Fleiri fréttir

Fjölgun einkahlutafélaga

Sveitarfélög landsins verða af um og yfir milljarði króna á ári hverju vegna breytinga á lögum um tekju- og eignaskatt. Fólk borgar minni skatta á eftir og sveitarfélögin vilja að ríkið bæti þeim tekjumissinn.

Breyta ekki bensínneyslu

Magnús Ásgeirsson hjá Essó segir að hækkun olíuverðs á heimsmarkaði hafi líklega ekki mikil áhrif á bensínkaup íslenskra neytenda. "Sjálfsagt erum við Íslendingar þannig að við búumst alltaf við því að það birti einhvern tímann upp í þessum efnum þó að það sé ekki mjög bjart í augnablikinu," segir hann

Orðnar meiri en landsframleiðslan

Eignir íslenskra lífeyrissjóða eru orðnar meiri en sem nemur heildarframleiðslu þjóðarinnar á einu ári. Eignir lífeyrissjóðanna eru nú um 870 milljarðar eða 102 prósent af landsframleiðslunni.

Fjárfestar búast við yfirtöku

Bréf í breska bankanum Singer and Friedlander hækkuðu um tíu prósent í gær. Kaup Burðaráss í félaginu hafa gefið væntingum um yfirtöku KB banka byr undir báða vængi. Geri KB banki yfirtökutilboð, má búast við því að það verði yfir núverandi markaðsgengi. Gengi bréfa Singer and Friedlander hækkaði einnig um tíu prósent í fyrradag.

Beint flug til Tókýó

Japanir geta flogið án millilendingar til Íslands á vegum Icelandair næstu fjóra föstudaga. Guðjón Arngrímsson, upplýsingafulltrúi Icelandairs, segir Boeing 767 þotu sem taki um 280 manns í sæti flytja farþegana og sé uppselt í ferðirnar.

Jón Ásgeir tekjuhæstur

Aðeins einn maður á Íslandi er með meira en tíu milljónir króna í laun á mánuði. Það er Jón Ásgeir Jóhannesson forstjóri Baugs. Stöð 2 fékk að rýna í árlegt Tekjublað Frjálsrar verslunar áður en prentsvertan þornaði á því.

Óeðlileg hækkun bensíngjalda

Hafnarnefnd Reykjavíkurhafnar hefur hækkað vörugjöld á bensíni úr 172 krónum í 210. Þessi breyting var gerð 1. júlí síðastliðinn og er hækkunin 23%. Frá sama tíma hækkaði hafnarnefndin vörugjöld á öllum algengasta neysluvarningi um 184%.

Jólin hjá bönkunum

Afkoma bankanna afar góð og styrkur bankakerfisins hefur sjaldan verið meiri. Útrásin er farin að setja mark sitt á uppgjör bankanna og allir stefna þeir að vexti erlendis </font /></b />

Vöruskiptajöfnuður lakari

Vöruskiptajöfnuðurinn var 14,7 milljörðum króna lakari á fyrstu sex mánuðum ársins en á sama tíma árið áður. Vöruskiptin í júní voru óhagstæð um 6,9 milljarða króna þar sem fluttar voru út vörur fyrir 16,3 milljarða en inn fyrir 23,2 milljarða króna. Í júní í fyrra voru vöruskipti óhagstæð um 3,2 milljarða á föstu gengi.

Skattaálagning 2004

Samanlögð álagning tekjuskatta og útsvars nemur 129,2 milljörðum króna og hækkar um 6,3% frá fyrra ári. Heildarfjöldi framteljenda árið 2004 var 229.665. Tekjuskattar til ríkissjóðs nemur alls 66,2 milljörðum króna og hækka um 7,5% milli ára.

Hagnaður Landsbanka 6 milljarðar

Hagnaður Landsbankans á fyrstu sex mánuðum ársins eru sex milljarðar króna en heildareignir bankans eru 558 milljarðar króna. Mikill innri vöxtur hefur einkennt þróun bankans síðustu mánuðina og hafa heildareignir hans tvöfaldast frá lokum fyrsta ársfjórðungs 2003.

Mikill hagnaður bankanna

Landsbankinn og KB banki högnuðust um sex milljarða króna hvor um sig á fyrstu sex mánuðum ársins. Greiningardeild Landsbankans hafði spáð KB banka mun meiri hagnaði.

