Fleiri fréttir

Nýtt lag á safnplötu Britney

Nýtt lag sem kallast, Do Something, verður að finna á væntanlegri safnplötu Britney Spears sem kemur út 9. nóvember. Einnig verður þar lagið (I´ve Just Begun) Having Fun sem aðeins hefur verið fáanlegt á DVD-útgáfu síðustu plötu Britney, In the Zone, í Evrópu.

Sony kaupir MGM

Japanski útgáfurisinn Sony er nánast búinn að ganga frá kaupum á kvikmyndafyrirtækinu Metro-Goldwyn-Mayer (MGM) en gengið var frá drögum að samningi þess efnis í fyrradag.

Heimildarmynd um Medúllu

Á dögunum kom út DVD-útgáfa af nýjustu plötu Bjarkar, Medúllu. Þar er meðal annars að finna heimildarmyndina "The Inner Or Deep Part of an Animal or Plant Structure," sem er orðabókaskýring á hugtakinu Medulla. Á íslensku myndi það útleggjast sem "innri eða dýpri hluti af dýri eða plöntu." 

70 mínútur hætta á Popptíví

Sjónvarpsþátturinn 70 mínútur verður tekinn af dagskrá Popptíví þann 20. desember en þá verður eitt þúsundasti þátturinn sýndur. Það þýðir að einungis 68 þættir eru eftir af þessum vinsælasta sjónvarpsþætti ungu kynslóðarinnar.

Hafnarfjarðarlöggan á skjáinn

Nýr íslenskur gamanþáttur, Hafnarfjarðarlöggan, verður frumsýndur á Stöð 2 föstudaginn 24. september. Leikstjóri er Hallur Helgason og með aðalhlutverk fara Steinn Ármann Magnússon, Björk Jakobsdóttir, Jón Páll Þorbergsson, Bergþór Pálsson og Nanna Gunnarsdóttir.

Ragga Bjarna dagar á Stjörnunni

Í tilefni af sjötugsafmæli Ragnars Bjarnasonar 22. september næstkomandi mun útvarpsstöðin Stjarnan FM 94,3 heiðra stórsöngvarann. Dagana 20.-26. september verður dagskrá stöðvarinnar helguð afmælisbarninu.

Sæti strákurinn stefnir á útlönd

Þorvaldur Davíð Kristjánsson hefur, þrátt fyrir að vera aðeins tvítugur, leikið aðalhlutverk í fjölmörgum söngleikjum, þar á meðal í Bugsy Malone, Thriller og Wake Me Up. Hann hefur ákveðið af fara til útlanda í leiklistarnám en fyrst ætlar hann að takast á við eitt aðalhlutverkanna í Hárinu.

Leikur ekki samkynhneigðan mann

Söngvarinn kunni Robbie Williams hefur hafnað tilboði um að leika samkynhneigðan mann í vinsælum söngleik á Broadway. Að sögn er leikarinn smeykur um að orðrómur þess efnis að hann sé hommi færi af stað á nýjan leik ef hann tæki að sér hlutverkið.

Rödd yðar á plötu

Kvæðamannafélagið Iðunn fagnar 75 ára afmæli á morgun, miðvikudaginn 15. september. Af því tilefni verður efnt til hátíðar í Borgarleikhúsinu annað kvöld klukkan 20.00. Hátíðin er um leið útgáfutónleikar á silfurplötum sem teknar voru upp í Bankastræti 7 á árunum 1935-36.

Draumur verður að veruleika

Fyrsta plata dúettsins Braks kom út á dögunum og kallast hún Silfurkoss. Lögin, sem eru tólf talsins, eru eftir þá félaga Harald Gunnlaugsson og Hafþór Ragnarsson. Allir textar eru á íslensku.

Annar höfunda Chicago allur

Fred Ebb, textahöfundur söngleikjanna Chicago og Cabaret, lést í gær í kjölfar hjartaáfalls. Ebb var einnig þekktur fyrir að semja textann við lagið New York, New York sem Frank Sinatra gerði ódauðlegt.

Zetu næstum rænt

Byssumenn reyndu að ræna velsku leikkonunni Catherine Zeta-Jones þegar hún var á heimleið frá tökustað í Mexíkó. Byssugengið reyndi að neyða bíl hennar af veginum en lífverðir hennar komu henni til bjargar og veittu glæpamönnunum eftirför.

Reynt að ræna Zeta Jones

Leikkonan Catherine Zeta Jones á lífvörðum sínum að þakka fyrir að sitja ekki í haldi mexíkóskra mannræningja. Hópur fjögurra vopnaðra manna reyndi að stöðva bíl hennar þegar hún var á heimleið eftir tökur á nýrri Zorromynd í gær.

Óttast ekki málsókn ASÍ

Bankarnir óttast ekki málssókn frá ASÍ fyrir að krefjast gjalds af fólki sem vill greiða íbúðalán sín upp áður en lánstíma lýkur. Þeir segja bann við slíku gjaldi eingöngu ná til lána sem eru tekin til skemmri tíma en fimm ára.

Bankarnir brjóta lög

Alþýðusamband Íslands segir að bankarnir brjóti lög þegar þeir krefjast gjalds af fólki sem vill greiða íbúðalán sín upp áður en lánstíma lýkur. Þá líkir sambandið því við átthagafjötra að lántakandi verði að vera í viðskiptum við bankann áratugum saman til að halda góðum vöxtum á íbúðalánum sínum.

