

Enski boltinn
Fréttir, myndbönd og tölfræði úr ensku deildinni.
Leikirnir

Nýjustu tíðindi gætu haft slæm áhrif á skipti Gravenberch til Liverpool
Upp hafa komið vandamál varðandi möguleg félagsskipti portúgalska miðjumannsins Joao Palhinha frá Fulham til Bayern Munchen, vandamál sem geta haft áhrif til hins verra fyrir Liverpool sem er að reyna ganga frá félagsskiptum Ryan Gravenberch frá Bayern Munchen.

Altay fyllir skarð Henderson á Old Trafford
Markvörðurinn Altay Bayındır er genginn í raðir enska úrvalsdeildarfélagsins Manchester United. Hann skrifar undir samning til ársins 2027 með möguleika á árs framlengingu.

Englandsmeistararnir staðfesta Nunes og selja Palmer til Chelsea
Englandsmeistarar Manchester City hafa staðfest kaupin á miðjumanninum Matheus Nunes. Hann skrifar undir fimm ára samning við félagið. Þá er hinn ungi Cole Palmer genginn í raðir Chelsea.

Man United selur Henderson og fær vinstri bakvörð frá Tottenham
Það hefur verið nóg um að vera á skrifstofu enska úrvalsdeildarfélagsins Manchester United í kvöld en félagið seldi leikmann sem og það virðist hafa fundið vinstri bakvörð.

Orri Steinn pollrólegur þegar í ljós kom að FCK myndi mæta Man Utd: „Ég sver það“
Orri Steinn Óskarsson, framherji Danmerkurmeistara FC Kaupmannahafnar og nýliða í íslenska landsliðinu, mætti í útvarpsþáttinn „Veislan með Gústa B“ fyrr í dag. Á sama tíma var dregið í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu og þar kom í ljós að FCK mætir liðinu sem Orri Steinn heldur með í enska boltanum, Manchester United.

Gravenberch á leið til Liverpool fyrir rúman fimm og hálfan milljarð
Hollenski miðjumaðurinn Ryan Gravenberch er á leið til enska úrvalalsdeildarliðsins Liverpool frá Þýskalandsmeisturum Bayern München. Hann kostar Liverpool 40 milljónir evra eða 5,7 milljarða íslenskra króna.

Gravenberch mætti ekki á æfingu og nálgast Liverpool
Hollenski miðjumaðurinn Ryan Gravenberch var ekki sjáanlegur á æfingu hjá Þýskalandsmeisturum Bayern München í morgun. Liverpool hefur verið á eftir Gravenberch undanfarna dag og leikmaðurinn er sagður vilja koma félagaskiptunum í gegn.

Lukaku og Mourinho endurnýja kynnin hjá Roma
Belgíski framherjinn Romelu Lukaku er genginn til liðs við ítalska félagið Roma að láni frá Chelsea.

Al-Ittihad undirbýr tæplega tuttugu milljarða tilboð í Salah
Sádiarabíska félagið Al-Ittihad virðist ekki vera tilbúið að gefast upp á því að fá egypska sóknarmanninn Mohamed Salah í sínar raðir frá Liverpool. Félagið undirbýr nú nýtt risatilboð í leikmanninn.

Hetja C-deildarliðs Lincoln lék með Kórdrengjum fyrir tveimur árum
Danski markvörðurinn Lukas Bornhøft Jensen varði tvær vítaspyrnur er C-deildarlið Lincoln City sló úrvalsdeildarlið Sheffield United úr leik í enska deildarbikarnum í vítaspyrnukeppni í gær. Árið 2021 lék þessi danski markvörður með Kórdrengjum í Lengjudeildinni hér á Íslandi.

UEFA muni ekki innleiða „fáránlegan“ uppbótartíma ensku úrvalsdeildarinnar
Zvonimir Boban, yfirmaður knattspyrnumála hjá evrópska knattspyrnusambandinu UEFA, segir að nýr og lengri uppbótartími sem tekinn var upp í ensku úrvalsdeildinni fyrir tímabilið sé „fáránlegur“ og að hann verði ekki notaður í keppnum á vegum sambandsins.

Brighton að fá ungstirnið Fati frá Barcelona
Spænska ungstirnið Ansu Fati virðist vera á leið á láni til Brighton & Hove Albion í ensku úrvalsdeildinni frá spænska stórveldinu Barcelona.

Arsenal hulduliðið sem gerði mettilboð í Earps
Fyrir tæpri viku var greint frá því að ónefnt lið hefði boðið í Mary Earps, markvörð Manchester United. Talið er að um hafi verið að ræða metupphæð þegar kemur að markverði en Man Utd neitaði tilboðinu.

Jóhann Berg og félagar áfram í enska deildarbikarnum
Jóhann Berg Guðmundsson var í byrjunarliði Burnley þegar liðið vann nauman 1-0 útisigur á Nottingham Forest í enska deildarbikarnum í kvöld. Þá vann Chelsea 2-1 sigur á AFC Wimbledon.

