Fleiri fréttir Góð afkoma hjá tryggingarisa Hagnaður svissneska tryggingarisans Zurich Financial Services nam 910 milljónum evra, jafnvirði 81,5 milljörðum íslenskra króna, á öðrum ársfjórðungi sem er 14,9 prósenta aukning á milli ára. Þetta er umfram væntingar en búist var við 840 milljóna króna hagnaði. 17.8.2006 09:42 Tap hjá Dagsbrún á fyrri helmingi ársins Dagsbrún tapaði rúmum 1,5 milljörðum króna á fyrri helmingi ársins. Á sama tíma í fyrra skilaði félagið 321 milljóna króna hagnaði. Tap félagsins á öðrum ársfjórðungi nam rúmum 1,3 milljörðum króna. Tekjur félagsins námu hins vegar tæpum 20,2 milljörðum króna á sama tímabili og er það 188 prósenta aukning miðað við sama tímabil í fyrra. 16.8.2006 16:57 Olía lækkar í verði Hráolíuverð lækkaði nokkuð á helstu mörkuðum í dag í kjölfar fregna frá bandaríska orkumálaráðuneytinu þess efnis að þótt olíubirgðir hefðu dregist saman á milli vikna þá væru þær nokkuð yfir meðallagi. 16.8.2006 16:33 Methagnaður hjá Sparisjóði Keflavíkur Hagnaður Sparisjóðsins í Keflavík á fyrstu sex mánuðum ársins nam rúmum einum milljarði króna en það er 106.6 prósenta aukning frá sama tímabili í fyrra. Hagnaður fyrir skatta nam tæpum 1,2 milljarði króna. Þetta er mesti hagnaður Sparisjóðsins í Keflavík á einum árshelmingi og er arðsemi eiginfjár 55 prósent sem er ein sú mesta frá stofnun sjóðsins. 16.8.2006 15:20 Stýrivextir hækka í Noregi Seðlabanki Noregs ákvað að hækka stýrivexti sína um 25 punkta í dag og munu stýrivextir í landinu standa í 3 prósentum eftir breytinguna sem tekur gildi á morgun. Stefnt er að því að halda stýrivöxtum í 2,5 prósentum næstu tvö árin og því eru líkur á frekari stýrivaxtahækkunum á næstunni í Noregi. 16.8.2006 14:17 Þrír bankar hækka vexti Landsbankinn, KB banki og sparisjóðirnir hafa hækkað vexti sína í kjölfar þess að Seðlabankinn hækkaði stýrivexti um 50 punkta í morgun. Greiningardeild KB banka spáir 50 punkta hækkun á ný á vaxtaákvörðunarfundi Seðlabankans í næsta mánuði. 16.8.2006 14:03 Minni hagnaður hjá Estée Lauder Bandaríski snyrtivöruframleiðandinn Estée Lauder skilaði minni hagnaði en spáð hafði verið á öðrum ársfjórðungi. Hagnaðurinn nam 49,1 milljón bandaríkjadala, jafnvirði rúmra 3,4 milljarða íslenskra króna, en það er 17,8 milljónum dölum minni hagnaður en á sama tíma fyrir ári. 16.8.2006 13:18 Spá harðari lendingu Alþýðusamband Íslands (ASÍ) segir ákvörðun Seðlabankans að hækka stýrivexti í 13,5 prósent leiða til harðrar lendingar í íslensku efnahagslífi á næsta ári með minni hagvexti, lægri kaupmætti og auknu atvinnuleysi. 16.8.2006 12:02 Gengi Sony lækkar Gengi hlutabréfa í japanska hátæknifyrirtækinu Sony lækkaði um 2 prósentustig á markaði í gær og í fyrradag í kjölfar þess að bandaríski tölvuframleiðandinn Dell ákvað að innkalla rúmlega fjórar milljónir rafhlaða fyrir fartölvur á heimsvísu. 16.8.2006 11:19 Seðlabankinn hækkar stýrivexti Bankastjórn Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að hækka stýrivexti um 0,5 prósentustig og verða vextirnir eftirleiðis 13,5 prósent. Vextir af bundnum innstæðum og daglánum hækka um 0,25 prósentustig en aðrir vextir bankans um 0,5 prósentustig. Þetta er í samræmi við spár greiningadeilda viðskiptabankanna. 