
Massa reiður sjálfum sér vegna mistaka
Felipe Massa hjá Ferrari segist vera sjálfum sér reiður vegna mistaka í upphafi kanadíska kappakstursins um helgina. Hann endaði tíundi í kappakstrinum.
Fréttir af þekktasta kappakstri í heimi.
Felipe Massa hjá Ferrari segist vera sjálfum sér reiður vegna mistaka í upphafi kanadíska kappakstursins um helgina. Hann endaði tíundi í kappakstrinum.
Jenson Button, ökumaður McLaren í Formúlu 1, er full fær um að snúa við blaðinu eftir fjögur léleg úrslit úr síðustu mótum, að mati yfirmanna McLaren liðsins.
Lewis Hamilton á McLaren er sjöundi sigurvegari ársins í jafn mörgum mótum. Hann sigraði Kanadakappaksturinn eftir æsispennandi kappakstur.
Heimsmeistarinn Sebastian Vettel á Red Bull-bíl verður enn á ný á ráspól í Kanada kappakstrinum á morgun. Hann var þó nokkuð fljótari en Lewis Hamilton á McLaren, þremur tíundu úr sekúndu.
Breski ökuþórinn Lewis Hamilton var fljótastur á báðum æfingum dagins í Kanada í dag. McLaren-bíll hans virkaði fínt en liðsfélagi hans, Jenson Button, ók aðeins fáeina hringi vegna bilunar í gírkassa.
Mark Webber er óánægður með að hafa unnið Mónakó kappakstuirnn á ólöglegum bíl. FIA hefur komist að niðurstöðu um að göt á gólfi bílsins voru ólögleg.
Pólski ökuþórinn Robert Kubica hefur nú farið í enn eina aðgerðina vegna meiðslana sem hann hlaut í rallýslysi í byrjun árs 2011.
Kanadíski kappaksturinn fer fram um næstu helgi í Montréal. Brautin liggur á manngerðri eyju sem byggð var í tengslum við Ólympíuleikana þar 1976. Árið 1978 var fyrsti kanadíski kappaksturinn haldinn á brautinni því Mosport-brautin, þar sem kappaksturinn hafði áður verið haldinn, var talin of hættuleg.
Kimi Raikkönen er fullur sjálftrausts þrátt fyrir að hafa endað í níunda sæti í Mónakókappakstrinum um liðna helgi.
Jenson Button, ökumaður McLaren í Formúlu 1, kemur Michael Schumacher til varnar og segir lítið að marka gagnrýnina sem heimsmeistarinn sjöfaldi hefur fengið á sig. Endurkoma Schumachers hefur ekki gengið sem skildi og vilja sumir spekingar meina að lítið loft sé enn í blöðru Schumachers.
Sauber-liðið svissneska í Formúlu 1 hefur nú tekið bíl sinn í sundur. Það er ekki í hefðbundnum skilningi heldur hefur bílinn einfaldlega verið skorinn í herðar niður, ef svo má segja.
Mark Webber ætti að fara til Ferrari. Þetta segir Alan Jones fyrrum heimsmeistari í Formúlu 1. Óvissa hefur skapast um sæti Felipe Massa hjá Ferrari vegna slæmrar frammistöðu Brasilíumannsins.
Um helgina fór kappaksturinn í Mónakó fram og fagnaði Mark Webber sigri þegar hann ók Red Bull-bíl sínum yfir endalínuna. Það er þó ekki einfalt að skella upp kappakstursbraut í einu minnsta landi í Evrópu.
Alþjóða akstursíþróttasambandið (FIA) mun í vikunni reyna að komast að niðurstöðu um hvort umdeild hönnun á gólfi Red Bull-bílsins í Mónakó sé lögleg eða ekki.
Breski ökuþórinn Lewis Hamilton er alls ekki sáttur við gang mála hjá keppnisliðinu McLaren eftir keppnina í Mónakó. Hamilton endaði í fimmta sæti og liðsfélagi hans Jenson Button féll úr keppninni. Hamilton krefst þess að McLaren liðið fari að taka skref fram á við eftir afleitt gengi að undanförnu.
