Fleiri fréttir Hjálmar með nýtt lag Hjálmar hafa sent frá sér nýtt lag sem nefnist Ég teikna stjörnu. Það verður á væntanlegri plötu hljómsveitarinnar, Órar, sem kemur út 3. nóvember. Hjálmar eru lagðir af stað í tónleikaferð til Finnlands, Rússlands og Eistlands, eins og Fréttablaðið greindi frá á dögunum. Þar koma þeir fram á sjö tónleikum og fara í hljóðver með finnska tónlistarmanninum Jimi Tenor. 30.9.2011 19:00 Nýtt lag frá Klaufum Lagið Ást og áfengi með kántríhljómsveitinni Klaufum er á leið í almenna útvarpspilun. Það var samið í samvinnu við lagahöfunda í Nashville og er með íslenskum texta eftir Jónas Friðrik. Lagið var frumflutt á Kántríhátíð á Skagaströnd í ágúst þar sem hljómsveitin heimsótti að sjálfsögðu „kúrekann“ Hallbjörn Hjartarson. Mannabreytingar hafa orðið hjá Klaufum. Hljómsveitina skipa nú þeir Guðmundur Annas Árnason, Birgir Nielsen, Kristján Grétarsson, Friðrik Sturluson og Sigurgeir Sigmundsson. Næsta ball sveitarinnar verður á Spot 15. október. 30.9.2011 14:00 The Saturdays til landsins Enska stúlknasveitin The Saturdays er væntanleg til Íslands um helgina. Stelpurnar ætla að taka upp myndband við nýjan slagara sinn, My Heart Takes Over, sem er nýkominn út. 30.9.2011 13:00 Tileinkar föður sínum plötuna Trommuleikarinn Einar Scheving hefur gefið út sína aðra sólóplötu, sem nefnist Land míns föður. Hún er óður til Íslands og á henni eru lög Einars við texta nokkurra af þjóðarskáldunum, auk vel þekktra íslenskra þjóðlaga. 30.9.2011 12:00 Vinsælasta hljómsveit Íslands Hljómsveitin Of Monsters and Men á bæði vinsælustu plötuna og vinsælasta lagið á Íslandi. Nýtt lag er væntanlegt sem heitir King and Lionheart. 30.9.2011 10:00 Númer tíu frá Korn Tíunda hljóðversplata Korn, The Path of Totality, kemur út 5. desember. „Titillinn The Path of Totality vísar í þá staðreynd að til að sjá sólmyrkva þarf að vera á hárréttum stað á hárréttum tíma. Þannig varð platan til. Ég held að upptökustjórarnir séu á sama máli. Ég er viss um að þessi plata gæti aldrei verið endurtekin,“ sagði söngvarinn Jonathan Davis 29.9.2011 10:00 Bloc Party leitar að nýjum söngvara Meðlimir hljómsveitarinnar Bloc Party hafa staðfest að næsta plata verðin tekin upp án söngvarans Kele Okereke. 29.9.2011 09:30 Óútreiknanleg St. Vincent Þriðja sólóplata bandarísku tónlistarkonunnar St. Vincent kom út fyrir skemmstu. Gagnrýnendur eru flestir sammála um að þar sé á ferðinni mikið meistarastykki. St. Vincent gaf fyrr í mánuðinum út sína þriðju sólóplötu, Strange Mercy. Gagnrýnendur hafa hlaðið hana lofi og telja mikið spunnið í þessa bandarísku tónlistarkonu. 29.9.2011 09:00 Sviti frá Jónsa í kaupbæti Bútar úr fötum sem meðlimir Sigur Rósar klæddust á tónleikum í London fylgja með viðhafnarútgáfu af væntanlegri tónleikaplötu þeirra, Inni. 29.9.2011 08:00 Nóra gefur út nýtt lag Hljómsveitin Nóra hefur sent frá sér nýtt lag sem heitir Bringsmalaskotta og er forsmekkurinn af því sem koma skal. 28.9.2011 12:00 Með teknó- og þungarokksplötu á teikniborðinu 27.9.2011 13:28 Útgáfutónleikar hjá Felix Felix Bergsson heldur fyrri útgáfutónleika sína af tvennum í Salnum í Kópavogi í kvöld. Felix gaf nýverið út plötuna Þögul nóttin en þar syngur hann ný lög við ástarljóð Páls Ólafssonar. Meðal lagahöfunda á disknum eru Jón Ólafsson og Magnús Þór Sigmundsson en sérstakir gestir á tónleikunum verða þær Valgerður Guðnadóttir og Jóhanna Vigdís Arnardóttir. 