Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Mikill hiti á fasteignamarkaði Mikill hiti er nú á fasteignamarkaði að því er fram kemur í hálffimmfréttum KB banka. Samkvæmt Fasteignamati ríksins hækkaði verð á fjölbýli á höfuðborgarsvæðinu um 5,5% í janúar frá fyrri mánuði en fjölbýli hefur hækkað um rúm 25% á síðastliðnum tólf mánuðum. 21.2.2005 00:01
Actavis hagnast um 5 milljarða Hagnaður Actavis í fyrra var minni en greiningardeildir bankanna gerðu ráð fyrir og framlegð af rekstrinum var umtalsvert minni en gert hafði verið ráð fyrir. Hagnaður Actavis var 62,7 milljónir evra. Það samsvarar ríflega fimm miljörðum króna. 21.2.2005 00:01
Oddi fær aukna samkeppni Edda Printing and Publishing Ltd., hefur keypt prentsmiðjuna Prentmet ehf og dótturfélag þess Prentverk Akraness af Guðmundi Ragnari Guðmundssyni og Ingibjörgu Steinunni Ingjaldsdóttur. Fyrir á Edda PP allt hlutafé í Edda Printing LLC, prentsmiðju í Pétursborg í Rússlandi. 21.2.2005 00:01
Landsbankinn hækkar vexti Landsbankinn hefur ákveðið að hækka vexti á óverðtryggðum innlánum og útlánum þann 1. mars nk. Með hækkuninni er Landsbankinn að bregðast við vaxtahækkun Seðlabankans að því er segir í tilkynningu frá bankanum. 21.2.2005 00:01
Fyrsta heimsendingarapótek opnað Lyfjaver opnar í dag fyrsta heimsendingarapótekið hér á landi sem sérhæfir sig í að afgreiða lyfseðilsskyld lyf á hagstæðu verði. Viðskiptavinir eiga kost á að fá lyfin send heim á sama verði og væru þau keypt í búðinni, hvort sem þeir búa í miðborg Reykjavíkur eða úti á landi. 20.2.2005 00:01
Upplýsingagjöf til skoðunar Kauphöllin skoðar hvort rétt hafi verið staðið að upplýsingagjöf um lánshæfismat Íbúðalánasjóðs. Hallur Magnússon hjá Íbúðalánasjóði segir að skýrsla matsfyrirtækisins Standard og Poors hafi legið fyrir í heild sinni í nokkurn tíma áður en sjóðurinn sendi frá sér tilkynningu. Eftir á að hyggja hefði hún þó mátt vera ítarlegri. 20.2.2005 00:01
Ný bensínstöð við Sprengisand Fyrsta bensínstöð Atlantsolíu í Reykjavík var opnuð í dag og fleiri eru á teikniborðinu. Markaðsstjóri fyrirtækisins segir áfangann stóran og hann geri fyrirtækið enn sterkara í samkeppni á olíumarkaði. 20.2.2005 00:01
Vildarpunktar verði taldir fram Þeir sem safna vildarpunktum í flugi sem vinnuveitandi hefur greitt fyrir verða að telja ígildi punktanna fram til skatts. Segir í Morgunblaðinu í dag að ríkisskattstjóri telji ekki hægt að líta á söfnun vildarpunkta sem lið í samningi um afsláttarkjör þegar vinnuveitandi greiði fyrir farmiðann. 19.2.2005 00:01
Hvíta húsið með 14 tilnefningar Hvíta húsið fékk flestar tilnefningar í samkeppni um athyglisverðustu auglýsingar ársins 2004. Hvíta húsið fékk alls 14 tilnefningar. Fíton fylgir fast á eftir, fékk 12 tilnefningar og Íslenska auglýsingastofan fékk 10. Verðlaun fyrir athyglisverðustu auglýsingarnar verða afhent í Háskólabíói föstudaginn 25. febrúar á Íslenska markaðsdeginum. 18.2.2005 00:01
Vöruskiptahalli 38 milljarðar Hallinn á vöruskiptum við útlönd í fyrra nam tæpum 38 milljörðum króna. Það er rúmum 21 milljarði króna meiri halli en árið þar áður. 18.2.2005 00:01
Nýtt merki fyrir framtíðina nb.is heitir eftirleiðis Netbankinn. Bankinn kynnti í gær nýtt nafn og vörumerki og er formlegt heiti fyrirtækisins nb.is sparisjóður hf., en verður í daglegu tali Netbankinn. Slóðin er sú sama og áður: <a href="http://www.nb.is/"><strong>www.nb.is</strong></a> 18.2.2005 00:01
