Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Sögu Pizza Hut í Smáralind lokið Veitingastað Pizza Hut í Smáralind var lokað þann 15. maí og hefur keðjan til skoðunar að hefja rekstur á nýjum stað. Leigusamningur Pizza Hut endaði í mánuðinum og tóku stjórnendur ákvörðun um að framlengja hann ekki. 23.5.2022 12:13
Samkeppniseftirlitið samþykkir kaup Rapyd á Valitor Samkeppniseftirlitið hefur samþykkt samruna ísraelska fjártæknifyrirtækisins Rapyd og íslenska greiðslumiðlunarfyrirtækisins Valitor. Tilkynnt var í byrjun júlí 2021 að Rapyd vildi kaupa allt hlutafé í félaginu af Arion banka fyrir 100 milljónir bandaríkjadala eða um 12,3 milljarða íslenskra króna. 23.5.2022 09:21
Ríkið þarf að greiða olíufélögum rúmlega hálfan milljarð Íslenska ríkið hefur verið dæmt til að greiða Skeljungi 448 milljónir króna í dómsmáli sem snerist um endurgreiðslu flutningsjöfnungargjalds. Ríkið þarf jafn framt að greiða Atlantsolíu 86 milljónir vegna sambærilegs máls. 20.5.2022 15:50
Bein útsending: Viðskiptaþing sett með áherslu á sviptivinda á vinnumarkaði Viðskiptaþing 2022 fer fram á Hilton Reykjavík Nordica í dag en yfirskrift þingsins að þessu sinni er Tímarnir breytast og vinnan með - Vatnaskil á vinnumarkaði. Hefst dagskráin klukkan 13:30 en þingsetning, ávarp forsætisráðherra og ávarp formanns Mannauðs verða send út í opnu streymi. 20.5.2022 13:01
Nýjar hugmyndir og nýir frumkvöðlar í nýrri hringrás Leitinni að áhugaverðustu nýsköpunarhugmynd Norðurlands á sviði matar, vatns og orku lýkur í kvöld þegar dómnefnd sker úr um hvaða ein af sex hugmyndum þykir skara fram úr. Hugmyndasamkeppnin nú er þó bara upphafið á annarri hringrás nýsköpunarstarfs á Norðurlandi. 20.5.2022 12:59
Miklar lækkanir í Kauphöll ekki í samræmi við raunveruleikann Miklar verðlækkanir hafa sést í Kauphöllinni frá því í byrjun maí samhliða lækkunum á mörkuðum í Evrópu og Bandaríkjunum. Greinandi furðar sig á þessari þróun og segir engar forsendur vera fyrir álíka lækkunum hér í ljósi þess að horfur séu mun betri á flesta mælikvarða. 20.5.2022 11:18
Edda Björk, Heiða og Ólafur Einar til Carbfix Edda Björk Ragnarsdóttir, Ólafur Einar Jóhannsson og Heiða Aðalsteinsdóttir hafa öll verið ráðin til Carbfix. 20.5.2022 10:25
Loka fyrir allar símgreiðslur til Rússlands Arion banki hefur ákveðið að loka fyrir allar símgreiðslur til Rússlands, óháð því hvort að móttakandi sé á lista yfir þvingunaraðgerðir eða ekki. 20.5.2022 10:07
Tvöfalda fiskeldi Samherja í Öxarfirði Samherji stendur nú að stækkun Silfurstjörnunnar, landeldisstöðvar sinnar í Öxarfirði. Stefnt er að því að tvöfalda eldisrými og framleiðslu þannig að framleiðslan verði um þrjú þúsund tonn á ári. 20.5.2022 09:52
Mariam ráðin markaðsstjóri fjölmiðla hjá Stöð 2 og Vodafone Mariam Laperashvili hefur verið ráðin markaðsstjóri fjölmiðla hjá Stöð 2 og Vodafone. 20.5.2022 09:47
Nauðsynlegt að ríki og sveitarfélög spýti í lófana: „Þetta er ekki eitthvað sem gerist á núll einni“ Byggja þarf 35 þúsund íbúðir á næstu tíu árum til að stuðla að stöðugleika á húsnæðismarkaði að mati starfshóps Þjóðhagsráðs. Formaður hópsins segir taka tíma að skipuleggja og byggja og því þurfi að spýta í lófana. Bjartari tímar eru þó fram undan. 19.5.2022 23:00
