Útbreiðsla riðu á þrjá bæi staðfest

Riða á bæjunum Grænumýri og Syðri-Hofdölum í Blönduhlíð, og Hofi í Hjaltadal hefur verið staðfest. Sauðfé sem riðan greindist í kom frá Stóru-Ökrum þar sem riða var staðfest í síðustu viku. Ákvörðun um niðurskurð liggur ekki fyrir að svo stöddu. Frekari rannsóknir standa yfir. Matvælastofnun hefur tekið tæp tvö þúsund sýni úr sauðfé innan Tröllaskagahólfs, ásamt því að kortleggja flutninga sauðfjár til og frá bæjum innan hólfsins. Stofnunin upplýsir frekari niðurstöður um leið og þær liggja fyrir.

75
00:34

Vinsælt í flokknum Fréttir