Flytja skiptiborð til Ísafjarðar Íslandsbanki hefur ákveðið að flytja símaskiptiborð bankans til Ísafjarðar og er gert ráð fyrir að starfsmönnum í útibúinu þar fjölgi um helming vegna þessa. Samkvæmt tilkynningu frá bankanum mun breytingin verða í áföngum. Tveir starfsmenn hefja störf við símaskiptaborðið á Ísafirði á næstu vikum og er gert ráð fyrir að stöðugildin verði orðin yfir tíu á fyrri hluta ársins 2006. 18.2.2005 00:01
Samið um fjarskiptaþjónustu Landsvirkjun, Fjarski og Síminn hafa gert með sér samning um samvinnu á sviði fjarskiptaþjónustu. Samstarfið felur í sér að Síminn veitir Landsvirkjun og Fjarska þá fjarskiptaþjónustu sem nauðsynleg er til að tryggja öryggi og skilvirkni í rekstri Landsvirkjunar. 18.2.2005 00:01
Seðlabanki hækkar stýrivexti Bankastjórn Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að hækka stýrivexti bankans um 0,5 prósentur frá og með 22. febrúar næstkomandi, þ.e. úr 8,25 prósentum í 8,75 prósent. Aðrir vextir bankans hækka um 0,5 prósentur frá 21. febrúar. 18.2.2005 00:01
Stýrivextir hækkaðir í 8,75% Seðlabankinn hefur hækkað stýrivexti um 0,5 prósentustig í kjölfar þess að bankinn sendi ríkisstjórninni greinargerð í tilefni þess að verðbólgan mælist nú yfir þolmörkum peningamálastefnunar. Stýrivextirnir eru nú 8,75 prósent. 18.2.2005 00:01
Hagnaður SPRON aldrei meiri Afkoma Sparisjóðs Reykjavíkur og nágrennis náði sögulegu hámarki á síðasta ári. Hagnaður af rekstri SPRON-samstæðunnar fyrir skatta nam 1.820 milljónum króna samanborið við 846 milljónir árið áður. Hagnaður eftir skatta var 1.465 milljónir króna og arðsemi eigin fjár var 32%. 17.2.2005 00:01
ÍMARK dagurinn 25.febrúar Íslenski markaðsdagurinn verður haldinn föstudaginn 25. febrúar. Dagurinn hefst með ráðstefnu í Háskólabíói kl. 9-16, Lúðurinn, íslensku auglýsingaverðlaunin verða afhent kl. 17 og um kvöldið verður kvöldverður og skemmtun á Listasafni Reykjavíkur. 17.2.2005 00:01
Ríkið kaupir Landsvirkjun Ríkið mun kaupa hlut Reykjavíkurborgar og Akureyrarbæjar í Landsvirkjun en bæjarfélögin eiga helming í félaginu á móti ríkinu. Frá því var greint á blaðamannafundi í Þjóðmenningarhúsinu fyrir stundu. 17.2.2005 00:01
Vöruskiptahallinn tvöfalt meiri? Greiningadeild Íslandsbanka spáir því að vöruskiptahallinn í desember hafi numið 4-6 milljörðum króna en Hagstofan birtir tölur sínar á morgun. Ef það gengur eftir verður vöruskiptahallinn í fyrra samtals um 40 milljarðar króna eða meira en tvöfalt meiri en árið áður þegar hann var sautján milljónir. 17.2.2005 00:01
Þjóðhagsspáin röng segir LÍÚ Landssamband íslenskra útvegsmanna segir að endurskoðuð þjóðhagsspá fjármálaráðuneytisins sé beinlínis röng þegar kemur að þætti sjávarútvegsins. Þar sé gengið út frá mun lægra gengi krónunnar en það er í raun og veru til að fegra afkomu sjávarútvegsins 17.2.2005 00:01
Landsvirkjun verður hlutafélag Ríkið kaupir Reykjavíkurborg og Akureyrarbæ út úr Landsvirkjun um næstu áramót með yfirtöku lífeyrisskuldbindinga, ef samningar nást um verð, samkvæmt viljayfirlýsingu sem undirrituð var í dag. Orkufyrirtæki ríkisins verða um leið sameinuð í einn orkurisa sem ætlunin er að breyta í hlutafélag eftir þrjú ár og bjóða nýjum fjárfestum að koma inn í. 17.2.2005 00:01