27.9.2011 09:00 Kynnir EP-plötu í kirkju Tónlistarkonan Ólöf Arnalds heldur hinn 24. nóvember tónleika í lítilli kirkju í London sem nefnist St. Pancras Old Church. Tónleikarnir verða haldnir til kynningar á nýrri EP-plötu hennar, Ólöf Sings, sem kemur út 7. nóvember. Hún hefur að geyma útgáfur Ólafar á lögum eftir tónlistarmenn á borð við Bob Dylan, Neil Diamond og Arthur Russell. Tónlistarmaðurinn Snorri Helgason, sem býr í London, ætlar að hita upp fyrir Ólöfu. Hann gaf nýverið út sína aðra sólóplötu, Winter Sun. Önnur sólóplata, Ólafar, Innundir skinni, kom út fyrir ári. 24.9.2011 16:00 Radiohead aftur af stað Thom Yorke, söngvari Radiohead, hefur staðfest að hljómsveitin ætli að eyða næsta ári í tónleikahald. Radiohead hefur aðeins spilað einu sinni á tónleikum eftir að platan King of Limbs kom út fyrr á þessu ári og því ættu hinir fjölmörgu aðdáendur hljómsveitarinnar að gleðjast. 23.9.2011 21:00 Prýðilegt pabbarokk Wilco Áttunda hljóðversplata bandarísku hljómsveitarinnar Wilco kemur út í næstu viku. Jeff Tweedy og félagar gefa plötuna út sjálfir og eru á leiðinni í tónleikaferð til Evrópu. 23.9.2011 19:00 Mugison í Vasadiskó 23.9.2011 14:10 Mills alltaf velkominn Mike Mills úr R.E.M. kom til Íslands með konu sinni í ágúst og söng með Bítladrengjunum blíðu á skemmtistaðnum Ob-la-di Ob-la-da við Frakkastíg. 23.9.2011 13:30 Slegist um að koma landsmönnum í jólaskapið í ár Laugardagurinn 3. desember verður jólatónleikadagurinn mikli á höfuðborgarsvæðinu. Í Háskólabíói stíga sprelligosarnir síkátu í Baggalúti á svið á sínum árlegu aðventutónleikum en í Laugardalshöll verður öllu meira umstang; þar býður Björgvin Halldórsson landsmenn velkomna á Jólagesti sína, en meðal þeirra eru Paul Potts og Robin Gibb. Í Hörpunni þetta sama kvöld hefst síðan Frostrósamaraþonið mikla þegar fyrstu tónleikarnir af átta fara fram. 23.9.2011 11:00 Tveir til liðs við Dimmu Rokksveitin Dimma ætlar að hljóðrita tónleika sína á Gauki á Stöng á fimmtudagskvöld og gefa út á stuttskífu ásamt glænýju efni í október. 21.9.2011 21:00 Nýtt myndband frá Singapore Sling Hljómsveitin Singapore Sling frumsýnir í kvöld myndband við titillag nýútkominnar plötu sinnar, „Never Forever“. 21.9.2011 14:34 Sissel Kyrkjebø aftur til Íslands Einn heppinn drengjasópran fær að syngja með norsku stórsöngkonunni Sissel Kyrkjebø á Frostrósar-tónleikum í Hörpu 10. desember. Haldnar verða sérstakar áheyrnarprufur um miðjan október þar sem strákar geta látið ljós sitt skína. Að sögn Samúels Kristjánssonar tónleikahaldara er ekki enn orðið ljóst hvert lagið verður sem hinn útvaldi fær að syngja. 21.9.2011 12:00 Grúskarar með plötu Fyrsta plata Grúsks er komin út og er það Zonet sem dreifir. Á plötunni eru ellefu lög eftir Einar Oddsson sem einnig gerir textana ásamt Magnúsi Þór Sigmundssyni. Tvö laganna eru við ljóð eftir Þórarin Eldjárn og Davíð Stefánsson. 