16.8.2006 08:59 Ekkert bítur á Bóksölu stúdenta Þrátt fyrir að Bóksala stúdenta starfi á erfiðum markaði býður hún í mörgum tilfellum betur en samkeppnisaðilarnir og jafnvel internetið sjálft. Hólmfríður Helga Sigurðardóttir tók hús á Bóksölunni. 16.8.2006 06:00 Glitnir kaupir 45% hlut í norsku fjármálaþjónustufyrirtæki BNbank sem er í eigu Glitnis hefur náð samkomulagi um kaup á 45% hlut í Norsk Privatokonomi sem veitir sérhæfða fjármálaþjónustu í Noregi. Fyrirtækið verður áfram óháð ráðgjafafyrirtæki og mun styrkja dreifikerfi og þar með markaðssókn BNbank og Glitnis í Noregi. 15.8.2006 20:15 Hagnaður Wal-Mart minni en vænst var Hagnaður bandarísku verslanakeðjunnar Wal-Mart á öðrum ársfjórðungi nam tæpum 2,1 milljarða bandaríkjadala, jafnvirði 148 milljarða íslenskra króna. Þetta er 720 milljónum dölum minna en á sama tíma fyrir ári og í fyrsta sinn í áratug sem hagnaður verslanakeðjunnar dregst saman á milli ára. 15.8.2006 15:56 Hagnaður Sparisjóðabankans aldrei meiri Hagnaður Sparisjóðabanka Íslands á fyrri helmingi ársins nam rúmum 1,7 milljarði króna sem er 129,9 prósenta aukning á milli ára og hefur hagnaðurinn aldrei verið meiri á sex mánaða tímabili. Hagnaðurinn svarar til 50,8 prósenta arðsemi eigin fjár miðað við heilt ár og er það með því hæsta sem þekkist meðal innlendra og erlendra fjármálafyrirtækja. 15.8.2006 14:59 Landsvirkjun semur við TM Software Landsvirkjun hefur gert samning við TM Software um uppsetningu símstöðva og búnaðar sem byggist á nýjustu IP-símatækni fyrir skrifstofu Landsvirkjunar á Akureyri, í Laxárstöð og Fljótsdalsstöð, Kárahnjúkum. Í verkinu felst meðal annars forritun, uppsetning, prófanir og kennsla á IP-símstöðvarnar og símabúnaðinn sem þeim tilheyrir. 15.8.2006 11:04 FL Group tapar á öðrum ársfjórðungi FL Group hagnaðist um rúma 5,7 milljarða króna eftir skatta á fyrstu sex mánuðum ársins. Þetta er tæpum 3,8 milljörðum krónum meira en á sama tíma í fyrra. Hagnaður fyrirtækisins fyrir skatta nam 6,3 milljörðum króna en hann var rúmir 2,3 milljarðar króna fyrir ári. FL Group tapaði 118 milljónum króna á öðrum ársfjórðungi, sem er nokkur viðsnúningur frá sama tíma í fyrra þegar félagið skilaði rúmlega 1,9 milljarða króna hagnaði. 14.8.2006 17:02 Hærra hrávöruverð 14.8.2006 14:18 Olíuverð lækkar í kjölfar vopnahlés Heimsmarkaðsverð á olíu lækkaði um rúman Bandaríkjadal á helstu mörkuðum í dag í kjölfar vopnahlés Ísraels og Hizbollah-skæruliða, sem tók gildi klukkan fimm í morgun að íslenskum tíma. 14.8.2006 11:27 Mikill hagvöxtur á evrusvæðinu Hagvöxtur jókst um 0,9 prósent á evrusvæðinu á öðrum fjórðungi ársins, samkvæmt útreikningum Eurostat, hagstofu Evrópusambandsins (ESB). Þetta jafngildir 2,4 prósenta hagvexti á árs grundvelli og hefur hann ekki verið meiri síðastliðin fimm ár. 14.8.2006 11:13 Stærsta farsímafyrirtæki heims í Kína Sætaskipti hafa orðið á stærstu farsímafyrirtækjum í heimi. Breska farsímafyrirtækið Og Vodafone, sem fram til þessa hefur vermt fyrsta sætið, hefur nú vikið fyrir kínverska keppinautinum China Mobile. 