Fleiri fréttir

Franskir ofnasmiðir fækka fötum til að bjarga störfum sínum

Starfsmenn hjá frönsku ofnasmiðjunni Chaffoteaux et Maury í Brittany ætla að fækka fötunum til að reyna að bjarga störfum sínum. Þeir ætla að koma fram naktir á dagatali í örvæntingarfullri tilraun til að bjarga 204 störfum í verksmiðju sinni.

Disney kaupir Marvel Entertainment

Walt Disney samsteypan hefur fest kaup á Marvel Entertainment en frá þessu var greint í dag rétt fyrir opnun markaðarins á Wall Street.

Mikil lækkun hlutabréfa í Kína

Hlutabréfamarkaðurinn í Shanghai í Kína féll um rúmlega 5% í dag. Markaðir í Kína hafa lokað enda er kvöldið að bresta á þar í landi. Á föstudaginn lækkuðu hlutabréf í Shanghai um 7% og því nemur lækkunin yfir 10% á undanförnum tveimur viðskiptadögum.

GM semur við kínverskan bílaframleiðanda

Stjórnendur General Motors hafa skrifað undir 293 milljóna dala samning við kínverska ríkisbílaframleiðandann FAW um framleiðslu léttra flutningabíla og smárúta.

Efnahagslífið í Bretlandi skárra en búist var við

Samdráttur í breska hagkerfinu varð ekki eins mikill á öðrum ársfjórðungi og óttast hafði verið, segir í frétt á vef Telegraph. Ástæðan er meðal annars rakin til betri sölu á breskum bifreiðum en gert hafði verið ráð fyrir. Breska hagstofan sagði í gær að landsframleiðslan þar í landi hefði dregist saman um 0,7% en ekki 0,8%, sem þýðir 5,5% samdráttur á ársgrundvelli í stað 5,6% eins og gert hafði verið ráð fyrir.

UK Coal skuldar Landsbankanum 1,2 milljarða

Heildarútlán Landsbankans til UK Coal, stærsta kolanámufélags Bretlands, nam rúmum 5,7 milljónum punda sem jafngildir um 1,2 milljörðum króna. Heildarlánaheimildir til félagsins voru rúmar 21,4 milljónir punda eða tæplega 4,5 milljarðar króna. Líkt og Vísir greindi frá fyrr í morgun glímir UK Coal nú við vaxandi skuldavandamál í rekstri sínum.

FIH bankinn í milljarða klemmu vegna Sjælsö Gruppen

FIH bankinn og Amagerbanken í Danmörku eru í klemmu vegna sambankaláns sem þeir veittu Sjælsö Gruppen að upphæð 1,1 milljarð danskra kr. eða rúmlega 25 milljarða kr. Skilyrðin fyrir láninu eru ekki lengur til staðar en þau voru helst að eiginfjárhlutfall félagsins mætti ekki fara niður fyrir 40%. Það stendur nú í 35,3%.

Landsbankinn flækir skuldavandamálin hjá UK Coal

Stærsta kolanámufélag Bretlands, UK Coal, glímir nú við vaxandi skuldavandamál í rekstri sínum. Landsbankinn er einn af þremur viðskiptabönkum félagsins og hefur staða Landsbankans flækt samningaviðræður við lánadrottnanna um áframhaldandi stuðning við rekstur félagsins.

FIH bankinn kemur Sjælsö Gruppen til hjálpar

FIH bankinn er meðal þeirra dönsku lánastofnanna sem koma að fjárhagslegri endurskipulagningu fasteignafélagsins Sjælsö Gruppen. Alls nemur aðstoðin 505 milljónum danskra kr. eða rúmum 12 milljörðum kr.

Atvinnuleysi í Japan ekki meira síðan í stríðinu

Atvinnuleysi í Japan hefur ekki mælst meira síðan í síðari heimsstyrjöldinni og telst nú 5,7 prósent. Síðan í mars á þessu ári hefur sigið æ hraðar á ógæfuhliðina hvað þetta snertir en skin og skúrir hafa skipst á í fréttum af efnahag landsins.

Föroya Banki ætlar að bjóða í Fionia Bank í Danmörku

Föroya Banki ætlar að leggja fram tilboð í meirihluta Fionia Bank í Danmörku en sá banki komst í þrot s.l. vor. Þurftu dönsk stjórnvöld þá að leggja tæplega 800 milljónir danskra kr. í bankann og jafnframt yfirtók danska fjármálaeftirlitið starfsemi hans.

Bankadrottning Nígeríu fundin og komin í yfirheyrslur

Tveimur af bankastjórnendum Nígeríu tókst að forðað handtöku og lögðu á flótta í vikunni. Annar þeirra, Cecilia Ibru, fyrrverandi framkvæmdastjóri Oceanic Bank, gaf sig fram við lögreglu síðdegis í gær og er verið að yfirheyra hana.