21.9.2011 08:00 Engar undankeppnir í Eurovision „Við viljum gefa þjóðinni tækifæri til að segja hvaða lagahöfunda hún vill fá," segir Þórhallur Gunnarsson. Landsmönnum gefst í fyrsta skipti kostur á því að tilnefna þann tónlistarmann sem þeir vilja sjá í Söngvakeppni Sjónvarpsins en Þórhallur fer fyrir nefnd sem er að endurskoða hana. 20.9.2011 17:00 Sömdu glænýtt lag um Ben Stiller Félagarnir Atli Fannar og Haukur Viðar fóru á kostum eins og venjulega í útvarpsþættinum Laugardagskaffinu á X-inu á laugardaginn. Meðal þess sem þeir félagar buðu upp á var stórskemmtilegt og glænýtt lag um Ben Stiller. 19.9.2011 12:02 Halda upp á lífið Weirdcore-raftónlistarkvöld verður haldið á Bakkusi í kvöld. Einnig verður fagnað nýrri plötu Bix, Animalog, sem kom út 7. september. Fram koma Bix, DJ Delarosa, PLX og Futuregrapher. 17.9.2011 18:00 Kemur í nóvember Tónleikamynd og -plata Sigur Rósar, Inni, kemur í verslanir 7. nóvember. Platan verður tvöföld og á henni verða fimmtán lög, þar á meðal Lúppulagið sem hljómar í lok myndarinnar en var áður óútgefið. 17.9.2011 13:00 Brostinn strengur frá Lay Low Þriðja sólóplata Lovísu Elísabetar Sigrúnardóttir, betur þekkt sem Lay Low, hefur fengið nafnið Brostinn strengur. 16.9.2011 09:00 Grugguppvakningar vilja endurlífga handboltarokkið Bush er ekki vinsælasta hljómsveit heims. Hún er ekki heldur sú besta né sú virkasta. Það hafa samt allir heyrt lög með Bush og sama hvað þér finnst um harpix-klístrað handboltarokkið þá er komin ný plata frá Bretunum sem allir halda að séu Kanar. 15.9.2011 20:00 Rihanna syngur á nýju plötu Coldplay Breska hljómsveitin Coldplay hefur tekið upp dúett með bandarísku söngkonunni Rihönnu. Lagið heitir Princess of China og verður að finna á plötunni Mylo Xyloto sem kemur út 24. október. 14.9.2011 16:00 Of Monsters and Men selja grimmt í forsölu „Of Monsters and Men hefur tekist að safna stórum aðdáendahópi víðs vegar um heiminn án þess að hafa lagt í tónleikaferðir eða unnið með kynningarstofum,“ segir Haraldur Leví Gunnarsson, framkvæmdastjóri útgáfufyrirtækisins Records Records. 14.9.2011 16:00 Fönguðu kraftinn á einni helgi Önnur plata Hellvar, Stop That Noise, kemur út á miðvikudaginn. „Við tókum hana „live“ upp á einni helgi í desember. Aron Arnarsson var á tökkunum og þetta var hugmynd frá honum. Hann hafði verið á tökkunum hjá okkur á Airwaves og sagðist vilja fanga kraftinn hjá okkur. Það var alveg hárrétt ákvörðun hjá honum,“ segir Elvar Geir Sævarsson. 14.9.2011 15:00 Fyrsta platan frá Two Step Horror Dúóið Two Step Horror, sem er skipað Þórði Grímssyni og Önnu Margréti Björnsson, hefur gefið út sína fyrstu plötu, Living Room Music. Parið samdi plötuna veturinn 2008 til 2009 í stofunni heima hjá sér. Hún kom út í Bretlandi í maí hjá óháðu bresku útgáfunni Outlier Records. Platan er núna fáanleg í 12 Tónum, Smekkleysu og Lucky Records. 14.9.2011 11:00 Gylfi Ægis heldur upp á 65 ára afmælið Tónlistarmaðurinn Gylfi Ægisson heldur upp á 65 ára afmælið sitt með því að flytja bestu lögin sín í bland við gamanmál í Salnum í Kópavogi 12. nóvember. 14.9.2011 08:00 "Botnleðja mun snúa aftur!" 