14.8.2006 10:16 Tekjur Actavis jukust um tæp 200 prósent milli ára Hreinn hagnaður Actavis á öðrum ársfjórðungi þessa árs nemur rúmum 29,9 milljónum evra, eða rúmum 2,7 milljörðum króna. Félagið er í örum vexti, hefur keypt fjölda fyrirtækja og reynir nú yfirtöku á samheitalyfjafyrirtækinu PLIVA. 11.8.2006 06:00 Actavis þrefaldar tekjurnar Heildartekjur Actavis á öðrum ársfjórðungi þrefölduðust miðað við sama tíma í fyrra og námu 364,1 milljón evra. Árshlutauppgjör félagsins var birt eftir lokun markaða í dag. Á sama tímabili í fyrra námu tekjurnar 121,9 milljónum evra. Aukningin nemur 198,4 prósentum. 10.8.2006 18:37 Afkoma ríkissjóðs betri en gert var ráð fyrir Greiðsluuppgjör ríkissjóðs eftir fyrri árshelming 2006 sýnir að handbært fé frá rekstri jókst um 29,7 milljarða króna innan ársins. Er það sextán milljörðum hagstæðari útkoma en á sama tíma í fyrra og 35 milljörðum króna meira en gert var ráð fyrir í áætlun. 10.8.2006 13:10 Gott gengi NWF Group 10.8.2006 12:16 Bætist við krónubréf Tvær erlendar fjármálastofnanir tilkynntu um útgáfu krónubréfa í gær. Annars vegar þróunarbankinn KfW, sem gaf út nýjan flokk að andvirði 3 milljarða króna með gjalddaga í febrúar 2008. Hins vegar varð það Evrópski fjárfestingabankinn (EIB) sem bætti þremur milljörðum króna við útgáfu með gjalddaga í október 2008. Nemur heildarútgáfa krónubréfa nú tæpum 260 milljörðum króna og næg spurn virðist eftir krónubréfum meðal erlendra fjárfesta. 10.8.2006 11:25 Nýr forstjóri hjá Alfesca Xavier Govare hefur verið ráðinn nýr forstjóri Alfesca og Jakob Óskar Sigurðsson látið af störfum eftir tveggja ára starf. Í tilkynningu félagsins kemur fram að sameiginleg ákvörðun stjórnar og framkvæmdastjórnar þess hafi verið að færa stjórn félagsins nær mörkuðum þess. 10.8.2006 11:10 94 prósenta samdráttur Íbúðalán bankanna eru einungis tuttugasti hluti þess sem var þegar mest lét. 10.8.2006 07:45 Actavis birtir uppgjör í dag Actavis birtir sex mánaða uppgjör eftir lokun markaða í dag. Félaginu er spáð um 2,8 milljarða hagnaði á öðrum ársfjórðungi miðað við meðaltalsspár markaðsaðila. Gangi spáin eftir eykst hagnaður um 150 prósent milli ára. 10.8.2006 07:30 Auka þarf gagnsæi í orkumálum segir OECD Í nýrri skýrslu OECD um efnahagsmál hér á landi er gagnrýnt að ekki liggi fyrir upplýsingar um hagkvæmni stóriðjuframkvæmda vegna leyndar yfir raforkusölusamningum. Enn er sögð þörf á vaxtahækkunum og frekari aðhaldsaðgerðum hins opinbera til að slá á verðbólgu. 10.8.2006 07:15 Cisco rýkur upp í verði Hlutabréf í bandaríska hátæknifyrirtækinu Cisco Systems hækkuðu um meira en þrettán prósent, það mesta í fjögur ár, eftir að stjórnendur félagsins greindu frá því að tekjur félagsins á árinu myndu vaxa um fimmtán til tuttugu prósent á árinu. Það er öllu meira en hópur sérfræðinga hafði spáð fyrir. 10.8.2006 07:00 DeCode tapar 2,7 milljörðum króna DeCode Genetics tapaði 2,7 milljörðum króna á fyrri helmingi árs samkvæmt nýbirtu uppgjöri félagsins. Tap deCode jókst um tæplega tuttugu og tvö prósent sé miðað við sama tímabil í fyrra. 10.8.2006 06:45 Horfur easyJet fara batnandi Stjórnendur easyJet búast við mun meiri hagnaðaraukningu á yfirstandandi rekstrarári en áður var talið. Gera þeir ráð fyrir að hagnaður aukist um 40-50 prósent á milli ára en fyrri áætlanir í maí bentu til 10-15 prósenta aukningu. 