr myndskeiði sem tekið var upp með GoPro-myndavél sem smyglað var um borð í bandaríska herflugvél sem hrapaði í Noregi í mars þykja varpa ljósi á orsakir slyssins.

Gögn sýna viðspyrnu Icelandair
Greining sem Ferðamálastofa hefur unnið sýnir að Icelandair hafi náð einna bestri viðspyrnu norræna flugfélaga í sumar, í fjölda farþega talið.

Brottfarir erlendra ferðamanna fleiri nú í júlí en árið 2019
Brottfarir erlendra farþega frá landinu um Keflavíkurflugvöll voru rúmlega 234 þúsund í júlímánuði samkvæmt talningu Ferðamálastofu. Þetta er meiri fjöldi en árið 2019 og um leið fjórði fjölmennasti júlímánuðurinn frá því að mælingar hófust.

Fundu líkamsleifar og flugvél í Ölpunum
Á miðvikudaginn gengu tveir fjallagarpar fram á flugvél í Alpafjöllunum í Sviss sem hafði hrapað í fjallinu fyrir tæpum fimmtíu árum síðan. Við hlið vélarinnar voru líkamsleifar manns.

Play flutti fleiri í júlí en allt árið 2021
Flugfélagið Play flutti 109.937 í júlí sem er fjórðungsaukning frá farþegafjölda í júní. Fjöldi farþega í júlí 2022 er meiri en samanlagður fjöldi allra farþega sem Play flutti á árinu 2021.

Farþegar Icelandair yfir hálfa milljón í fyrsta sinn frá upphafi faraldurs
Icelandair flutti yfir hálfa milljón farþega í millilandaflugi í nýliðnum júlí. Fjöldi farþega hefur ekki farið yfir hálfa milljón síðan á háannatíma árið 2019 áður en áhrifa heimsfararaldurs kórónuveiru fór að gæta í flugrekstri.

Segja of snemmt að útiloka byggingu flugvallar í Hvassahrauni
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og Einar Þorsteinsson, formaður borgarráðs, segja báðir rétt að bíða eftir niðurstöðum áhættumats Veðurstofu Íslands vegna flugvallar í Hvassahrauni; of snemmt sé að útiloka þann möguleika.

Tryggja þurfi nýjan varaflugvöll og Reykjavíkurflugvöllur komi ekki til greina
Borgarstjóri segir óraunhæft að Reykjavíkurflugvöllur komi í stað hugmynda um flugvöll í Hvassahrauni. Byggja þurfi upp flugvöll á Suðvesturhorninu sem tekið geti við alþjóðaflugi. Reykjavíkurflugvöllur sé ekki undir það búinn.

Ráðherra innviða ekki æstur í að sjá gosið
Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra virðist ekki vera á leiðinni upp að eldgosinu í Meradölum ef marka má orð hans eftir ríkisstjórnarfund í dag. Hann bíður niðurstaðna vísindamanna sem kanna aðstæður í Hvassahrauni með tilliti til náttúruvár vegna nýs flugvallar.

Innviðaráðherra telur minnkandi líkur á flugvelli í Hvassahrauni
Innviðaráðherra telur ljóst að líkurnar á flugvelli í Hvassahrauni fari minnkandi vegna jarðhræringa á svæðinu. Sérfræðingahópur á vegum stjórnvalda fundar í dag um jarðhræringar á Reykjanesi.

Fimm teknir í tollinum með Oxycontin á þremur vikum
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur ákært fimm pólska karlmenn fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni, með því að hafa flutt inn mikið magn ópíóíðalyfsins Oxycontin. Mennirnir voru teknir á þriggja vikna tímabili með efni í fórum sér en þeir eru allir ákærðir hver í sínu lagi og því er ekki litið á brot þeirra sem samverknað.

Kröfur upp á tæpa 22 milljarða í þrotabú þriggja félaga tengdum Primera
Skiptum á þremur félögum tengdum flugfélaginu Primera Air lauk þann 22. júlí síðastliðinn. Samtals voru kröfur upp á rúma 22 milljarða í félögin Primera Air ehf., PTG hf. og PI ehf.

Eldgos gæti tekið af okkur báða vegina til Suðurnesja
Eldfjallafræðingur segir það vera skynsamlegt að byggja annan alþjóðaflugvöll fjarri Keflavíkurflugvelli. Það gæti gerst að eldgos taki af okkur bæði Suðurstrandarveg og Reykjanesbrautina þannig að engin leið sé fyrir bílaumferð til og frá Reykjanesi.

Mikil gleði þegar helsta fyrirmyndin fékk flugvél nefnda eftir sér
Flugakademía Íslands heiðraði í dag Ernu Hjaltalín, sem var fyrsta konan til að taka einkaflugmannspróf og atvinnuflugmannspróf hér á landi. Afkomendur hennar segja það mikinn heiður að ein kennsluvéla akademíunnar sé nú nefnd eftir Ernu.

Hækkar verulega verðmat á Icelandair og metur félagið á 117 milljarða
Nýbirt uppgjör Icelandair Group, þar sem félagið skilaði hagnaði á öðrum ársfjórðungi í fyrsta sinn í fimm ár, ber það með sér að „flugið er komið af stað“ og allt útlit er fyrir að afkoma félagsins á þriðja ársfjórðungi verði „dúndur“.

Skoði gjaldskrána væntanlega á næsta ári
Isavia segjast væntanlega muna endurskoða gjaldskrá innanlandsflugvalla þegar þjónustusamningur íslenska ríkisins við Isavia verður endurskoðaður á næsta ári.

Farþega Condor-vélarinnar leið eins og íslensk stjórnvöld hafi tekið hann í gíslingu
Farþegi um borð í flugvél sem lent var óvænt á Keflavíkurflugvelli á mánudag vegna sprengjuhótunar segist í fyrstu ekki hafa fengið neinar skýringar frá lögreglunni og liðið eins og hann hafi verið tekinn til fanga.

Ódýrara að leggja einkaþotu en bíl
Það er ódýrara að leggja einkaþotu á Reykjavíkurflugvelli en bíl í bílakjallara í miðbæ Reykjavíkur. Fimm daga stæði á Reykjavíkurflugvelli kostar 35.485 fyrir einkaþotu.

Aðgerðir viðbragðsaðila vegna sprengjuhótunar hafi gengið afbragðsvel
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum segir aðgerðir viðbragðsaðila á Keflavíkurflugvelli, vegna sprengjuhótunar um borð í flugvél á leið frá Frankfurt til Seattle, hafa gengið afbragðsvel. Enn sé ekki vitað hver hafi borið ábyrgð á hótuninni.

Lufthansa aflýsir nær öllum flugferðum frá Frankfurt og München
Lufthansa mun þurfa að aflýsa næstum öllum flugferðum sínum frá Frankfurt og München á miðvikudag vegna verkfalls þýskra flugvallarstarfsmanna. Flugfélagið ætlar að aflýsa 1.023 flugferðum sem þýðir að rúmlega hundrað þúsund ferðalangar munu verða fyrir áhrifum.

Ekkert hafi fundist en rannsóknarvinna haldi áfram
Lögregla hefur nú lokið rannsóknarvinnu á vettvangi vegna flugvélarinnar sem lenti á Keflavíkurflugvelli í dag vegna sprengjuhótunar.

Lent á Keflavíkurflugvelli vegna sprengjuhótunar
Flugvél lenti á Keflavíkurflugvelli klukkan 16:22 í dag vegna sprengjuhótunar. Vélin var á leið frá Frankfurt til Seattle og var henni snúið við yfir Grænlandi.