Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Verðbólgan hefur tvöfaldast Verðbólga hér á landi mælist nú 2,8% og hefur hún nær tvöfaldast frá áramótum samkvæmt samræmdri vísitölu neysluverðs sem Hagstofan birti í morgun. 19.8.2004 00:01
Spáð hækkandi bensínverði Áhrifa hærra olíuverðs gætir hér á landi sem annars staðar og er spáð hækkun bensínverðs á næstunni, auknum viðskiptahalla og verðbólgu. Bensín og olía hefur ekki verið dýrari hér í meira en áratug. 19.8.2004 00:01
Lífeyrissjóðir breyta ekki vöxtum Vextir á lífeyrissjóðslánum eru að minnsta kosti 0,2 prósentustigum hærri en eðlilegt væri ef sjóðirnir hefðu tekið tillit til breytinga á húsnæðislánakerfinu 1. júlí síðastliðinn. Þetta þýðir að vaxtatekjur lífeyrissjóðanna eru allt að 180 milljónum krónum hærri á ári en ef miðað væri við nýju íbúðabréfin. 19.8.2004 00:01
Hefur áhrif á íslenskt efnahagslíf Stöðugt hækkandi olíuverð á heimsmarkaði hefur neikvæð áhrif á íslenskt efnahagslíf. Það bæði dregur úr hagvexti og eykur verðbólgu. Engin verðlækkun er fyrirsjáanleg. 19.8.2004 00:01
Með kjölfestu í Opnum kerfum <font face="Helv">Hugbúnaðarfyrirtækið Kögun hefur keypt ríflega þriðjungs hlut í Opnum kerfum Group. Seljendur eru Straumur fjárfestingarbanki, sem átti 27 prósent í Opnum kerfum, og Lífeyrissjóður sjómanna. Straumur er stærsti eigandi Kögunar. Gengið í viðskiptunum var 26,5.</font> 18.8.2004 00:01
Þriðjungur tryggður Íslandsbanki hefur keypt rúma eina milljón hluta í norska bankanum KredittBanken til viðbótar við það sem bankinn hafði áður keypt. Eignarhlutur Íslandsbanka í KredittBanken er því nú um rúm níu prósent. 18.8.2004 00:01
Tíu milljarða hagnaður Samanlagður hagnaður KB banka og danska bankans FIH sem KB banki hefur tryggt sér kaup nam tæpum tíu milljörðum króna á fyrri hluta ársins. Sá danski á hagnaðist um 3,8 milljarða íslenskra króna fyrstu sex mánuði ársins. 18.8.2004 00:01
Atvinnuleysi lækkar lítið Greiningardeild KB banka er undrandi á því hve lítið atvinnuleysi minnkaði á síðustu misserum þrátt fyrir kröftugan hagvöxt. Atvinnuleysi hefur haldist í um þremur prósentum þótt hagvöxtur sé á bilinu fjögur til fimm prósent. 18.8.2004 00:01
Metur Actavis á 107 milljarða Greiningardeild Landsbankans sendi í gær frá sér nýtt verðmat á lyfjafyrirtækinu Actavis. Landsbankinn mælir áfram með sölu á bréfum í Actavis og verðmæti félagsins á 107 milljarða króna. 18.8.2004 00:01
Egilshöll seld Fasteignafélagið Nýsir hefur keypt öll hlutabréf í Borgarhöllinni hf. sem á og rekur Egilshöll í Grafarvogi. Kaupverð er ekki gefið upp en eigendur Borgarhallarinnar fá meðal annars greitt í hlutafé og taka sæti í stjórn nýs félags sem mun sjá um reksturinn. 18.8.2004 00:01
Sameinað færeysku óskabarni Skipafélag Færeyja hefur verið sameinað Eimskipafélagi Íslands. Eimskipafélagið greiddi eigendum færeyska félagsins 100 milljón danskar krónur, rúmlega milljarð íslenskra króna. 17.8.2004 00:01
Eimskip sameinast Faroe Ship Öflugasta fyrirtækjasamsteypa í flutningastarfsemi á Norður-Atlantshafi hefur orðið til með sameiningu Eimskips og stærsta skipafélags Færeyja. Tilgangurinn er að efla þjónustu Eimskips á Norður-Atlantshafi. 17.8.2004 00:01