10.8.2006 06:30 Stýrivextir óbreyttir vestra Stýrivextir í Bandaríkjunum standa óbreyttir í Bandaríkjunum næsta mánuðinn eftir sautján mánaða tímabil samfelldra hækkana. Stýrivextir standa nú 5,25 prósentum en höfðu áður verið hækkaðir um fjórðung úr prósenti sautján mánuði í röð. 10.8.2006 06:15 Útilokar leka við kaup á Scanvægt Hörður Arnarson, forstjóri Marels, útilokar með öllu að upplýsingar hafi lekið út á markaðinn frá félaginu vegna kaupa þess á danska samkeppnisaðilanum Scanvægt fyrir tíu milljarða króna. Fyrir helgi áttu sér stað töluverð viðskipti með hlutabréf Marels og hækkaði gengi félagsins um 3,5 prósent í yfir 53 milljóna króna viðskiptum á fimmtudaginn og föstudaginn. 10.8.2006 06:00 Aldrei minna lánað 9.8.2006 13:55 Kodak í miklum vanda Gamli myndavélarisinn Kodak riðar til falls. Stafræna byltingin fór framhjá fyrirtækinu sem tapaði 21 milljarði á þriðja ársfjórðungi. 9.8.2006 08:00 Salan jókst um 38% milli ársfjórðunga Marel skilaði mesta rekstrarhagnaði sínum á einum ársfjórðungi til þessa á öðrum fjórðungi þessa árs. Gengisþróun gjaldmiðla hefur verið félaginu hagstæð. 9.8.2006 08:00 Svartsýnisspár ótímabærar International Herald Tribune segir á vefsíðu sinni að hrakspár um íslensku bankana hafi verið ótímabærar og vitnar í álit matsfyrirtækisins Moody"s sem birt var fyrir verslunarmannahelgi. Þá segir að öllu tali um bankakreppu megi vísa á bug. 9.8.2006 08:00 Honda í loftið Japanski bílaframleiðandinn Honda, sem hingað til hefur verið þekktastur fyrir að framleiða bíla, hyggst byrja að taka við pöntunum á einkaþotunni HondaJet í haust. 9.8.2006 07:45 Stýrivaxtahækkun í Ástralíu Seðlabanki Ástralíu hefur hækkað stýrivexti um fjórðung úr prósenti. Þetta er í annað skipti á þremur mánuðum sem stýrivextir hækka í landinu en þeir standa nú í sex prósentum og hafa ekki verið hærri í sex ár. Ástralska hagkerfið stendur styrkum fótum þrátt fyrir að verðbólga sé nú um fjögur prósent. Verðbólgumarkmið Seðlabanka Ástralíu er þrjú prósent. 9.8.2006 07:30 Hagnast um 280 milljarða frá lokum einkavæðingar Frá árinu 2003, er einkavæðingu ríkisbankanna lauk og hlutabréfaverð tók að rísa hratt hér á landi, hafa viðskiptabankarnir þrír og Straumur-Burðarás fjárfestingabanki hagnast alls um 280 milljarða króna. 9.8.2006 07:30 Rússar auka bjórdrykkju Danska bjórrisanum Carslberg hefur vegnað vel á Rússlands- og Eystrasaltsmarkaði. Carslberg rekur brugg- verksmiðju ásamt breska framleiðandanum Scottisch & Newcastle og jókst hagnaður verksmiðjunnar um tæp þrjátíu og tvö prósent á öðrum ársfjórðungi. Neysla á bjór hefur aukist gríðarlega í Rússlandi og við Eystrasalt undanfarin misseri og er því spáð að salan aukist um fimm prósent á þessu ári. 9.8.2006 07:30 Opnað fyrir viðskipti í Beirút Bréf í Kauphöllinni í Beirút féllu um fjögur prósent á fyrsta degi viðskipta eftir að Ísraelar hófu árásir á Líbanon. 9.8.2006 07:15 Fjöldi farþega FlyMe þrefaldast FlyMe flutti þrefalt fleiri farþega í júlí en í sama mánuði í fyrra. Alls ferðuðust um 64 þúsund farþegar með félaginu í síðasta mánuði samanborið við sautján þúsund manns í júlí 2005. 9.8.2006 07:00 Gistinóttum fjölgar milli ára Tíu prósent fleiri gistu á hótelum landsins fyrstu sex mánuði ársins en á sama tíma í fyrra. 9.8.2006 07:00 Sjá næstu 50 fréttir
