Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Benedikt: Stefnum á þann stóra „Þetta var nokkuð sannfærandi og það er kannski eðlilegt. Það vantaði tvær landsliðsstelpur í Haukaliðið," sagði Benedikt Guðmundsson, þjálfari kvennaliðs KR, eftir sigur liðsins í leik um titilinn meistarar meistaranna. 11.10.2009 18:20
KR vann í kvennaflokki - Með forystu frá upphafi til enda KR vann sinn annan titil á skömmum tíma í körfubolta kvenna í dag. Liðið varð þá meistari meistaranna með því að leggja Íslandsmeistara Hauka að velli 78-45 á heimavelli sínum. KR hafði forystu í leiknum frá upphafi til enda og vann á endanum með 33 stiga mun. 11.10.2009 18:06
Meistarakeppni KKÍ fer fram í DHL-höllinni í dag Körfuboltavertíðin hefst formlega í dag þegar Meistarakeppni KKÍ fer fram í DHL-höllinni í Vesturbænum þar sem Íslandsmeistarar og bikarmeistarar síðasta tímabils í karla og kvenna flokki eigast við. 11.10.2009 12:45
Sigurður til Njarðvíkur: Valur vék ekki fyrir mér Sigurður Ingimundarson var í dag ráðinn þjálfari körfuboltaliðs Njarðvíkur en í gær var tilkynnt að Valur, bróðir Sigurðar, myndi hætta þjálfun liðsins. 5.10.2009 16:00
Hildur: Fínt að vera komnar með titil strax Hildur Sigurðardóttir og félagar í kvennaliði KR tryggðu sér sigur í Powerade-bikarnum í gær þegar liðið vann 67-63 sigur á Hamar í úrslitaleiknum. 5.10.2009 09:00
Valur hættur sem þjálfari Njarðvíkur Valur Ingimundarson er hættur sem þjálfari Njarðvíkur og stýrði liðinu því í síðasta sinn í úrslitaleik Powerade-bikarsins í dag. Það kemur fram á heimasíðu Njarðvíkur og Valur hafi gengið á fund stjórnar á föstudaginn og beðist lausnar frá störfum sem þjálfari félagsins frá og með morgundeginum 4.10.2009 20:29
Grindvíkingar unnu Powerade-bikarinn eftir öruggan sigur á Njarðvík Grindavík vann 17 stiga sigur á Njarðvík, 79-62, í úrslitaleik Powerade-bikars karla í Laugardalshöllinni í dag. Grindavík var með þriggja stiga forskot í hálfleik, 39-36, en Njarðvíkingar áttu fá svör í seinni hálfleiknum sem Grindavík vann 40-26. 4.10.2009 16:09
KR-konur eru Powerade-meistarar í kvennakörfunni KR var að tryggja sér sigur í Powerade-bikar kvenna í Laugardalshöllinni þegar liðið vann 4 stiga sigur á Hamar, 67-63, eftir spennandi leik. KR hafði ekki unnið þessa keppni í níu ár eða frá árinu 2000. 4.10.2009 13:46
Þjálfaramet í hættu í úrslitaleikjum Powerade-bikarsins í dag Úrslitaleikir Powerade-bikars karla og kvenna fara fram í Laugardalshöllinni í dag. Kvennalið KR og Hamars mætast klukkan 13.00 og klukkan 15.30 hefst leikur karlaliða Njarðvíkur og Grindavíkur. Kvennalið KR og karlalið Grindavíkur töpuðu úrslitaleikjunum keppninnar í fyrra og eru bæði sigurstranglegri í leikjum dagsins. 4.10.2009 11:30
Jón Arnór meiddist illa á baki - frá í 3-4 mánuði Jón Arnór Stefánsson verður ekkert með spænska liðinu CB Granada eftir að hafa meiðst illa á baki í æfingaleik á móti Kihmki frá Úkraínu í gærkvöldi. Jón Arnór lenti illa og er óvíst hvort hryggjaliðir séu brákaðir en áætlað er að hann verði frá í 3-4 mánuði. Þetta kemur fram á heimasíðu KR-inga. 2.10.2009 12:30
Fyrirliði sænska landsliðsins til Jakobs og félaga Jakob Örn Sigurðarson og félagar í Sundsvall Dragons fengu góðan liðstyrk í dag þegar fyrirliði sænska landsliðsins, Mats Levin, ákvað að semja við liðið en hann lék með Solna Vikings í lok síðasta tímabils. Levin mun væntanlega hjálpa Jakobi með leikstjórnendastöðuna en Jakob lék í 40 mínútur í síðasta leik. 1.10.2009 19:15
