Fleiri fréttir

Ásdís nýtir sér vinsældirnar í Búlgaríu

„Aðallega er fólk að bjóða mig velkomna og hrósa mér,“ segir fyrirsætan Ásdís Rán. Skilaboðum hefur rignt inn á heimasíðuna hennar frá búlgörskum aðdáendum frá því það fréttist að hún og eiginmaðurinn, fótboltakappinn Garðar Gunnlaugsson, væru að flytja til landsins.

Íslendingar á Popkomm

Mugison, Seabear og Borko munu koma fram á hinni virtu Popkomm í Þýskalandi. Popkomm er orðin ein af aðal sýningarhátíðum tónlistargeirans og koma um 400 listamenn fram á 25 tónleikastöðum í Berlín.

Sýning, leikrit og kvikmynd Ásdísar

Myndlistarkonan Ásdís Sif Gunnars­dóttir opnar sýninguna „Appelsínurauði eldurinn sem þú sýndir mér í Hljómskálagarðinum“ í Kling og Bang galleríi, Hverfisgötu 42, á laugardagskvöld kl. 20. Sama kvöld, á sama stað, frumsýnir Ásdís Sif sjónræna leikritið „Fallegi, viðkvæmi konungdómur þinn“ í leikstjórn Guðrúnar Ásmundsdóttur.

Umhverfissóðarsuður með sjó

Sýningin „Gæti tafið framkvæmdir á Suðurnesjum: umhverfissóðar láta enn til sín taka“ er samstarfsverkefni þar sem fimmtán myndlistarmenn og myndlistarnemar við Listaháskóla Íslands sýna afrakstur rannsókna sinna á Suðurnesjum síðustu þrjú árin.

Hádegistónleikar af stað að nýju

Fyrstu tónleikar vetrarins í hádegistónleikaröð Hafnarborgar, menningar- og listastofnunar Hafnarfjarðar, fara fram í hádeginu í dag. Þar stíga á stokk þau Antonía Hevesi píanóleikari og Gissur Páll Gissurarson tenór og flytja nokkur vel valin sönglög fyrir viðstadda.

Hasarkóngur síðustu ára

Jason Statham leikur aðalhlutverkið í Death Race sem frumsýnd verður hér á landi á morgun. Statham hefur á fáum árum gerst hasarkóngur kvikmyndanna og mætti líkja honum við Sylvester Stallone á sínu besta skeiði. En hver er þessi maður?

Spennandi haust fram undan

Síðasta áætlaða starfsár Sinfóníuhljómsveitar Íslands í Háskólabíói hefst með glæsibrag í kvöld þegar einn fremsti fiðluleikari heims kemur fram með hljómsveitinni og leikur fiðlukonsert Tsjajkovskís.

Sherlock Holmes verður hörkutól

„Ég er ekki kominn með neinn í hlutverk Watsons,“ sagði Guy Ritchie á heimsfrumsýningu RocknRolla, en á þar við næstu mynd sína um Sherlock Holmes. „Einhver sagði mér að ég væri kominn með Russell Crowe, en sá veit þá meira en ég. Mig grunar að það hafi ekki gerst og ég sé enn að leita að Watson.“

Langholtskirkja aftur af stað

Vetrardagskrá Kórs Langholtskirkju fer senn að hefjast og er ýmislegt áhugavert á döfinni. Mun kórinn koma fram í nýrri mynd þar sem síðastliðið vor voru gerðar skipulagsbreytingar á starfi Kórs Langholtskirkju sem fólu í sér kröfur um aukna kunnáttu kórfélaga.

Smith aftur á flug

Aðdáendur Kevins Smith geta glaðst yfir því að annað sýnishorn úr myndinni Zack and Miri Make a Porno er komið á vefinn. Myndin segir frá tveimur vinum, leiknum af Seth Rogen og Elizabeth Banks, sem eru svo blönk að þau ákveða að gera klámmynd.

Leiðsögn listamanns

Yfirlitssýning á teikningum og skúlptúrum eftir myndlistarkonuna Sigrúnu Ólafsdóttur var opnuð í lok ágústmánaðar í Hafnarborg, menningar- og listastofnun Hafnarfjarðar. Það er fréttnæmt í sjálfu sér, en ekki er síður fréttnæmt að listáhugafólki býðst að ganga með Sigrúnu sjálfri um sýninguna í kvöld kl. 20 og hlýða á leiðsögn hennar.