Tabasco kanínufæla

Bændur í Hollandi hafa fundið upp nýstárlega aðferð til að verjast ágangi kanína sem sækja í kál, gulrætur og hveiti. Þeir hafa úðað bandarískri tabasco sósu í kálgarðanna með þeim afleiðingum að kanínurnar endasendast hátt upp í loftið meðan þeim svelgist á góðgætinu.

Moore og Kutcher í það heilaga

Demi Moore, fyrrverandi eiginkona hasarmyndahetjunnar Bruce Willis, mun ganga að eiga ástmann sinn, Ashton Kutcher, innan tveggja mánaða, samkvæmt dagblaðinu Daily Star.

Fórnar Óskarnum fyrir sjónvarp

Kvikmyndagerðamaðurinn Michael Moore segist frekar vilja sýna mynd sína í sjónvarpi fyrir forsetakosningarnar næstu en að bjóða hana fram til Óskarsverðlauna á næsta ári sem bestu heimildarmyndina.

Heimanmundur Arndísar

Arndís Hrönn Egilsdóttir, leikkona, fékk miklar gersemar í arf. "Langamma mín og langafi voru mjög fínt fólk sem héldu miklar veislur. Þau eru bæði látin fyrir nokkrum árum og afi minn tilkynnti mér að langamma hefði sagt honum að ég ætti að fá stellið hennar, Royal Copenhagen Denmark stell fyrir tólf með öllu tilheyrandi

Dottað í drottningarstólnum

"Ég á mér uppáhaldsstól sem ég sef í fyrir framan sjónvarpið," segir Sigríður Eyþórsdóttir, kennari og leikstjóri.

Hönnun í kartöflugeymslu

"Byggingin myndi ekki haggast í sprengingu enda er þetta upphaflega sprengjugeymsla úr heimsstyrjöldinni síðari" segir Kristinn Brynjólfsson innanhússarkitekt um gömlu kartöflugeymslurnar við Rafstöðvarveg í Reykjavík.

Trjárækt á þakinu

Bílskúrsþök eru víðast hvar vannýttar lendur. Þetta hefur Guðni Sigurðsson verkfræðingur komið auga á og á þaki tvöfalds bílskúrs að Reynimel 56 í Reykjavík hefur hann gert sér uppeldisstöð fyrir skóg

Prins býr til heimildarmynd

Hinn 19 ára prins Harry frá Bretlandi, hefur gert heimildarmynd um Afríkuríkið Lesotho, þar sem alnæmi er landlægt. Harry hefur varið átta vikum í þessu fátæka ríki í suðurhluta Afríku. Myndin var hugmynd Harrys og tók hann hana sjálfur með vídeómyndavél.

Skyggnst inn í nýjustu bókina

Höfundur Harry Potter bókanna vinsælu, JK Rowling, gaf aðdáendum tækifæri á að skyggnast örstutt í nýjustu bókina um töfradrenginn, en hún situr nú við skriftir hennar. Á heimasíðu höfundar gátu lesendur spilað leik og voru verðlaunin að fá að lesa tvær línur úr bókinni Harry Potter og hálfblóðs prinsinn.

Bjórtegund í höfuð Madonnu

Bjórtegund hefur verið nefnd í höfuðið á poppdívunni Madonnu. Þetta var gert henni til heiðurs vegna endurkomu hennar til Manchester eftir tíu ára fjarveru. Bjórinn sem er í flösku hefur verið kallaður: Material Girl Ale, eftir frægu lagi hennar frá níunda áratugnum.

Sniðugur hlébarði

Starfsmönnum dýragarðs í Tel Aviv í Ísrael hefur tekist að leysa gátuna um dularfullan flótta hlébarða eins. Hlébarðinn sem er fjögurra ára af persnesku kyni og nýkominn í garðinn, hefur reglulega horfið úr búri sínu, þrátt fyrir að vera vandlega lokaður inni.

Black Label á Íslandi

Grínistarnir í Black Label halda tvær sýningar í Háskólabíói 10. september. Þeir bjóða upp á "uppistand" af bestu gerð en skemmtun þeirra hefur slegið rækilega í gegn í LA. Miðasala er hafin í verslunum Skífunnar.

Fegurðardrottning á nærbrók

Fegurðardrottningar draga jafnan að sér athygli manna. Það getur komið sér illa þegar eitthvað fer úrskeiðis, eins og hjá Jennifer Hawkins sem krýnd var ungfrú alheimur fyrr á árinu. Á tískusýningu í Sydney í gær datt pilsið sem hún var að sýna hreinlega í sundur

Heimsmet í augnamjólkursprautun

Afar sérkennilegt heimsmet var sett í Tyrklandi í gær þegar maður spýtti mjólk út úr auganu á sér lengst allra. Það var tyrkneski mjólkurpósturinn Ilker Yilmaz sem reyndi við heimsmetið og freistaði þess að komast í Heimsmetabók Guinnes.

Hreiðurgerð á haustin

"Ég tek eftir því að margar konur fara í hreiðurgerð á haustin og vilja skreyta hjá sér með plöntum," segir Helga Helgadóttir í Gróðrarstöðinni Birkihlíð í Kópavogi.

Mirale-ný verslun

Mirale er nafn á nýrri verslun sem opnuð var á miðju sumri á Grensásvegi 8. Þar getur að líta glæsilegan húsbúnað af ýmsu tagi og veggina prýða um þessar mundir málverk eftir Tolla.

Salsa, hipp hopp og eróbikk

Heimsmeistarinn í hipp hopp dansi og yfirmaður Fitness First-keðjunnar í Bretlandi eru á leiðinni til landsins ásamt fríðu föruneyti til að taka þátt í líkamsræktarráðstefnunni Fitness 2004.

Sjá næstu 50 fréttir