Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
KR-ingar í bikarúrslit í sextánda sinn - myndir KR-ingar tryggðu sér sæti í bikarúrslitaleiknum með því að vinna 4-1 sigur á BÍ/Bolungarvík á Ísafirði í dag. KR-ingar eru þar með komnir í bikarúrslitaleikinn í þriðja sinn á síðustu fjórum tímabilum en þetta verður sextándi bikarúrslitaleikur A-liðs KR frá upphafi. 31.7.2011 22:00
Chelsea gæti boðið í Luka Modric í þriðja sinn Ron Gourlay, stjórnarformaður Chelsea, segir að félagið muni taka ákvörðun um það í vikunni hvort að þeir bjóði í þriðja sinn í Luka Modric hjá Tottenham eða gefi það alveg upp á bátinn að reyna að kaupa Króatann frá nágrönnum sínum. 31.7.2011 22:45
Fyrsti bikar tímabilsins í húsi hjá Manchester City Manchester City náði í fyrsta bikar tímabilsins í dag þegar liðið vann 3-0 sigur á ítalska liðinu Inter Milan í úrslitaleik Dublin-bikarsins. Mario Balotelli, Edin Dzeko og Adam Johnson voru á skotskónum í leiknum. 31.7.2011 21:30
Forlan: Aguero hefði átt að fara til Chelsea Úrúgvæmaðurinn Diego Forlan er á því að Sergio Aguero, fyrrum samherji hans hjá Atletico Madrid, hafi gert mistök með því að fara frekar til Manchester City en til Chelsea. 31.7.2011 21:00
Henry gerði Arsenal grikk - Red Bulls vann mótið Arsenal og New York Red Bulls skildu jöfn í Emirates-bikarnum í knattspyrnu í Lundúnum í dag. Lokatölurnar 1-1 en það var Thierry Henry sem var arkitektinn að jöfnunarmarki bandaríska liðsins skömmu fyrir leikslok. 31.7.2011 20:12
Geir: Þetta eru mótherjar sem við eigum að geta ráðið við Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ, var í viðtali hjá Guðjóni Guðmundssyni í fréttum Stöðvar 2 í kvöld en Geir var í Ríó í Brasilíu í gær þegar dregið var í riðla í undankeppni HM 2014. Ísland lenti þar í riðli með Noregi, Slóveníu, Sviss, Albaníu og Kýpur en að flestra mati er þetta ekki mjög spenandi eða söluvænn riðill. 31.7.2011 20:00
Rúnar: Bjarni, Viktor og Guðmundur Reynir fara ekki með til Tbilisi Rúnar Kristinsson, þjálfari KR, kom KR-liðinu í bikarúrslitaleikinn annað árið í röð í kvöld þegar KR vann 4-1 sigur á BÍ/Bolungarvík í undanúrslitum Valitorsbikarsins á Ísafirði. KR-liðið vann 4-0 sigur á Fram undir hans stjórn í undanúrslitaleiknum í fyrra en gerði út um leikinn í dag með því að skora þrjú mörk á síðustu tíu mínútunum. 31.7.2011 18:59
Hannes Þór Halldórsson: Þetta tók á taugarnar Hannes Þór Halldórsson, markvörður KR, er kominn í bikarúrslitaleikinn á sínu fyrsta tímabili í Vesturbænum eftir að KR-liðið vann 4-1 sigur á BÍ/Bolungarvík í undanúrslitum Valitorsbikarsins á Ísafirði í kvöld. KR mætir Þór í bikarúrslitaleiknum sem fram fer 13. ágúst. 31.7.2011 18:48
