Fleiri fréttir

Sumarlína Paul Smith

Breski hönnuðurinn Paul Smith er þekktur fyrir sígild snið og litrík munstur...

E-Label snýr aftur á markað

Fyrirtækið hefur legið í dvala í smá tíma og við ákváðum þess vegna að selja það og gefa því nýtt líf,“ segir Heba Hallgrímsdóttir, fyrrverandi eigandi fatamerkisins E Label sem flestir tískusinnaðir Íslendingar ættu að kannast við.

Hús í London sem leynir á sér

Um er að ræða fjögurra hæða heimili í Notting Hill í London. Jarðhæð og þrjár hæðir. Látlaust húsið leynir svo sannarlega á sér séð utan frá...

Flökraði við þæfðri ull

Auður Karitas Ásgeirsdóttir, fatahönnuður og stílisti hjá ljósmyndastúdíóinu Magg, var ekkert hrifin af ull sem hráefni þegar hún var við nám. Gömul Álafossflík breytti því þó og nú er hún höfundurinn á bak við ullarflíkurnar í Geysi á Skólavörðustíg.

Hannar skó á hunda

Hinn litríki hönnuður Jeremy Scott hefur hannað skólínu fyrir Adidas og inniheldur hún meðal annars sérhannaða strigaskó fyrir hunda. Strigaskórnir eru hlébarðamunstraðir og reimaðir. Að auki inniheldur skólínan górillustrigaskó og hlébarðastrigaskó á okkur mannfólkið og eru þeir með litlu skotti að aftan. Hundaeigendur geta því von bráðar klæðst eins skóm og besti vinurinn. Það er annað mál hvort eitthvað af skópörunum muni seljast.

Veggfóður vinsælt

Vinsældir veggfóðurs hafa aukist undanfarin ár. Nú er samkeppnin orðin mikil og fólk óhrætt við að prófa nýjungar....

Bebe sumar 2012

Hvítur litur er allsráðandi í vor- og sumarlínu Bebe 2012 sem er létt og kvenleg eins og sjá má í myndasafni...

Ýkt flott og hræódýrt

Frystihúsaflísar, sundlaugaflísar eða hvað sem þið viljið kalla þær, þá eru þær komnar aftur inn. Eins og sjá má í meðfylgjandi myndaalbúmi...

Brúðarkjólar Badgley Mischka

Meðfylgjandi myndir voru teknar baksviðs af vor- og sumarlínu brúðarkjóla Badgley Mischka fyrir næsta ár...

Tíminn í víðum skilningi

Vöruhönnuðurinn Þórunn Árnadóttir sýnir í hinu virta Triennale hönnunarsafni í Mílanó á Ítalíu. Þar tekur hún, ásamt fjölda þekktra listamanna, þátt í samsýningunni O‘Clock þar sem tíminn er leiðarstefið.

Heimili Donnu Karan

Ef myndirnar eru skoðaðar má sjá að íbúðin er stílhrein þar sem svart mætir hvítu. Hönnuðurinn er andlega þenkjandi með vellíðan og innra jafnvægi að leiðarljósi og þar kemur nuddbekkurinn, sem sjá má í myndasafni, eflaust að góðum notum...

Donna Karan vorlína 2012

Donna Karan fer nýjar leiðir í vor- og sumarlínu fyrir árið 2012 eins og sjá má í myndasafni.

Nett viðbót

Hugmyndin á bak við þessa nettu viðbót eftir X Architekten sem var hönnuð sem hluti af húsi í Austurríki gengur út á það að skapa nánari samskipti íbúa við náttúruna...

Svört snilld sem kostar lítið

Það er ótrúlegt hvað það breytir miklu að mála einn vegg svartan. Svarti veggurinn býr til ákveðna dramatík sem var kannski ekki fyrir, þegar allir veggir voru hvítir...

Vorlína Valentino 2012

Blúndur, margbrotinn útsaumur og vandaður saumaskapur var áberandi á sýningu Valentino fyrir vor/sumar 2012...

Vorlína Fendi 2012

Karl Lagerfeld sem stýrir tískuhúsinu Fendi sýndi nýju vor- og sumarlínuna í París á dögunum sem skoða má í myndasafni...

Svona gerir þú ofninn fallegri

Ofnar geta verið ansi leiðinleg fyrirbæri og ekki erum við öll svo heppin að hafa hita í gólfinu hjá okkur. En við þurfum nú samt á þeim að halda, sérstaklega á okkar yndislega landi þar sem getur orðið ansi kalt á vetrarkvöldum...

Hausttískan: Þykkt, loðið og hlýtt

Haustvörurnar flæða nú inn í tískuverslanir um allt land. Á tískupöllunum síðasta vetur mátti sjá mikið af fallegum, þykkum peysum, stórum úlpum og settlegum handtöskum. Föstudagur fór á stúfana og fann nokkrar fallegar flíkur fyrir haustið.