Sigurður Ingimundarson: Verð að fá að gera hlutina eins og ég sem um Sigurður Ingimundarson hætti í dag sem þjálfari sænska körfuboltaliðsins Solna Vikings en hann var aðeins búinn að stjórna liðinu í tveimur leikjum. Ástæðan er stefna félagsins. Sigurður segist hafa viljað byggja upp sitt lið með sínum áherslum en forráðamenn Solna vilja að hans mati kaupa árangur með að fá til sín sterkari Bandaríkjamenn. 1.10.2009 16:09
Sigurður hættur hjá Solna Samkvæmt sænskum fréttamiðlum hefur Sigurður Ingimundarson ákveðið að hætta sem þjálfari sænska úrvalsdeildarfélagsins Solna Vikings. 1.10.2009 15:00
Poweradebikar karla: Grindavík og Njarðvík mætast í úrslitaleik Leikið var í undanúrslitum Poweradebikars karla í körfubolta í kvöld og þá varð ljóst að boðið verður upp á Suðurnesjaslag í úrslitaleiknum. 30.9.2009 21:30
Mætast KR og Grindavík aftur í úrslitum Powerade-bikarsins? Undanúrslit Powerade-bikars karla fara fram í kvöld þegar Íslandsmeistarar KR taka á móti Njarðvíkingum á sama tíma og Snæfellingar heimsækja Grindvíkinga í Röstina. Leikirnir hefjast báðir klukkan 19.15. Sigurvegararnir mætast í úrslitaleiknum í Laugardalshöllinni á sunnudaginn. 30.9.2009 15:30
Sundsvall áfram á sigurbraut en Solna tapaði Jakob Örn Sigurðarson og félagar í Sundsvall hafa byrjað sænsku úrvalsdeildina á tveimur góðum sigrum en liðið vann 87-80 útisigur á 08 Stockholm í gær. Solna, lið Sigurðar Ingimundarsonar og Helga Más Magnússonar náði hinsvegar ekki að fylgja eftir sigri í fyrstu umferð og tapaði illa á heimavelli eða 61-76. 30.9.2009 14:30
Poweradebikar kvenna: KR og Hamar í úrslitaleikinn Í kvöld fóru fram leikir í undanúrslitum Poweradebikars kvenna í körfubolta og þá varð ljóst að það verða KR og Hamar sem mætast í úrslitaleik. 29.9.2009 21:14
Sérstök stund hjá systrunum úr Borgarnesi í kvöld Systurnar Sigrún Sjöfn og Guðrún Ósk Ámundadóttir upplifa sérstaka stund í kvöld þegar þær mætast í fyrsta sinn á körfuboltavellinum. Eftir að hafa spilað saman með Skallagrími, Haukum, KR og íslenska landsliðinu munu þær mætast með sínum nýju liðunum í undanúrslitum Powerade-bikarsins á Ásvöllum. 29.9.2009 15:30
Flott tilþrif hjá Jakobi í fyrsta leik - myndband Jakob Örn Sigurðarson byrjaði vel með Sundsvall í sænsku úrvalsdeildinni á föstudaginn og nú má finna myndband á Youtube með flottustu tilþrifum leikmanna Sundsvall í leiknum. Sundsvall vann 73-66 sigur á Gothia á heimavelli og leikmenn liðsins fönguðu vel í lokslok. 28.9.2009 18:00
Lamar Odom giftist Khloe Kardashian um helgina Lamar Odom, framherji NBA-meistara Los Angeles Lakers, gekk í hnappahelduna um helgina þegar hann og sjónvarpsstjarnan Khloe Kardashian giftu sig heima í risavillu þeirra í Beverly Hills í Englaborginni. 28.9.2009 16:00
Ingibjörg varð að velja á milli körfunnar og námsins Það verður ekkert af því að Ingibjörg Elva Vilbergsdóttir leiki með þýska liðinu Bielefeld Dolphins í þýsku b-deildinni í vetur því samkvæmt frétt á Karfan.is hefur hún ákveðið að taka sér ársfrí frá körfunni. Ingibjörg hefur leikið með Keflavík undanfarin ár en fluttist til Þýskalands með kærasta sínum Loga Geirssyni. 28.9.2009 14:30
Ólafur stoðsendingahæstur í góðum útisigri Åbyhøj Ólafur Jónas Sigurðsson og félagar í Åbyhøj byrjuðu vel í dönsku úrvalsdeildinni í körfubolta sem hófst um helgina. Åbyhøj vann þá 59-76 sigur á Amager á útivelli. Ólafur Jónas var ekki eini káti Íslendingurinn í dönsku deildinni því Halldór Karlsson og Sigurður Einarsson hjálpuðu Horsens að vinna 88-81 sigur á Næstved. 28.9.2009 12:00