Breytt fjármögnun lækkaði tilboð í Hornafjörð um 2,2 milljarða króna Lægsta boð í lagningu nýs hringvegar um Hornafjörð lækkaði um 2,2 milljarða króna við það að langtímafjármögnun var undanskilin. Þrátt fyrir hökt í þessu fyrsta útboði verkefna í einkafjármögnun telur innviðaráðherra að annað verk í ferlinu, ný Ölfusárbrú, verði á áætlun og tilbúin árið 2025. 19.5.2022 21:25
Hagnaður Landsvirkjunar tæpir fimmtán milljarðar Landsvirkjun hagnaðist um 14,7 milljarða króna á fyrsta fjórðungi ársins og tæplega fjórfaldaðist á milli ára. Meðalverð til stórnotenda rafmagns hefur aldrei verið hærra á einum ársfjórðungi í sögu fyrirtækisins. 19.5.2022 17:35
Stór skref þurfi til að kæla eftispurnina á húsnæðismarkaði Íbúðaverð heldur áfram að hækka töluvert en forstöðumaður hagfræðideildar Landsbankans gerir ráð fyrir rólegri þróun á næstunni samhliða vaxtahækkunum og frekari uppbyggingu. Starfshópur á vegum forsætisráðherra mun í dag kynna tillögur að aðgerðum til að bæta stöðuna á húsnæðismarkaði. 19.5.2022 13:00
Tekur við stöðu forstöðumanns Símenntunar HA Stefán Guðnason hefur verið ráðinn forstöðumaður Símenntunar Háskólans á Akureyri. 19.5.2022 10:44
Gætu náð 260 megavöttum í viðbót úr virkjunum í Þjórsá og Tungnaá Landsvirkjun telur unnt að auka orkuvinnslugetu núverandi virkjana á Þjórsár- og Tungnaársvæðinu um 260 megavött, bæði með endurbótum á vél- og rafbúnaði og með fjölgun aflvéla til að nýta vaxandi jöklabráðnun. 19.5.2022 10:05
Verðbólga átta prósent á þessu ári og sex prósent stýrivextir Verðbólga mun ná hámarki í haust þegar hún verður rúmlega 8% en lækka síðan aftur, ef marka má nýja hagspá Hagfræðideildar Landsbankans. Þá muni stýrivextir halda áfram að hækka og ná 6% í lok þessa árs. Gert er ráð fyrir því að hagvöxtur verði töluverður og atvinnuleysi haldi áfram að minnka samhliða því. 19.5.2022 10:01
Íslandsbanki hækkar vexti óverðtryggðra húsnæðislána síðastur bankanna Íslandsbanki hyggst hækka vexti óverðtryggðra húsnæðislána um 0,70 til 1 prósentustig, en þetta kemur fram í tilkynningu frá bankanum í dag. 18.5.2022 16:53
Félag fréttamanna og Blaðamannafélag Íslands sameinast Félagar í Blaðamannafélagi Íslands og félagar í Félagi fréttamanna, stéttarfélagi fréttamanna á Ríkisútvarpinu, hafa samþykkt að sameina félögin undir merkjum Blaðamannafélags Íslands. 18.5.2022 13:40
Harpa nýr fjármálastjóri Norvik Harpa Vífilsdóttir hefur verið ráðin fjármálastjóri Norvik, móðurfélag BYKO. Hún tekur við starfinu af Brynju Halldórsdóttur sem hefur ákveðið að hætta störfum. 18.5.2022 09:54
Tryggja sér 300 milljónir króna til að koma jafnréttislausn á alþjóðamarkað Íslenska fyrirtækið Empower hefur tryggt sér 300 milljóna króna fjármögnun frá Frumtaki og Tennin til að styðja við þróun og markaðssetningu á hugbúnaðarlausninni Empower NOW. Greint var frá þessu í morgun en stefnt er að því að hugbúnaðarlausnin fari á alþjóðlegan markað á næsta ári. 18.5.2022 07:00
Spá öflugum hagvexti og allt að sex prósent stýrivöxtum í lok árs Greining Íslandsbanka spáir 5,0% hagvexti á þessu ári sem yrði hraðasti vöxtur frá árinu 2016. Gert er ráð fyrir 2,7% vexti á næsta ári og 2,6% árið 2024. 18.5.2022 06:00
