Fleiri fréttir
Sjá næstu 50 greinar
Grill Þótt ég rembist alla daga ársins við að vera besta mamma í heimi man ég bara stundum eftir því að setja á börnin mín sólarvörn. Það er að segja hér á Íslandi því um leið og komið er út fyrir landsteinana er ég meðvitaðasta konan veraldar um skaðsemi útfjólublárra geisla. 4.7.2007 06:00
Konur í auglýsingum Nú á tímum hnattvæðingar stýra margar og mótsagnakenndar tilhneigingar framvindu mála. Sem betur fer birtist okkur vaxandi umhverfisvitund í ýmsum myndum en um leið er miskunnarlaus gróðahyggja drifkraftur í hinu alþjóðlega viðskiptalífi, eins konar hnattvæddur græðgiskapítalismi. 4.7.2007 06:00
Risaveldi í kreppu Bandaríkjamenn, voldugasta þjóð heims, halda upp á þjóðhátíð sína á morgun, 4. júlí, er rétt 231 ár verða liðin frá því Bandaríkin lýstu yfir sjálfstæði. 3.7.2007 06:15
Raforka á álverstaxta Svo virðist sem ný tegund lýðræðis sé nú að ryðja sér til rúms í bæjum og sveitum landsins um þessar mundir. „Íbúakosning“ kallast hún og snýst um sjálftökurétt einstakra sveitarfélaga á sameiginlegum auðlindum þjóðarinnar. Síst er ég á móti íbúalýðræði og auknum rétti fólks til að ákvarða eigin mál. 3.7.2007 06:00
Stórskipahöfn á Kársnesi Íbúar í vesturbæ Kópavogs hafa á undanförnum mánuðum mótmælt væntanlegum skipulagsbreytingum á Kársnesi. Þar er gert ráð fyrir talsverðri þéttingu byggðar ásamt stórskipahöfn með tilheyrandi þungaflutningum. 3.7.2007 06:00
Töffið í felulitum Fátt þykir karlmannlegra en að drepa fugla. Ég hef lengi haft megnasta ímugust á svokölluðum veiðimönnum. Með auknum þroska hefur hugsjónum mínum fækkað og fyrirlitning mín á hinum ýmsu þáttum mannlegrar tilveru útvatnast. 3.7.2007 06:00
Íslendingar í útlöndum Marmaris heitir lítið sjávarpláss í Tyrklandi. Þetta er útgerðarbær og lifir á ferðamönnum en ekki fiskveiðum. Tiltölulega stutt er síðan Íslendingar fóru að venja komur sínar til Marmaris að njóta góðrar aðhlynningar í sumarleyfinu. Öldum saman hafði þá verið lítill samgangur milli Tyrklands og Íslands. 2.7.2007 07:00
Hvað er til ráða? Skoðanir á því, hvað beri að gera til að stemma stigu við ofsaakstri eru misjafnar. Það fyrsta sem kemur í hug margra er að enn þurfi að herða refsingar. 2.7.2007 08:00
Lastaskattar í þágu góðra mála Það eru iðjuleysingjar sem spila póker upp á pening. Hinir sem þiggja peningaverðlaun eða verðmæta vinninga fyrir góðan árangur í bridds eða skák eru taldir afreksmenn og njóta velþóknunar. 2.7.2007 06:45
Byggðir Ég er höfuðborgarbúi í húð og hár og hef alið manninn á mölinni allt mitt líf hingað til. Reyndar, þegar ég þarf að segja deili á mér úti á landi kemst ég stundum upp með að segja einfaldlega að ég hafi alist upp við hafið. Það hljómar svo ansi hreint vel. Ef ég er spurður nánar neyðist ég þó til að bæta við að þar eigi ég reyndar við Arnarnes. 30.6.2007 09:00
Að umreikna gráður í krónur Sigurjón Þórðarson skrifar Hagfræðingarnir í HÍ eru að eigin mati gríðarlega klókir í líffræði og þá munar ekkert um að breyta mögulegu hækkuðu hitastigi andrúmsloftsins um örfáar gráður í framtíðinni í hundruða milljóna tap fyrir þjóðarbúið. Árið 2004 reiknaði Ragnar Árnason að þjóðarbúið tapaði 800 milljónum króna á gróðurhúsaáhrifum sem hækka hitastigið einhvern tímann í framtíðinni. 30.6.2007 07:00
