Fleiri
Day og Westwood með frábæran hring - Mcllroy gefur lítið eftir 18.6.2011 22:00 Rory McIlroy í metabækurnar eftir frábæran hring Rory McIlroy setti mótsmet í dag á opna bandaríska meistaramótinu með því að leika á 66 höggum eða -5 á öðrum keppnisdegi stórmótsins. Hinn 22 ára gamli Norður-Íri er samtals á 11 höggum undir pari en þetta er í fyrsta sinn í 111 ára sögu mótsins sem kylfingur nær að komast 10 undir par vallar á öðrum hring. Fjölmargir kylfingar eiga eftir að hefja leik í dag en þessa stundina er hinn 22 ára gamli McIlroy með 8 högga forskot í efsta sæti á Congressional vellinum. 17.6.2011 17:44 Tiger Woods er enn tekjuhæsti bandaríski íþróttamaðurinn Þrátt fyrir að bandaríski kylfingurinn Tiger Woods hafi ekki sýnt mikla takta á golfvellinum á undanförnum mánuðum er hann enn tekjuhæsti bandríski íþróttamaðurinn. Í samantekt Forbes tímaritsins var Woods rúmlega 62 milljónir bandaríkjadala í tekjur á árinu 2010 eða rétt um 7,2 milljarða kr.. Þar af eru aðeins 2,2 milljónir í verðlaunafé eða 250 milljónir kr. 17.6.2011 15:00 Sjá næstu 50 fréttir
Golfskóli Birgis Leifs: Hvernig á að miða í pútti? Það er mikið um að vera á golfvöllum landsins þar sem að meistaramótin eru í þann mund að hefjast hjá mörgum kylfingum. Góð ráð frá margföldum Íslandsmeistara í golfi gætu komið sér vel fyrir flesta kylfinga og í þessum kennsluþætti fer Birgir Leifur Hafþórsson yfir það hvernig best er að miða í púttum á flöt. Atriðið er úr þáttunum Golfskóli Birgis Leifs, sem sýndir eru á Stöð 2 sport. 11.7.2011 12:30
Stricker tryggði sér sigur með mögnuðu pútti Bandaríski kylfingurinn Steve Stricker sýndi snilldartakta á lokaholunnu á John Deere meistaramótinu á PGA mótaröðinni í gær þar sem hann tryggði sér sigur með mögnuðu pútti fyrir fugli. Þetta er þriðja árið í röð sem Stricker vinnur þetta mót en hann lék samtals á 22 höggum undir pari og er þetta 11. sigur hans á PGA mótaröðinni. Stricker fékk fugl á 17., og 18. braut og var hann einu höggi betri en Kyle Stanley sem var ansi nálægt því að fá fugl á lokaholunni. 11.7.2011 10:00
Fyrsta par 6 hola landsins í bígerð Svo gæti farið að fyrsta par 6 hola á landinu verði á Víkurvelli sem staðsettur er í Vík í Mýrdal. Í dag er völlurinn níu holur, en gert er ráð fyrir 18 holu golfvelli í nýju aðalskipulagi Mýrdalshrepps samkvæmt heimasíðunni, www.vik.is/golf. 11.7.2011 07:30
Donald tryggði sér 100 milljónir kr. með öruggum sigri í Skotlandi Luke Donald sigraði með nokkrum yfirburðum á opna skoska meistaramótinu í golfi á Evrópumótaröðinni sem lauk í dag. Enski kylfingurinn hefur nú sigrað á þremur atvinnumótum á þessu ári en hann er í efsta sæti heimslistans og til alls líklegur á opna breska meistaramótinu sem hefst á fimmtudaginn. Donald lék samtals á -19 en hann lék lokahringinn á 63 höggum, eða -9, og gerði engin mistök. 10.7.2011 23:30
Nicklaus: McIlroy á langt í land í að verða sá besti Sigursælasti kylfingur allra tíma, Jack Nicklaus, telur að Rory McIlroy þurfi að halda vel á spöðunum til þess að eiga möguleika á því að sigra Opna Breska Meistaramótið í golfi sem hefst í næstu viku. 10.7.2011 20:30
