Fleiri fréttir

Heimsmarkaðsverð á olíu hækkar að nýju

Heimsmarkaðsverð á olíu fer aftur hækkandi. Tunnan af bandarisku léttolíunni er komin í tæpa 100 dollara og hefur hækkað um tæp 4% á nokkrum dögum. Tunnan af Brentolíunni fór yfir 116 dollara markið í morgun.

Creditinfo veitir fyrirtækjum viðurkenningu

Creditinfo mun veita fimm íslenskum fyrirtækjum viðurkenningu fyrir framúrskarandi árangur þann 9. febrúar á Hótel Sögu. Oddný G. Harðardóttir fjármálaráðherra mun afhenda fyrirtækjunum viðurkenningu fyrir hönd Creditinfo. Er þetta annað árið í röð sem Creditinfo afhendir slíkar viðurkenningar til íslenskra fyrirtækja.

Markaður fyrir ódýrar kvikmyndir að stækka

Markaður fyrir ódýrar kvikmyndir hefur stækkað hratt undanfarin misseri í Bandaríkjunum. Í undantekningatilfellum borga dýrar kvikmyndir sig og er þá hægt að græða mikla ef vel tekst til.

Mikil fjölgun íslenskra ferðamanna í Danmörku

Ferðum Íslendinga til Danmerkur fjölgaði um nærri fimmtung á síðasta ári ef mið er tekið af þeim fjölda gistinátta sem hagstofa Dana merkir Íslendingum. Í heildina fjölgaði gistinóttum í Danmörku um þrjá af hundraði.

Nemendur fengu allir spjaldtölvur

Danska sveitarfélagið Odder spjaldtölvuvæddi alla grunnskólanema og kennara. Kennslubækurnar settar beint inn á tölvurnar frá forlögum. Nemendurnir himinlifandi. Kennararnir segja þá einbeittari.

Rífandi gangur hjá Icelandair í ársbyrjun

Fjöldi farþega hjá Icelandair jókst um 13% í janúar miðað við sama mánuð í fyrra.. Í tilkynningu segir að sætanýtingin í janúar hefur aldrei verið hærri í þeim mánuði en hún var rúm 69% og jókst um 3,5 prósentustig á milli ára.

Bensínverðið rýfur 250 króna múrinn

Skeljungur hækkaði bensínverð um fimm krónur á lítrann í gærkvöldi og kostar hann nú tæplega 251 krónu. Þetta er í fyrsta sinn sem bensínlítrinn fer í 250 krónur.

Rekstur Toyota gekk vonum framar

Rekstur japanska bílaframleiðandans Toyota gekk vonum fram á síðasta fjórðungi síðasta árs þrátt fyrir að hagnaður félagsins hafi dregist saman um 13,5 prósent miðað við sama tímabil árið á undan. Hagnaður Toyota var ríflega einn milljarður dala eða sem nemur 122 milljörðum króna. Búist hafði verið við því að hagnaðurinn myndi dragast meira saman en sú varð ekki raunin.

Stjórnendur Iceland Foods ekki spenntir fyrir eignastýringarsjóðum

Lykilstjórnendur Iceland Foods hafa ekki áhuga á að vinna hjá fyrirtækinu verði það í eigu eignastýringarsjóða en tveir slíkir skiluðu inn bindandi tilboðum í hlut slitastjórna Landsbankans og Glitnis í Iceland. Malcolm Walker, forstjóri Iceland, tengist hvorugum sjóðnum.

Hugsmiðjan með tvær bestu vefsíðurnar

Tvær bestu vefsíður síðasta árs að mati fagfólks í greininni komu úr smiðju sama aðila, veffyrirtækisins Hugsmiðjunnar. Þetta kemur fram í tilkynningu.

Búast við að staða heimilanna batni

ASÍ gerir ráð fyrir að hagvöxtur á nýliðnu ári hafi verið 3,1% eða nokkuð meiri en búist var við. Hann megi reki til aukningar í einkaneyslu og útfutningi. Almennt er gert ráð fyrir hægfara bata með um 1,4-2% hagvexti næstu þrjú ár.

Enn hækkar gengi bréfa í Icelandair

Gengi bréfa í Icelandair Group í kauphöllinni heldur áfram að hækka en gengið hefur hækkað um 1,83 prósent í dag og er það nú 5,55. Í gær hækkaði gengi bréfa félagsins um 2,83 prósent.