Góð afkoma hjá tryggingarisa Hagnaður svissneska tryggingarisans Zurich Financial Services nam 910 milljónum evra, jafnvirði 81,5 milljörðum íslenskra króna, á öðrum ársfjórðungi sem er 14,9 prósenta aukning á milli ára. Þetta er umfram væntingar en búist var við 840 milljóna króna hagnaði. 17.8.2006 09:42
Tap hjá Dagsbrún á fyrri helmingi ársins Dagsbrún tapaði rúmum 1,5 milljörðum króna á fyrri helmingi ársins. Á sama tíma í fyrra skilaði félagið 321 milljóna króna hagnaði. Tap félagsins á öðrum ársfjórðungi nam rúmum 1,3 milljörðum króna. Tekjur félagsins námu hins vegar tæpum 20,2 milljörðum króna á sama tímabili og er það 188 prósenta aukning miðað við sama tímabil í fyrra. 16.8.2006 16:57
Olía lækkar í verði Hráolíuverð lækkaði nokkuð á helstu mörkuðum í dag í kjölfar fregna frá bandaríska orkumálaráðuneytinu þess efnis að þótt olíubirgðir hefðu dregist saman á milli vikna þá væru þær nokkuð yfir meðallagi. 16.8.2006 16:33
Methagnaður hjá Sparisjóði Keflavíkur Hagnaður Sparisjóðsins í Keflavík á fyrstu sex mánuðum ársins nam rúmum einum milljarði króna en það er 106.6 prósenta aukning frá sama tímabili í fyrra. Hagnaður fyrir skatta nam tæpum 1,2 milljarði króna. Þetta er mesti hagnaður Sparisjóðsins í Keflavík á einum árshelmingi og er arðsemi eiginfjár 55 prósent sem er ein sú mesta frá stofnun sjóðsins. 16.8.2006 15:20
Stýrivextir hækka í Noregi Seðlabanki Noregs ákvað að hækka stýrivexti sína um 25 punkta í dag og munu stýrivextir í landinu standa í 3 prósentum eftir breytinguna sem tekur gildi á morgun. Stefnt er að því að halda stýrivöxtum í 2,5 prósentum næstu tvö árin og því eru líkur á frekari stýrivaxtahækkunum á næstunni í Noregi. 16.8.2006 14:17
Þrír bankar hækka vexti Landsbankinn, KB banki og sparisjóðirnir hafa hækkað vexti sína í kjölfar þess að Seðlabankinn hækkaði stýrivexti um 50 punkta í morgun. Greiningardeild KB banka spáir 50 punkta hækkun á ný á vaxtaákvörðunarfundi Seðlabankans í næsta mánuði. 16.8.2006 14:03
Minni hagnaður hjá Estée Lauder Bandaríski snyrtivöruframleiðandinn Estée Lauder skilaði minni hagnaði en spáð hafði verið á öðrum ársfjórðungi. Hagnaðurinn nam 49,1 milljón bandaríkjadala, jafnvirði rúmra 3,4 milljarða íslenskra króna, en það er 17,8 milljónum dölum minni hagnaður en á sama tíma fyrir ári. 16.8.2006 13:18
Spá harðari lendingu Alþýðusamband Íslands (ASÍ) segir ákvörðun Seðlabankans að hækka stýrivexti í 13,5 prósent leiða til harðrar lendingar í íslensku efnahagslífi á næsta ári með minni hagvexti, lægri kaupmætti og auknu atvinnuleysi. 16.8.2006 12:02
Gengi Sony lækkar Gengi hlutabréfa í japanska hátæknifyrirtækinu Sony lækkaði um 2 prósentustig á markaði í gær og í fyrradag í kjölfar þess að bandaríski tölvuframleiðandinn Dell ákvað að innkalla rúmlega fjórar milljónir rafhlaða fyrir fartölvur á heimsvísu. 16.8.2006 11:19
Seðlabankinn hækkar stýrivexti Bankastjórn Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að hækka stýrivexti um 0,5 prósentustig og verða vextirnir eftirleiðis 13,5 prósent. Vextir af bundnum innstæðum og daglánum hækka um 0,25 prósentustig en aðrir vextir bankans um 0,5 prósentustig. Þetta er í samræmi við spár greiningadeilda viðskiptabankanna. 16.8.2006 08:59