Golflandsliðin töpuðu bæði gegn Ítalíu Íslensku landsliðin í golfi töpuðu viðureignum sínum á EM áhugamanna í golfi í gær. Íslenska kvennalandsliðið sem spilar í Austurríki beið lægri hlut gegn Ítalíu, 2:3. Signý Arnórsdóttir og Valdís Þóra Jónsdóttir unnu sína leiki í tvímenningi. 9.7.2011 07:00
EM í golfi: Ísland þarf að vinna Ítalíu Íslenska karlalandsliðið í golfi þarf að vinna Ítalíu í dag til þess að halda keppnisrétti sínum á næsta Evrópumeistaramóti áhugamanna. Ísland tapaði í gær, 4-1, gegn Norðmönnum í B-riðli keppninnar en í þeim riðli leika þjóðirnar sem enduðu í 9.-16. sæti eftir höggleikinn á mótinu sem fram fer í Portúgal. 8.7.2011 06:00
Læknir Tiger Woods játar sök í lyfjahneykslismáli Kanadíski læknirnir Anthony Galea hefur játað að hafa smyglað ólöglegum lyfjum til Bandaríkjanna. Galea sem starfar í Toronto í Kanada hefur haft íþróttamenn á borð við Tiger Woods og hafnarboltastjörnuna Alex Rodriguez á sínum snærum. 7.7.2011 13:00
Guðmundur og Ólafur í 4. sæti á EM - Ísland mætir Noregi í dag Íslenska karlalandsliðið í golfi mætir Norðmönnum í dag í fyrstu umferð í B-riðli á Evrópumeistaramóti áhugakylfinga sem fram fer í Portúgal. Íslendingar enduðu í 10. sæti eftir höggleikinn sem fram fór fyrstu tvo keppnisdagana. Samtals lék íslenska liðið á 2 höggum undir pari en Guðmundur Ágúst Kristjánsson úr GR fór á kostum í gær þegar hann lék á 5 höggum undir pari eða 67 höggum. Guðmundur og Ólafur Björn Loftsson deildu fjórða sætinu í einstaklingskeppninni á samtals -6 höggum undir pari. 7.7.2011 09:45
Íslenska kvennaliðið í B-riðil Íslenska kvennalandsliðið í golfi hafnaði í 14. sæti á Evrópumóti landsliða en mótið fer fram í Austurríki. Liðið fer því í B-riðil. 6.7.2011 19:47
Golfskóli Birgis Leifs: Sláðu boltann úr torfufari Kylfingar lenda oft í því að fá ekki góða legu á boltann þrátt fyrir að vera á braut. Birgir Leifur Hafþórsson sýnir í þessum kafla m.a. aðferð til þess að slá boltann úr torfufari. 5.7.2011 20:30
Ólafur Björn lék frábært golf á EM - Ísland í góðri stöðu Ólafur Björn Loftsson lék frábært golf á fyrsta keppnisdegi Evrópumeistaramóts áhugamanna sem fram fer í Portúgal. Ólafur lék á 66 höggum eða 6 höggum undir pari og er hann í þriðja sæti í einstaklingskeppninni. Íslenska landsliðið er í 9. sæti af alls 20 þjóðum sem taka þátt á 4 höggum undir pari samtals. 5.7.2011 18:56
Konurnar byrjuðu illa á EM í Austurríki Íslenska kvennalandsliðið í golf lék ekki vel á fyrsta keppnisdeginum á Evrópumeistaramóti áhugakylfinga sem fram fer í Austurríki. Fimm bestu skorin af alls sex gilda í höggleiknum fyrstu tvo keppnisdagana og er Ísland í 17. sæti af allls 20 liðum. Samtals er Ísland á +17 höggum yfir pari en Danir eru í sérflokki í efsta sæti á -15. 5.7.2011 18:30
Tiger Woods verður ekki með á opna breska Tiger Woods hefur ákveðið að taka ekki þátt á opna breska meistaramótinu í golfi sem fram fer á Royal St. George's vellinum í næstu viku. Bandaríski kylfingurinn hefur ekkert keppt að undanförnu vegna meiðsla og í dag gaf hann það út að hann yrði ekki með á stórmótinu. 5.7.2011 17:30
Rory McIlroy er með frábært æfingasvæði í bakgarðinum Norður –Írinn Rory McIlroy hefur vakið gríðarlega athygli frá því hann sigraði á opna bandaríska meistaramótinu í golfi á dögunum. Hinn 22 ára gamli kylfingur veit vart aura sinna tal eftir velgengnina undanfarin ár og hann hefur látið útbúa magnað æfingasvæði í bakgarðinum á heimili sínu. 4.7.2011 23:48
