Fleiri fréttir

Paris á leið í fangelsi?

Saksóknarar í L.A. hafa beðið dómara þar í borg um að taka mál Parisar Hilton aftur upp en hún hafði áður verið dæmd fyrir að keyra undir áhrifum. Endurupptaka málsins gæti leitt til þess að Paris gæti þurft að dveljast einhvern tíma í fangelsi.

Britney og Kevin hafa samið um skilnaðinn

Poppprinsessan Britney Spears og fyrrum eiginmaður hennar, Kevin Federline, hafa náð samkomulagi um lyktir skilnaðar þeirra. Tímaritið People greindi frá þessu í gær. Ekki er ljóst hverjir skilmálar skilnaðarins eru.

Jackson slappur en ekki á spítala

Talsmaður söngvarans Michaels Jacksons neitar fréttum um að poppgoðið sé á spítala. Jackson er hins vegar að ná sér af slæmri flensu, segir talsmaðurinn.

Örfáir miðar eftir á styrktartónleika FORMA

Aðeins eru örfáir miðar eftir á styrktartónleika Formu, samtaka gegn átröskun, en á þeim koma fram Björk, Mugison, Lay Low, Pétur Ben, KK, Magga Stína, Wulfgang og Esja. Þrír dagar eru þangað til tónleikarnir eru haldnir og miðaverð er 3.900 krónur. Tónleikarnir verða haldnir á NASA á sunnudaginn kemur og opnar húsið klukkan 19:00 en tónleikarnir hefjast klukkutíma síðar. Hægt er nálgast miða á www.miði.is, í Skífunni og í BT.

Þorvaldur Davíð í Julliard listaháskólann

Þorvaldur Davíð Kristjánsson, sem fer með eitt aðalhlutverka í sýningunni Killer Joe sem sýnd er í Borgarleikhúsinu um þessar mundir, hefur hlotið inngöngu í hinn virta Julliard listaháskóla í New York. Þorvaldur fór til New York í febrúar síðastliðnum og sótti um inngöngu í nokkra leiklistarskóla þar í borg.

Íslandsmót plötusnúða á Pravda

Næstu fimmtudagskvöld munu fara fram á skemmtistaðnum Pravda "Íslandsmót plötusnúða" í samstarfi við X-ið 977 og Tuborg. X-ið er að leita að þeim sem eru að leika sér að því að þeyta skífum og eru kannski ekki vel þekktir í skemmtanalífi landans.

37 atriði staðfest á Aldrei fór ég suður

Nýr og uppfærður listi yfir þá sem koma fram á Aldrei fór ég suður hefur nú litið dagsins ljós. Helstu tíðindi eru þau að rokksveitin I adapt hefur dottið út vegna anna hljómsveitarmeðlima sem eru uppteknir við að meika það í útlöndum.

Tónleikar til styrktar Ljósinu

Múm, Pétur Ben og Ólöf Arnalds munu skapa magnaða upplifun í einstöku andrúmslofti Fríkirkjunnar í kvöld. Tónleikarnir eru í minningu Margrétar Jónsdóttur sem lést úr krabbameini fyrir rúmu ári síðan, aðeins 24 ára gömul.

Halle Berry viðurkennir sjálfsmorðstilraun

Óskarsverðlaunaleikkonan Halle Berry hefur viðurkennt að hafa reynt að taka sitt eigið líf. Var það í kjölfar þess að eldheitt hjónaband hennar við hafnarboltastjörnuna David Justice gekk ekki upp.

Hverjir syngja til úrslita?

Tíunda og næstsíðasta úrslitakvöldið í X-Factor fer fram í beinni útsendingu frá Vetrargarðinum í Smáralind á morgun föstudag. Einungis þrjú atriði eru eftir - Jógvan, Hara og Guðbjörg og því ræðst það í þættinum hvaða tvö munu keppa til úrslita.

Dóttir Steve Irwin með náttúrulífsþátt

Bindi Irwin, átta ára gömul dóttir Krókódílamannsins Steve Irwins heitins, mun verða með sinn eigin náttúrulífsþátt í sumar. Ber sjónvarpsþátturinn heitið ,,Bindi: Frumskógarstelpan” og er ætlað að vekja börn til umhugsunar um verndun villts dýralífs.

Olli koffínneysla dauða Önnu Nicole?