Ekkert bítur á Bóksölu stúdenta Þrátt fyrir að Bóksala stúdenta starfi á erfiðum markaði býður hún í mörgum tilfellum betur en samkeppnisaðilarnir og jafnvel internetið sjálft. Hólmfríður Helga Sigurðardóttir tók hús á Bóksölunni. 16.8.2006 06:00
Glitnir kaupir 45% hlut í norsku fjármálaþjónustufyrirtæki BNbank sem er í eigu Glitnis hefur náð samkomulagi um kaup á 45% hlut í Norsk Privatokonomi sem veitir sérhæfða fjármálaþjónustu í Noregi. Fyrirtækið verður áfram óháð ráðgjafafyrirtæki og mun styrkja dreifikerfi og þar með markaðssókn BNbank og Glitnis í Noregi. 15.8.2006 20:15
Hagnaður Wal-Mart minni en vænst var Hagnaður bandarísku verslanakeðjunnar Wal-Mart á öðrum ársfjórðungi nam tæpum 2,1 milljarða bandaríkjadala, jafnvirði 148 milljarða íslenskra króna. Þetta er 720 milljónum dölum minna en á sama tíma fyrir ári og í fyrsta sinn í áratug sem hagnaður verslanakeðjunnar dregst saman á milli ára. 15.8.2006 15:56
Hagnaður Sparisjóðabankans aldrei meiri Hagnaður Sparisjóðabanka Íslands á fyrri helmingi ársins nam rúmum 1,7 milljarði króna sem er 129,9 prósenta aukning á milli ára og hefur hagnaðurinn aldrei verið meiri á sex mánaða tímabili. Hagnaðurinn svarar til 50,8 prósenta arðsemi eigin fjár miðað við heilt ár og er það með því hæsta sem þekkist meðal innlendra og erlendra fjármálafyrirtækja. 15.8.2006 14:59
Landsvirkjun semur við TM Software Landsvirkjun hefur gert samning við TM Software um uppsetningu símstöðva og búnaðar sem byggist á nýjustu IP-símatækni fyrir skrifstofu Landsvirkjunar á Akureyri, í Laxárstöð og Fljótsdalsstöð, Kárahnjúkum. Í verkinu felst meðal annars forritun, uppsetning, prófanir og kennsla á IP-símstöðvarnar og símabúnaðinn sem þeim tilheyrir. 15.8.2006 11:04
FL Group tapar á öðrum ársfjórðungi FL Group hagnaðist um rúma 5,7 milljarða króna eftir skatta á fyrstu sex mánuðum ársins. Þetta er tæpum 3,8 milljörðum krónum meira en á sama tíma í fyrra. Hagnaður fyrirtækisins fyrir skatta nam 6,3 milljörðum króna en hann var rúmir 2,3 milljarðar króna fyrir ári. FL Group tapaði 118 milljónum króna á öðrum ársfjórðungi, sem er nokkur viðsnúningur frá sama tíma í fyrra þegar félagið skilaði rúmlega 1,9 milljarða króna hagnaði. 14.8.2006 17:02
Olíuverð lækkar í kjölfar vopnahlés Heimsmarkaðsverð á olíu lækkaði um rúman Bandaríkjadal á helstu mörkuðum í dag í kjölfar vopnahlés Ísraels og Hizbollah-skæruliða, sem tók gildi klukkan fimm í morgun að íslenskum tíma. 14.8.2006 11:27
Mikill hagvöxtur á evrusvæðinu Hagvöxtur jókst um 0,9 prósent á evrusvæðinu á öðrum fjórðungi ársins, samkvæmt útreikningum Eurostat, hagstofu Evrópusambandsins (ESB). Þetta jafngildir 2,4 prósenta hagvexti á árs grundvelli og hefur hann ekki verið meiri síðastliðin fimm ár. 14.8.2006 11:13
Stærsta farsímafyrirtæki heims í Kína Sætaskipti hafa orðið á stærstu farsímafyrirtækjum í heimi. Breska farsímafyrirtækið Og Vodafone, sem fram til þessa hefur vermt fyrsta sætið, hefur nú vikið fyrir kínverska keppinautinum China Mobile. 14.8.2006 10:16
