Ekkert bítur á Bóksölu stúdenta 16. ágúst 2006 06:00 Situr ein að háskólabókamarkaði. Bóksala stúdenta hefur stækkað í beinu hlutfalli við vöxt háskólastigsins á Íslandi og bætir við sig ár frá ári.
Sumir segja sérstöðu Bóksölu stúdenta fyrst og fremst felast í sérfræðiþekkingu starfsfólks. Starfsaldur starfsfólks í búðinni styður við þessa kenningu, en búðinni helst vel á starfsfólki og er þekkt fyrir það. Reynsla starfsfólksins og áratugalangt samstarf Bóksölunnar við erlend bókaforlög hefur áreiðanlega stuðlað að því að Bóksala stúdenta heldur velli þrátt fyrir erfið markaðsskilyrði og sterka samkeppnisaðila. Bóksala stúdenta hefur það að meginmarkmiði að útvega stúdentum við Háskóla Íslands kennslubækur og önnur námsgögn á sanngjörnu verði. Hún á sér þó fleiri hliðar. Verslunin sinnir ekki einungis stúdentum við Háskóla Íslands heldur þjónustar hún jafnframt Háskólann í Reykjavík, Kennaraháskólann og Viðskiptaháskólann á Bifröst, auk þess sem hún á stóran hóp fastakúnna sem vill hvergi annars staðar kaupa bækur. Bóksalan er nefnilega ekki bara námsbókabúð heldur alhliða bókaverslun. Af erlendu bókunum fer mest fyrir titlum á ensku en einnig er nokkuð úrval bóka á Norðurlandamálunum, sem og á þýsku, frönsku og spænsku, jafnvel forn-grísku og latínu. Íslenskar bækur skipa veglegan sess í Bóksölunni og þar er jafnframt gott úrval tölvubóka, fræði- og vísindarita, tímarita og umfangsmikil sérpöntunarþjónusta.Sigurður Pálsson, rekstrarstjóri Bóksölu stúdenta. Bóksölu stúdenta hefur vel tekist að halda velli í erfiðu samkeppnisumhverfi. Velgengni verslunarinnar byggist meðal annars á mikilli sérfræðiþekkingu starfsfólks og skýrri verðstefnu.Traust verðstefna framar verðstríði Bóksala stúdenta er ein af rekstrareiningum Félagsstofnunar stúdenta sem er sjálfseignarstofnun með sjálfstæða fjárhagsábyrgð. Að FS standa stúdentar innan Háskóla Íslands, Háskólinn og menntamálaráðuneytið. Stofnunin byggir upp og rekur margháttaða þjónustu svo sem stúdentagarða, bóksölu, kaffistofur, stúdentamiðlun og leikskóla. Sigurður Pálsson, rekstrarstjóri Bóksölu stúdenta, segir bóksöluna lúta sömu lögmálum og annar rekstur. „Við leggjum ekki endilega allt undir til að vera ódýrust heldur höfum við frekar lagt áherslu á að verðstefnan sé skýr og þannig höfum við skapað okkur trúverðugleika.“ Þrátt fyrir að við nokkra stóra laxa sé að etja í samkeppninni um bóka- og ritfangasölu hefur Bóksölu stúdenta tekist að halda sínum sessi og býður í mörgum tilfellum lægra verð en samkeppnisaðilarnir. Samkeppni bókaverslana á milli er sérstaklega hörð þegar kemur að verðlagningu á ritföngum. Virkir á markaðnum eru Penninn, sem rekur meðal annars Bókabúð Máls og menningar, Eymundsson og Griffil, Oddi sem rekur tvær verslanir og keypti nýverið Skólavörubúðina, S.Á. Egilsson sem rekur Office One verslanirnar, auk stórmarkaðanna og annarra verslana. Sigurður segir Bóksöluna vel samkeppnishæfa þar þótt ómögulegt sé að keppa við tilboð eins og „allt á krónu“ sem séu þar að auki villandi og samræmist ekki stefnu Bóksölunnar. Samkeppnishæf við internetiðÞegar talið berst að íslenskum bókum segir Sigurður samkeppnina á smásölumarkaði ekki svo harðvítuga þótt innkoma Hagkaupa og Bónuss í jólavertíðinni hafi vissulega breytt ýmsu. Hann segir Bóksöluna hafa haldið sínum hlut og jafnvel aukið hann í jólabókasölunni eftir innkomu þeirra, þótt bitinn af kökunni sé ekki stór, enda leggi Bóksalan ekki allt undir í þeirri baráttu og haldi verði frekar jöfnu yfir árið. Hann segir jafnframt lítið svigrúm til verðsamkeppni á markaði íslenskra bóka þar sem staða útgáfufélagsins Eddu sé afar sterk. Bóksalan