Flugvöllur á floti í Vatnsmýri Nýting lands í Vatnsmýrinni í Reykjavík er lykilatriði þegar horft er til framtíðar í skipulagi og uppbyggingu í höfuðborginni. Þess vegna sætir nokkurri furðu hversu illa gengur að fá ráðamenn, bæði ríkis og borgar, til að taka af skarið og móta stefnu sem fylgja skal um framtíð flugvallarins í Vatnsmýri. 30.6.2007 06:30
Hver á hvað? engin algild uppskrift er til um hvernig skipta á verkefnum milli ríkis og sveitarfélaga. Um tvær viðmiðanir í þeim efnum hefur eigi að síður ríkt ríkur samskilningur. Önnur er sú að sveitarfélögin annist sem mest af þeirri þjónustu sem stendur borgurunum næst. Hin segir að ekki megi slíta í sundur ákvörðunarvald og fjármálaábyrgð. 29.6.2007 06:15
Olía á eldinn Þýðandi sem ég þekki sagði mér á dögunum frá bandarískum reyfara sem hann las og gerðist í olíuhreinsunarstöð. Hann taldi ólíklegt að hægt væri að snara henni yfir á íslensku; alltof mörg orð sem lutu að þessum iðnaði væri ekki að finna í okkar tungumáli. 29.6.2007 06:00
Takmörk félagshyggju Íslenskir félagshyggjumenn ættu að staðnæmast við hugmyndir tveggja snjallra hugsuða. Annar er John Rawls, sem lést fyrir nokkrum árum, en var lengi heimspekiprófessor í Harvard-háskóla. Hinn er Arthur Laffer, sem er í fullu fjöri og raunar væntanlegur næsta haust til Íslands, en hann var um skeið hagfræðiprófessor í Chicago-háskóla og ráðgjafi Bandaríkjaforseta. Báðir þessir menn setja ríkisafskiptum takmörk, sem skynsamir félagshyggjumenn hljóta að viðurkenna. 29.6.2007 06:00
Fagra Ísland - dagur fimm Ögmundur Jónasson skrifar Samkvæmt umhverfisstefnu Samfylkingarinnar, sem ber heitið Fagra Ísland, er ekki gert ráð fyrir frekari stóriðjuuppbyggingu þar til heildstæð áætlun um náttúruvernd liggur fyrir. Í kosningabaráttunni var hamrað á því að næstu fimm árin yrði stóriðjustopp ef Samfylkingin kæmist til valda. 29.6.2007 06:00
Umferðaróhapp í Vestfjarðagöngum Umferðaróhapp varð í Vestfjarðagöngum laust eftir klukkan sjö í gærkvöldi, en ökumaður sem kom akandi frá suðri sofnaði undir stýri og ók á vegg á vegamótunum í göngunum. Ökumaðurinn meiddist lítið en bíllinn er talinn ónýtur. 28.6.2007 08:23
Tónleikaröðin Sumar í Hömrum Tónlistarfélag Ísafjarðar stendur fyrir röð sumartónleika í júlí og ágúst sem hlotið hefur yfirskriftina Sumar í Hömrum og eru alls sex tónleikar á dagskránni. "Ekki er hægt að segja annað en að þar ráði metnaður og fjölbreytni ríkjum,“ segir í tilkynningu. "Þar má hlýða á vísnatónlist og ljóðasöng, háklassík og nútímamúsík, ungt listafólk á byrjunarreit og suma af þekktustu listamönnum þjóðarinnar.“ 28.6.2007 07:32
Vestfirsk sveitarfélög greiddu samtals rúmar 42 m.kr. í húsaleigubætur Sveitarfélög á Vestfjörðum greiddu samtals liðlega 42 milljónir króna í húsaleigubætur á síðasta ári. Þetta kemur fram í fréttabréfi Jöfnunarsjóðs. Eins og gefur að skilja greiðir Reykjavíkurborg mest allra sveitarfélaga í húsaleigubætur, eða liðlega 750 milljónir. Alls greiddu sveitarfélög á landinu rúmlega 1.526 m.kr. í húsaleigubætur, en framlag Jöfnunarsjóðs nam tæpum 840 milljónum. 28.6.2007 06:00