Bolton tapar á falli Landsbankans

Borgarstjórn Bolton á Englandi hefur einungis fengið 16 prósent tilbaka af þeim fjármunum sem borgarstjórnin lagði inn á innlánsreikninga Heritable bank, dótturfélags Landsbankans á Bretlandi. Áður hafði verið gert ráð fyrir að borgarstjórnin fengi um 80% af fjárfestingum sínum tilbaka en nú bendir hins vegar allt til þess að borgarstjórnin fái einungis 70% af fjárfestingum sínum tilbaka.

Nígeríustjórn skutlar bankastjórum bak við lás og slá

Efnahagsbrotadeild nígerísku lögreglunnar undirbýr nú málsókn gegn auðjöfrum í Afríkuríkinu sem nýttu ekki frest til dagsins í gær til að gera upp milljarðaskuldir sínar við fimm nígeríska banka sem stjórnvöld í landinu hafa tekið yfir til að forða þeim frá falli. Reglur um lánveitingar munu hafa verið brotnar og bankastjórnendum hefur mörgum verið stungið í steininn.

JP Morgan hækkar verðmat sitt á Storebrand verulega

Greiningardeild JP Morgan hefur hækkað verðmat sitt verulega á hlutum í norska tryggingarisanum Storebrand eða úr 28 kr. norskum á hlut og upp í 38 kr. norskar. Greint er frá þessu á vefsíðunni e24.no.

Royal Unibrew á mikilli siglingu í dönsku kauphöllinni

Hlutir í dönsku bruggverksmiðjunum Royal Unibrew hafa verið á mikilli siglingu í dönsku kauphöllinni í morgun og hafa hækkað um tæp 26% í verði. Hluturinn stóð í 126 danskar kr. við lokun markaðarins í gærdag en er kominn í 158,50 danskar kr. í morgun.

CSA skilar rúmlega 13 milljarða tapi

Tékkneska ríkisflugfélagið (CSA) tapaði tæplega 103 milljónum dollara eða rúmlega 13 milljörðum kr. á fyrstu sex mánuðum ársins. Sem kunnugt er af fréttum hefur Icelandair áhuga á því að kaupa flugfélagið í samvinnu við tékkneska félagið Unimex.

Ben Bernanke skipaður seðlabankastjóri Bandaríkjanna

Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, hefur skipað seðlabankastjórann Ben Bernanke til áframhaldandi setu sem seðlabankastjóra Bandaríkjanna, annað kjörtímabilið í röð. Fyrirfram hafði verið búist við að forsetinn myndi tilkynna opinberlega um ráðninguna í dag eins og raunin varð.

Enn fækkar starfsmönnum hjá Lloyds TSB

Breski bankinn Lloyds TSB heldur áfram að fækka starfsmönnum. Nú hafa forsvarsmenn bankans ákveðið að segja upp 200 starfsmönnum í janúar næstkomandi. Með þessum uppsögnum er fjöldi uppsagna hjá bankanum kominn í 7500 á innan við ári.

Methalli á fjárlögum Danmerkur fyrir næsta ár

Danska ríkisstjórnin mun afgreiða fjárlög ríkisins fyrir næsta ár með meiri halla en áður hefur þekkst í sögunni. Gatið í fjárlögunum mun nema 86 milljörðum danskra kr. eða um 2.000 milljörðum kr.

Facebook Inc. fjölgar starfsmönnum um 40-50%

Facebook Inc., sem á og rekur samskiptavefinn Facebook, mun fjölga starfsmönnum sínum um 40-50 prósent á þessu ári að sögn hins 25 ára gamla forstjóra fyrirtækisins, Mark Zuckerberg.

Bernanke fær annað kjörtímabil

Fastlega er búist við því að Barack Obama Bandaríkjaforseti geri hlé á sumarleyfi sínu í dag til þess að tilkynna um að hann hyggist skipa seðlabankastjórann Ben Bernanke til setu í annað kjörtímabil en kjörtímabil hans rennur út í janúar næstkomandi. Obama segist vera þeirrar skoðunnar að frammistaða Bernankes á þessum erfiðu tímum hafi komið í veg fyrir að kreppan ár hafi orðið jafn djúp og Kreppan mikla sem reið yfir heiminn á þriðja og fjórða áratug síðustu aldar.

Veðurteymi aðstoðar við birgðastýringu

Breska matvöruverslunin Tesco hefur brugðið á það ráð að koma á fót eigin veðurteymi sem aðlagar birgðahald fyrirtækisins að breyttu veðurfari á Bretlandi.