Húsdýrin á hanka

Hani, krummi, hundur, svín er heiti nýrra snaga úr áli eftir þau Ólaf Þór Erlendsson og Silvíu Kristjánsdóttur. Snagana kynntu þau á HönnunarMars í Epal í vor og nú eru fyrstu eintökin komin í framleiðslu. Form sitt og nafn draga snagarnir af gamalli íslenskri þjóðvísu, en Ólafur og Sylvía vinna saman undir heitinu Hár úr hala.

Raf Simons slær aftur í gegn

Aðalhönnuður Jil Sander-tískuhússins, Raf Simons, hefur slegið í gegn enn og aftur með fallegri og tímalausri hönnun með vorlínunni 2012. Simons gæti þó verið á förum frá Jil Sander því sá orðrómur hefur heyrst að hann taki við af Stefano Pilati hjá Yves Saint Laurent.

Vorförðunin fyrir næsta ár er hrein og bein

Tískuvikurnar hafa síðustu vikur átt hug allra tískuunnenda sem fylgjast spenntir með straumum og stefnum næsta vors. Þó flíkurnar séu sannarlega í aðalhlutverki á slíkum viðburðum spila hár og förðun einnig veigamikið hlutverk og fullkomna í raun heildarútlitið.

Gæti borðað hest

Oft hanna ég einhvern hlut þegar mig vantar eitthvað sérstakt og finn það hvergi í búðum,“ segir Stefán Pétur Sólveigarson vöruhönnuður sem hefur hannað spagettímæli með hentugum mæligötum.

Pastellitir í París

Tískuvikan í París er að renna sitt skeið, en þar hafa helstu hönnuðir heims farið hamförum á tískupöllunum...

Stílhrein lína Lanvin

Meðfylgjandi má sjá vor- og sumarlínu franska tískurisans Lanvin fyrir næsta ár. Lanvin er dýrkaður af stjörnunum í Hollywood. Þær fá ekki nóg af honum, þær bókstaflega elska kjólana eftir hann. Hér má sjá myndir af Cameron Diaz, Jessicu Alba, Rihönnu, Jennifer Aniston, Maggie Gyllenhaal, Juliu Roberts, Blake Lively og Söruh Jessicu Parker í Lanvin dressum.

Lífið er ekki bein lína

Þetta er ekki bara vistvænt heldur líka svakalega flott og færir parketið yfir á næsta plan...

Hanna hús fyrir Ford

Íslensk-danska arkitektastofan KRADS hannar nýja sýningar- og þjónustubyggingu fyrir Ford í Danmörku. Setur nýjan staðal fyrir arkitektúr bílasöluhúsa, segir meðal annars í umsögn dómnefndar.

Louis Vuitton sumar 2012

Meðfylgjandi myndir voru teknar af vor og sumarlínu Louis Vuitton á tískuvikunni í París. Eins og sjá má eru pastellitir ráðandi í línunni...

Vistvæn hönnun og orkusparandi lausnir

Í kvöld mun Signe Kongebro frá dönsku teiknistofunni Henning Larsen Architects í Kaupmannahöfn halda fyrirlestur í Norræna húsinu. Teiknistofan ætti að vera öllum Íslendingum kunn en hún kom meðal annars að hönnun Hörpu og Háskólans í Reykjavík.

Ný lína Kanye West floppar

Rapparinn Kanye West sýndi nýju fatalínuna sína, KW, á tískuvikunni í París. Eins og sjá má á myndunum sátu leikkonurnar Lindsay Lohan og Olsen tvíburarnir á fremsta bekk. Burtséð frá því vakti sýningin í heild sinni lukku að frátöldum fötunum. Fatalína rapparans fær falleinkunn í tískuheiminum. Því er hins vegar fagnað að rapparinn hafi fengið sér dagvinnu við að hanna fatnað á konur. Dæmi hver fyrir sig. Sjá myndir hér.

Givenchy vor/sumar 2012

Í meðfylgjandi myndaalbúmi má sjá vor- og sumarlínu Givenchy fyrir árið 2012.

Afslappað og litríkt heimili

Kristínu Bergsdóttur líður vel í íbúðinni sinni í Þingholtunum. Hún bauð Föstudegi að reka inn nefið og svipast um.

Leyndardómsfullur fatahönnuður

Hönnuðurinn Tom Ford sýndi sína aðra línu í Victoria í London fyrir skemmstu. Mikil leynd hvíldi yfir þessari sýningu eins og þeirri fyrstu og fengu aðeins fáir útvaldir að vera viðstaddir hana. Meðal þeirra sem sóttu sýninguna voru nöfn eins og Anna Wintour, Anna Dello Russo, Carine Roitfeld og Glenda Bailey. Carmen Kass, Anja Rubik og Abbey Lee voru á meðal þeirra fyrirsæta sem sýndu fyrir Ford.

Sjá næstu 50 fréttir