Tekjur Actavis jukust um tæp 200 prósent milli ára Hreinn hagnaður Actavis á öðrum ársfjórðungi þessa árs nemur rúmum 29,9 milljónum evra, eða rúmum 2,7 milljörðum króna. Félagið er í örum vexti, hefur keypt fjölda fyrirtækja og reynir nú yfirtöku á samheitalyfjafyrirtækinu PLIVA. 11.8.2006 06:00
Actavis þrefaldar tekjurnar Heildartekjur Actavis á öðrum ársfjórðungi þrefölduðust miðað við sama tíma í fyrra og námu 364,1 milljón evra. Árshlutauppgjör félagsins var birt eftir lokun markaða í dag. Á sama tímabili í fyrra námu tekjurnar 121,9 milljónum evra. Aukningin nemur 198,4 prósentum. 10.8.2006 18:37
Afkoma ríkissjóðs betri en gert var ráð fyrir Greiðsluuppgjör ríkissjóðs eftir fyrri árshelming 2006 sýnir að handbært fé frá rekstri jókst um 29,7 milljarða króna innan ársins. Er það sextán milljörðum hagstæðari útkoma en á sama tíma í fyrra og 35 milljörðum króna meira en gert var ráð fyrir í áætlun. 10.8.2006 13:10
Bætist við krónubréf Tvær erlendar fjármálastofnanir tilkynntu um útgáfu krónubréfa í gær. Annars vegar þróunarbankinn KfW, sem gaf út nýjan flokk að andvirði 3 milljarða króna með gjalddaga í febrúar 2008. Hins vegar varð það Evrópski fjárfestingabankinn (EIB) sem bætti þremur milljörðum króna við útgáfu með gjalddaga í október 2008. Nemur heildarútgáfa krónubréfa nú tæpum 260 milljörðum króna og næg spurn virðist eftir krónubréfum meðal erlendra fjárfesta. 10.8.2006 11:25
Nýr forstjóri hjá Alfesca Xavier Govare hefur verið ráðinn nýr forstjóri Alfesca og Jakob Óskar Sigurðsson látið af störfum eftir tveggja ára starf. Í tilkynningu félagsins kemur fram að sameiginleg ákvörðun stjórnar og framkvæmdastjórnar þess hafi verið að færa stjórn félagsins nær mörkuðum þess. 10.8.2006 11:10
94 prósenta samdráttur Íbúðalán bankanna eru einungis tuttugasti hluti þess sem var þegar mest lét. 10.8.2006 07:45
Actavis birtir uppgjör í dag Actavis birtir sex mánaða uppgjör eftir lokun markaða í dag. Félaginu er spáð um 2,8 milljarða hagnaði á öðrum ársfjórðungi miðað við meðaltalsspár markaðsaðila. Gangi spáin eftir eykst hagnaður um 150 prósent milli ára. 10.8.2006 07:30
Auka þarf gagnsæi í orkumálum segir OECD Í nýrri skýrslu OECD um efnahagsmál hér á landi er gagnrýnt að ekki liggi fyrir upplýsingar um hagkvæmni stóriðjuframkvæmda vegna leyndar yfir raforkusölusamningum. Enn er sögð þörf á vaxtahækkunum og frekari aðhaldsaðgerðum hins opinbera til að slá á verðbólgu. 10.8.2006 07:15
Cisco rýkur upp í verði Hlutabréf í bandaríska hátæknifyrirtækinu Cisco Systems hækkuðu um meira en þrettán prósent, það mesta í fjögur ár, eftir að stjórnendur félagsins greindu frá því að tekjur félagsins á árinu myndu vaxa um fimmtán til tuttugu prósent á árinu. Það er öllu meira en hópur sérfræðinga hafði spáð fyrir. 10.8.2006 07:00
DeCode tapar 2,7 milljörðum króna DeCode Genetics tapaði 2,7 milljörðum króna á fyrri helmingi árs samkvæmt nýbirtu uppgjöri félagsins. Tap deCode jókst um tæplega tuttugu og tvö prósent sé miðað við sama tímabil í fyrra. 10.8.2006 06:45
Horfur easyJet fara batnandi Stjórnendur easyJet búast við mun meiri hagnaðaraukningu á yfirstandandi rekstrarári en áður var talið. Gera þeir ráð fyrir að hagnaður aukist um 40-50 prósent á milli ára en fyrri áætlanir í maí bentu til 10-15 prósenta aukningu. 10.8.2006 06:30