Davíð Helgason beinir sjónum sínum að loftslagsmálum Davíð Helgason, stofnandi fyrirtækisins Unity, hefur komið á fót fyrirtækinu Transition Labs, ásamt Kjartani Erni Ólafssyni, frumkvöðli og tæknifjárfesti. Markið félagsins er að gera Ísland að suðupunkti loftslagsverkefna á heimsvísu. 17.5.2022 19:31
Milljarði fjárfest í heilbrigðissprotafyrirtæki Íslenska heilbrigðistæknifyrirtækið NeckCare hefur lokið rúmlega eins milljarðs króna fjármögnun en félagið hefur þróað lausnir til greiningar og endurhæfingar á hálsskaða. 17.5.2022 10:41
Hlutfall kvenna í stjórnum sums staðar lækkað milli ára Hlutfall kvenna í stjórnum fyrirtækja með fimmtíu launamenn eða fleiri, þar sem stjórnarmenn voru fjórir eða fleiri, var 41,5% í tilfelli almennra hlutafélaga á árinu 2021 og 38,3% í einkahlutafélögum. Í stjórnum með þrjá stjórnarmenn var hlutfall kvenna 34,8% fyrir almenn hlutafélög og 29,3% fyrir einkahlutafélög. Í einkahlutafélögum með tvo stjórnarmenn var hlutfallið 19,7%. 17.5.2022 10:12
Hækkað úr 80 milljónum í 129 Ásett verð raðhúsaíbúðar í Árbæ í Reykjavík hefur hækkað um ríflega sextíu prósent frá því í febrúar 2019 og farið úr 79,9 milljónum í 129,3. Þar af hefur eignin hækkað um rúmar 9 milljónir króna frá því í mars síðastliðnum. Fasteignasali segir alla sammála um að fasteignamarkaðurinn sé kominn úr böndunum. 17.5.2022 09:00
Ný stjórn og framkvæmdastjóri FVH Ný stjórn var kjörin á aðalfundi Félags viðskipta- og hagfræðinga (FVH) þann 10. maí síðastliðinn, ásamt því að nýr framkvæmdastjóri félagsins var kynntur til starfa. 17.5.2022 08:47
Eva Laufey ráðin markaðs- og upplifunarstjóri Hagkaups Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir hefur verið ráðin sem markaðs- og upplifunarstjóri Hagkaups. 17.5.2022 08:41
Fimm ferðaþjónustufyrirtæki sameinast undir nafni Icelandia Fimm ferðaþjónustufyriræki – Reykjavík Excursions/Kynnisferðir, Icelandic Mountain Guides, Iceland Rovers, Dive.is og Flybus – verða sameinuð undir merkjum regnhlífaheitisins Icelandia. Er ætlunin með nýju nafni að með skapa brú milli fyrirtækjanna með samlegðaráhrifum í markaðsstarfi. 17.5.2022 08:26
Landsbankinn hækkar vexti á óverðtryggðum lánum Vextir óverðtryggðra lána og sparireikninga hjá Landsbankanum hækka um 0,7 til eitt prósentustig á morgun. Bankinn vísar til þess að Seðlabankinn hafi hækkað vexti um eitt prósentustig fyrr í þessum mánuði. 16.5.2022 17:36
Framkvæmdastjóri fjármálasviðs Icelandair keypti fyrir fimm milljónir Ívar Sigurður Kristinsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Icelandair Group, keypti í dag þrjár milljónir hluta í félaginu fyrir 5,19 milljónir króna. 16.5.2022 13:06
Bein útsending: Opnun Nýsköpunarviku Nýsköpunarvika 2022 verður sett í dag og hefst opnunarviðburðurinn í Grósku klukkan 9. Fjöldi leiðtoga nýsköpunarfyrirtækja flytja erindi á viðburðinum og segja sögur af sínum fyrirtækjum. 16.5.2022 09:41
Reynslubolta í háloftunum líst illa á einkunnaforrit Icelandair Fyrrverandi flugfreyja, sem á að baki langan starfsferil hjá Icelandair, telur að smáforrit sem sett hefur verið upp svo flugfreyjur og þjónar félagsins geti metið starfsframmistöðu samstarfsfólks síns sé ekki af hinu góða. 14.5.2022 09:00