Guðjón Þórðarson: KR-ingar kláruðu þetta vel Bikarævintýri Guðjóns Þórðarsonar og lærisveina hans í BÍ/Bolungarvík lauk í kvöld þegar liðið tapaði 1-4 á heimavelli á móti KR í undanúrslitum Valitorsbikarsins á Ísafirði í kvöld. Guðjón fór samt ótrúlega langt með liðið sitt sem er á sínu fyrsta ári í B-deildinni. KR-ingar tryggðu sér sæti í bikarúrslitaleiknum með því að skora þrjú mörk á síðustu tíu mínútunum. 31.7.2011 18:38
Baldur: Líður vel í hreina loftinu út á landi Baldur Sigurðsson skoraði tvö mörk fyrir KR í kvöld þegar KR-liðið vann 4-1 sigur á BÍ/Bolungarvík í undanúrslitum Valitorsbikarsins á Ísafirði í kvöld. KR mætir Þór í bikarúrslitaleiknum sem fram fer 13. ágúst. 31.7.2011 18:23
Veigar Páll í miklu stuði í síðasta leiknum með Stabæk Veigar Páll Gunnarsson fór á kostum í síðasta leiknum sínum með Stabæk í dag en hann hefur verið seldur til Vålerenga. Veigar Páll skoraði tvö mörk og lagði upp eitt í 4-1 sigri Stabæk á botnliði Start í norsku úrvalsdeildinni í kvöld. 31.7.2011 17:59
Þjálfari Sviss: Vill bjóða Ronaldo út að borða fyrir að draga Sviss í E-riðil Ottmar Hitzfeld, þjálfari svissneska landsliðsins, var mjög sáttur með því að lenda í riðli Íslendinga í undankeppni HM 2014 en auk Sviss og Íslands eru í riðlinum Noregur, Slóvenía, Kýpur og Albanía. 31.7.2011 17:00
Blanc: Hvernig getur Frakkland verið neðar en Grikkland og Noregur? Laurent Blanc, þjálfari franska landsliðsins í fótbolta, gagnrýndi röðun þjóða í styrkleikaflokka fyrir dráttinn fyrir undankeppni HM 2014 í Brasilíu sem fram fór í gær. Frakkar voru í öðrum styrkleikaflokki og lentu í riðli með Heims- og Evrópumeisturum Spánar. 31.7.2011 16:00
Glódís Perla: Klikkuð reynsla að spila svona leik Glódís Perla Viggósdóttir og félagar hennar í 17 ára landsliðinu urðu í fjórða sæti á Evrópumótinu eftir 2-8 tap fyrir geysisterku þýsku liði í leiknum um þriðja sætið í dag. Glódís Perla var í viðtali hjá Írisi Björk Eysteinsdóttur, fjölmiðlafulltrúa íslenska liðsins, eftir leikinn. 31.7.2011 15:41
KR-ingar í bikarúrslitin annað árið í röð - tvö frá Baldri fyrir vestan Baldur Sigurðsson skoraði tvö mörk fyrir KR þegar liðið vann 4-1 sigur á BÍ/Bolungarvík í undanúrslitaleik liðanna á Torfnesvelli á Ísafirði í kvöld. KR-ingar skoruðu þrjú mörk á síðustu tíu mínútunum í leiknum. KR mætir Þór í úrslitaleik Valtors-bikarsins sem fer fram á Laugardalsvellinum 13. ágúst næstkomandi. 31.7.2011 15:00
Dóra María lagði upp mark í sigri Djurgården Dóra María Lárusdóttir lagði upp mark og Guðbjörg Gunnarsdóttir hélt hreinu þegar Djurgården vann 2-0 útisigur á Piteå IF í sænska kvennafótboltanum í dag. 31.7.2011 14:54
Eyjólfur tryggði SønderjyskE jafntefli á útivelli Eyjólfur Héðinsson skoraði jöfnunarmark SønderjyskE tíu mínútum fyrir leikslok þegar liðið gerði 1-1 jafntefli við Silkeborg í dönsku úrvalsdeildinni í dag. 31.7.2011 14:16
Bjarni Fel mættur vestur til að lýsa leiknum í Útvarpi KR Útvarp KR er mætt á Ísafjörð og mun lýsa leik BÍ/Bolungarvíkur og KR í undanúrslitum Valitors-bikarsins í dag. Þetta er 323. útsending KR-útvarpsins og hefst hún með upphitun klukkan 15.00. 31.7.2011 14:00