Hagnaður tvöfaldast milli ára

Hagnaður KB banka á fyrri hluta ársins nam rúmum 6,1 milljarði króna. </font /> Hagnaðurinn var minni en greiningardeildir bankanna höfðu spáð, en mikill munur var á spá Landsbankans og Íslandsbanka um rekstrarniðurstöðu bankans. Hagnaður KB banka á öðrum ársfjórðungi var 3,5 milljarðar króna

Hagnaðurinn 22 milljarðar

Hagnaður fjögurra banka nam 22 milljörðum króna á fyrri helmingi ársins. Hagnaðaraukningin mill ára er 14,5 milljarðar króna. Gengishagnaður verðbréfaeignar bankanna á stóran þátt í hagnaðinum. Útlán og eignir bankanna hafa vaxið mikið. Útlán viðskiptabankanna þriggja nema tæpum 1.200 milljörðum og hafa aukist um 190 milljarða.

Stærsta hlutafjárútboð Íslands

Sala á hlutafé fyrir 40 milljarða í KB banka hefst í dag. Þetta er langstærsta hlutafjárútboð á íslenskum markaði frá upphafi. Yfir 36 þúsund hluthafar sem áttu hlut í í KB banka þann 5. júlí hafa forkaupsrétt að hlutum í bankanum.

Ósátt við ÍLS

Greiningardeildir bankanna eru ósáttar við skort á gagnsæi við útboð á nýjum húsnæðisskuldabréfum. Í gær tilkynnti Íbúðalánasjóður að lokið hefði verið við sölu á skuldabréfum fyrir um fimm milljarða króna. Útboðið var lokað og komu einungis Íslandsbanki og Deutschebank að því.

Hluthöfum býðst skjótfenginn gróði

Skjótfenginn og fyrirhafnarlaus gróði býðst þeim hluthöfum KB banka sem nýta sér forkaupsrétt í hlutafjárútboði bankans á morgun sem að líkindum er stærsta hlutafjárútboð Íslandssögunnar.

Hagnaður Össurar tvöfaldast

Stoðtækjafyrirtækið Össur jók hagnað sinn verulega á öðrum ársfjórðungi og tvöfaldaði hann á milli ára samkvæmt uppgjöri sem kynnt var í morgun. Rekstrarhagnaður Össurar á öðrum ársfjórðungi var 5,6 milljónir Bandaríkjadala, eða 409 milljónir íslenskra króna, og jókst hann um rúmlega 120 % á milli ára.

6,8 milljarðar í hagnað

Hagnaður Íslandsbanka á fyrstu sex mánuðum ársins nam 6,8 milljörðum króna eftir skatta. Þar af er hagnaður af bankanum 3,7 milljarðar og hagnaður af tryggingarfélaginu 3,1 milljarður. Hagnaður af öðrum ársfjórðungi ársins hljóðar upp á tæplega 2,3 milljarða króna.

Bjartsýnin meiri án fjölmiðlamáls

<font face="Helv"></font> Væntingavísitala Gallups hækkaði í júlí eftir samfellda lækkun frá í mars. Væntingavísitalan mælist nú 115,6 stig, en bjartsýning reis hæst í mars á þessu ári þegar vísitalan mældist tæp 133 stig. Lækkun vísitölunnar síðustu mánuði á undan skýrðist af aukinni svartsýni um efnahags og atvinnuástand að sex mánuðum liðnum. Nú horfa fleiri til betri tíðar með blóm í haga.

Kraftur í tónlistarútgáfu

Bæði tónlist og bækur hafa selst vel í sumar þrátt fyrir að báðar vörur hafi um áratugaskeið verið háðar miklum árstíðarsveiflum þar sem nær öll salan hefur farið fram í kringum jólin. Nú í sumar hefur þó nokkur fjöldi nýrra tónlistardiska komið út og bera útgefendur sig vel.

Skatturinn heim á föstudag

Álagning opinberra gjalda 2004 á einstaklinga hefur farið fram. Álagningar- og innheimtuseðlar verða bornir út föstudaginn 30. júlí. Þeir sem skiluðu rafrænum framtölum geta skoðað álagningar- og innheimtuseðil sinn ásamt endurskoðuðu framtali á vefsíðu ríkisskattstjóra, rsk.is frá og með miðvikudeginum 28. júlí.