Kvennalandsliðið í golfi hefur keppni á EM í Austurríki Íslenska kvennalandsliðið í golfi hefur leik á morgun á EM sem fram fer í Austurríki. Alls hafa 20 þjóðir keppnisrétt á þessu móti og fyrstu tvo keppnisdagana er keppt í höggleik. Að því loknum er þjóðunum skipt í þrjá riðla eftir skori – og holukeppni ræður úrslitum um lokastöðuna á síðustu tveimur keppnisdögunum. 4.7.2011 20:30
Golfskóli Birgis Leifs: Takturinn er mikilvægur Birgir Leifur Hafþórsson, atvinnukylfingur og Íslandsmeistari í golfi, fer hér yfir hve mikilvægt það er að vera með góðan takt í golfsveiflunni. Birgir sýnir æfingar sem flestir kylfingar geta nýtt sér en þær eru úr þáttunum Golfskóli Birgis Leifs sem sýndir eru á Stöð 2 sport. 4.7.2011 19:00
Golfíþróttin þarf á Tiger að halda - aðsóknin hrundi á AT&T Það er alveg ljóst að golfíþróttin þarf á Tiger Woods að halda en hann hefur verið fjarverandi að undanförnu vegna meiðsla. Woods var ekki með á AT&T meistaramótinu sem lauk á sunnudaginn en hann vann það mót árið 2009. Í ár vantaði um 40.000 áhorfendur á mótið miðað við í fyrra og er fækkunin um 22%. 4.7.2011 18:15
Íslenska karlandsliðið hefur leik á EM á morgun Íslenska karlalandsliðið í golfi hefur leik á morgun á Evrópumeistaramótinu sem fram fer í Portúgal. Alls eru 20 þjóðir sem eru með keppnisrétt á þessu móti. 4.7.2011 17:30
Birgir Leifur úr leik í Svíþjóð Birgir Leifur Hafþórsson, Íslandsmeistari í golfi karla, er úr leik að loknum niðurskurði á áskorendamótaröðinni sem fram fer í Svíþjóð. Birgir leifur lék annan hringinn á sex höggum yfir pari. 1.7.2011 18:38
Birgir lék á 73 höggum á fyrsta keppnisdegi í Svíþjóð Birgir Leifur Hafþórsson, Íslandsmeistari í golfi karla, lék á einu höggi yfir pari á fyrsta keppnisdegi á áskorendamótaröðinni sem fram fer í Svíþjóð. Birgir lék á 73 höggum en hann hóf leik á 10. braut og fékk fugl á 12. sem var þriðja hola dagsins. 30.6.2011 13:00
Fær draumahöggið á par 4 holu ekki viðurkennt Kylfingurinn Ragnar Davíð Riordan, klúbbmeistari Golfklúbbs Vatnsleysustrandar, getur sagt afkomendum sínum góða sögu af eftirminnilegu golfhöggi sem hann sló á 6. braut á Garðavelli á Akranesi síðastliðinn laugardag. 30.6.2011 09:00
Fátt bendir til þess að Tiger taki þátt í opna breska Það er enn óljóst hvort Tiger Woods tekur þátt í opna breska meistaramótinu í golfi sem hefst þann 14. júlí. Tiger hefur verið frá vegna meiðsla síðan í maí og er ekki enn orðinn góður. 29.6.2011 10:30
Tinna vann upp forskot Valdísar á lokadeginum Tinna Jóhannsdóttir úr Keili vann upp sex högga forskot Valdísar Þóru Jónsdóttur úr Leyni á lokakeppnisdegi Eimskipsmótaraðarinnar í golfi. Tinna lék Hvaleyraholtsvöllinn á 70 höggum eða -1 í dag og var samtals á 7 höggum yfir pari eftir þrjá hringi. Valdís Þóra varð önnur á +8 og Guðrún Brá Björgvinsdóttir úr GK varð þriðja á +9. 26.6.2011 20:08
Haraldur Franklín sigraði Guðmund í bráðabana Mikil spenna var á lokadegi Eimskipsmótaraðarinnar á Hvaleyrarvelli í Hafnarfirði í dag þar sem að úrslit réðust í karlaflokki í bráðbana. Haraldur Franklín Magnús úr GR tryggði sér sigur í bráðabana gegn Guðmundi Ágústi Kristjánssyni sem er einnig úr GR. 26.6.2011 19:51