12.9.2011 21:34 Leikskólahetja í Vasadiskó 10.9.2011 18:15 Þrenna á einum degi Friðrik Ómar hefur bætt miðnæturtónleikum við afmælistónleikaröð sína 1. október í menningarhúsinu Hofi á Akureyri. Hann heldur því þrenna tónleika þennan eina og sama dag. Eitt þúsund miðar eru þegar seldir og líklega bætast nú 500 við til viðbótar. 9.9.2011 15:00 Syngur um ást og reiði Þriðja sólóplata ensku tónlistarkonunnar Lauru Marling, A Creature I Don"t Know, kemur út eftir helgi. Breska pressan kallar tónlistina nu-folk. 8.9.2011 10:00 Upp og niður að vinna mikið með sjálfum sér Fyrsta plata Sóleyjar Stefánsdóttur í fullri lengd, We Sink, er komin út. Þýska útgáfufyrirtækið Morr Music gefur plötuna út erlendis en hér heima annast Kimi Records útgáfuna. Sóley var í eitt ár að semja plötuna og taka upp og gekk það allt saman mjög vel. "Auðvitað komu stundir þar sem ég fékk algjörlega nóg af því að hlusta á sjálfa mig. Þetta er rosalega mikið upp og niður að vinna svona mikið með sjálfum sér,“ segir Sóley. 7.9.2011 16:30 Björk bætir við tónleikum í Eldborg Vegna mikillar eftirspurnar hefur verið ákveðið að bæta við aukatónleikum á Biophilia-tónleika Bjarkar 7. nóvember. Tónleikarnir verða haldnir í stærsta sal Hörpunnar, Eldborg, sem tekur 1.600 manns í sæti. Áður höfðu miðar selst upp á átta tónleika Bjarkar í Silfurbergi sem tekur 750 manns í sæti. Miðasala á tónleikana hefst á Harpa.is og Midi.is á föstudaginn kl. 12. 7.9.2011 10:00 Byrjaður á næstu plötu 6.9.2011 13:21 Litríkur hljóðheimur Beirut Þriðja breiðskífa Beirut, The Rip Tide, er komin út. Sterk áhrif frá Balkanskaganum, Frakklandi og Mexíkó eru sem fyrr til staðar. 1.9.2011 13:00 Sjá næstu 50 fréttir
Hjálmar með nýtt lag Hjálmar hafa sent frá sér nýtt lag sem nefnist Ég teikna stjörnu. Það verður á væntanlegri plötu hljómsveitarinnar, Órar, sem kemur út 3. nóvember. Hjálmar eru lagðir af stað í tónleikaferð til Finnlands, Rússlands og Eistlands, eins og Fréttablaðið greindi frá á dögunum. Þar koma þeir fram á sjö tónleikum og fara í hljóðver með finnska tónlistarmanninum Jimi Tenor. 30.9.2011 19:00
Nýtt lag frá Klaufum Lagið Ást og áfengi með kántríhljómsveitinni Klaufum er á leið í almenna útvarpspilun. Það var samið í samvinnu við lagahöfunda í Nashville og er með íslenskum texta eftir Jónas Friðrik. Lagið var frumflutt á Kántríhátíð á Skagaströnd í ágúst þar sem hljómsveitin heimsótti að sjálfsögðu „kúrekann“ Hallbjörn Hjartarson. Mannabreytingar hafa orðið hjá Klaufum. Hljómsveitina skipa nú þeir Guðmundur Annas Árnason, Birgir Nielsen, Kristján Grétarsson, Friðrik Sturluson og Sigurgeir Sigmundsson. Næsta ball sveitarinnar verður á Spot 15. október. 30.9.2011 14:00
The Saturdays til landsins Enska stúlknasveitin The Saturdays er væntanleg til Íslands um helgina. Stelpurnar ætla að taka upp myndband við nýjan slagara sinn, My Heart Takes Over, sem er nýkominn út. 30.9.2011 13:00
Tileinkar föður sínum plötuna Trommuleikarinn Einar Scheving hefur gefið út sína aðra sólóplötu, sem nefnist Land míns föður. Hún er óður til Íslands og á henni eru lög Einars við texta nokkurra af þjóðarskáldunum, auk vel þekktra íslenskra þjóðlaga. 30.9.2011 12:00