Afkomumet hjá Íslandsbanka

Uppgjör Íslandsbanka var yfir væntingum greingingardeilda. Hagnaður síðasta fjórðungs var 2,2 milljarðar. Bankinn hefur aldrei hagnast meir af reglulegri starfsemi. Lán til erlendra aðila eru 22 prósent af útlánum bankans.

Bjartsýnin meiri án fjölmiðlamáls

Væntingavísitala Gallups hækkaði í júlí eftir samfellda lækkun frá í mars. Væntingavísitalan mælist nú 115,6 stig, en bjartsýnin reis hæst í mars þegar vísitalan mældist tæp 133 stig. Lækkun vísitölunnar síðustu mánuði á undan skýrðist af aukinni svartsýni um efnahags og atvinnuástand að sex mánuðum liðnum. Nú horfa fleiri til betri tíðar.

Hálfur milljarður í hagnað

Hagnaður Össurar tvöfaldaðist á milli ára. Hagnaður annars ársfjórðungs nam 281 milljón króna. Hagnaðurinn er talsvert meiri en greiningardeildir höfðu spáð. Greiningardeildir bankanna spáðu að hagnaður annars ársfjórðungs yrði á bilinu 157 til 236 milljónir króna. Hagnaður fyrri árshelmings er rúmur hálfur milljarður.

Hlutabréf í deCode lækka enn

Hlutabréf í deCode, móðurfélagi Íslenskrar erfðagreiningar, halda áfram að lækka og fór gengi þeirra niður í 6 dollara og 66 sent á föstudag eftir rúmlega tveggja prósenta lækkun. Síðasta umtalsverða lækkun var tólfta þessa mánaðar þegar bréfin lækkuðu um 3,6 prósent.

Athugasemd frá Íbúðalánasjóði

Íbúðalánasjóður og framkvæmdastjóri Samtaka banka og verðbréfafyrirtækja deila enn hart vegna breytinga á húsnæðislánakerfinu sem tóku gildi 1. júlí og saka aðilar hvor annan um ófagleg vinnubrögð. Íbúðalánasjóður sendi í dag frá sér athugasemdir vegna ummæla framkvæmdastjóra SBV.

DeCode lækkar áfram

Gengi DeCode á bandaríska hlutabréfamarkaðinum Nasdaq heldur áfram að lækka. Í viðskiptum í upphafi dags í gær fór hluturinn niður í 6,30 Bandaríkjadal.

Sumarbókaflóð

Mikil aukning hefur orðið á bókaútgáfu að sumri til á síðustu árum. Útgefendur segja helstu breytinguna felast í því að meiri áhersla er lögð á að gefa út kiljur og að neytendur kaupi í auknum mæli bækur í því formi til að lesa yfir sumartímann.

Uppgjör í dag

Stoðtækjafyrirtækið Össur birtir uppgjör sitt í dag. Afkoman á fyrsta ársfjórðungi var betri en greiningardeildir bankanna höfðu spáð.

Búist við milljarði á mánuði

Íslandsbanki birtir uppgjör sitt í dag fyrir fyrri helming ársins. Íslandsbanki er fyrstur bankanna til að birta uppgjör. Hinir tveir birta uppgjör sín á fimmtudag. Búist er við góðum uppgjörum fjármálafyrirtækja, enda umhverfið verið þeim hagstætt að undanförnu.

Gengishagnaður strax við kaup

"Þetta er ósköp einfalt. Bréf KB banka hafa verið að seljast á genginu 420 til 450 krónur á hlut. Gengið í útboðinu er 360 krónur á hlut," segir Karl Finnbogason hjá Verðbréfastofunni um hlutafjárútboð KB banka. "Við ráðleggjum okkar viðskiptavinum að taka þátt í þessu útboði, það er engin spurning."

KB banki leiðir sænsku kauphöllina

KB banki leiðir hækkanir á sænska markaðnum. Bankinn vekur sífellt meiri athygli í Svíþjóð. Umskipti hafa orðið í umræðunni um bankann frá því að félag fjárfesta réði sínu fólki frá því að eignast bréf í bankanum. </font /></b />

Hart deilt um kerfisbreytingar

Íbúðalánasjóður og Samtök banka og verðbréfafyrirtækja saka hver annan um ófagleg vinnubrögð. SBV segir breytingar á íbúðalánakerfinu ekki hafa verið nægilega vel unnar. Íbúðalánasjóður vísar gagnrýninni á bug. </font /></b />

Straumur hagnast um 1,12 milljarða

Hagnaður Straums - fjárfestingabanka á öðrum ársfjórðungi 2004 nam 1.122 milljónum króna. Hreinar rekstrartekjur bankans námu 1.457 milljónum kr. en þar af var gengishagnaður 1.230 milljónir. Þetta kemur fram í uppgjöri Straums fyrir annan ársfjórðung ársins sem birt var í dag og er þetta fyrsta uppgjörið fyrir fjórðunginn.