Guðmundur Ágúst í forystu eftir frábæran dag Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GR, er í forystu í Símamótinu á Eimskipsmótaröðinni í golfi eftir að hafa spilað frábært golf í dag. 25.6.2011 20:02
Valdís Þóra með örugga forystu Valdís Þóra Jónsdóttir jók forystu sína á öðrum keppnisdegi þriðja stigamóts ársins í Eimskipsmótaröðinni. Mótið fer fram á Hvaleyrarvelli í Hafnarfirði. 25.6.2011 18:17
Andri Már og Valdís Þóra leiða Þriðja stigamót ársins á Eimskipsmótaröðinni í golfi hófst í gær á Hvaleyrarvelli í Hafnarfirði. Ungir kylfingar gáfu tóninn í karlaflokknum þar sem að Andri Már Óskarsson úr GHR á Hellu lék best allra á 68 höggum eða 3 höggum undir pari. 25.6.2011 07:00
Myndband af Rory McIlroy í spjallþætti frá árinu 1999 Rory McIlroy er heitasta nafnið í golfinu þessa dagana eftir að hinn 22 ára gamli Norður-Íri sigraði á opna bandaríska meistaramótinu. Tiger Woods þarf að sætta sig við að sitja í skugganum af McIlroy þessa stundina. 23.6.2011 13:30
Golfskóli Birgis Leifs: Áhersluatriði í púttum Í þessum kennslukafla úr Golfskóla Birgis Leifs, sem sýndir eru á Stöð 2 sport, fer atvinnukylfingurinn og Íslandsmeistarinn í golfi yfir helstu grunn – og áhersluatriðin í púttunum. 23.6.2011 12:15
Enn bið eftir Tiger Það gengur illa hjá kylfingnum Tiger Woods að koma sér í form og hann hefur nú neyðst til þess að draga sig úr AT&T-mótinu í næstu viku vegna meiðsla. 22.6.2011 23:15
Stenson braut 7-járnið í bræðiskasti, myndband Henrik Stenson var allt annað en ánægður með eitt högg hjá sér á lokadegi opna bandaríska meistaramótsins á sunnudaginn. Sænski kylfingurinn tók 7-járnið og braut járnskaftið á því en hann skar sig nokkuð illa á fingri við þær æfingar. 21.6.2011 23:45
Golfskóli Birgis Leifs: Stöðugleiki í púttunum Birgir Leifur Hafþórsson, atvinnukylfingur og Íslandsmeistari í golfi, fer hér yfir jafnvægi í púttum og hvernig hægt er að þjálfa upp gott jafnvægi. Gauti Grétarsson sjúkraþjálfari fer yfir æfingar með Birgi en farið er yfir þessi atriði í þáttunum Golfskóli Birgis Leifs sem sýndir eru á Stöð 2 sport. 21.6.2011 15:30
Rory fékk fimm ára keppnisrétt á PGA mótaröðinni Með sigrinum á opna bandaríska meistaramótinu í golfi tryggði Norður-Írinn Rory McIlroy sér keppnisrétt á bandarísku PGA mótaröðinni næstu fimm árin. McIlroy reyndi fyrir sér á bandarísku PGA mótaröðinni í fyrra en ákvað að einbeita sér eingöngu að Evrópumótaröðinni fyrir þetta tímabil – en McIlroy leiddist einfaldlega lífið í Bandaríkjunum á meðan hann var þar. 21.6.2011 14:30
Rory McIlroy græðir á tá og fingri Norður-Írinn Rory McIlroy er "heitur“ á Bretlandseyjum þessa dagana eftir sigurinn á opna bandaríska meistaramótinu um helgina. Hinn 22 ára gamli kylfingur hefur dregið sig úr keppni á opna franska meistaramótinu sem hefst á fimmtudaginn enda er líf hans á hvolfi eftir fyrsta sigurinn á stórmóti. Vinsældir McIlroy eru gríðarlega og stórfyrirtæki keppast um að fá hann til samstarfs og telja margir að hann verði tekjuhæsti íþróttamaður Breta á allra næstu árum. 21.6.2011 11:30
Búið að velja landsliðin í golfi Ragnar Ólafsson, landsliðseinvaldur í golfi, er búinn að velja nokkur landslið í golfi fyrir komandi verkefni. Bæði fyrir fullorðinsmót sem og unglingamót. 20.6.2011 17:29
