Fleiri fréttir

Opnunartímar apóteka á frídegi verslunarmanna
Í tilefni af frídegi verslunarmanna, mánudaginn 1. ágúst, verða opnunartímar margra verslana skertir, þar á meðal apóteka.

Opnunartímar matvöruverslana á frídegi verslunarmanna
Í tilefni af frídegi verslunarmanna, mánudaginn 1. ágúst, verða opnunartímar margra verslana skertir. Fólk þarf því að huga að því að nóg sé til í ísskápnum þegar það kemur heim úr fríi eftir helgina.

Útskriftarnemar höfðu betur gegn Tripical
Ferðaskrifstofunni Tripical Travel var óheimilt að hækka verð pakkaferða útskriftarnema til Krítar með vísan til breytinga á eldsneytisverði. Þetta er niðurstaða Neytendastofu sem hefur borist fjöldi kvartana vegna ferðarinnar.

Skortur á Parkódín forte
Verkjalyfið Parkódín forte 500 mg/30 mg er ófáanlegt hjá heildsala í tuttugu, þrjátíu, fjörutíu og hundrað stykkja pakkningum þar sem sendingar af lyfinu hafa ekki borist til landsins. Erfiðara hefur því reynst fyrir fólk að nálgast verkjalyfið í apótekum.

Aðskotahlutur fannst í kartöflusalati
Þykkvabæjar hefur innkallað og tekið kartöflusalat með lauk og graslauk í 400 gramma umbúðum úr sölu þar sem aðskotahlutur hefur fundist í vörunni.

Verðbólgan ekki á förum þó verð á ákveðnum vörum lækki
Verðlækkanir í ákveðnum vöruflokkum eru ekki endilega til marks um hjaðnandi verðbólgu. Þættir sem stuðla að aukinni verðbólgu vega á móti þeim sem hægja ættu á henni. Hagfræðingur segir verðbólguna ekkert á förum.

Eina lausnin að borga aukalega til að sitja með börnum sínum
Anna Gunndís Guðmundsdóttir gagnrýnir Icelandair harðlega fyrir viðmót gagnvart henni nú nýverið þegar hún keypti flugmiða fyrir sig og börnin sín til Kaupmannahafnar. Upplýsingafulltrúi Icelandair segir sveigjanleikann ekki jafn mikinn með litlum fyrirvara.

Tjaldsvæði vinsæl víða um land
Ferðasumarið virðist vera að hefjast og af því tilefni ákvað fréttastofa að taka saman og staðfesta verð og bókunarferli á tjaldsvæðum víða um land. Hægt er að nálgast frekari upplýsingar um tjaldsvæðin á tjalda.is.

Síminn Sport hækkað um 40 prósent frá áramótum
Síminn hefur ákveðið að hækka verð á flestum vörum sínum en hækkanirnar taka gildi næstu mánaðamót. Þar á meðal hækkar verðið á Símanum Sport í 4.900 krónur en frá áramótum hefur verðið á sportpakka Símans hækkað um 40 prósent.

Mikilvægast að spenna bogann ekki of hátt við lántöku
Hagfræðingur segir ólíklegt að verðbólga hjaðni á næstunni, þótt hægja muni á henni. Vaxtabyrði óverðtryggða húsnæðislána hafi aukist verulega vegna vaxtahækkana að undanförnu og fólk verði að varast að spenna bogann of hátt.

Vill sjá heimild til að lengja í lánum til að létta greiðslubyrðina
Formaður Starfsgreinasambandsins segir að heimild þurfi til að lengja í óverðtryggðum lánum til að létta greiðslubyrði þeirra í upphafi lánstímans. Óverðtryggðum lánum fjölgaði mikið í faraldrinum, en greiðslubyrði hefur aukist vegna vaxtahækkana að undanförnu.

„Við þessar aðstæður þurfa stjórnvöld að fara að stjórna“
Verðbólga hefur ekki mælst meiri síðan haustið 2009, og spár benda til þess að hún hækki enn frekar. Formaður fjárlaganefndar Alþingis segir að vel sé fylgst með stöðunni en þingmaður stjórnarandstöðunnar telur að grípa þurfi til aðgerða áður en það verður of seint.

„Ekkert hægt að koma í veg fyrir þessa þróun“
Heimkaup opnuðu í dag fyrir sölu á áfengi á vefsíðu sinni. Forstjóri Heimkaupa segir þetta mikil tímamót. Nú sé í fyrsta skipti á Íslandi hægt að versla sér mat og áfengi á sama stað líkt og annars staðar í Evrópu.

Kvörtunum í tengslum við flugferðir rignir inn
Kvörtunum vegna seinkana og niðurfellinga á flugferðum hefur stórfjölgað að sögn formanns Neytendasamtakanna en mikil mannekla er á flugvöllum víða um heim. Hann telur flugfélög þurfa að standa sig betur í að upplýsa farþega um réttindi sín.

Sekta Orkusöluna vegna flutninga viðskiptavina til sín án samþykkis
Neytendastofa hefur sektað Orkusöluna um 400 þúsund krónur fyrir að hafa flutt viðskiptavini annars fyrirtækis yfir til sín án þess að fyrir lægi samþykki þeirra. Auk þess var upplýsingagjöf Orkusölunnar til nýrra viðskiptavina talin vera brot gegn góðum viðskiptaháttum.