Fígúrur í landslagi

Ljósmyndasýningin „Fés og fígúrur – kynjamyndir í íslenskri náttúru“ verður opnuð í ljósmyndasalnum Fótógrafí, Skólavörðustíg 4, á laugardag kl. 17.

Bók um inúíta og jarðhlýnun

Ljósmyndarinn Ragnar Axelsson, RAX, heldur til Alaska og Síberíu á næstunni til að mynda fyrir væntanlega bók sína. Fjallar hún um áhrif hlýnunar jarðar á lifnaðarhætti inúíta og gengur undir vinnuheitinu Last Days of the Arctic, eða Síðustu dagar norðurheimskautsins.

Fullvaxta menn, tólf ára enn

Gamanmyndaáhugamenn vita að þegar Will Ferrell og John C. Reilly mætast er voðinn vís. Seinast mættust þeir í Talladega Nights: The Ballad of Ricky Bobby, árið 2006 og veltu bíógestum úr sætum sínum með einstakri grínblöndu. Mætast þeir að nýju í Stepbrothers, sem frumsýnd er á föstudaginn.

Endaði í súrrealískri martröð

Ultra mega technobandið Stefán ferðast með Sirkusi AgorA, en eins og frést hefur féll ein sýningarstúlkan þeirra á mánudaginn. „Við vorum baksviðs þegar þetta gerðist.“ segir Sigurður Ásgeir Árnason, söngvari UMTBS. Hann segir þá ekki hafa vitað hvað gerðist fyrr en sjúkrabílarnir komu.

Með fjórar tilnefningar

Hljómsveitin Coldplay hefur fengið fjórar tilnefningar til bresku Q-tónlistarverðlaunanna. Meðal annars er hún tilnefnd fyrir bestu plötuna, Viva La Vida or Death and All His Friends.

Einhverjir virðast hafa saknað okkar

Breska hljómsveitin Tindersticks heldur tónleika á Nasa 11. september næstkomandi Af því tilefni sló Trausti Júlíusson á þráðinn til söngvarans Stuart Staples sem var staddur á heimili sínu í Limousin í Frakklandi.

Hrifin af ítölskum mat

Hönnuðurinn Elísabet Ásberg er hrifin af Ítalíu. Hún hélt á matreiðslunámskeið í Toskana síðasta vetur og eldar mikið af ítölskum mat heima við.

Kristín og Björgólfur Thor eiga von á sínu öðru barni

Kristín Ólafsdóttir og Björgólfur Thor Björgólfsson eiga von á sínu öðru barni. Eftir því sem Vísir kemst næst er Kristín komin tæpa fjóra mánuði á leið. Hún vildi ekki tjá sig um málið þegar Vísir ræddi við hana í dag.

Motion Boys prufukeyra heimagerðan hljóðgervil í nýju lagi

Five 2 Love, nýtt lag drengjanna í Motion Boys kemur út í dag. Fyrsta plata sveitarinnar, Hang On, kemur út 1.október næstkomandi. Sena gefur plötuna út, en hún var tekin upp í Gróðurhúsi Valgeirs Sigurðssonar í sumar og var sá hinn sami einmitt upptökustjóri plötunnar.

130 verk boðin upp næstu helgi

Gallerí Fold gengst fyrir listmunauppboði á sunnudagskvöld í Súlnasal Hótels Sögu og hefst það kl. 19.00.

Skemmtileg myndlist

Sýning á verkum Ilmar Stefánsdóttur myndlistarmanns verður opnuð í Listasafni Reykjanesbæjar á föstudag.

Smáfuglar í forvali

Stuttmynd Rúnars Rúnarssonar, Smáfuglar, er komin í forval fyrir Óskarsverðlaunin sem verða afhent næsta vor. Með því að vinna til verðlauna á kvikmyndahátíðinni í Melbourne fyrr í sumar fór myndin sjálfkrafa í hóp þeirra sem valið er úr þegar kosnar eru þær fimm myndir sem fá tilnefningu.

Tiger Woods á von á nýjum erfinga

Elin Woods, eiginkona golfsnillingsins Tigers, gengur með barn þeirra hjóna. „Ég hef mjög góðar fréttir að færa ykkur," skrifaði Tiger á vefsíðu sína í dag. „Elin og ég getum stolt tilkynnt ykkur að við eigum von á öðru barni okkar síðla vetrar." Fyrir eiga þau dótturina Sam Alexis sem var fædd 18 júní 2007.