Milljarður í hagnað hjá Norðuráli

Rekstur Norðuráls skilaði ríflega eins milljarðs króna hagnaði eftir skatta á síðasta ári eða sem nemur rúmlega 13 milljónum bandaríkjadala. Það er aukning um tæplega þrjár milljónir dala eða ríflega 200 milljónir króna. Þetta kemur fram í tilkynningu sem fyrirtækið sendi frá sér í dag.

Decode tekur dýfu

Gengi deCode hefur lækkað skarpt á síðustu dögum á Nasdaq-markaðnum í Bandaríkjunum. Gengi bréfa í félaginu fóru niður í 6,65 Bandaríkjadali á hlut á miðvikudag. Hæst fóru bréfin í 13,8 dali í febrúar.

Krónan styrktist mikið

Líflegt var á gjaldeyrismarkaði í gær og námu viðskipti dagsins 4,6 milljörðum króna. Íslenska krónan styrktist um 0,7% sem telst mjög mikið á einum degi. Krónan hefur styrkst um 1,4% frá áramótum en til samanburðar styrktist krónan um 6,4% á síðasta ári.

SH kaupir í Bretlandi

Sölumiðstöð Hraðfrystihúsanna hefur keypt 80% í breska matvælafyrirtæki. Fyrirtækið, Seachill, selur mikið af kældum fiskafurðum til verslunarkeðjunnar Tesco í Bretlandi. Kaupverðið er 4,9 milljarðar króna.

Landsteinar á ÓL

Hugbúnaðarlausnir frá Landsteinum - Streng verði notaðar í öllum verslunum á Ólympíuleikunum í Aþenu sem hefjast í september. Í fréttatilkynningu frá félaginu kemur fram að um 110 verslanir sé að ræða og að í kjölfar leikanna verði kerfi frá íslenska fyrirtækinu tekin í notkun á flughöfnum víðs vegar um Grikkland.

Eignarhald á hendi fárra

Eignarhald á félögum í Kauphöll Íslands eru á fárra hendi í mörgum tilvikum að því er fram kemur í „Morgunkornum“ Greiningar Íslandsbanka í gær. Þegar hluthafalistar 25 helstu félaga Kauphallarinnar eru skoðaðir kemur í ljós að meðal þeirra nemur eign fimm stærstu hluthafa allt frá 35% til 96% hlutafjár.

Ísland í 14. sæti í frjálsræði

Ísland er í 14. sæti á lista yfir þær þjóðir þar sem mest frjálsræði er í efnahagsmálum samkvæmt nýrri skýrslu frá Fraser-stofnuninni í Kanada. Forstöðumaður Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands segir þetta viðunandi stöðu en auka megi frelsi hér á landi enn frekar með því að aflétta hömlum á landbúnaðarvörum og lækka skatta.

Verslanir Símans í nýjan búning

Breytingar á verslunum Símans standa nú sem hæst og verður unnið að því að breyta öllum verslunum Símans til samræmis við nýtt útlit fyrirtækisins. Í dag verður verslun Símans í Kringlunni opnuð með nýju útliti.

Vísitala neysluverðs lækkar

Vísitala neysluverðs lækkaði um 0,47% í júlí og var lækkunin töluvert umfram það sem markaðsaðilar höfðu reiknað með. Ástæðan liggur m.a. í húsnæðislið neysluverðsvísitölunnar og má rekja til kerfisbreytinga Íbúðalánasjóðs um síðustu mánaðarmót og aðferðafræði Hagstofunnar, að sögn greiningardeildar Landsbankans.

Í 14. sæti yfir efnahagsfrjálsræði

Ný skýrsla sýnir að Ísland stendur sig ágætlega hvað varðar frjálsræði í efnahagsmálum. Fjárfesting, landsframleiðsla og tekjur á mann haldast í hendur við stöðu þjóða á listanum þar sem velsæld er mest hjá þeim sem búa við mest frjálsræði. </font /></b />

Sjá næstu 50 fréttir