Megavikupítsur orðnar hundrað krónum dýrari
Pítsa á matseðli í Megaviku, tilboðsviku Domino‘s, hefur hækkað í verði um eitt hundrað krónur. Pítsan kostaði lengi vel 1.590 krónur, hækkaði þá í 1.690 og var verðið enn hækkað um hundrað krónur í þessari viku og stendur nú í 1.790 krónum.

Hægt að nálgast ódýrari bjór eftir lagabreytinguna
Stærsta breyting á áfengislögum frá því að bjórbanninu var aflétt var samþykkt í gær. Bruggarar eru himinlifandi með áfangann en vona að þetta sé aðeins fyrsta skrefið í átt að frjálsum áfengismarkaði á Íslandi.

Bensínverð ekki náð methæðum að raunvirði og geti enn hækkað
Þrátt fyrir að bensínverð hafi aldrei verið hærra í krónum talið í kjölfar umtalsverðra hækkana er enn nokkuð í að bensínverð nái hæstu hæðum á Íslandi.

Hækkað vexti íbúðalána þrisvar á einum mánuði
Landsbankinn hækkaði í dag fasta vexti á nýjum óverðtryggðum íbúðalánum í þriðja sinn á einum mánuði. Einnig voru fastir vextir á nýjum verðtryggðum íbúðalánum hækkaðir í fyrsta sinn frá því í mars.

350 króna múrinn fallinn
Bensínlítrinn er nú víða kominn yfir 350 krónur í kjölfar umtalsverðra hækkana seinustu misseri. Samkvæmt gögnum frá Gasvaktinni reið Orkan á vaðið á mánudag og hækkaði verð á flestum stöðvum sínum um 11,5 krónur úr 343,4 krónum í 354,9 krónur á lítrann.

Eiga rétt á fullri endurgreiðslu og bótum
Tugir kvartana hafa borist Neytendasamtökunum síðustu daga eftir óvenjumikið af aflýsingum á flugferðum. Formaður samtakanna segir flugfélögin oft sleppa því að upplýsa fólk um fullan rétt sinn á skaðabótum sem sé mun meiri en flestir átti sig á.

Samkeppniseftirlitið með verðhækkanir til skoðunar
Samkeppniseftirlitið skoðar nú hvort greina megi samkeppnislagabrot í þeim verðhækkunum sem eiga sér stað um þessar mundir. Hagfræðingur bendir á að þeir vöruflokkar sem búi ekki við erlenda samkeppni hafi hækkað langmest.

Matarkarfan hækkar um allt að 16,6 prósent
Matar- og drykkjarvörur hafa hækkað um allt að 16,6% á síðustu sjö mánuðum. Þetta sýnir ný verðlagskönnun Alþýðusambands Íslands sem birt var í dag en í átta af átta verslunum sem könnunin nær til hækkað vörukarfa ASÍ.

Hækka íbúðalánavexti í annað sinn á tveimur vikum
Landsbankinn hækkaði á miðvikudag vexti óverðtryggðra íbúðalána í annað sinn á um tveimur vikum. Fastir vextir á nýjum óverðtryggðum lánum til þriggja ára hækkuðu um 0,35 prósentustig og 0,30 prósentustig í tilfelli nýrra lána með föstum vöxtum til fimm ára.

Bensínverð Orkunnar hækkar um 30 krónur með nokkrum metrum
Verð á bensíni hefur aldrei verið hærra í krónum talið og er fyrirséð að það hækki enn meira á næstu vikum. Bensínfyrirtæki eiga erfitt með að skýra gríðarlegan verðmun milli eigin stöðva, jafnvel stöðva sem liggja hlið við hlið.

Kalla eftir að stjórnvöld bregðist við síhækkandi eldsneytisverði
Félag íslenskra bifreiðaeigenda kallar eftir því að stjórnvöld bregðist við síhækkandi eldsneytisverði, sem hefur aldrei verið hærra. Framkvæmdastjóri félagsins segir hækkanirnar sérstaklega koma niður á þeim sem hafi minna á milli handanna og þeim sem þurfi að ferðast langar vegalengdir.

Kvóti fyrir rafbíla að klárast: Rafbílar gætu hækkað um meira en milljón í verði á næstu mánuðum
Verð á rafbílum gæti hækkað um allt að eina og hálfa milljón á næstu mánuðum þegar fjöldakvóti fyrir skattaívilnanir stjórnvalda klárast. Miðað við núverandi sölu á rafbílum gæti kvótinn klárast í síðasta lagi eftir þrjá mánuði.

Bílaleigur stórauka bílakaup en horfa í auknum mæli til bensín- og dísilbíla
Fleiri horfa nú til bensín- og dísilbíla, sérstaklega bílaleigur, eftir að verð á tengiltvinnbílum hækkaði í vor. Stóraukin umsvif bílaleiga eru meginástæða þess að sala á bílum jókst verulega á milli ára fyrstu mánuði ársins.