Krefist svara um atkvæði Fjármálaeftirlitið hefur sent 30 stærstu hluthöfum Íslandsbanka bréf þar sem þess er krafist þeir geri grein fyrir því hvernig þeir hyggjast beita atkvæðarétti sínum á aðalfundi bankans á þriðjudaginn. 17.2.2005 00:01
Fimmtíu milljarða samdráttur Heildarútlán Íbúðalánasjóðs drógust saman um 50 milljarða á seinni helmingi síðasta árs. Hlutdeild bankanna á fasteignalánamarkaði hefur aukist úr fimm prósentum í tæp 19 prósent á síðustu tveimur árum. 17.2.2005 00:01
Krónan í fjórða sæti Íslenska krónan er í fjórða sæti yfir þá gjaldmiðla heimsins sem mest hafa hækkað gagnvart dollarnum undanfarið ár. Frá þessu er greint í nýjasta tímariti <em>Economist</em>. 16.2.2005 00:01
Iceland sækir ekki um einkaleyfi Forráðamenn bresku matvælakeðjunnar Iceland hafa fallið frá hugmyndum um að sækja um einkaleyfi á notkun nafnsins í heiminum. Malcolm Walker, forstjóri Iceland Foods, sem nú er í eigu Íslendinga, sendi forsætisráðherra bréf þess efnis í gærkvöldi. 16.2.2005 00:01
Ragnhildur ráðin forstjóri Ragnhildur Geirsdóttir, framkvæmdastjóri rekstrarstýringar Icelandair og stjórnarmaður í Flugleiðum, var ráðin forstjóri Flugleiða í dag. Jón Karl Ólafsson var hins vegar ráðinn forstjóri Icelandair. Ragnhildur er þrjátíu og þriggja ára gömul. 16.2.2005 00:01
Hagnaður Orkuveitunnar þrefaldast Orkuveita Reykjavíkur hagnaðist um 3,7 milljarða á síðasta ári. Þetta er nærri þrefalt meiri hagnaður en árið 2003 þegar Orkuveitan hagnaðist um 1,3 milljarða. Ársreikningur fyrirtækisins var samþykktur á stjórnarfundi í dag. 16.2.2005 00:01
Ríkulega lagt á búsið Skýrsla, sem unnin var að ósk samgönguráðherra, sýnir að veitingamenn leggja á bilinu 170-250 prósent ofaná innkaupsverð algengra tegunda bjórs, léttvíns og sterkra vína. Af verðinu sem greitt er yfir barborðið renna á bilinu 50 til 60 prósent til veitingamanna. 16.2.2005 00:01
KB banki bjóst við meiri hagnaði Hagnaður Marels á síðasta ári var nokkuð undir væntingum greiningardeildar KB banka. Bankinn spáði 7,4 milljóna evru hagnaði en hagnaðurinn varð 6,6 milljónir evra. 16.2.2005 00:01
Aðför gegn Íbúðalánasjóði Ögmundur Jónasson, þingflokksformaður Vinstri grænna, segir Samtök banka og verðbréfafyrirtækja (SBV) reyna allar leiðir til að koma Íbúðalánasjóði fyrir kattarnef. 16.2.2005 00:01
Tveir taka við af Sigurði Ragnhildur Geirsdóttir, 33 ára verkfræðingur, var í dag ráðin forstjóri Flugleiða. Þá var Jón Karl Ólafsson, framkvæmdastjóri Flugfélags Íslands, ráðinn forstjóri dótturfélagsins Icelandair. 16.2.2005 00:01
Fallið frá einkaleyfi á Iceland Forstjóri bresku verslunarkeðjunnar Iceland Food hefur sent Halldóri Ásgrímssyni forsætisráðherra svarbréf vegna umsóknar fyrirtækisins um einkaleyfi á vörumerkinu Iceland í löndum Evrópusambandsins þar sem hann segir að fallið verði frá umsókn um einkaleyfi á notkun nafnsins í öllum löndum utan Bretlands. 16.2.2005 00:01
Dæmi um vanskil 100% íbúðalána "Það eru farin að berast inn á borð til okkar nokkur dæmi um fólk sem hefur fengið hundrað prósent lán og nær ekki að standa í skilum," segir forstöðumaður Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna. Þau auknu lán sem almenningi bjóðast til húsnæðiskaupa nýtast illa þeim sem minnst hafa milli handanna enda húsnæðisverð víða um land margfaldast og engin endir á hækkununum í sjónmáli. 15.2.2005 00:01
