Fleiri fréttir

Pólýfónía í nýrri útgáfu

Platan Pólýfónía Remixes er komin út. Hún inniheldur endurhljóðblandanir af níu lögum plötu Apparats Organ Quartet, Pólýfóníu, eftir FM Belfast, Bloodgroup, Dreamtrak, Beta Satan, Reptilicus, Frederik Schikowski, Flemming Dalum, Thomas Troelsen og Robotaki. Pólýfónía kom út í lok ársins 2010 á vegum 12 Tóna en tæpu ári síðar kom hún út erlendis á vegum danska útgáfufyrirtækisins Crunchy Frog. Pólýfónía Remixes er fáanleg á öllum helstu tónlistarveitum á netinu, til dæmis á iTunes, Amazon og Gogoyoko.

Fjórtán dómarar í Wacken

Fjórtán dómarar verða í hljómsveitakeppninni Wacken Metal Battle á Nasa á laugardaginn. Níu þeirra eru erlendir.

Hinn dularfulli Gabríel frumsýnir glænýtt myndband

Vísir frumsýnir glænýtt myndband með dularfulla tónlistarmanninum Gabríel við lagið Stjörnuhröp. Rapparinn Opee og söngvarinn Valdimar fara á kostum í laginu sem hefur slegið í gegn síðan það var gefið út.

Blur spilar í Gautaborg

Enska hljómsveitin Blur spilar á tónlistarhátíðinni Way Out West sem verður haldin í Gautaborg í ágúst. Meðal annarra flytjenda verða The Black Keys, Bon Iver og Florence and the Machine.

Tónleikar til heiðurs Cash

Minningartónleikar um tónlistarmanninn Johnny Cash verða haldnir í Lindakirkju 26. febrúar, sama dag og hann hefði orðið áttræður.

Hæðir og lægðir Houston

Söngkonan ástsæla Whitney Houston lést um síðustu helgi. Ferill hennar var frábær framan ef en dalaði mikið síðasta áratuginn í lífi hennar.

Mest afslappandi lag allra tíma

Hljómsveitin Marconi Union vann með hópi þerapista við að búa til afslappandi lag sem hægir á öndun og starfsemi heilans.

Black Shore vekur athygli

Nýverið sendi tónlistarmaðurinn Úlfur frá sér myndband við lagið Black Shore sem er að finna á plötu hans, White Mountain, sem kemur út hjá Kimi Records í lok mars. Áður kemur hún út hjá japanska útgáfufélaginu AfterHours.

Heiðra Gunna Þórðar

Hljómsveitin Bítladrengirnir blíðu sem spilar Bítlalögin á barnum Obla-di-obla-da ætlar að heiðra Gunnar Þórðarson á morgun. Lítið hliðarherbergi er á staðnum sem kallað er hvíta herbergið, og þar verður silfurplatti með nafni Gunnars hengt upp.

Skálmöld í hljóðver föstudaginn þrettánda

Björgvin Sigurðsson og félagar í Skálmöld virðast ekki vera hjátrúarfullir því þeir hafa bókað tíma í hljóðveri föstudaginn 13. apríl. Tilefnið er ný plata víkingarokkaranna sem áætlað er að komi út í haust.

Ekki bara snjall lagasmiður

Fyrsta plata skosku söngkonunnar Emeli Sandé kemur út í næstu viku. Áhrifavaldar hennar eru Nina Simone, Aretha Franklin og Joni Mitchell.

Áhrifavaldurinn Nina Simone

Hin bandaríska Nina Simone er einn helsti áhrifavaldur Emeli Sandé. Simone var söngkona, píanisti og lagahöfundur sem var þekktust fyrir djassstandarda sína. Auk þess barðist hún fyrir mannréttindum blökkumanna í Bandaríkjunum. Meðal þekktustu laga sem hún flutti á ferli sínum voru Don"t Let Me Be Misunderstood, Feeling Good, My Baby Just Cares For Me, I Put a Spell on You, Ne Me Quitte Pas og Wild is the Wind. Simone lést árið 2003, sjötug að aldri.

Guðmundur Péturs á Faktorý

Guðmundur Pétursson gítarleikari heldur tónleika á Faktorý á morgun, fimmtudag. Með honum leika Pétur Ben á gítar og selló, Styrmir Haukson á hljóðgerfla og slagverk, Valdi Kolli á bassa og Kristinn Snær Agnarsson á trommur.

Ný plata Sigur Rósar kemur út í vor

Hljómsveitin Sigur Rós hefur lokið upptökum á sinni sjöttu hljóðversplötu. Þetta staðfesti hljómborðsleikarinn Kjartan Sveinsson þegar Fréttablaðið hafði samband við hann og bætti hann við að hún ætti að koma út í vor.

Nota borvél á nýrri plötu

Platan Slaves með harðkjarnasveitinni Muck kemur út á þriðjudag. Hún hefur verið fáanleg í sérstakri forsölu á síðunni Gogoyoko að undanförnu. Á plötunni kennir ýmissa grasa. Til að mynda leikur borvél aðalhlutverkið í einu lagi plötunnar þar sem hún er notuð til að bora í heimasmíðaðan gítar yfir stöðugan takt.

Starfar með Aliciu Keys

Tónlistarmaðurinn Justin Vernon, forsprakki Bon Iver, tók nýverið upp nokkur lög með Aliciu Keys. Hann er einnig að undirbúa nýja plötu með hljómsveitinni Volcano Choir og er að vinna með annarri sveit sem kallar sig The Shouting Matches.

Hlustuðu á Dylan á kvöldin

Hljómsveitin Blágresi hefur gefið út sína fyrstu plötu. Rithöfundurinn Einar Már Guðmundsson samdi alla textana. Blágresi hefur gefið út plötuna Hvað ef himinninn brotnar… sem er samvinnuverkefni hljómsveitarinnar og rithöfundarins Einars Más Guðmundssonar.

Of monsters and men með nýtt myndband

Nýtt tónlistarmyndband með hljómsveitinni Of Monsters and Men kom út í gær. Myndbandið er við lagið "Little Talks" og er aðgengilegt á vefsíðu sveitarinnar. Tveir tenglar eru á myndbandið á síðunni, einn fyrir notendur á Íslandi og annar fyrir notendur sem staddir eru erlendis.

Sjá næstu 50 fréttir