Útsvarið í toppi á þrettán stöðum af fimmtán

Reykjavíkurborg er eina sveitarfélagið af fimmtán stærstu sveitarfélögum landsins sem hækkaði útsvar á þessu ári. Þar hækkaði það úr 14,4% í 14,48%. Hin fjórtán sveitarfélögin halda útsvarpsprósentunni óbreyttu. Þetta eru niðurstöður Verðlagseftirlits ASÍ sem kannaði breytingar á útsvari og álagningu fasteignagjalda hjá 15 fjölmennustu sveitarfélögum landsins fyrir árið. Niðurstöður Verðlagseftirlitsins sýna líka að 13 af þeim 15 sveitarfélögum sem skoðuð voru, innheimta hámarks leyfilegt útsvar sem er nú 14,48%. Lægst er útsvarið 13,66% í Garðabæ og 14,18% á Seltjarnarnesi.

Leigumarkaðurinn tók stökk í janúar

Um 69% fleiri leigusamningum um íbúðarhúsnæði var þinglýst í janúar síðastliðnum miðað við mánuðinn á undann. Samningum fækkar hins vegar um 1,8% miðað við i janúar í fyrra. Þetta kemur fram í upplýsingum frá Þjóðskrá. Venju samkvæmt eru lang flestir leigusamningar gerðir á höfuðborgarsvæðinu. Þar fjölgar samningum um 60,8% frá því í desember, en fækkar um 6,9% frá því í janúar í fyrra.

Nýr markaðsupplýsingavefur á Vísi

Ítarlegar markaðsupplýsingar eru nú aðgengilegar á viðskiptavef Vísis í samstarfi við Kelduna. Inn á markaðsupplýsingavefnum má sjá þróun á hlutabréfa- og skuldabréfamarkaði auk ítarlegra upplýsinga vaxtakjör á fjármálamarkaði, og fleiri þætti er tengjast þróun mála á fjármálamarkaði.

Tap sjóðanna gæti orðið mun meira

Tap íslenskra lífeyrissjóða vegna gjaldmiðlavarnarsamninga gæti orðið rúmlega 70 milljarðar króna eftir skuldajöfnun ef ýtrustu kröfur þrotabúa föllnu bankanna verða samþykktar, samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins. Tap sjóðanna vegna samninganna er í dag bókfært á 36,4 milljarða króna samkvæmt skýrslu úttektarnefndar sem birt var síðastliðinn föstudag.

Mitt Romney kominn í bæinn

Mitt Romney, sem líklegur er sem frambjóðandi Repúblikanaflokksins í forsetakosningunum í nóvember, er umdeildur í Bandaríkjunum. Ekki síst eru það afskipti hans af fjárfestingaverkefnum í gegnum félagið Bain Capital þar sem hann er enn meðal hluthafa.

Í höndum stjórnar OR að veita umboð

Aðkoma lífeyrissjóðanna að fjármögnun Hverahlíðarvirkjunar kemur til af því að Orkuveitan ræður ekki við verkefnið. Heildarkostnaður er talinn 29 milljarðar króna. Formlegar viðræður bíða þess að forstjóri OR fái til þess umboð stjórnar.

Mikil fjölgun á árásum tölvuþrjóta í Danmörku

Árásum tölvuþrjóta á tölvur og tölvukerfi í Danmörku fjölgaði um 25% í fyrra miðað við árið á undan. Þessir glæpamenn eru einkum á höttunum eftir persónulegum upplýsingum sem þeir geta notað til að stela fé af kreditkortum eða bankareikningum.

Icelandair hækkaði um tæp 3 prósent

Gengi bréfa í Icelandair Group hækkaði um 2,83 prósent í dag og stendur gengið nú í 5,45. Eftir að fjárhagur Icelandair Group var endurskipulagður, og félagið skráð, þá var gengi bréfa 2,5. Markaðsvirði félagsins hefur því meira en tvöfaldast frá þeim tíma.

AGS hvetur Kínverja til aðgerða

Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn (AGS) hvetur Kínverja til þess að bregðast við merkjum um mögulegan efnahagssamdrátt í landinu á næstu mánuðum og árum. Þetta kemur fram á vef Wall Street Journal í dag.

Tap lífeyrissjóðanna nærri meðaltali

Tap íslensku lífeyrissjóðanna er nálægt meðaltali þess sem varð hjá lífeyrissjóðum OECD-ríkja, segir í yfirlýsingu sem Landssamtök lífeyrissjóða birtu á vefsíðu sinni í dag. Það hafi því ekki einungis verið íslensku lífeyrissjóðirnir sem urðu fyrir áfalli í kreppunni.

Iceland Express í samstarf við Hinsegin daga

Iceland Express og Hinsegin dagar í Reykjavík – Gay Pride undirrituðu í dag samstarfssamning sem felur í sér stuðning Iceland Express við Hinsegin daga fyrir hátíð þeirra í ár. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.