Dagurinn er bjartur Sjötti þingmaður Suðvesturkjördæmis, Ögmundur Jónasson, ræðir um Fagra Ísland stefnu Samfylkingarinnar í umhverfismálum í Fréttablaðinu 26. júní sl. Síðan er skipt um gír og þingmaðurinn segir orðrétt: "Samkvæmt staðhæfingum forstjóra Alcans, Michel Jacques, hafði bæjarstjórinn frumkvæði að því að bjóða Alcan að stækka álverið í Straumsvík með því að byggja á landfyllingu.“ 28.6.2007 06:00
Skattur? Nei, gjald Borgarstjórinn í London, Ken Livingstone, lagði fyrir nokkrum árum umferðargjald á ökumenn í London til að draga úr umferðarþunganum í miðborginni, enda var hann orðinn nær óbærilegur. 28.6.2007 06:00
Öruggari í fimm stjörnu bifreið Bifreiðin er fyrir löngu orðin nauðsynlegur ferðamáti. Umferðarslysin eru því miður alltof algeng. Það er hægt að draga verulega úr afleiðingum umferðarslysa sem kosta okkur tugi milljarða árlega fyrir utan líkamleg örkuml og mikla sálarangist. 28.6.2007 06:00
Verðlaun Á hverju ári er fólk hér að myndast við að veita verðlaun fyrir framúrskarandi listræn afrek. Auk hávirðulegra bókmenntaverðlauna forsetans eru haldnar Eddu-, Ístón- og Grímuverðlaunaveislur og fólk mætir dragfínt í sparifötunum. Þetta er ágætis úthald hjá þjóð sem telur jafn margar hræður og Coventry. 28.6.2007 06:00
McFréttir eða lífrænt ræktaðar Hið gamla spakmæli „allt er best í hófi“ kemur upp í hugann þegar maður fer í sumarleyfi og finnur hvílík hvíld er fólgin í því að losna úr heljargreipum þess lífsmynsturs sem maður er fastur í dagsdaglega. Maður hringir bara nauðsynleg símtöl til að tilkynna aðstandendum að maður hafi náð að komast á réttan áfangastað og sé ekki kafnaður úr hita. Maður fær bara nauðsynlegar fréttir af því að ekki hafi gleymst að vökva blómin og skipta um sand í kattakassanum. 27.6.2007 08:30
Allir geta sigrað Þann 18. ágúst verður hlaupið til góðs og landsmenn hafa möguleika á að slá tvær flugur í einu höggi- fá betri líðan með hreyfingu og samtímis rétta hjálparhönd til þeirra sem minna mega sín. Hjálparstarf kirkjunnar fagnar þessu göfuga framtaki Glitnis að heita á hlaupara og styrkja þannig starf frjálsra félagssamtaka á Íslandi. 27.6.2007 08:00
Ný Evrópa án okkar Leiðtoga ríkja Evrópusambandsins bíður nú það miserfiða verkefni að sannfæra íbúa landa sinna um ágæti nýs stjórnskipunarsáttmála sem þeir lönduðu eftir nokkurn barning í Brussel á föstudaginn. 27.6.2007 07:15
Akstur er dauðans alvara Fyrstu mánuðir þessa árs lofa ekki góðu ef skoðuð er þróun alvarlegra umferðarslysa sem hafa tvöfaldast miðað við sama tíma í fyrra. Nú er verið að leggja síðustu hönd á skýrlu Rannsóknarnefndar umferðarslysa og hef ég fyrir satt að fjölmörg dauðaslys í umferðinni á síðasta ári megi beinlínis rekja til ofsaaksturs eða of mikils hraða miðað við aðstæður. 27.6.2007 07:00
