Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Man Utd - Celtic að hefjast "Baráttan um Bretland" eins og leikur Manchester United og Celtic hefur verið kallaður, er nú senn að hefjast í beinni útsendingu á Sýn. Byrjunarliðin eru klár og þar ber hæst að þeir Paul Scholes og Wayne Rooney koma inn í lið Manchester United eftir leikbann. 13.9.2006 18:20
Veislan heldur áfram í kvöld Knattspyrnuveislan sem fylgir meistaradeild Evrópu heldur áfram á sjónvarpsstöðinni Sýn í kvöld, þegar áskrifendur geta valið um þrjá stórleiki til að fylgjast með í beinni útsendingu. "Baráttan um Bretland" - leikur Manchester United og Celtic, verður sýndur beint á Sýn. Leikur Lyon og Real Madrid er sýndur beint á Sýn Extra og þá verður slagur Hamburg og Arsenal í beinni á Sýn Extra 2. Útsending frá öllum leikjunum hefst klukkan 18:30. 13.9.2006 15:55
Líkir Gravesen við Kaka Gordon Strachan, stjóri Glasgow Celtic, gat ekki farið leynt með hrifningu sína á danska landsliðsmanninum Thomas Gravesen eftir að hann spilaði sinn fyrsta leik með skoska liðinu um helgina. 13.9.2006 15:15
Verðum að vera þolinmóðir í kvöld Arsene Wenger segir að þolinmæði verði lykillinn að góðum úrslitum í kvöld þegar hans menn fá það erfiða verkefni að sækja þýska liðið Hamburg heim í meistaradeild Evrópu, en leikurinn verður sýndur beint á Sýn Extra og hefst útsending klukkan 18:30. 13.9.2006 13:56
Ánægður með markalaust jafntefli Rafa Benitez var mjög ánægður með að ná markalausu jafntefli á útivelli gegn hollenska liðinu PSV Eindhoven í meistaradeildinni í kvöld og varði ákvörðun sína um að hafa marga af lykilmönnum sína á varamannabekknum með því að segja að þeir hefðu einfaldlega ekki úthald í að spila alla þá leiki sem á dagskránni væru. 12.9.2006 22:21
Ánægður með sigur á sterku liði Bremen Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea, var mjög ánægður með sigur sinna manna á Werder Bremen í meistaradeildinni í kvöld, en viðurkenndi að þýska liðið hefði verið betri aðilinn á köflum. 12.9.2006 22:05
Meistararnir byrja með tilþrifum Evrópumeistarar Barcelona hófu titilvörn sína með tilþrifum í kvöld þegar liðið valtaði yfir Levski Sofia 5-0 á Nou Camp. Börsungar létu úrhellisregn ekki hafa áhrif á sig á heimavelli sínum og var sigur liðsins aldrei í hættu eftir að það náði forystu strax í upphafi. Eiður Smári Guðjohnsen spilaði síðasta hálftímann með Barcelona en náði ekki að setja mark sitt á leikinn. 12.9.2006 20:36
Eiður kominn inn í lið Barcelona Eiður Smári Guðjohnsen er kominn inn í lið Barcelona sem varamaður eftir um klukkustundar leik á Nou Camp, en Börsungar eru að valta yfir Levski Sofia 4-0. Úrhellisrigning hefur sett svip sinn á leikinn, en þeir Puyol og Eto´o skoruðu þriðja og fjórða mark liðsins í síðari hálfleik eftir að staðan var 2-0 í leikhléi. 12.9.2006 20:08
Tveir leikir í kvöld Tveir leikir fóru fram í sænsku úrvalsdeildinni í kvöld. Hjálmar Jónsson var í liði IFK frá Gautaborg sem vann góðan 4-1 útisigur á Häcken og Emil Hallfreðsson spilaði síðasta hálftímann þegar lið hans Malmö tapaði 3-1 á útivelli fyrir Helsingborg. IFK Gautaborg er í þriðja sæti deildarinnar með 30 stig, en Malmö er í því fjórða með 28 stig. 12.9.2006 20:00
Barcelona yfir í hálfleik Nú er kominn hálfleikur í viðureignum kvöldsins í meistaradeild Evrópu. Barcelona er að eiga náðugt kvöld í rigningunni á Nou Camp og hefur yfir 2-0 gegn Levski Sofia, Chelsea hefur yfir 1-0 gegn Werder Bremen og markalaust er hjá PSV og Liverpool í Hollandi. 12.9.2006 19:33
Eiður Smári á bekknum Eiður Smári Guðjohnsen er á varamannabekk Barcelona í kvöld þegar liðið tekur á móti búlgörsku meisturunum Levski Sofia á Nou Camp í meistaradeildinni í kvöld. Leikurinn er sýndur beint á Sýn Extra, PSV - Liverpool er sýndur beint á Sýn og viðureign Chelsea og Werder Bremen er sýndur beint á Sýn Extra 2. 12.9.2006 18:34