Stórt tap hjá stelpunum í bronsleiknum Íslenska 17 ára landslið kvenna í fótbolta endaði í fjórða sæti á Evrópumótinu eftir 2-8 stórtap á móti Þýskalandi í leiknum um þriðja sætið í Nyon í Sviss í dag. Telma Þrastardóttir og Aldís Kara Lúðvíksdóttir skoruðu mörk Íslands í leiknum. 31.7.2011 13:42
Leikmenn BÍ/Bolungarvíkur syngja: Við erum harðir eins og hafið BÍ/Bolungarvík leikur í dag stærsta leikinn í sögu félagsins þegar liðið tekur á móti KR í undanúrslitum Valitors-bikarinn. BÍ/Bolungarvík er í B-deildinni en KR-ingar eru á toppnum í Pepsi-deildinni og hafa ekki tapað leik í deild eða bikar í sumar. 31.7.2011 12:00
Eiður Smári náði ekki að skora í leik númer tvö með AEK Eiður Smári Guðjohnsen og félagar í AEK léku í gær æfingaleik við serbneska liðið FK Rad Belgrade og lauk leiknum með 1-1 jafntefli. Þetta var síðasti leikur liðsins í æfingaferðinni til Slóveníu. 31.7.2011 11:30
Stelpurnar spila um bronsið við Þjóðverja klukkan tólf Íslenska 17 ára landslið kvenna verður í eldlínunni klukkan 12.00 þegar liðið mætir Þýskalandi í leik um þriðja sætið í úrslitakeppni Evrópumótsins en leikið er í Nyon í Sviss. 31.7.2011 11:00
Norsku landsliðsmennirnir ánægðir með HM-dráttinn Norsku landsliðsmennirnir Jonathan Parr, Espen Bugge Pettersen og Simen Brenne voru afar ánægðir með HM-dráttinn þegar norska Dagblaðið talaði við þá í gær. Norðmenn eru í riðli með Íslandi, Kýpur, Albaníu, Sviss og Slóveníu. 31.7.2011 10:00
Haakonsen: Veigar Páll er besti sóknarmaður norsku deildarinnar Veigar Páll Gunnarsson skrifaði í gær undir þriggja ára samning við norska úrvalsdeildarliðið Vålerenga og er íþróttastjóri félagsins sannfærður um að Veigar sé besti sóknarleikmaður deildarinnar. 31.7.2011 08:00
Liðsfélagi Grétars Rafns í Bolton fótbrotnaði illa í gær Lee Chung-yong, miðjumaður Bolton og suður-kóreska landsliðsins, verður frá níu mánuði eftir að hafa fótbrotnað illa í æfingaleik Bolton og velska liðsins Newport í gær. Þetta kemur fram á heimasíðu félagsins. 31.7.2011 07:00
Roma búið að kaupa hollenska landsliðsmarkvörðinn frá Ajax Maarten Stekelenburg, markvörður Ajax og hollenska landsliðsins, mun spila í ítölsku deildinni á komandi tímabil eftir að Roma keypti hann í gær frá Ajax. 31.7.2011 06:00
Owen tryggði Manchester United sigur á Barcelona Michael Owen kom inn á sem varamaður og tryggði Manchester United 2-1 sigur á Evrópumeisturum Barcelona í æfingaleik liðanna í Washington í Bandaríkjunum í nótt. 31.7.2011 01:02
Öryggislögreglan fjarlægði myndir af Twitter síðu Rio Ferdinand Rio Ferdinand, varnarmaður enska meistaraliðsins Manchester United, fór aðeins yfir strikið í myndabirtinum á Twitter síðu sinni eftir heimsókn Man Utd í Hvítahúsið í Washington. Bandaríska leyniþjónustan lét fjarlægja myndirnar og kom það leikmanninum á óvart. 30.7.2011 23:00