Rory McIlroy í fjórða sæti heimslistans - Tiger í 17. sæti Rory McIlroy er í fjórða sæti heimslistans í golfi eftir sigurinn á Opna bandaríska meistaramótinu í gær og hefur hinn 22 ára gamli Norður-Íri aldrei verið ofar á þessum lista. Luke Donald frá Englandi er enn efstur en hann hefur verið í efsta sætinu undanfarnar þrjár vikur. 20.6.2011 15:15
Guðrún Brá og Björn Öder sigruðu í Leirdalnum Þriðja stigamótið á Arion-stigamótaröð unglinga í golfi fór fram á Leirdalsvelli hjá GKG um helgina og lék veðrið við keppendur. Guðrún Brá Björgvinsdóttir úr Keili heldur sigurgöngu sinni áfram því hún vann á ný í 17-18 flokki stúlkna en Guðrún hefur einnig unnið eitt stigamót í keppni fullorðinna á Eimskipsmótaröðinni. Björn Öder Ólafsson úr GO sigraði í 17-18 ára flokki pilta og er þetta fyrsti sigur hans í þeim flokki. 20.6.2011 12:42
Rory McIlroy:Það verður örugglega skálað í mörgum Guinnes Rory McIlroy, sem sigraði með yfirburðum á opna bandaríska meistaramótinu í golfi í gær, er næst yngsti sigurvegari stórmóts frá upphafi en hann er 22 ára gamall. Norður-Írinn lék frábært golf alla fjóra keppnisdagana og sigraði með 8 högga mun á -16. McIlroy þakkaði foreldrum sínum fyrir stuðningin í ræðu sem hann hélt á verðlaunaafhendingunni á Congressional í gær en það eru aðeins 70 frá því hann klúðraði lokadeginum á Mastersmótinu með eftirminnilegum hætti. 20.6.2011 09:30
Rory McIlroy sigraði með fáheyrðum yfirburðum á US Open Rory McIlroy frá Norður-Írlandi sigraði á opna bandaríska meistaramótinu í golfi með fáheyrðum yfirburðum og skrifaði hinn 22 ára gamli kylfingur marga kafla í metabókum golfíþróttarinnar. McIlroy var efstu alla fjóra keppnisdagana og hann setti mótsmet með því að leika á – 16 19.6.2011 23:32
Aftur hreyfðist golfkúla Webb Simpson á flötinni Kylfingurinn Webb Simpson lenti í kunnulegum vandaræðum á þriðja hring Opna bandaríska meistaramótsins í gær. Þegar Webb bjó sig undir að pútta hreyfðist kúlan í golunni og kostaði Webb högg. 19.6.2011 14:45
Mcllroy með átta högga forskot fyrir lokahringinn Norður-Írinn Rory Mcllroy er með átta högga forskot á Opna bandaríska meistaramótinu í golfi sem fram fer á Congressional-vellinum í Bethesda í Maryland-ríki. Mcllroy spilaði þriðja hringinn í dag á þremur höggum undir pari. 18.6.2011 23:33
Rory McIlroy í metabækurnar eftir frábæran hring Rory McIlroy setti mótsmet í dag á opna bandaríska meistaramótinu með því að leika á 66 höggum eða -5 á öðrum keppnisdegi stórmótsins. Hinn 22 ára gamli Norður-Íri er samtals á 11 höggum undir pari en þetta er í fyrsta sinn í 111 ára sögu mótsins sem kylfingur nær að komast 10 undir par vallar á öðrum hring. Fjölmargir kylfingar eiga eftir að hefja leik í dag en þessa stundina er hinn 22 ára gamli McIlroy með 8 högga forskot í efsta sæti á Congressional vellinum. 17.6.2011 17:44
Tiger Woods er enn tekjuhæsti bandaríski íþróttamaðurinn Þrátt fyrir að bandaríski kylfingurinn Tiger Woods hafi ekki sýnt mikla takta á golfvellinum á undanförnum mánuðum er hann enn tekjuhæsti bandríski íþróttamaðurinn. Í samantekt Forbes tímaritsins var Woods rúmlega 62 milljónir bandaríkjadala í tekjur á árinu 2010 eða rétt um 7,2 milljarða kr.. Þar af eru aðeins 2,2 milljónir í verðlaunafé eða 250 milljónir kr. 17.6.2011 15:00