Vinsælasta hljómsveit Íslands Hljómsveitin Of Monsters and Men á bæði vinsælustu plötuna og vinsælasta lagið á Íslandi. Nýtt lag er væntanlegt sem heitir King and Lionheart. 30.9.2011 10:00
Númer tíu frá Korn Tíunda hljóðversplata Korn, The Path of Totality, kemur út 5. desember. „Titillinn The Path of Totality vísar í þá staðreynd að til að sjá sólmyrkva þarf að vera á hárréttum stað á hárréttum tíma. Þannig varð platan til. Ég held að upptökustjórarnir séu á sama máli. Ég er viss um að þessi plata gæti aldrei verið endurtekin,“ sagði söngvarinn Jonathan Davis 29.9.2011 10:00
Bloc Party leitar að nýjum söngvara Meðlimir hljómsveitarinnar Bloc Party hafa staðfest að næsta plata verðin tekin upp án söngvarans Kele Okereke. 29.9.2011 09:30
Óútreiknanleg St. Vincent Þriðja sólóplata bandarísku tónlistarkonunnar St. Vincent kom út fyrir skemmstu. Gagnrýnendur eru flestir sammála um að þar sé á ferðinni mikið meistarastykki. St. Vincent gaf fyrr í mánuðinum út sína þriðju sólóplötu, Strange Mercy. Gagnrýnendur hafa hlaðið hana lofi og telja mikið spunnið í þessa bandarísku tónlistarkonu. 29.9.2011 09:00
Sviti frá Jónsa í kaupbæti Bútar úr fötum sem meðlimir Sigur Rósar klæddust á tónleikum í London fylgja með viðhafnarútgáfu af væntanlegri tónleikaplötu þeirra, Inni. 29.9.2011 08:00
Nóra gefur út nýtt lag Hljómsveitin Nóra hefur sent frá sér nýtt lag sem heitir Bringsmalaskotta og er forsmekkurinn af því sem koma skal. 28.9.2011 12:00
Útgáfutónleikar hjá Felix Felix Bergsson heldur fyrri útgáfutónleika sína af tvennum í Salnum í Kópavogi í kvöld. Felix gaf nýverið út plötuna Þögul nóttin en þar syngur hann ný lög við ástarljóð Páls Ólafssonar. Meðal lagahöfunda á disknum eru Jón Ólafsson og Magnús Þór Sigmundsson en sérstakir gestir á tónleikunum verða þær Valgerður Guðnadóttir og Jóhanna Vigdís Arnardóttir. 27.9.2011 09:00
Kynnir EP-plötu í kirkju Tónlistarkonan Ólöf Arnalds heldur hinn 24. nóvember tónleika í lítilli kirkju í London sem nefnist St. Pancras Old Church. Tónleikarnir verða haldnir til kynningar á nýrri EP-plötu hennar, Ólöf Sings, sem kemur út 7. nóvember. Hún hefur að geyma útgáfur Ólafar á lögum eftir tónlistarmenn á borð við Bob Dylan, Neil Diamond og Arthur Russell. Tónlistarmaðurinn Snorri Helgason, sem býr í London, ætlar að hita upp fyrir Ólöfu. Hann gaf nýverið út sína aðra sólóplötu, Winter Sun. Önnur sólóplata, Ólafar, Innundir skinni, kom út fyrir ári. 24.9.2011 16:00
Radiohead aftur af stað Thom Yorke, söngvari Radiohead, hefur staðfest að hljómsveitin ætli að eyða næsta ári í tónleikahald. Radiohead hefur aðeins spilað einu sinni á tónleikum eftir að platan King of Limbs kom út fyrr á þessu ári og því ættu hinir fjölmörgu aðdáendur hljómsveitarinnar að gleðjast. 23.9.2011 21:00
Prýðilegt pabbarokk Wilco Áttunda hljóðversplata bandarísku hljómsveitarinnar Wilco kemur út í næstu viku. Jeff Tweedy og félagar gefa plötuna út sjálfir og eru á leiðinni í tónleikaferð til Evrópu. 23.9.2011 19:00
Mills alltaf velkominn Mike Mills úr R.E.M. kom til Íslands með konu sinni í ágúst og söng með Bítladrengjunum blíðu á skemmtistaðnum Ob-la-di Ob-la-da við Frakkastíg. 23.9.2011 13:30