Ólafur var ekki viðstaddur þegar dregið var í riðla í Brasilíu Ólafur Jóhannesson þjálfari íslenska landsliðsins í knattspyrnu var ekki viðstaddur þegar dregið var í riðla fyrir heimsmeistaramótið 2014 í Brasilíu í dag. Það vekur óneitanlega athygli að Ólafur skuli ekki hafa verið viðstaddur en samningur Ólafs rennur út eftir undankeppni EM sem lýkur í haust. Nánar í frétt Stöðvar 2 sem birt var í kvöld. 30.7.2011 22:30
Mörkin úr leik Arsenal og Boca Juniors á Emirates mótinu Arsenal og Boca Juniors frá Argentínu skildu jöfn 2-2 á Emirates mótinu sem fram fer í London á heimavelli Arsenal. New York Red Bulls frá Bandaríkjunum hafði betur, 1-0, gegn franska liðinu Paris SG í fyrri leiknum í keppninni í dag. Mörkin úr leik Arsenal og Boca Juniors má sjá í fréttinni sem birtist á Stöð 2 í kvöld. 30.7.2011 22:00
Arsenal missti niður tveggja marka forskot Arsenal og Boca Juniors gerðu 2-2 jafntefli í Emirates-bikarnum í knattspyrnu í Lundúnum síðdegis í dag. Arsenal komst í 2-0 en argentínska liðið jafnaði leikinn. Í fyrri leik dagsins vann New York Red Bulls óvæntan 1-0 sigur á Paris Saint Germain. 30.7.2011 21:38
Ísland í riðli með Noregi í undankeppni HM í Brasilíu Dregið var í riðla í undankeppni Heimsmeistarakeppninnar í fótbolta sem fram fer í Brasilíu 2014 í kvöld. Ísland dróst í E-riðil og er aðra forkeppnina í röð með Noregi og Kýpur í riðli. 30.7.2011 20:11
Antonio Valencia mun skrifa undir nýjan samning við Man Utd David Gill, stjórnarformaður Manchester United, segir að Antonio Valencia muni skrifa undir langtímasamning í næstu viku. Valencia, sem er frá Ekvador, er aðeins hálfnaður með samninginn sem hann skrifaði undir til fjögurra ára árið 2009 þegar hann var keyptur frá Wigan fyrir um 19 milljónir punda eða sem nemur 3,6 milljörðum kr. 30.7.2011 18:00
Guðlaugur Victor lék í sigri Hibernian Guðlaugur Victor Pálsson lék allan leikinn þegar Hibernian sigraði Inverness Caledonian Thistle 1-0 á útivelli í annarri umferð skosku úrvalsdeildarinnar sem hófst í dag. 30.7.2011 17:08
Bankaði upp á hjá Ferguson með DVD disk og fékk að spreyta sig Max Lonsdale er ekki þekktasta nafnið í fótboltaheiminum. Hann virðist vera með bein í nefinu því hinn 18 ára gamli leikmaður er nú á reynslu hjá Manchester United eftir að hann bankaði upp á hjá Alex Ferguson og lét hann fá DVD disk sem innihélt hápunkta úr ýmsum leikjum hjá Lonsdale. Sir Alex tók vel á móti drengnum sem var látinn fara frá Macclesfield Town á síðustu leiktíð og Lonsdale er nú til reynslu hjá enska meistaraliðinu. 30.7.2011 16:00
Torres tryggði Chelsea Asíubikarinn Chelsea sigraði Aston Villa 2-0 í úrslitum Asíubikarsins í dag þar sem Fernando Torres tryggði sigurinn með marki skömmu eftir að hafa komið inná sem varamaður. 30.7.2011 15:41