Skoski ökumaðurinn Dario Franchitti sigraði í Indy 500 kappakstrinum sem fram fór í Indianapolis í gær. Mótið er eitt það þekktasta í kappakstursíþróttinni og var þetta í 96. sinn sem keppnin fer fram. Franchitti þurfti að hafa mikið fyrir sigrinum en þetta er í þriðja sinn sem hann vinnur þessa keppni.
Liðsfélagarnir og Þjóðverjarnir Nico Rosberg og Michael Schumacher hjá Mercedes áttu ólíku gengi að fagna í Mónakó-kappakstrinum í dag.
Spánverjinn Fernando Alonso hjá Ferrari hafnaði í þriðja sæti í Formúlu 1 kappakstrinum í Mónakó. Fyrir það hlaut hann fimmtán stig og tók forystu í stigakeppni ökuþóra með 76 stig.
Mark Webber tryggði sér í dag sigur í Mónakó-kappakstrinum í Formúlu 1 eins og fjallað hefur verið um hér á Vísi. Hann varð um leið sjötti sigurvegarinn í jafnmörgum keppnum.
Ástralinn Mark Webber hjá Red Bull gerði engin mistök og kom fyrstur í mark í Formúlu 1 kappakstrinum í Mónakó í dag.
Pastor Maldonado hjá Williams lenti í árekstri við Pedro de la Rosa hjá HRT í ræsingunni í Formúlu 1 kappakstrinum í Mónakó sem nú stendur yfir.
Mark Webber verður á ráspól í Formúlu 1 kappakstrinum sem fram fer í Mónakó í dag. Webber, sem ekur hjá Red Bull, hefur enn ekki hrósað sigri í þeim fimm mótum sem búin eru á tímabilinu.
Michael Schumacher átti fljótasta hringinn í tímatökunum fyrir Formúlu 1 kappaksturinn sem fram fer í Mónakó á morgun. Mark Webber verður þó á ráspól.
Möguleikar Pastor Maldonado á sigri í Mónakó-kappakstrinum í Formúlu 1 snarminnkuðu í morgun. Aganefndin ákvað að refsa Maldonado vegna áreksturs sem hann olli á lokaæfingunni í Mónakó í morgun.
Mónakó kappaksturinn fer fram í 59. sinn um komandi helgi. Ekið er um stræti Monte Carlo borgar í Mónakó sem gerir þessa sjöttu umferð í heimsmeistarabaráttunni að stærstu þraut ökumanna í ár.
Skotinn Paul di Resta er á radarnum hjá Mercedes-liðinu og gæti ekið fyrir liðið á næsta, ári ákveði Michael Schumacher að hætta í annað sinn á felinum.
Skotinn Paul di Resta er á radarnum hjá Mercedes-liðinu og gæti ekið fyrir liðið á næsta, ári ákveði Michael Schumacher að hætta í annað sinn á felinum.
Eigandi Red Bull orkudrykkjaframleiðandans, Dietrich Mateschitz, segir frábært upphaf Formúlu 1 vertíðarinnar hafa snúið keppninni upp í lotterí fyrir liðin. Umdeild Pirelli-dekkin eru þar helsti áhrifavaldur.
Það er draumur allra kappakstursökuþóra að keppa í Formúlu 1 kappaktrinum í Mónakó. Að sama skapi er það draumur allra kappakstursáhugamanna að fylgjast með Formúlu 1 kappakstri í Mónakó, ef ekki af lystisnekkju í höfninni, þá af svölum í einni af íbúðunum umhverfis brautina.
Felipe Massa undir gríðarlegri pressu hjá Ferrari liðinu. Sú pressa hefur hins vegar aðallega verið utanað komandi en nú eru blikur á lofti um að liðið sé farið að missa þolinmæðina á slæmu gengi Brasilíumannsins.