Hlutabréf í London á miklu skriði

FTSE 100 hlutabréfavísitalan í London heldur áfram að hækka í ljósi væntinga fjárfesta um að efnahagslægðin í heiminum sé á undanhaldi. Vísitalan hefur hækkað verulega síðan um miðjan júlí og er hún núna kominn yfir 4900 stig.

Toyota innkallar 690 þúsund bíla

Stærsti bílaframleiðandi í heimi, Toyota, hefur innkallað allt að 690 þúsund bíla vegna bilana í rafdrifnum rúðum. Toyota bílarnir eru sem kunnugt er framleiddir í Japan en þeir bílar sem innkallaðir hafa verið voru framleiddir í Kína.

Hlutabréf í Evrópu hækkuðu í morgun

Hlutabréf á mörkuðum í Evrópu hækkuðu í morgun eins og þau hafa gert síðustu daga. Þykir þetta vísbending um aukna bjartsýni á meðal fjárfesta um að kreppan sé að slaka á klónni og að líkur séu á því að fjármálamarkaðir um heim allan séu að rétta úr kútnum.

Bresk bílaframleiðsla að koma til

Bílaframleiðsla í Bretlandi hefur dregist talsvert saman, en nýframleiddum bílum fækkaði um 17,9 prósent í júlí samanborið við sama mánuð í fyrra. Samdrátturinn var hins vegar sá minnsti á ársgrundvelli það sem af er árs.

Líflegt á breskum fasteignamarkaði

Fjöldi kaupsamninga á breska fasteignamarkaðinum jókst um 17% í júlí frá mánuðinum á undan. Um 76 þúsund fasteignir á verðinu 40 þúsund pund og meira voru seldar í mánuðinum og er þetta mesta fasteignasala á Bretlandi í einum mánuði síðan í Maí 2008. Í júní síðastliðnum seldust 65 þúsund fasteignir á sama verðbili.

Eins manns dauði er annars manns brauð

Verslanir með ódýrar vörur þrífast best í því efnahagsástandi sem nú er á Bretlandi. Verslunarkeðjan 99p Stores, eða allt á 99pens, hefur fjölgað verslunum sínum verulega á árinu og áætlar að tvöfalda fjölda verslana sinna á þessu ári. Verslanir 99p Stores á Bretlandi eru nú 99 talsins. Gjaldþrot Woolwoths, sem var að hluta til í eigu Baugs, aðstoðar við vöxt verslananna, segir annar af eigendum 99p Stores.

Evran styrkist og evrópsk hlutabréf hækka

Evran hefur styrkst og hlutabréf í Evrópu hafa hækkað eftir jákvæðar fréttir af þjónustugeiranum i Þýskalandi og aukningu landsframleiðslu á öðrum ársfjórðungi í Þýskalandi og Frakklandi.

Stærsta hagkerfi Evrópu að rétta úr kútnum

Þýskaland, stærsta hagkerfi Evrópu, virðist vera að ná tökum á efnahagsniðursveiflunni samkvæmt nýlegri könnun sem sýnir fram á mjög mikla veltuaukningu einkageirans þar í landi. Hefur veltan í einkageiranum í Þýskalandi ekki aukist jafn hratt í einum mánuði síðan í maí á síðasta ári.

Skuldastaða breska ríkisins mjög slæm

Það eru fleiri ríki en Ísland sem búa við slæma skuldastöðu. Samkvæmt bresku hagstofunni tóku bresk stjórnvöld 8 milljarða punda að láni í síðasta mánuði. Aldrei áður hefur breska ríkið þurft á svo háu lánsfjármagni að halda í júlí mánuði.

Atlantic Petroleum kemur nýtt inn í Úrvalsvísitöluna

Færeyska olíufélagið Atlantic Petroleum kemur nýtt inn í Úrvalsvísitöluna við opnun markaða á morgun, 20. ágúst 2009. Alfesca hf. verður tekið úr OMXI6 Úrvalsvísitölunni eftir lokun markaða í dag, 19. ágúst vegna yfirtökutilboðs í félagið frá 26. júní 2009.

Þjóðverjar ekki bjartsýnni í yfir þrjú ár

Bjartsýni Þjóðverja hefur aukist töluvert að undanförnu og samkvæmt nýlegri könnun þar í landi hafa þeir ekki verið bjartsýnni í yfir þrjú ár eða síðan í apríl 2006. Financial Times greinir frá þessu í dag.

Hærri verðbólga á Bretlandi en búist var við

Tólf mánaða verðbólga á Bretlandi stóð í stað í júlí og mælist enn 1,8% en sérfræðingar höfðu spáð því að draga myndi úr verðbólgunni í mánuðinum og hún myndi mælast 1,5%. Sky fréttastofan greinir frá þessu.

Sjá næstu 50 fréttir