Eriksson telur að Mourinho sé rétti maðurinn fyrir England Svíinn Sven Göran Eriksson, sem var þjálfari enska landsliðsins í fótbolta, telur að Portúgalinn Jose Mourinho ætti að sækjast eftir því að komast í það starf. Eriksson telur að Mourinho sé rétti maðurinn fyrir England en Ítalinn Fabio Capello er þjálfari liðsins. 30.7.2011 15:30
Andrés Már komin til Haugesund Norska úrvalsdeildarfélagið Haugesund hefur staðfest að Andrés Már Jóhannesson sé orðinn leikmaður félagsins. 30.7.2011 15:09
Guðmundur samdi við ÍBV til tveggja ára Guðmundur Þórarinsson hefur skrifað undir tveggja ára samning við ÍBV en hann gekk í raðir úrvalsdeildarliðsins fyrir þetta keppnistímabil í Pepsideildinni í fótbolta. Guðmundur er frá Selfossi og er bróðir Ingólfs sem oftast er kenndur við Veðurguðina. 30.7.2011 13:30
Fer Tevez til Inter í skiptum fyrir Eto‘o? Forráðamenn enska úrvalsdeildarliðsins Manchester City og Inter frá Ítalíu eru í viðræðum um leikmannaskipti samkvæmt heimildum breska dagblaðsins Telegraph. Viðræðurnar snúast um að Argentínumaðurinn Carlos Tevez fari til Inter í skiptum fyrir Samuel Eto‘o, landsliðsframherjann frá Kamerún 30.7.2011 12:30
Steven Gerrard missir af upphafi keppnistímabilsins Steven Gerrard, fyrirliði Liverpool, mun missa af upphafi keppnistímabilsins í ensku úrvalsdeildinni vegna sýkingar í nára. Gerrard, sem er 31 árs gamall, er á sýklalyfjum og dvelur á sjúkrahúsi og er búist við að hann verði þar í nokkra daga. 30.7.2011 11:45
Aston Villa keypti N'Zogbia fyrir um 2 milljarða kr. Enska úrvalsdeildarliðið Aston Villa virðast hafa tröllatrú á miðjumanninum Charles N'Zogbia því hann skrifaði undir fimm ára samning við liðið í gær en hann var áður í herbúðum Wigan. N'Zogbia er 25 ára gamall franskur landsliðsmaður. Hann segir í viðtali á heimasíðu félagsins að hann hafi tekið stórt skref á ferlinum þar sem að Aston Villa sé stórt félag sem ætli sér stóra hluti á næstu árum. 30.7.2011 11:30
Veigar Páll fer til Vålerenga eftir allt saman Norskir fjölmiðlar telja sig hafa sterkar heimildir fyrir því að Veigar Páll Gunnarsson sé á förum til Vålerenga í Osló en hann virtist vera búinn að semja við Noregsmeistaralið Rosenborg í Þrándheimi fyrir nokkrum dögum. Veigar er ein verðmætasta söluvara Stabæk sem er í miklum fjárhagsörðugleikum. 30.7.2011 10:15
WBA fær Foster að láni frá Birmingham Ben Foster fær tækifæri til þess að leika í ensku úrvalsdeildinni á næstu leiktíð þrátt fyrir að hafa upplifað fall með Birmingham í lokaumferðinn s.l. vor. Markvörðurinn verður lánaður til grannaliðsins WBA sem einnig er staðsett í Birmingham og er lánssamningurinn til eins árs. Birmingham fær Boaz Myhill í staðinn frá WBA. 30.7.2011 10:00
Aron Einar: Byrjaður að vaxa mosi á mér á hótelinu Aron Einar Gunnarsson leikmaður Cardiff tekur ekki þátt í æfingaleik Cardiff gegn Parma á Þúsaldarvellinum í Cardiff á morgun. Malky Mackay knattspyrnustjóri Cardiff vill hvíla Aron sem fékk lítið sumarfrí vegna anna með landsliðum Íslands. 30.7.2011 09:00