Nýtt fríblað á föstudag

Tímaritið Birta verður endurvakið og kemur fyrsta eintakið fyrir sjónir landsmanna á föstudag. Birta var lífsstílstímartit sem fylgdi Fréttablaðinu, en var lagt niður áramótin 2006-2007. Nýja Birtan verður líka borin út með Fréttablaðinu, en útgefandinn er Gram útgáfufélag. Guðni Björnsson útgefandi staðfesti það að blaðið kæmi út á föstudag, en vildi að öðru leiti ekki tjá sig um málið að svo stöddu.

Hármissir 22 ára Rooney veldur áhyggjum

Hármissir 22 ára fótboltakappans Wayne Rooney vekur athygli í Bretlandi. Á síðustu tveimur árum hefur toppur Wayne þynnst töluvert eins og sjá má á meðfylgjandi myndum.

Rúnar á annan séns á Óskari

Rúnar Rúnarsson, leikstjóri Smáfugla, hefur náð þeim einstaka árangri að eiga í annað sinn á stuttum tíma stuttmynd sem komin er í forval fyrir Óskarsverðlaunin. Smáfuglar unnu til verðlauna á kvikmyndahátíðinni í Melbourne fyrr í sumar, og fer myndin því sjálfkrafa í þann hóp sem tilnefningarnar til Óskarsverðlauna eru valdar úr.

Danadrottning fær tíu milljóna kvikmyndastyrk

Margrét Danadrottning sýnir á sér nýja hlið þessa dagana. Hún er handritshöfundur að nýrri stuttmynd eftir H.C. Andersen ævintýrinu Villtu svanirnir. Drottingin fékk á dögunum, í félagi við kvikmyndagerðarmanninn Jakob Jörgensen, framleiðslustyrk upp á 650 þúsund danskar krónur eða sem samsvarar um tíu milljónum íslenskra króna.

,,Meikaðu það á netinu!'' á Hótel Sögu

,,Meikaðu það á netinu!'', námskeið um dreifingu, kynningu og markaðssetningu á tónlist á vefnum, verður haldið á Hótel Sögu en ekki Kaffi Hressó eins og áður var fyrirhugað.

Íslensk tískudrottning eignast dreng

Hugrún Árnadóttir framkvæmdastjóri og Magni Þorsteinsson hárgreiðslumaður og annar eigandinn tískuvöruverslunarinnar Kronkron eignuðust frumburð sinn, dreng, síðastliðinn laugardag.

Ég leik ekki í klámsýningu, segir Harry Potter

Leikarinn Daniel Radcliffe, sem varð heimsþekktur fyrir að leika galdrastrákinn Harry Potter, mætti snemma á sunnudagsmorgun í Broadhurst leikhúsið í New York, í fylgd lífvarðar, þegar æfingar á leikritinu Equus hófust.

Duchovny var háður klámi

Það var ekki það að leikarinn David Duchovny væri eins og rófulaus hundur út um allar jarðir sem gerði það að verkum að hann ákvað að leita sér aðstoðar við kynlífsfíkn.

Miley Cyrus næsta Britney Spears

Því er haldið fram að táningastjarnan, Miley Cyrus, 15 ára, er efni í næstu Britney Spears sem matar fjölmiðlana með uppákomum. Fjölmiðlar vestan hafs hafa brennandi áhuga á stúlkunni hvort sem hún fær sér jógúrt ís með vinum eða situr fyrir fáklædd í tímariti eins og Vanity Fair.

Ásdís Rán orðin heimsfræg í Búlgaríu

„Heyrðu þetta er alveg magnað, ég er ekki einu sinni kominn til Búlgaríu en orðin stórstjarna þar!" segir fyrirsætan Ásdís Rán á blogginu sínu. Búlgörsk slúðurblöð eru nú uppfull af fregnum af Ásdísi og fótboltakappanum Garðari Gunnlaugssyni eiginmanni hennar, sem flytjast á næstunni búferlum til landsins.

Brúðguminn tilnefnd til kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs

Kvikmyndin Brúðguminn hefur hlotið tilnefningu til Kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs í ár. Brúðguminn, sem Baltasar Kormákur leikstýrði, naut gríðarlegra vinsælda í íslenskum kvikmyndahúsum, og sat í margar vikur efst á lista yfir mest sóttu myndirnar.

Kvikmyndasmiðja

Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík eða RIFF stendur að kvikmyndasmiðju 2. til 4. október. Smiðjan er einungis ætluð kvikmyndagerðarmönnum og ætluð þeim til framdráttar.

Sjá næstu 50 fréttir