Logi fékk ekkert að koma inn á í fyrsta leiknum Logi Gunnarsson sat allan tímann á bekknum hjá Saint Etienne þegar liðið hóf loksins keppni í frönsku C-deildinni í körfubolta um helgina. Saint Etienne tapaði þá 63-67 á heimavelli á móti Get Vosges í fjórðu umferð deildarinnar. Saint Etienne á inni þrjá leiki á önnur lið deildarinnar. 28.9.2009 10:30
Njarðvík sló út Keflavík Njarðvík sló út Keflavík í fjórðungsúrslitum Powerade-bikarkeppni karla sem lauk í kvöld, 79-76. 27.9.2009 22:06
Heather Ezell með fjórfalda tvennu í fyrsta leiknum Íslandsmeistarar Hauka og Hamar komust í kvöld í undanúrslit Powerade-bikars kvenna í körfubolta eftir örugga sigra á heimavelli. Haukar unnu nýliða Njarðvíkur með 25 stigum, 75-50 á sama tíma og Hamar vann 34 stiga sigur á Val, 84-50. 25.9.2009 20:56
Íslendingaliðin byrjuðu vel í sænska körfuboltanum Íslendingaliðin í sænsku úrvalsdeildinni í körfubolta byrjuðu vel en fyrsta umferðin fór fram í kvöld. Sundsvall, lið Jakobs Sigurðarsonar vann 73-66 heimasigur á Gothia og lærisveinar Sigurðar Ingimundarsonar í Solna unnu 66-72 útisigur á Borås en með liðinu spilar líka Helgi Már Magnússon. 25.9.2009 19:30
Yao Ming verður ekkert með Houston Rockets í vetur Kínverski miðherjinn Yao Ming getur ekki spilað með Houston Rockets í NBA-deildinni á tímabilinu sem er að hefjast í næsta mánuði. Yao Ming er enn að ná sér af meiðslum þeim sem hann varð fyrir í vor og ætlar að gefa sér góðan tíma til að ná fullum bata. 24.9.2009 23:00
KR-ingar búnir að finna sér leikstjórnanda í körfunni Íslandsmeistarar KR eru búnir að semja við bandaríska körfuknattleiksmanninn Semaj Inge sem er leikstjórnandi og útskrifaðist úr Temple-háskólanum í vor. Semja er 23 ára gamall og 195 cm á hæð og er því hávaxinn fyrir leikstjórnenda. 24.9.2009 16:15
Tindastólsmenn og ÍR-ingar komust í átta liða úrslit Tindastóll og ÍR komust í kvöld í átta liða úrslit Powerade-bikarsins í körfubolta eftir örugga sigri. Tindastóll vann fimmtán stiga sigur á Blikum í Smáranum og ÍR-ingar unnu 60 stiga sigur á FSU í Kennaraháskólanum. 23.9.2009 22:00
Ron Artest: Mér að kenna ef Lakers-liðið ver ekki titilinn Körfuboltamaðurinn Ron Artest er þekktur fyrir sínar yfirlýsingar og hann er óhræddur við að setja pressu á sjálfan sig. Artest sem samdi við NBA-meistara Los Angeles Lakers í sumar, mun spila við hlið Kobe Bryant í vetur og sættir sig við ekkert annað en meistaratitil næsta sumar. 22.9.2009 23:00
Auðveldir sigrar hjá Stjörnunni og Njarðvík Bikarmeistarar Stjörnunnar og Njarðvík komust í kvöld í átta liða úrslit Powerade-bikars karla eftir auðvelda sigra á heimavelli en körfuboltatímabilið hófst með þessum tveimur leikjum. 22.9.2009 21:45
Enn bið eftir fyrsta leik hjá Loga - óvissa um stöðu Saint Etienne Logi Gunnarsson lék ekki fyrsta leik sinn með Saint Etienne í frönsku C-deildinni um helgina eins og áætlað var. Mál Saint Etienne er komið í algjöran hnút á ný eftir að 15 af 16 liðum hafa neitað að spila á móti liðinu. Það varð því ekkert að leik Angers BC 49 og Saint Etienne á laugardaginn. 21.9.2009 21:15
Jón Arnór með sex stig í sigri CB Granada á Murcia í æfingaleik Jón Arnór Stefánsson skoraði 6 stig í æfingaleik með CB Granada í gær en spænska liðið er farið að undirbúa sig fyrir komandi tímabil. Bandaríkjamaðurinn Jimmie Hunter var stigahæstur í liði Granada með 19 stig. 21.9.2009 18:15