Samsæriskenningar um dauða Önnu Nicole Smith eru enn að spretta upp þrátt fyrir að dánarorsök hennar hafi verið gerð opinber. Fyrirsætan lést þann 8. febrúar síðastliðinn eftir að hafa innbyrgt of mikið af svefnlyfjum fyrir slysni.

Bóklistaverk og aðrar bækur

Áfram halda veisluhöld vegna franska vorsins: nú eru menn minntir á framlag Frakka til bókmennta og fræðiritaútgáfu. Það er gert með sýningu í Þjóðarbókhlöðunni við Suðurgötu sem opnuð verður í dag. Af því tilefni kemur út bóklistaverk svokallað með ljóðum á báðum tungunum, íslensku og frönsku, eftir Sigurð Pálsson, myndlýst af Bernard Alligand.

Fórnarlamb tískubransans

Dóttir tískuhönnaðarins Donatellu Versace hefur verið lögð inn á spítla í L.A. vegna lystarstols. Dóttirin, Allegra Versace, er tvítug að aldri og hefur barist við lystarstol í mörg ár.

Girntist stjúpu sína

Sean Steward, sonur rokkarans Rod Steward, þótti gaman að alast upp með föður sínum og stjúpmóður, fyrirsætunni Rachel Hunter. Í viðtali við útvarpsmanninn víðfræga, Howard Stern, sagði Sean að hann hefði oft horft á stjúpu sína þegar hún lá nakin í sólbaði við sundlaugabakkann á heimili þeirra. Hann hafi þá verið 15 eða 16 ára gamall en Rachel er 12 árum eldri en stjúpsonur sinn.

Kate Moss í Barney’s

Ofurfyrirsætan Kate Moss er búin að hanna fatalínu fyrir verslunina Top Shop og nú styttist í að heimurinn fái að sjá afraksturinn. Bíða Bandaríkjamenn spenntir eftir því að línan komi í verslun Barney’s í N.Y. en það er eina verslunin Vestanhafs sem selja mun hönnun fyrirstætunnar undir merki Top Shop.

Árni fjármálaráðherra varð af 150 milljónum

Við sameiningu SPH og SPV hefur stofnfjárhlutur SPH nú fjórfaldast. Hlutur sem seldur var á 50 milljónir fyrir ári er nú metinn á 200 milljónir. "Ég sagði við sjálfan mig og aðra: Fyrst allir snillingar landsins þyrpast til Hafnarfjarðar og vilja kaupa þá er best að bíða og sjá. Ég fékk þetta á silfurfati eins og aðrir og mér lá ekkert á," segir Helgi Vilhjálmsson athafnamaður í Hafnarfirði kenndur í Góu. Og hrósar nú happi.

Vinstri grænir stæla Zero auglýsingar

Stjórnmálaflokkarnir beita ýmsum brögðum í baráttunni um atkvæðin, og Vinstri grænir eru þar engin undantekning. Á nýjum barmmerkjum úr herbúðum þeirra má sjá slagorðið „Af hverju ekki ríkisstjórn með ZERO Framsókn?“. Slagorðið er stæling á auglýsingaherferð Vífilfells fyrir gosdrykkinn Coca-cola Zero, sem hefur vakið mikla athygli á undanförnum vikum.

Cliff bauð öllum í kvöldmat

Sir Cliff Richard, sem heldur tónleika í Laugardalshöll í kvöld, bauð hópnum sem hefur verið með honum á tónleikaferð um heiminn í mat á Austur-Indíafélaginu í fyrrakvöld.

Dauði Önnu slys

Lögregluyfirvöld í Flórída-fylki hafa úrskurðað að andlát fyrrum Playboy-leikfélagans hafi verið slys. Telja þeir að hún hafi gleypt af algjörri slysni of mikið af svefnpillum en Nicole Smith var með lyfseðla fyrir bæði þunglyndis-og kvíðastillandi lyf.

Fær fylgd frá hundinum

Jinxie, hundur Evu Longoria, verður ekki skilinn útundan í væntanlegu brúðkaupi hennar og Tonys Parker sem fram fer í Frakklandi í sumar. Jinxie mun fylgja brúðinni inn kirkjugólfið og standa við hlið hennar á meðan parið skiptist á heitum. Hann mun skarta sérsmíðaðri hálsól með eðalsteinum, en í hana verður brúðkaupsdagsetningin grafin: 07.07.07.

Franskt og íslenskt

Franska tónlistarkonan og rithöfundurinn Laetitia Sadier, sem er þekkt fyrir söng sinn með Stereolab, spilar með hljómsveitinni Monade á tónleikum Tilraunaeldhússins í Þjóðleikhúskjallaranum í kvöld.