Búast við 20 milljarða tekjum hjá Icelandair Group

Greiningardeild Arion banka býst við því að tekjur Icelandair Group á fjórða ársfjórðungi síðasta árs verði 20 milljarðar króna og EBITDA verði um 400 milljónir króna. Ársfjórðungsuppgjör verður birt í þessari viku. Í Markaðspunktum Arion segir að fyrsti og fjórði ársfjórðungur séu vallt lökustu fjórðungarnir hjá félaginu bæði hvað veltu og afkomu varðar. Miðað við flutningstölur félagsins megi gera ráð fyrir töluverðum tekjuvexti frá fyrra ári. Samkvæmt afkomuspá stjórnenda Icelandair Group frá nóvember síðastliðnum er gert ráð fyrir að EBITDA félagsins á fjórða ársfjórðungi verði lítil sem engin eða neikvæð um allt að 500 milljónir króna.

Ingvar Helgason horfinn

Erna Gísladóttir og Jón Þór Gunnarsson, sem um síðustu áramót tóku við rekstri bílaumboðsins Ingvars Helgasonar og B&L hafa frá og með deginum í dag breytt nafni félagsins í BL. Ingvar Helgason er því horfinn úr nafninu. Þar með líkur endanlega sameiningarferli þessara gamalgrónu bílafyrirtækja sem hvort um sig hófu starfsemi sína um og eftir miðja síðustu öld, eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá félaginu. Hjá BL starfa 128 manns auk fjölda samstarfs- og umboðsaðila um allt land en félagið er með söluumboð fyrir BMW, Hyundai, Isuzu, Land Rover, Nissan, Opel, Renault og Subaru.

Högnuðust um 472 milljarða á móti 480 milljarða tapi

Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, segir að þrátt fyrir um 480 milljarða tap lífeyrissjóðanna vegna hrunsins þá sé útkoman ekki svo slæm þegar hagnaður sjóðanna af öðrum eignum sé tekinn með í reikninginn, en hann var 472 milljarðar. Þetta kemur fram í pistli Gylfa á vefnum Pressan.is þar sem hann fer yfir skýrslu rannsóknarnefndar um starfsemi lífeyrissjóðanna fyrir hrun.

Allt á fullu í Indónesíu

Hagvöxtur í Indónesíu mældist 6,5 prósent samkvæmt tölum sem hagstofa landsins birti í morgun. Þetta er mesti hagvöxtur í landinu síðan 1996, eða í fimmtán ár, að því er segir í frétt á vef breska ríkisútvarpsins BBC.

Áfram dauft yfir fasteignamarkaðinum í borginni

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu í síðustu viku var 70. Þetta eru töluvert færri samningar en nemur meðaltalinu síðustu þrjá mánuði sem er 90 samningar á viku.

Um 94% landsmanna telja fyrirtæki skapa góð lífskjör

Ný skoðanakönnun sýnir að 94% landsmanna telja íslensk fyrirtæki skipta öllu eða miklu máli þegar kemur að því að skapa góð lífskjör á Íslandi Capacent Gallup vann þessa könnun fyrir Viðskiptaráð Íslands.

Icelandair selur SmartLynx í Lettlandi

Fyrir síðustu áramót gekk Icelandair frá samningi við stjórnendur SmartLynx um kaup á öllu hlutafé félagsins. Í samningnum voru nokkrir fyrirvarar sem nú hafa verið uppfylltir.

Suður-Ameríku ríkið Chile vex og vex

Hagkerfið í Suður-Ameríku ríkinu Chile hefur vaxið mikið undanfarin áratug. Landið byggir hag sinn á utanríkisviðskiptum og sértækum tvíhliða fríverslunarsamningum við stór ríki.

Gjaldþrot Grikklands virðist óumflýjanlegt

Gjaldþrot Grikklands virðist óumflýjanlegt en stjórnarflokkar landsins náðu ekki samkomulag um helgina um þær aðgerðir sem nauðsynlegar eru til þess að landið fái nýtt neyðarlán upp á 130 milljarða evra frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og Evrópusambandinu.

Evran tíu ára

Þann fyrsta janúar 2002 var ráðist í stærstu peningalegu aðgerð veraldarsögunnar. Þá var gjaldmiðlum tólf aðildarríkja Evrópusambandsins skipt út fyrir evruseðla og -myntir, og á aðeins örfáum dögum gjörbreyttist lífið í löndunum.

Lífeyrissjóðirnir lánuðu Glitni 11 milljarða

Þrettán lífeyrissjóðir veittu Glitni nærri ellefu milljarða króna lán í mars 2008 þegar viðvörunarmerki voru farin að blikka á íslenskum fjármálamarkaði. Engar tryggingar voru fyrir láninu og enginn gjalddagi. Milljarðarnir töpuðust nokkrum mánuðum síðar þegar bankinn féll.

Sjá næstu 50 fréttir