Stýrivextir óbreyttir vestra Stýrivextir í Bandaríkjunum standa óbreyttir í Bandaríkjunum næsta mánuðinn eftir sautján mánaða tímabil samfelldra hækkana. Stýrivextir standa nú 5,25 prósentum en höfðu áður verið hækkaðir um fjórðung úr prósenti sautján mánuði í röð. 10.8.2006 06:15
Útilokar leka við kaup á Scanvægt Hörður Arnarson, forstjóri Marels, útilokar með öllu að upplýsingar hafi lekið út á markaðinn frá félaginu vegna kaupa þess á danska samkeppnisaðilanum Scanvægt fyrir tíu milljarða króna. Fyrir helgi áttu sér stað töluverð viðskipti með hlutabréf Marels og hækkaði gengi félagsins um 3,5 prósent í yfir 53 milljóna króna viðskiptum á fimmtudaginn og föstudaginn. 10.8.2006 06:00
Kodak í miklum vanda Gamli myndavélarisinn Kodak riðar til falls. Stafræna byltingin fór framhjá fyrirtækinu sem tapaði 21 milljarði á þriðja ársfjórðungi. 9.8.2006 08:00
Salan jókst um 38% milli ársfjórðunga Marel skilaði mesta rekstrarhagnaði sínum á einum ársfjórðungi til þessa á öðrum fjórðungi þessa árs. Gengisþróun gjaldmiðla hefur verið félaginu hagstæð. 9.8.2006 08:00
Svartsýnisspár ótímabærar International Herald Tribune segir á vefsíðu sinni að hrakspár um íslensku bankana hafi verið ótímabærar og vitnar í álit matsfyrirtækisins Moody"s sem birt var fyrir verslunarmannahelgi. Þá segir að öllu tali um bankakreppu megi vísa á bug. 9.8.2006 08:00
Honda í loftið Japanski bílaframleiðandinn Honda, sem hingað til hefur verið þekktastur fyrir að framleiða bíla, hyggst byrja að taka við pöntunum á einkaþotunni HondaJet í haust. 9.8.2006 07:45
Stýrivaxtahækkun í Ástralíu Seðlabanki Ástralíu hefur hækkað stýrivexti um fjórðung úr prósenti. Þetta er í annað skipti á þremur mánuðum sem stýrivextir hækka í landinu en þeir standa nú í sex prósentum og hafa ekki verið hærri í sex ár. Ástralska hagkerfið stendur styrkum fótum þrátt fyrir að verðbólga sé nú um fjögur prósent. Verðbólgumarkmið Seðlabanka Ástralíu er þrjú prósent. 9.8.2006 07:30
Hagnast um 280 milljarða frá lokum einkavæðingar Frá árinu 2003, er einkavæðingu ríkisbankanna lauk og hlutabréfaverð tók að rísa hratt hér á landi, hafa viðskiptabankarnir þrír og Straumur-Burðarás fjárfestingabanki hagnast alls um 280 milljarða króna. 9.8.2006 07:30
Rússar auka bjórdrykkju Danska bjórrisanum Carslberg hefur vegnað vel á Rússlands- og Eystrasaltsmarkaði. Carslberg rekur brugg- verksmiðju ásamt breska framleiðandanum Scottisch & Newcastle og jókst hagnaður verksmiðjunnar um tæp þrjátíu og tvö prósent á öðrum ársfjórðungi. Neysla á bjór hefur aukist gríðarlega í Rússlandi og við Eystrasalt undanfarin misseri og er því spáð að salan aukist um fimm prósent á þessu ári. 9.8.2006 07:30
Opnað fyrir viðskipti í Beirút Bréf í Kauphöllinni í Beirút féllu um fjögur prósent á fyrsta degi viðskipta eftir að Ísraelar hófu árásir á Líbanon. 9.8.2006 07:15
Fjöldi farþega FlyMe þrefaldast FlyMe flutti þrefalt fleiri farþega í júlí en í sama mánuði í fyrra. Alls ferðuðust um 64 þúsund farþegar með félaginu í síðasta mánuði samanborið við sautján þúsund manns í júlí 2005. 9.8.2006 07:00
Gistinóttum fjölgar milli ára Tíu prósent fleiri gistu á hótelum landsins fyrstu sex mánuði ársins en á sama tíma í fyrra. 9.8.2006 07:00