Slegist um að koma landsmönnum í jólaskapið í ár Laugardagurinn 3. desember verður jólatónleikadagurinn mikli á höfuðborgarsvæðinu. Í Háskólabíói stíga sprelligosarnir síkátu í Baggalúti á svið á sínum árlegu aðventutónleikum en í Laugardalshöll verður öllu meira umstang; þar býður Björgvin Halldórsson landsmenn velkomna á Jólagesti sína, en meðal þeirra eru Paul Potts og Robin Gibb. Í Hörpunni þetta sama kvöld hefst síðan Frostrósamaraþonið mikla þegar fyrstu tónleikarnir af átta fara fram. 23.9.2011 11:00
Tveir til liðs við Dimmu Rokksveitin Dimma ætlar að hljóðrita tónleika sína á Gauki á Stöng á fimmtudagskvöld og gefa út á stuttskífu ásamt glænýju efni í október. 21.9.2011 21:00
Nýtt myndband frá Singapore Sling Hljómsveitin Singapore Sling frumsýnir í kvöld myndband við titillag nýútkominnar plötu sinnar, „Never Forever“. 21.9.2011 14:34
Sissel Kyrkjebø aftur til Íslands Einn heppinn drengjasópran fær að syngja með norsku stórsöngkonunni Sissel Kyrkjebø á Frostrósar-tónleikum í Hörpu 10. desember. Haldnar verða sérstakar áheyrnarprufur um miðjan október þar sem strákar geta látið ljós sitt skína. Að sögn Samúels Kristjánssonar tónleikahaldara er ekki enn orðið ljóst hvert lagið verður sem hinn útvaldi fær að syngja. 21.9.2011 12:00
Grúskarar með plötu Fyrsta plata Grúsks er komin út og er það Zonet sem dreifir. Á plötunni eru ellefu lög eftir Einar Oddsson sem einnig gerir textana ásamt Magnúsi Þór Sigmundssyni. Tvö laganna eru við ljóð eftir Þórarin Eldjárn og Davíð Stefánsson. 21.9.2011 08:00
Engar undankeppnir í Eurovision „Við viljum gefa þjóðinni tækifæri til að segja hvaða lagahöfunda hún vill fá," segir Þórhallur Gunnarsson. Landsmönnum gefst í fyrsta skipti kostur á því að tilnefna þann tónlistarmann sem þeir vilja sjá í Söngvakeppni Sjónvarpsins en Þórhallur fer fyrir nefnd sem er að endurskoða hana. 20.9.2011 17:00
Sömdu glænýtt lag um Ben Stiller Félagarnir Atli Fannar og Haukur Viðar fóru á kostum eins og venjulega í útvarpsþættinum Laugardagskaffinu á X-inu á laugardaginn. Meðal þess sem þeir félagar buðu upp á var stórskemmtilegt og glænýtt lag um Ben Stiller. 19.9.2011 12:02
Halda upp á lífið Weirdcore-raftónlistarkvöld verður haldið á Bakkusi í kvöld. Einnig verður fagnað nýrri plötu Bix, Animalog, sem kom út 7. september. Fram koma Bix, DJ Delarosa, PLX og Futuregrapher. 17.9.2011 18:00
Kemur í nóvember Tónleikamynd og -plata Sigur Rósar, Inni, kemur í verslanir 7. nóvember. Platan verður tvöföld og á henni verða fimmtán lög, þar á meðal Lúppulagið sem hljómar í lok myndarinnar en var áður óútgefið. 17.9.2011 13:00
Brostinn strengur frá Lay Low Þriðja sólóplata Lovísu Elísabetar Sigrúnardóttir, betur þekkt sem Lay Low, hefur fengið nafnið Brostinn strengur. 16.9.2011 09:00
Grugguppvakningar vilja endurlífga handboltarokkið Bush er ekki vinsælasta hljómsveit heims. Hún er ekki heldur sú besta né sú virkasta. Það hafa samt allir heyrt lög með Bush og sama hvað þér finnst um harpix-klístrað handboltarokkið þá er komin ný plata frá Bretunum sem allir halda að séu Kanar. 15.9.2011 20:00