Fiorentina neitar lánstilboði Man United í Amrabat
Enska knattspyrnuliðið Manchester United þarf nauðsynlega að bæta við sig leikmönnum áður en félagaskiptaglugginn í Englandi. Félagið virðist ekki hafa mikið fjármagn á milli handanna og nú hefur lánstilboði þess í miðjumanninn Sofyan Amrabat verið hafnað.

María Þórisdóttir frá Man United til Brighton
María Þórisdóttir er gengin í raðir Brighton & Hove Albion frá Manchester United. Ekki kemur fram hvað Brighton borgar fyrir þennan öfluga varnarmann sem hefur einnig leikið með Chelsea.

Englandsmeistararnir og Úlfarnir komast að munnlegu samkomulagi um Nunes
Englandsmeistarar Manchester City hafa komist að munnlegu samkomulagi við Úlfana um kaup á portúgalska miðjumanninum Matheus Nunes.

Nýjasti leikmaður Everton vann á KFC fyrir fjórum árum
Margt hefur gerst í lífi fótboltamannsins Beto, sem Everton keypti frá Udinese í gær, undanfarin ár.

Býst við að Nunes fari ekki fet þrátt fyrir verkfall leikmannsins
Gary O'Neil, knattspyrnustjóri enska úrvalsdeildarfélagsins Wolves, býst við því að miðjumaðurinn Matheus Nunes verði áfram hjá félaginu eftir að félagsskiptaglugginn lokar þrátt fyrir tilraunir leikmannsins til að þvinga í gegn félagaskiptum til Manchester City.

Haaland valinn bestur í ensku úrvalsdeildinni
Norski framherjinn Erling Braut Haaland var í dag valinn besti leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar á síðasta tímabili.

Rúnar stóð vaktina er Cardiff fór áfram | Fulham henti Tottenham úr leik
Rúnar Alex Rúnarsson stóð vaktina í marki Cardiff er liðið vann öruggan 3-1 sigur gegn Birmingham í annarri umferð enska deildarbikarsins í kvöld.

Arsenal fær heimsmeistara frá Barcelona
Enska úrvalsdeildarfélagið Arsenal hefur samið við spænska varnarmanninn Laia Codina um að leika með liðinu.

Enska knattspyrnusambandið kærir Van Dijk
Enska knattspyrnusambandið, FA, hefur kært hollenska varnarmanninn Virgil van Dijk, fyrirliða Liverpool, fyrir hegðun sína eftir að hafa fengið að líta rauða spjaldið í leik liðsins gegn Newcastle síðastliðinn sunnudag.

Markadrottning HM á leið til Liverpool
Kvennalið Liverpool gæti verið að fá heldur betur góðan liðsstyrk í baráttunni í ensku úrvalsdeildinni. Markahæsti leikmaður nýafstaðins heimsmeistaramóts gæti nefnilega verið á leið til Bítlaborgarinnar.

Liverpool blandar sér í baráttuna um Gravenberch
Það styttist óðfluga í að félagaskiptaglugginn í stærstu deildum Evrópu loki og því er hver að verða síðastur að sækja sér nýja leikmenn. Miðjumaðurinn Ryan Gravenberch, leikmaður Þýskalandsmeistara Bayern München er eftirsóttur af tveimur liðum á Englandi.

Hótuðu að skjóta fyrirliða Newcastle í miðjum götuslagsmálum
Jamaal Lascelles, fyrirliði Newcastle United í ensku úrvalsdeildinni, komst í hann krappan á dögunum þegar hann lenti í áflogum í miðborg Newcastle eftir að hafa verið úti að skemmta sér með vini sínum og bróður. Lentu þremenningarnir í áflogum við glæpagengi sem hótaði meðal annars að skjóta þá bræður.

Sonur Jóhanns Bergs vekur athygli fyrir spyrnutækni sína
Breski armur íþróttamiðilsins ESPN endurbirti nýverið myndband af syni landsliðsmannsins Jóhanns Bergs Guðmundssonar þar sem drengurinn hermir nær fullkomlega eftir föður sínum að taka hornspyrnu.

Forest kvartar vegna dómaranna á Old Trafford
Nottingham Forest hefur sent inn kvörtun til dómarasambands, PGMOL, Englands vegna dómaranna í 3-2 tapi liðsins gegn Manchester United á Old Trafford í ensku úrvalsdeildinni um liðna helgi.

Van Dijk gæti endað í fjögurra leikja banni
Virgil van Dijk, miðvörður Liverpool, gæti verið á leið í fjögurra leikja bann í ensku úrvalsdeildinni.

Hættur að æfa til að þvinga í gegn félagaskiptum til Man City
Matheus Nunes, miðjumaður enska knattspyrnuliðsins Wolverhampton Wanderers, er farinn í verkfall til þess að þvinga í gegn vistaskiptum sínum til Englandsmeistara Manchester City.