Tveir þriðju þjóðar á mánuði Flugleiðir hafa aldrei flutt jafn marga farþega í einum mánuði og í nýliðnum júlí. Farþegar Flugleiða voru 183 þúsund í mánuðinum. Farþegum í júlí fjölgaði um 23 prósent milli ára, en þeir voru 148 þúsund í fyrra. 17.8.2004 00:01
Meira drukkið í blíðunni Sala á áfengi jókst um sautján prósent, á föstu verðlagi, á milli júlí 2003 og júlí 2004. Almennt var sala á dagvörum tæplega sjö prósentum hærri en í fyrra. 17.8.2004 00:01
Leggur engar línur Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, segir að nefnd sem skoðar umhverfi íslensks viðskiptalífs hafi frjálsar hendur í starfi sínu og henni séu ekki lagðar neinar línur. 17.8.2004 00:01
Burðarás of dýr Greiningardeild Íslandsbanka telur að hlutabréf í Burðarási séu of hátt verðlögð um þessar mundir. Í nýju verðmati kemur fram að greiningardeildin telji félagið ríflega fjörutíu milljarða króna virði. 16.8.2004 00:01
Hagnaður í samkeppni <font face="Helv">Hagnaður Flugleiða, það sem af er ári var talsvert betri en greiningardeildir bankanna gerðu ráð fyrir. Hagnaður annars ársfjórðungs nam rúmum 900 milljónum króna. </font> 16.8.2004 00:01
Vísitala framleiðsluverðs hækkar Vísitala framleiðsluverðs er 100 stig á öðrum ársfjórðungi og hækkar um 1,9% á milli fjórðunga að því er greiningardeild Landsbankans greinir frá. Verðvísitala sjávarafurða hækkar um 1,1% á milli fjórðunga og önnur iðnaðarframleiðsla hækkar um 2,5%. 14.8.2004 00:01
Hagnaður TM 208 milljónir Hagnaður Tryggingamiðstöðvarinnar á öðrum ársfjórðungi nam 208 milljónum króna samanborið við 173 milljóna króna hagnað á sama tímabili í fyrra. Greiningardeild KB banka gerði ráð fyrir 195 milljóna hagnaði á fjórðungnum og er hagnaðurinn því í góðu samræmi við væntingar. 13.8.2004 00:01
Bitnar á neytendum Hækkun olíuverðs hefur minni bein áhrif á neytendur á Íslandi en víða annars staðar. Áhrifin á atvinnustarfsemi eru hins vegar svipuð. Kostnaðarauki lendir á endanum á neytendum. 13.8.2004 00:01
Grænt ljós frá ESA á 90% lán Eftirlitsstofnun EFTA gerir ekki athugasemd við íslenska húsnæðislánakerfið og gefur grænt ljós á 90 prósenta lán. Árni Magnússon gerir ráð fyrir að leggja fram frumvarp strax í haust. </font /></b /> 12.8.2004 00:01
Gerir tilboð í norskan banka Íslandsbanki hefur gert tilboð í nítján prósent hlutafjár í norska smábankanum Kreditbanken sem þjónustar lítil og meðalstór fyrirtæki í Álasundi og nágrenni. Síðan stendur til að gera yfirtökutilboð en bankinn er metinn á þrjá og hálfan milljarð króna. Bankinn, sem er skráður í Kauphöllinni í Ósló, er tólf ára gamall og þar vinna 25 manns. 12.8.2004 00:01
Og Vodafone kaupir Margmiðlun Og Vodafone hefur gert samning um kaup á Margmiðlun fyrir 310 milljónir króna. Þar af er um helmingur greiddur með peningum en eftirstöðvarnar greiðir símafyrirtækið með því að gefa út nýja hluti til seljenda sem þeir mega selja Og Vodafone aftur eftir tvö ár. 12.8.2004 00:01
TM hagnast um 208 milljónir Tryggingamiðstöðin hagnaðist um 208 milljónir króna á öðrum ársfjórðungi. Það sem af er ári hefur félagið hagnast um 1.301 milljón en á sama tíma í fyrra var hagnaðurinn 333 milljónir króna. 12.8.2004 00:01