Troðslusýning í Toyota-höllinni á þessu tímabili - myndband Rahshon Clark mun leika með liði Keflavíkur í Iceland Express deild karla í vetur eins og fram kom á Vísi í morgun. Stuðningsmenn Keflavíkur geta farið að hlakka til tilþrifa kappans því þarna er mikill troðslukóngur á ferðinni enda var hann fastagestur á ESPN yfir bestu tilþrifin í NCAA-deildinni. 21.9.2009 16:15
Keflvíkingar búnir að ná sér í Kana Keflvíkingar hafa samið við tvo Bandaríkjamenn fyrir komandi átök í Iceland Express-deildum karla og kvenna í vetur. 21.9.2009 10:27
Spánverjar eru Evrópumeistarar í körfubolta Spánverjar unnu 85-63 sigur gegn Serbíu í úrslitaleik á EM í körfbolta í Póllandi í kvöld. Pau Gasol var atkvæðamestur fyrir Spánverja með 18 stig en Rudy Fernandez var með 13 stig. 20.9.2009 23:00
Serbía og Spánn leika til úrslita á EM í körfubolta Leikið var í undanúrslitum á EM í körfubolta í Póllandi í gær. Spánn vann 82-64 sigur gegn Grikklandi og Serbía vann 96-92 sigur gegn Slóveníu í framlengdum leik. 20.9.2009 12:00
Ríkasti Rússinn ætlar að hjálpa Nets að byggja nýja höll í Brooklyn Rússneski milljarðarmæringurinn Mikhail Prokhorov er að íhuga það að koma nýju körfuboltahöll New Jersey Nets til bjargar. Bruce Ratner, eigandi Nets-liðsins í NBA-deildinni í körfubolta, þarf að vera búinn fjármagna og hefja framkvæmdir við höllina fyrir desember. 18.9.2009 13:00
Kvennalið Grindavikur fær sér hávaxna skyttu Grindavík hefur líkt og fleiri lið í Iceland Express deild kvenna í vetur ráðið sér bandaríska leikmann fyrir átök vetrarins. Grindavík var eitt af fáum liðum deildarinnar sem var ekki með kana á síðasta tímabili en nú var ákveðið að styrkja liðið. 16.9.2009 16:00
Keflavík fær sér stóran kvennakana í fyrsta sinn í mörg ár Kvennalið Keflavíkur hefur ráðið til sína nýjan leikmann en bandaríski framherjinn Viola Beybeyah er að koma til landsins á morgun. Beybeyah er ekki dæmigerður kvennakani í Keflavík enda hafa erlendu leikmenn liðsins alltaf verið leikstjórnendur undanfarin ár. 16.9.2009 14:30
Bandarísk þriggja stiga skytta í kvennalið KR Kvennalið KR hefur styrkt sig með erlendum leikmanni fyrir tímabilið en Jenny Finora, áður Jenny Pfeiffer, er komin til landsins til að spila með liðinu auk þess að þjálfa yngstu kvennaflokka félagsins. 16.9.2009 13:00
Bryon Russell vill fá að spila við Jordan einn á einn Michael Jordan gerði grín að Bryon Russell, fyrrum leikmanni Utah Jazz, í ræðu sinni þegar hann var tekinn inn í Frægðarhöll bandaríska körfuboltans á föstudaginn. Russell var að dekka Jordan þegar hann skoraði sigurkörfuna í síðasta leiknum sínum fyrir Chicago Bulls árið 1998. Russell flaug á rassinn eftir að hafa fengið smá hjálp frá Jordan og Jordan tryggði Bulls sjötta meistaratitilinn á átta árum. 14.9.2009 08:30
Tony Parker frábær í fimmta sigri Frakka í röð Frakkar halda sigurgöngu sinni áfram á EM í körfubolta í Póllandi. Frakkar hafa unnið alla fimm leiki sína til þessa í keppninni og í dag vann liðið 87-79 sigur á Króatíu. 13.9.2009 21:29
Jordan skaut föstum skotum að Jerry Krause í þakkaræðunni Michael Jordan var tekinn inn í Frægðarhöll bandaríska körfuboltans á föstudagskvöldið og hélt við það tækifæri mikla ræðu þar sem að hann fór yfir ferill sinn og það fólk sem hefur haft mest áhrif á sig. 13.9.2009 20:00
Tyrkir unnu Spánverja á EM í körfu í Póllandi Tyrkir héldu áfram sigurgöngu sinni á EM í körfu í Póllandi með 63-60 sigri á Spánverjum í fyrsta leik liðanna í milliriðli í gær. Tyrkir hafa þar með unnið alla fjóra leiki sína á mótinu alveg eins og Frakkar og Grikkir í hinum milliriðlinum. 13.9.2009 10:00