tekur einnig þátt í framhaldsskólamarkaðnum en hefur að mestu staðið ein að háskólabókamarkaðnum hér á landi. Áratugalangt samstarf Bóksölunnar við erlendar bókaútgáfur stuðlar ábyggilega að þeirri styrku stöðu sem hún er í. Það má þó ekki gleyma stærsta samkeppnisaðilanum – internetinu. Sigurður segir bóksöluna hafa leitast við að bjóða bækurnar á sambærilegu verði og erlendar bókaverslanir á netinu. Þessu markmiði hafi hún náð, sem hafi aftur orðið til þess að hún njóti trausts og velvildar viðskiptavina. Flytur á Háskólatorg að áriBóksala stúdenta hefur vaxið í beinu hlutfalli við vöxt háskólastigsins á Íslandi og aukast umsvif hennar ár frá ári. Þann 1. desember árið 2007 mun Bóksalan flytjast búferlum í fyrsta skipti og verða hluti af nýju Háskólatorgi sem er í byggingu á háskólalóðinni. Háskólatorg er samheiti tveggja bygginga á háskólasvæðinu, sem verða um 8.500 fm að stærð með tengibyggingum. Ætlað er að Háskólatorg hýsi á þriðja hundrað starfsmenn auk þess sem 1.500 stúdentar verði þar við nám og störf daglega. Sigurður vonast til að breytingin verði til þess að bæta þjónustuna við námsmenn. Viðbúið er að einhverjar breytingar verði á skipulagi Bóksölunnar við þetta. „Búðin mun klárlega þróast út frá eftirspurninni í húsinu,“ segir Sigurður. „Háskólabækurnar verða þó alltaf í brennidepli og við munum áfram leitast við að útvega námsfólki þær bækur sem það þarfnast og langar í á sanngjörnu verði.“
Menning Mest lesið Fordómar: „Mætti halda að á Íslandi væri ekkert sölustarf til“ Atvinnulíf Samkaup segja upp tuttugu og tveimur Viðskipti innlent Atvinnuleysi minnkar lítillega Viðskipti innlent BYKO PLÚS er nýr fríðindaklúbbur fyrir einstaklinga Samstarf Vonast til að hefja slátrun árið 2028 Viðskipti innlent Ósátt með samráðsleysi stjórnvalda Viðskipti innlent Öryggismyndavélar á grenndarstöðvum eigi að sporna við sóðaskap Viðskipti innlent Kalla inn geislavirka límmiða Neytendur „Þarf lítið til að koma mér af stað í söng og stemningu“ Atvinnulíf Á von á fleiri fyrirtækjum í hópmálssókn gegn Booking.com Viðskipti innlent Fleiri fréttir Atvinnuleysi minnkar lítillega Samkaup segja upp tuttugu og tveimur Vonast til að hefja slátrun árið 2028 Öryggismyndavélar á grenndarstöðvum eigi að sporna við sóðaskap Vilja lækka fasteignaskatta um tvo milljarða: „Við eigum fyrir þessu“ Á von á fleiri fyrirtækjum í hópmálssókn gegn Booking.com Þrjú verkefni fengu styrk úr sjóði FrumkvöðlaAuðar Endurskoða áform um 1,5 milljarða skattahækkun Tekjur meiri af erlendum ferðamönnum og færri starfandi í ferðaþjónustu Flokka úrgang í fyrsta sinn á Norðurálsmótinu Hefur sjálfur séð eyðileggingu af völdum botnvörpuveiða Bjarg íbúðafélag reisir þrjátíu íbúðir í Reykjanesbæ Allir héldu stjörnunni og Óx fékk eina græna til Raquelita Rós ráðin tæknistjóri Um helmingur sérbýla kostar meira en 150 milljónir Sérstaða Íslendinga í máltækni nýtist í nýrri samnorrænni gervigreindarmiðstöð Ragnhildur, Svavar og Hreinn nýir stjórnendur hjá N1 Sigrún Ósk ráðin upplýsingafulltrúi Akraneskaupstaðar Selur ísbílinn eftir þrjátíu ár í bransanum Tilkynningum frá verslunareigendum um alvarleg atvik hafi fjölgað „Þetta var ekki gert til að flækja, alls ekki“ Gunnþór verður formaður SFS í stað Guðmundar Heilbrigðiseftirlitið varaði við breytingunum Hvernig get ég ávaxtað peninga barnanna minna sem best? Leita að einhverjum til að reka Kolaportið áfram á sama stað Efast um að veitingamenn óttist að styggja embættismenn Hrund nýr fjármálastjóri Íslandshótela Veitingamenn óttist að styggja embættismenn Regluverk setur langborðinu stólinn fyrir dyrnar Kvika segir hvorugt tilboð nægilega gott Sjá meira