Tap hjá Medcare Medcare Flaga tapaði 558 þúsund Bandaríkjadölum á öðrum ársfjórðungi. Það samsvarar tæpum fjörutíu milljónum íslenskra króna. Á fyrsta ársfjórðungi var tapið tæplega milljón dalir. 12.8.2004 00:01
41 milljónar hagnaður Opin kerfi group hagnaðist um 41 milljón á öðrum árfsjórðungi í ár. Afkoman er í samræmi við væntingar greiningardeilda þó tæplega 50 milljón króna afskriftir á eign í öðrum félögum sé hærri en þær gerðu ráð fyrir. 11.8.2004 00:01
Gengi krónunnar lækkar Gengi krónunnar hefur lækkað um hálft prósent frá upphafi mánaðarins að því er Íslandsbanki greinir frá. Mest af lækkuninni átti sér stað í gær en þá lækkaði gengið um 0,3%. Lækkunin kemur í kjölfar hækkunarhrinu sem stóð nær sleitulaust allan síðastliðinn mánuð eða frá því að Seðlabankinn hækkaði stýrivexti sína í upphafi mánaðarins. 10.8.2004 00:01
Torg ehf. kaupir Fróða Torg ehf., fyrirtæki í eigu Prentsmiðjunnar Odda hf., hefur keypt öll hlutabréf í útgáfufyrirtækinu Fróða hf. og mun taka við rekstri Fróða hf. frá og með deginum í dag. Aðaleigandi Fróða hf., Magnús Hreggviðsson, hefur ákveðið að draga sig út úr útgáfurekstri. 10.8.2004 00:01
Hagnaðist um 2,5 milljónir evra Hagnaður Marels á öðrum ársfjórðungi nam 2,53 milljónum evra að því er greiningardeild KB banka greinir frá og er það töluvert yfir væntingum bankans. Hann gerði ráð fyrir 1,88 milljóna evra hagnaði á fjórðungnum sem er 34,6% undir réttri tölu. 10.8.2004 00:01
Gamlir seldir sem nýir Nokkuð er um að bílar sem seldir eru á Íslandi sem nýir séu í raun gamlir bílar sem staðið hafa óseldir erlendis jafnvel í nokkur ár. Þetta getur haft í för með sér vandamál þar sem bílar geta skemmst ef þeir standa óhreyfðir. 10.8.2004 00:01
Gott gengi Marels Sex mánaða uppgjör Marels sýnir töluvert betri niðurstöðu en greiningardeildir bankanna gerðu ráð fyrir. Hagnaður af rekstrinum á öðrum ársfjórðungi nam 2,54 milljónum evra (um 220 milljónir króna) en á sama tímabili í fyrra nam hagnaður af rekstrinum 1,7 milljón evra. 10.8.2004 00:01
Landsbankinn blæs til sóknar Landsbankinn blæs til sóknar í samkeppninni um viðskipti einstaklinga með því að bjóða upp á nýja leið til að tryggja afkomu fjölskyldunnar lendi hún í áföllum. Fréttastofan kynnti sér þetta útspil bankans í dag en í því felst meðal annars að möguleikar viðbótarlífeyrissparnaðar eru nýttir til fulls. 10.8.2004 00:01
Aukið flug austur Gríðarleg aukning hefur orðið á innanlandsflugi í sumar og segir Jón Karl Ólafsson, framkvæmdastjóri Flugfélags Íslands, að enn sé búist við frekari flugumferð. "Við sjáum 15-18 % vöxt frá því á sama tíma í fyrra og aukningin er mest austur á landið." 9.8.2004 00:01
Kaup KB banka á FIH tryggð Eigendur 96,38% hlutafjár í KB banka tóku þátt í hlutafjárútboði bankans en því lauk á föstudag. Í boði voru 110.137.128 nýir hlutir á genginu 360 krónur (37,30 sænskar krónur). Söluverð þessara hluta nemur samtals tæplega 39,7 milljörðum króna. Forgangsréttarhafar skráðu sig fyrir mun fleiri hlutum en í boði voru. 9.8.2004 00:01