Gaf gítarinn

The Edge, gítarleikari U2, hefur gefið uppáhaldsgítar sinn til góðgerðarmála. Um er að ræða góðgerðasamtök sem The Edge átti þátt í að stofna, sem sjá um að safna hljóðfærum í stað þeirra sem eyðilögðust eða týndust þegar fellibylurinn Katrina reið yfir Bandaríkin.

Heita á Eurovision

Heitið hefur verið allt að tveimur og hálfri milljón króna á hópinn sem tekur þátt í Eurovision-keppninni í Helsinki í vor. Sveinn Rúnar Sigurðsson, höfundur lagsins Ég les í lófa þínum eða Valentine Lost eins og það útleggst á ensku, hefur skrifað undir samstarfssamning við SPRON. Með samningnum verður fyrirtækið bakhjarl Eurovision-hópsins.

Teitur á Íslandi

Pétur Ben og hinn færeyski Teitur halda tónleika í Fosstúni í Borgarfirði á föstudag á vegum Útflutningsskrifstofu íslenskrar tónlistar, ÚTÓN. Þetta eru fyrstu tónleikar Teits á Íslandi. Hann hefur notið alþjóðlegrar velgengni undanfarið og hefur önnur plata hans, Stay Under the Stars, hlotið verðskuldaða athygli. Fór lagið Louis Louis m.a. í fyrsta sæti iTunes-spilunarlistans í Danmörku.

Hot Chip hitar upp fyrir Björk

Breska hljómsveitin Hot Chip hitar upp fyrir Björk á tónleikum hennar í Laugardalshöll 9. apríl. Hot Chip hefur tvívegis spilað hér á landi við góðar undirtektir. Plata sveitarinnar, The Warning, var ofarlega á mörgum árslistum yfir þær bestu í fyrra og var hún m.a. tilnefnd til Mercury-verðlaunanna. Á meðal þekktustu laga hennar eru Over & Over, And I Was a Boy From School og Colours.

Hættu við tónleika

Bandarísku rappararnir Snoop Dogg og P Diddy hafa hætt við sameiginlega tónleika sína í Bretlandi eftir að Snoop var neitað um landvistarleyfi í landinu. Áttu þeir m.a. að koma fram í London og í Manchester.

Indjáninn á hvíta tjaldið

Kvikmyndafyrirtækið True North hefur tryggt sér kvikmyndaréttinn á bókinni Indjánanum eftir Jón Gnarr en samningur þess efnis var undirritaður í húsakynnum Eddu útgáfu í gær.

Laddi í staðinn fyrir Gretti

Eins og kom fram í Fréttablaðinu í gær þurfti Borgarleikhúsið að fresta frumsýningu söngleiksins Grettis vegna forfalla Halldórs Gylfasonar. Aðstandendur afmælissýningar Ladda gripu gæsina og bættu við sýningu í Borgarleikhúsinu á sunnudaginn en hún hefur gengið fyrir fullu húsi svo vikum skiptir.

Nældi sér í breskan söngvara

Bandaríska leikkonan Kirsten Dunst er yfir sig ástfangin um þessar mundir eftir að hafa kynnst breska söngvaranum Johnny Borrell. Aðeins eru nokkrar vikur síðan Dunst og Borrell kynntust en það var þegar hljómsveit hans, Razorlight, var á tónleikaferðalagi í Bandaríkjunum.

Stríðsöxin grafin

Rapparinn Eminem hefur gert samkomulag við fyrrverandi eiginkonu sína, Kim Mathers, um að þau hætti að gagnrýna hvort annað opinberlega. Eminem og Kim, sem skildu í annað sinn á síðasta ári, ákváðu að grafa stríðsöxina vegna dóttur þeirra Hailie, sem er ellefu ára.

Úr kökubasar í þrenna tónleika

Í kvöld og annað kvöld verða haldnir þrennir tónleikar undir yfirskriftinni „Ljóslifandi" í minningu Margrétar Jónsdóttur sem lést úr krabbameini fyrir rúmu ári síðan, aðeins 24 ára, eftir fimm ára hetjulega baráttu við þennan illvíga sjúkdóm.

Vallarlaust fótboltafélag

Ólafur Þór Ólason rekur Músík og Mótor, félagsmiðstöð fyrir unglinga með áhuga á tónlist og mótorsporti. Fyrir ellefu árum var Ólafur Þór Ólason beðinn um að taka að sér rekstur félagsmiðstöðvar fyrir unglinga með áhuga á mótorsporti og tónlist.