Fagra Ísland - dagur fjögur Ögmundur Jónasson skrifar Þegar Samfylkingin kynnti umhverfis- og virkjanastefnu sína undir yfirskriftinni Fagra Ísland var á það lögð áhersla að á komandi fimm árum yrði gert hlé á stóriðjuframkvæmdum á Íslandi. Á degi tvö í stjórnarsamstarfinu kom svo í ljós að álitamál varðandi Þjórsárver og Norðlingaölduveitu höfðu ekki verið til lykta leidd í stjórnarmyndunarviðræðunum. Ekki þótti það sérlega trúverðugt fyrir fólk sem gaf sig út fyrir að bera umhverfisvernd fyrir brjósti að láta Fagra Ísland sitja á hakanum í stjórnarmyndunarviðræðum. 26.6.2007 08:30
Á ferð með afturgöngum Hvað er eiginlega bak við þessa hurð,“ spurði ég eitt sinn konu sem var að sýna mér íbúð sem ég hafði í hyggju að kaupa. „O, svo sem ekkert,“ svaraði konan. Þegar henni hafði tekist að ljúka upp dyrunum með háværu marri blasti ekkert annað við en stigagangur frá undarlegu sjónarhorni og töluverð hæð niður að þrepunum. „Þetta hús var byggt þegar enn tíðkaðist að fólk dæi heima hjá sér. 26.6.2007 08:00
Kraftmikil orkupólitík Katrín Júlíusdóttir skrifar Nýr iðnaðarráðherra Össur Skarphéðinsson hefur slegið afar áhugaverðan tón í umræðunni um nýtingu okkar Íslendinga á orkuauðlindum. 26.6.2007 07:00
Baráttan fyrir ábyrgum akstri Ferðasumarið er hafið. Á það var rækilega minnt þegar langar raðir bifreiða mynduðust á umferðaræðunum til og frá höfuðborginni, fyrst út úr bænum á föstudag og svo aftur inn í bæinn á sunnudag. 26.6.2007 03:45
Umræðan mótist af heildarsýn Hröðum þjóðfélagsbreytingum fylgir að endurskoða þarf ýmsa þætti í samfélaginu. Þannig hefur vægi fjármála- og viðskiptalífs aukist verulega í samfélaginu, án þess að samsvarandi vöxtur fylgi í eftirlitsstofnunum sem sinna þeim málaflokki. 25.6.2007 06:15
Tækifæri til lækkunar vaxta Líklega eru allir sammála um að vextir á Íslandi séu alltof háir og að heilbrigt atvinnulíf fáist varla þrifist til lengdar við núverandi vaxtastig. Markmið nýrrar ríkisstjórnar er að skapa skilyrði fyrir lækkun vaxta og betra efnahagslegu jafnvægi. 25.6.2007 06:00
Verða kosningaloforðin efnd? Fyrir síðustu alþingiskosningar kepptust stjórnmálaflokkarnir við að lofa eldri borgurum margs konar kjarabótum og bættri hjúkrunaraðstöðu.Sumir segja, að stjórnmálamenn efni aldrei kosningaloforðin. 25.6.2007 06:00
Byrjað á öfugum enda í velferðarmálum Steingrímur J. Sigfússon skrifar Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar er margt huggulega sagt um velferðarmál og ekki verður dregið í efa að nýr félagsmálaráðherra, Jóhanna Sigurðardóttir, vill vel í þeim efnum. Tillaga hennar um aðgerðaáætlun í málefnum barna og ungmenna er full af háleitum markmiðum um úrbætur og þarfar aðgerðir á því sviði. 25.6.2007 06:00
Sumarfólk hefur rétt hjá VR Við viljum leiðrétta misskilning sem fram kemur í innsendri grein Valgerðar Halldórsdóttur, framkvæmdastjóra Félagsráðgjafafélags Íslands, í Fréttablaðinu 21.06 2007. 25.6.2007 06:00
Ríkar stelpur stuða Þegar ég vann á vikublaði spurði ég eitt sinn kollega minn hvort honum þætti eðlilegt að þegar hann skrifaði um karla í nýjum samböndum segði hann að þeir væru „komnir með nýja upp á arminn“ en þegar konur byrjuðu með nýjum manni fylgdi alltaf sögunni að þær væru „lausgyrtar“. 25.6.2007 06:00