Rihanna syngur á nýju plötu Coldplay Breska hljómsveitin Coldplay hefur tekið upp dúett með bandarísku söngkonunni Rihönnu. Lagið heitir Princess of China og verður að finna á plötunni Mylo Xyloto sem kemur út 24. október. 14.9.2011 16:00
Of Monsters and Men selja grimmt í forsölu „Of Monsters and Men hefur tekist að safna stórum aðdáendahópi víðs vegar um heiminn án þess að hafa lagt í tónleikaferðir eða unnið með kynningarstofum,“ segir Haraldur Leví Gunnarsson, framkvæmdastjóri útgáfufyrirtækisins Records Records. 14.9.2011 16:00
Fönguðu kraftinn á einni helgi Önnur plata Hellvar, Stop That Noise, kemur út á miðvikudaginn. „Við tókum hana „live“ upp á einni helgi í desember. Aron Arnarsson var á tökkunum og þetta var hugmynd frá honum. Hann hafði verið á tökkunum hjá okkur á Airwaves og sagðist vilja fanga kraftinn hjá okkur. Það var alveg hárrétt ákvörðun hjá honum,“ segir Elvar Geir Sævarsson. 14.9.2011 15:00
Fyrsta platan frá Two Step Horror Dúóið Two Step Horror, sem er skipað Þórði Grímssyni og Önnu Margréti Björnsson, hefur gefið út sína fyrstu plötu, Living Room Music. Parið samdi plötuna veturinn 2008 til 2009 í stofunni heima hjá sér. Hún kom út í Bretlandi í maí hjá óháðu bresku útgáfunni Outlier Records. Platan er núna fáanleg í 12 Tónum, Smekkleysu og Lucky Records. 14.9.2011 11:00
Gylfi Ægis heldur upp á 65 ára afmælið Tónlistarmaðurinn Gylfi Ægisson heldur upp á 65 ára afmælið sitt með því að flytja bestu lögin sín í bland við gamanmál í Salnum í Kópavogi 12. nóvember. 14.9.2011 08:00
Þrenna á einum degi Friðrik Ómar hefur bætt miðnæturtónleikum við afmælistónleikaröð sína 1. október í menningarhúsinu Hofi á Akureyri. Hann heldur því þrenna tónleika þennan eina og sama dag. Eitt þúsund miðar eru þegar seldir og líklega bætast nú 500 við til viðbótar. 9.9.2011 15:00
Syngur um ást og reiði Þriðja sólóplata ensku tónlistarkonunnar Lauru Marling, A Creature I Don"t Know, kemur út eftir helgi. Breska pressan kallar tónlistina nu-folk. 8.9.2011 10:00
Upp og niður að vinna mikið með sjálfum sér Fyrsta plata Sóleyjar Stefánsdóttur í fullri lengd, We Sink, er komin út. Þýska útgáfufyrirtækið Morr Music gefur plötuna út erlendis en hér heima annast Kimi Records útgáfuna. Sóley var í eitt ár að semja plötuna og taka upp og gekk það allt saman mjög vel. "Auðvitað komu stundir þar sem ég fékk algjörlega nóg af því að hlusta á sjálfa mig. Þetta er rosalega mikið upp og niður að vinna svona mikið með sjálfum sér,“ segir Sóley. 7.9.2011 16:30
Björk bætir við tónleikum í Eldborg Vegna mikillar eftirspurnar hefur verið ákveðið að bæta við aukatónleikum á Biophilia-tónleika Bjarkar 7. nóvember. Tónleikarnir verða haldnir í stærsta sal Hörpunnar, Eldborg, sem tekur 1.600 manns í sæti. Áður höfðu miðar selst upp á átta tónleika Bjarkar í Silfurbergi sem tekur 750 manns í sæti. Miðasala á tónleikana hefst á Harpa.is og Midi.is á föstudaginn kl. 12. 7.9.2011 10:00
Litríkur hljóðheimur Beirut Þriðja breiðskífa Beirut, The Rip Tide, er komin út. Sterk áhrif frá Balkanskaganum, Frakklandi og Mexíkó eru sem fyrr til staðar. 1.9.2011 13:00