Nær öll fjárfesting fólks hafi þurrkast út á örskotsstundu Sérfræðingur í rafmyntum segir ljóst að Íslendingar hafi tapað milljónum í stærsta hruni minni rafmynta í manna minnum nú í vikunni. Fólk sem lagt hafi fé í aðrar rafmyntir en þær stærstu, Bitcoin og Ethereum, hafi tapað nær öllu. 13.5.2022 20:06
Ætla að byggja hátæknifiskvinnsluhús fyrir eldisfisk á Patreksfirði Arnarlax og Vesturbyggð hafa undirritað viljayfirlýsingu um uppbyggingu hátæknivinnsluhúss fyrir eldisfisk í Vesturbyggð. Áætlað er að um 100 störf skapist með nýju fiskvinnslunni og gert ráð fyrir að hægt verði að vinna allt að 80 þúsund tonn af eldisfiski í húsinu. 13.5.2022 18:23
Arion banki ríður á vaðið og hækkar vextina Arion banki hefur hækkað inn- og útlánavexti sína í framhaldi af eins prósents stýrivaxtahækkun Seðlabankans í síðustu viku. Breytingin tekur gildi í dag. 13.5.2022 15:13
Samþykktu að hækka endurgreiðslurnar upp í 35 prósent Ríkisstjórnin samþykkti í morgun frumvarp þess efnis að hækka endurgreiðslu af framleiðslukostnaði til kvikmyndaframleiðenda upp í 35 prósent fyrir stærri verkefni. 13.5.2022 13:38
Heiðursgestir í fyrsta flugi Icelandair til Raleigh-Durham í Norður-Karólínu Hjónin Peggy Oliver Helgason og Sigurður Helgason voru sérstakir heiðursgestir í fyrsta flugi Icelandair til borganna Raleigh og Durham í Norður-Karólínu í Bandaríkjunum í gær. Þetta er í fyrsta sinn í fjögur ár sem Icelandair kynnir nýjan áfangastað. 13.5.2022 11:20
Spá því að verðbólgan nái toppi í lok sumars Bæði Íslandsbanki og Landsbankinn spá því að verðbólga muni aukast á næstu mánuðum. Íslandsbanki spáir 7,5 prósent verðbólgu í maí, Landsbankinn 7,6 prósent. Báðir bankar spá því að verðbólgan nái toppi í sumar, en fari svo hægt hjaðnandi 13.5.2022 11:03
Eimskip hagnaðist um 1,5 milljarða á fyrsta ársfjórðungi Tekjur Eimskipa námu 239,7 milljónum evra á fyrsta ársfjórðungi 2022 og hækkuðu um 33% milli ára. Hagnaður tímabilsins nam 10,5 milljónum evra, jafnvirði um 1.472 milljóna króna. Það er hátt í fjórföldun frá sama tíma í fyrra þegar fyrirtækið skilaði 2,8 milljóna evra hagnaði. 12.5.2022 18:28
Auður ráðin forstjóri Orkunnar Orkan IS ehf. hefur ráðið Auði Daníelsdóttur sem nýjan forstjóra. Auður kemur til Orkunnar frá Sjóvá þar sem hún hefur starfað síðan 2002. 12.5.2022 18:03
Styrmir frá HR til N1 Styrmir Hjalti Haraldsson hefur verið ráðinn í stöðu sérfræðings á Orkusviði N1. Munu helstu verkefni hans þar snúa að greiningum á raforkumarkaði. 12.5.2022 10:13
Hlutafé fiskeldisfélags Samherja aukið um þrjá og hálfan milljarð Um þriggja og hálfs milljarðs króna hlutafjáraukning Samherja fiskeldis ehf. er sögð verða nýtt til að byggja upp tilraunaverkefni í Öxarfirði og framkvæmdir við Reykjanesvirkjun. Fyrrverandi forstjóri stærsta fiskeldisfyrirtækis heims er á meðal fjárfesta og tekur sæti í stjórn. 12.5.2022 08:45
Aukinn hagnaður Sýnar milli ára Hagnaður Sýnar á fyrsta ársfjórðungi ársins nam 207 milljónum krónum samanborið við 231 milljóna króna tap á sama tímabili í fyrra. Tekjur félagsins á ársfjórðungnum námu 5,7 milljörðum krónum og jukust um tæplega 700 milljónir á milli ára. 11.5.2022 17:47
Bein útsending: Máltækni í atvinnulífi og samfélagi Atvinnulífsráðstefna Almannaróms og Samtaka atvinnulífsins verður haldin klukkan 14:30 til 16:30 í dag í Silfurbergi í Hörpu. 11.5.2022 13:46