Góður hagnaður hjá Símanum Rúmlega þriggja milljarða króna hagnaður varð af rekstri ríkishlutafélagsins Símans í fyrra, sem er um það bil einum milljarði króna meiri hagnaður en árið þar áður. Stjórn Símans ákvað í gær að leggja til við aðalfund að greiddur verði 90 prósenta arður af nafnvirði hlutafjár eða 3,3 milljarðar króna sem ríkissjóður fær í sinn hlut þar sem ríkið á Símann. 15.2.2005 00:01
Hvatt til aukins aðhalds Efnahags- og framfarastofnunin, OECD, hvetur íslensk stjórnvöld til að stuðla að vaxtahækkunum og auka aðhald í peningamálum til að sporna við þenslu. 15.2.2005 00:01
Reynt að skýra verkaskiptingu Gerð er tilraun til að draga úr óvissu um verkaskiptingu í eftirliti með verðbréfamarkaði með sameiginlegri yfirlýsingu Fjármálaeftirlitsins og Kauphallar Íslands. Yfirlýsingunni er ætlað að skýra betur verkaskiptinguna á milli þessarra tveggja stofnana og auka skilvirkni. 15.2.2005 00:01
Eigendaskipti á Heklu Eigendaskipti urðu á bílaumboðinu Heklu í dag. KB banki, Straumur og Tryggingamiðstöðin voru keypt út úr fyrirtækinu af Tryggva Jónssyni, forstjóra Heklu, Hjörleifi Jakobssyni, forstjóra Esso, Frosta Bergssyni, fyrrverandi stjórnarformanni Opinna kerfa, og Agli Ágústssyni, forstjóra Íslensk-Ameríska. 15.2.2005 00:01
Auknar heimildir til rannsóknar Fjármálaeftirlitið fær auknar heimildir til að rannsaka mál samkvæmt nýju lagafrumvarpi um verðbréfaviðskipti, þar á meðal til að kyrrsetja gögn og fá aðgang að gögnum um símtöl og fjarskipti. Má segja að með þessu sé verið að taka hálft skref því á meðan heimild til að beita sektum er enn takmörkuð er hætta á árekstrum við lögreglu. 15.2.2005 00:01
Hagnaður Marels 6,6 milljónir evra Marel hagnaðist um 6,6 milljónir evra á síðasta ári. Þetta er 76 prósenta aukning frá árinu áður, en niðurstaðan er engu að síður nokkuð undir spám greiningardeilda bankanna. 15.2.2005 00:01
Meðalinnstæðan 250 þúsund Heildarfjöldi reikninga einstaklinga í viðskiptabönkum og sparisjóðum var 1,1 milljón og var meðalinnstæðan tæpar 250 þúsund krónur. 14.2.2005 00:01
250 milljónir bíða eigenda Samtals 250 milljónir liggja nú hjá Íbúðalánasjóði og bíða þess að eigendur vitji þeirra. Þetta eru húsbréf sem búið er að draga út en eigendur hafa ekki innleyst, að sögn sviðsstjóra Íbúðalánasjóðs. </font /></b /> 14.2.2005 00:01
Síminn seldur kjölfestufjárfesti Allt útlit er fyrir að meirihluti Símans verði seldur kjölfestufjárfesti. Í það minnsta tveir hópar innlendra fjárfesta eru taldir hafa áhuga en hann byggist á því að þeir geti keypt meirihluta í fyrirtækinu. 14.2.2005 00:01
Uppgjör Marels og Atorku í dag Tvö stór félög birta í dag uppgjör fyrir árið 2004. Marel og Atorka eru bæði í Úrvalsvísitölu hlutabréfa. 14.2.2005 00:01
Stofna líftæknifyrirtæki á Íslandi Bandarískt líftæknifyrirtæki er að setja á stofn rannsóknar- og þróunarfyrirtæki í stofnfrumurannsóknum á Íslandi. Fyrirtækið hyggst fjárfesta hér á landi á næstu mánuðum og ráða til sín nokkra starfsmenn. Fyrirtækið heitir Xytos og er verið að leggja lokahönd á hlutafjárútboð félagsins í Bandaríkjunum og skráningu á Nasdaq-markaðinn. 14.2.2005 00:01
Viðunandi hagnaður sjávarútvegs Sjávarútvegur er rekinn með viðunandi hagnaði, bæði á þessu ári og því síðasta, að mati fjármálaráðuneytisins. Það spáir því að tekjur greinarinnar í ár verði tuttugu milljörðum króna hærri en útgjöldin. 13.2.2005 00:01