96% nýttu forkaupsréttinn Rúmlega 96% hluthafa í KB banka nýttu sér forkaupsrétt sinn í hlutafjárútboði bankans sem lauk fyrir helgi. Forgangsrétthafar skráðu sig auk þess fyrir mun fleiri hlutum en í boði voru og skipta þeir með sér þeim tæpu fjóru prósentum sem ekki seldust hluthöfum samkvæmt forgangsrétti. 9.8.2004 00:01
13,9 milljóna evra hagnaður Actavis skilaði 13,9 milljónum evra í hagnað eftir skatt á öðrum ársfjórðungi þessa árs. Veltan var 108,7 milljónir evra en þar af nam sala til þriðja aðila 38,6 milljónum og sala eigin vörumerkja 57,2 milljónum. 9.8.2004 00:01
Ekki strax á markað í London Ekki er ákveðið hvenær Actavis verður skráð á hlutabréfamarkað í Lundúnum en það verður ekki fyrr en eftir áramót og hugsanlega ekki fyrr en eftir að ársreikningur ársins 2004 liggur fyrir. 9.8.2004 00:01
Högnuðust um 6,5 milljarða Hluthafar KB banka, sem tóku þátt í hlutafjárútboði bankans á dögunum, hafa hagnast um rúmlega sex og hálfan milljarð króna. Búist er við að bankinn vaxi enn frekar á næstunni en hann er nú töluvert stærri en Íslandsbanki og Landsbanki til samans. 9.8.2004 00:01
Ekki á markað fyrr en eftir áramót Actavis verður ekki skráð á hlutabréfamarkað í Lundúnum fyrr en eftir áramót. Hagnaður á fyrstu sex mánuðunum í ár er meiri en í fyrra en hægar gengur að byggja markaði í Búlgaríu en vonir stóðu til. </font /></b /> 9.8.2004 00:01
Mikil velta íbúðabréfa Mikil velta hefur verið með íbúðabréf frá því viðskipti hófust þann 8. júlí samkvæmt greiningardeild Íslandsbanka. Alls nemur veltan um 70 milljörðum króna eða um 3,4 milljörðum króna að meðaltali á dag. 6.8.2004 00:01
Hagnaður SH tvöfaldaðist Hagnaður Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna á fyrstu sex mánuðum ársins tvöfaldaðist frá fyrra ári og nam rúmum 340 milljónum króna. Í tilkynningu frá félaginu kemur fram að fyrsti ársfjórðungur hafi farið fram úr áætlunum en að annar ársfjórðungur hafi verið aðeins undir áætlun. 6.8.2004 00:01
Sæplast tapaði 50 milljónum Sæplast tapaði tæpum 50 milljónum króna á fyrstu sex mánuðum ársins en á sama tímabili í fyrra var rúmlega tuttugu milljóna króna hagnaður. Í tilkynningu frá Sæplasti er mismunurinn sagður fyrst og fremst vegna samdráttar í sölu og hærri fjármagnskostnaðar. 6.8.2004 00:01
Markaðssetning að skila sér Metfjöldi erlendra ferðamanna hefur sótt landið heim frá því í janúar og er það met á þessum tíma árs. Nýjar tölur Ferðamálaráðs sýna að aukinn fjöldi erlends ferðafólks frá því á sama tíma í fyrra nemur 17 prósentum. 6.8.2004 00:01
Afmarkaðra verðstríð en áður Verðstríðið á bensínmarkaði virðist hafa tekið á sig nýja mynd og er nú bundið við afmörkuð svæði en breiðist ekki jafnt út um höfuðborgarsvæðið. Hagsmunasamtök neytenda og olíufélögin segja þetta einkenni nýs viðskiptaumhverfis á Íslandi. </font /></b /> 6.8.2004 00:01
Gengið niður fyrir 6 dollara Hlutabréf í DeCode, móðurfélagi Íslenskrar erfðagreiningar, lækkuðu mikið á fjármálamarkaðinum vestanhafs í gær og fór gengið nokkuð niður fyrir sex dollara á hlut. Í febrúar á þessu ári hafði gengið hins vegar þokast upp í rúmlega 13 dollara en síðan hefur það nær óslitið lækkað. 5.8.2004 00:01