Endurreisn bankanna kostaði 190 milljarða 1. júní 2011 10:15
Samtals nemur fjárbinding ríkissjóðs vegna endurreisnar viðskiptabankanna þriggja 190 milljörðum kr. Þetta kemur fram í greinargerð frá fjármálaráðherra um málið en eins og kunnugt er af fréttum hefur töluverð umræða orðið um hver þessi kostnaður ríkissjóðs hafi í raun verið. Í greinargerðinni, sem ráðherra flutti á Alþingi í morgun, segir að alls nemi eiginfjárframlag ríkisins til bankanna 135 milljörðum kr. Upphaflega var gert ráð fyrir að það yrði 385 milljarðar kr. og er það því 250 milljörðum kr. lægra. Auk þess veitir ríkið tveim bönkum víkjandi lán: Arion banka að fjárhæð 30 milljarða kr. og Íslandsbanka að fjárhæð 25 milljarða kr. til að þeir gætu uppfyllt skilyrði FME um 16% eiginfjárhlutfall. Skila þessi lán ríkinu vaxtatekjum. Lánin eru veitt í íslenskum krónum en endurgreidd í evrum. Fyrir fall bankanna í október 2008 hafði Seðlabanki Íslands veitt þeim mikla lausafjárfyrirgreiðslu. Við fall þeirra átti Seðlabankinn því umtalsverðar kröfur á þrotabúin. Hluti af fyrirgreiðslunni var gegn veði í útlánum Glitnis og Kaupþings, aðallega húsnæðislánum. Í stað þess að taka til sín lánin og innheimta þau náðist samkomulag um að lánin væru færð frá Seðlabankanum og inn í hina nýju banka, en að á móti gæfu bankarnir út skuldabréf til Seðlabankans með veði í yfirfærðu lánunum. Skuld Arion banka er í mörgum myntum og færir Seðlabankanum gjaldeyristekjur. Umsamið verðmæti lánanna var samtals 116,9 milljarðar kr. Um er að ræða skynsamlega lausn á vandamáli sem skapaðist við fall bankanna og er óháð eignarhaldi á nýju bönkunum. Beita má misjöfnum aðferðum við að reikna út sparnað eða ávinning ríkissjóðs af aðkomu þrotabúa gömlu bankanna að fjármögnun hina nýju banka. Upphaflegar áætlanir um framlög til fjármögnunar bankanna hljóðuðu upp á 385 milljarða kr., en bein eiginfjárframlög urðu 135 milljarðar kr. auk 55 milljarða kr. víkjandi lána. Munur þar á er því ýmist 250 milljarðar kr. eða 195 milljarðar kr. eftir því hvernig reiknað er. Ef hins vegar ríkissjóður hefði einn staðið að fjármögnun bankanna, eins og hún reyndist vera á endanum, hefðu framlög ríkisins orðið 156 milljörðum kr. hærri en þau eru, en það er sú fjárhæð sem þrotabú gömlu bankanna lögðu fram. Niðurstaðan er því mjög hagstæð fyrir ríkissjóð hvernig sem reiknað er og hefur leit til tugmilljarða lækkunar á vaxtagjöldum ríkissjóðs, að því er segir í greinargerðinni.
Mest lesið Auglýsi sjúkdóma til að komast fram hjá reglum Neytendur Klámfengið spjallmenni Zuckerbergs vekur ugg innan klámgeirans Viðskipti erlent Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Viðskipti innlent Snúsari sem missti andann yfir Óla Stef og Johnny Depp Atvinnulíf Ekkert fannst í búi Omnom Viðskipti innlent Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar Viðskipti innlent Sýndu fljúgandi Roadster Viðskipti erlent Ný könnun: 60% umsækjenda fá aldrei svör Atvinnulíf Fljúga daglega til Boston Viðskipti innlent Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Viðskipti innlent Fleiri fréttir Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar „Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Malasar í samstarf við GreenFish Verðbólgan verði þrálát út árið Fimmtán milljónir til fjölmiðla á landsbyggðinni Taka umdeilda samninga til skoðunar TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Nældu í lykilfólk hjá Nóa Siríus og Bauhaus Vilja stórhækka vernd íbúðasölufjár í bönkum Sigríður Hrefna hættir hjá Nóa Siríus Loðnumælingar töluvert undir væntingum Vilja setja 25 ára þak á verðtryggð lán frá áramótum Eigendur Kaffi Laugalækjar færa út kvíarnar Ragnar Jónasson til liðs við Logos Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Íslandsbanki varar við svikasímtölum Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Húsleit hjá Ölgerðinni Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Sjá meira