Ljósið loftin fyllir Nú eru dagar langir, birtan hvolfist yfir okkur þessi dægrin: nætur skammar og er dregur að hinu forna miðnætti leggst þögn yfir allt. Heyra má samtal manna langt að í borginni – sláttumann bölva yfir gamalli tvígengisvél sem vill ekki þýðast hann til sláttar langt að. 24.6.2007 06:15
Kastljósið eina sanna Siðanefnd Blaðamannafélags Íslands hefur fellt úrskurð í máli Jónínu Bjartmarz gegn Kastljósi Ríkissjónvarpsins. Úrskurðurinn er harður og athyglisverður að því leiti að það er ekki algengt að slíkur málarekstur sé stundaður gegn Ríkisútvarpinu. 24.6.2007 06:00
Viltu eitthvað meira? Í Ofvitanum segir Þórbergur Þórðarson frá því þegar afgreiðslustúlka spyr hann: „Var það eitthvað fleira fyrir yður?“ Hann varð felmtri sleginn og fór að velta því fyrir sér hvað í ósköpunum hún gæti átt við með þessari spurningu. Niðurstaða hans var sú að hún hlyti að hafa verið að gera honum ósæmilegt tilboð og kætti það hann talsvert. 24.6.2007 06:00
Starf eða hlutverk? Hvað er þingmennska? Er það starf í hefðbundinni merkingu þess orðs? Er Alþingishúsið vinnustaður eins og hver önnur skrifstofa eða færibandaframleiðsla? Spurningar af þessu tagi vakna vegna umræðu um nýja þingmenn, önnur hlutverk þeirra og tengsl við fyrri störf. 23.6.2007 06:15
Meira um lagamenntun á Íslandi Bryndís Hlöðversdóttir, deildarforseti lagadeildar Háskólans á Bifröst, gerir athugasemd 16. júní við grein sem ég ritaði viku fyrr í tilefni af fyrstu útskrift nemenda með fullnaðarpróf í lögfræði frá lagadeild Háskólans í Reykjavík. 23.6.2007 06:00
Álæði Að vera umhverfisverndarsinni á Íslandi virðist vera svona svipað og að vera ævintýrariddari sem fær það erfiða og að mörgu leyti vanmetna hlutskipti að berjast við dreka með sverði. Eins og í flestum slíkum ævintýrum verður drekinn aldrei lagður auðveldlega. Þegar eitt höfuð hans er hoggið af, eftir talsverða fyrirhöfn, vaxa jafnan tvö í staðinn. 23.6.2007 06:00
Aflamarkskerfið í uppnámi Lái mér hver sem vill, en ég hef lengi undrast þann lofsöng sem sunginn hefur verið um fiskveiðistjórnunarkerfi okkar Íslendinga. Fræðimenn í hagfræði, hagsmunaðilar í sjávarútvegi, stjórnmálamenn í valdastólum, hafa um árabil lofað og prísað aflamarkskerfið, sem á að hafa komið skikki á útgerð og fiskveiðar og leitt af sér hagræðingu í greininni með því að innleiða markaðstorg hins frjálsa framsals kvótans. 23.6.2007 06:00
Grannþjóðir taka höndum saman Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra er nú stödd í Noregi þar sem hún hittir í dag Jens Stoltenberg forsætisráðherra. Áður ræddi hún við Anne-Grete Strøm-Erichsen varnarmálaráðherra og Jonas Gahr Støre utanríkisráðherra. Eitt aðalmálið á dagskrá viðræðna Ingibjargar við hina norsku kollega sína var hinn nýi tvíhliða samningur Íslands og Noregs um eflt samstarf á sviði öryggis- og varnarmála. 22.6.2007 05:00
Grein til stuðnings Söngskóla Sigurðar Demetz Sveinn Dúa Hjörleifsson,Eyrún Unnarsdóttir,Elmar GIlbertsson,Álfheiður Guðmundsdóttir,Kristján Jóhannesson Skoðun
Frábær fundur, frábært framtak, vanvirk stjórnsýsla, meðvirk stjórnvöld Ögmundur Jónasson Skoðun