Nýr íslenskur stefnumótavefur

Rannveig Guðlaugsdóttir opnaði stefnumótavefinn förunauturinn.is í síðustu viku. „Þetta eru námskeið í samskiptum kynjanna og táknmáli líkamans. Í þá hópa er sem sagt valið út frá spurningalistum sem fólk fyllir út á síðunni, sem að sálfræðingur gerði fyrir mig,“ segir Rannveig.

Lífið - notkunarreglur - fjórar stjörnur

Sýningin Lífið - notkunarreglur er ævintýri með söngvum sem gerist í skógi þar sem óræð en kunnugleg lögmál gilda. Verkið er lokaverkefni Nemendaleikhússins en í því leika einnig félagar úr Leikfélagi Akureyrar.

Munið að sýna skilríkin

Ef þú ert 23 ára eða yngri geturðu keypt heila bók á hálfvirði. Bjartur bókaforlag býður nú öllum þeim sem eru 23 ára og yngri að kaupa glænýja kiljuútgáfu SKULDADAGA eftir Jökul Valsson á aðeins hálfvirði. Eina sem þarf að gera er að tölta til næsta bóksala og sýna skilríkin.

Kid Rock er fyrir ljóskurnar

Rokkarinn Kid Rock, sem er nýskilinn við kynbombuna Pamelu Anderson, hefur sést með nýja ljósku upp á arminn. Ekki er nafn nýju ljóskunnar ólíkt þeirrar fyrri, en um er að ræða danska fyrirsætu að nafni May Andersen.

Garðyrkjumaðurinn í meðferð

Garðyrkjumaðurinn í Desperate Housewives, Jesse Metcalfe, er lagstur inn á meðferðarheimili. Leikarinn skráði sig í meðferð til að takast á við áfengisnotkun sína þar sem hann hafði gert sér grein fyrir að hann ætti við vandamál að stríða.

Borat á DVD

Senu hafa borist allmörg símtöl síðustu daga vegna útgáfu Borat á DVD. Þannig vill til að Borat DVD diskurinn, þ.e. límiðinn á disknum sjálfum gefur til kynna að diskurinn sé "kópering" eða skrifaður í tölvu.

Jessica Simpson lætur gott af sér leiða

Söngkonan Jessica Simpson hugsar um þá sem minna mega sín. Síðasta sunnudag gaf hún litla rútubifreið til munaðarleysingahælis í Mexíkó. Hafði Jessica unnið Chrysler sportbíl á MTV tónlistarverðlaunahátíðinni síðasta haust en fékk honum skipt fyrir rútubifreiðina.

Snoop og Diddy aflýsa tónleikum í Bretlandi

Snoop Dogg og P Diddy hafa ákveðið að hætta við tónleikahald í Bretlandi en Snoop hefur verið synjað um vegabréfsáritun. Talsmaður rapparanna hefur sagt að nú hafi allt verið reynt til að fá ákvörðuninni um synjunina snúið við. Snoop og Diddy áttu að halda tónleika á Wembley í London í kvöld og svo í Cardiff, Manchester, Glasgow og Nottingham næstu daga.

Scarlett í brasilískt vax

Leikkonan Scarlett Johansson skellti sér í brasilískt vax á dögunum. Scarlett segir í viðtali við tímaritið Hot Stars að hún hafi ákveðið að prófa þetta eftir að hafa heyrt svo marga tala um vaxið. Brasilískt vax felur í sér að öll líkamshár eru fjarlægð af viðkvæmustu líkamshlutum kvenna og svæðinu þar í kring.

Miðasala á Björk hefst á morgun

Björk heldur sína fyrstu tónleika hér á Íslandi í sex ár mánudaginn 9. apríl í Laugardalshöll. Þetta verða fyrstu tónleikarnir í heimstónleikaferð Bjarkar til kynningar á nýrri breiðskífu, Volta, sem kemur út um heim allan þann 7. maí. Þetta verður í fyrsta sinn sem ný lög af þessari plötu munu hljóma, en á prógramminu eru líka eldri lög af fyrri plötum Bjarkar.

700 milljónir í klám á tímann

Andstaðan við klám fer vaxandi hér á landi og víðar. En svo virðist sem þessi andstaða eigi við ofurefli að etja ef marka má niðurstöður vefsíðunnar Top Ten Reviews.

Sjá næstu 50 fréttir