Veislan hefst í kvöld Hin árlega veisla knattspyrnuáhugamanna hefst í kvöld þegar riðlakeppni meistaradeildarinnar hefst með látum. Sjónvarpsstöðin Sýn lætur sitt ekki eftir liggja á þeim bænum frekar en venjulega og verður með þrjár beinar útsendingar frá keppninni í kvöld. Þá verða þeir Guðni Bergs og Heimir Karls að sjálfssögðu á sínum stað og fara yfir stöðu mála í leikjum kvöldsins. 12.9.2006 14:45
Henry verður ekki með gegn Hamburg Thierry Henry, fyrirliði Arsenal, verður ekki með liði sínu annað kvöld þegar það mætir Hamburg í mestaradeild Evrópu eftir að hafa meiðst á fæti á æfingu. Unglingurinn Theo Walcott er aftur kominn í hóp Arsenal eftir að hafa verið hvíldur og þá er reiknað með að Julio Baptista verði í hópnum. Jens Lehmann snýr einnig aftur í lið Arsenal eftir að hafa tekið út leikbann. 12.9.2006 13:49
United vinnur Celtic Roy Keane, fyrrum leikmaður Manchester United og Glasgow Celtic, segist hafa grunað að liðin ættu eftir að mætast í meistaradeildinni í ár þegar hann hætti að leika með enska liðinu á sínum tíma. Keane telur að United muni fara með sigur af hólmi í "Baráttunni um Bretland" annað kvöld. 12.9.2006 13:45
Benitez mætir Koeman á ný Rafa Benitez, stjóri Liverpool, mun í kvöld reyna að forðast að tapa fyrir liði undir stjórn Ronald Koeman annað árið í röð í meistaradeildinni þegar Liverpool mætir PSV Eindhoven. Koeman stýrði liði Benfica á síðustu leiktíð þegar liðið sló Liverpool úr keppni, en viðureign PSV og Liverpool í kvöld verður sýnd beint á Sýn. 12.9.2006 13:30
Inter Milan er með besta hóp í heimi Jose Mourinho segir að þó vissulega verði Chelsea að teljast eitt af þeim liðum sem eru sigurstrangleg í meistaradeildinni í ár, séu að minnsta kosti tíu lið sem hafi alla burði til að vinna keppnina. Hann segir ítalska liðið Inter Milan vera með sterkasta leikmannahóp allra liða í heiminum í dag. 12.9.2006 12:45
Nistelrooy skoraði þrennu Hollenski framherjinn Ruud van Nistelrooy fór hamförum og skoraði þrennu þegar Real Madrid burstaði Levante 4-1 á útivelli í spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Þetta var fyrsti sigur Real í deildinni í ár. 10.9.2006 21:00
Jafntefli hjá Juve í fyrsta leik Stjörnum prýtt lið Juventus náði aðeins 1-1 jafntelfi gegn Rimini í fyrsta leik sínum í Serie-B deildinni á Ítalíu í dag. Til að gera jafnteflið enn meira niðurlægjandi var Rimini einum leikmanni færra stóran hluta leiksins. 9.9.2006 19:30
Eiður Smári á bekknum Eiður Smári Guðjohnsen byrjar á varamannabekk Barcelona sem tekur á móti Osasuna í spænsku úrvalsdeildinni. Ronaldinho, Messi og Eto´o eru í fremstu víglínu Barca en athygli vekur að fyrirliðinn Carlos Puyol þarf að sætta sig við að hefja leik á bekknum. Leikurinn er að hefjast og er í beinni útsendingu á Sýn. 9.9.2006 17:50
Eiður Smári í hópnum Eiður Smári Guðjohnsen er í leikmannahópi Barcelona sem mætir Osasuna á heimavelli sínum Nou Camp í spænsku úrvalsdeildinni eftir skamma stund. Ronaldinho hefur hins vegar snúið aftur í hóp Evrópumeistaranna og því er afar ólíklegt að Eiður Smári fái tækifæri í byrjunarliðinu. 9.9.2006 16:00
Tippaði á sigur Dana á norsku Lengjunni Danski knattspyrnumaðurinn Allan Borgvardt sleit fyrir skömmu krossbönd í hné og verður frá næstu 6-8 mánuðina. Hann lék með FH í þrjú ár og var tvívegis kjörinn knattspyrnumaður ársins. Í fyrra fór hann til Noregs og samdi við 1. deildarliðið Bryne, þar sem hann hefur slegið í gegn og er markahæsti leikmaður liðsins með níu mörk. 9.9.2006 06:00
Æfir með Malmö í viku Þórhildur Stefánsdóttir, fimmtán ára leikmaður með HK, mun síðar í mánuðinum halda til Svíþjóðar þar sem hún mun æfa með unglingaliði Malmö í eina viku en aðallið félagsins leikur í sænsku úrvalsdeildinni. 9.9.2006 00:01
Ósáttur við að fá ekki að spila úrslitaleikinn Jose Antonio Reyes segir að það hafi verið dropinn sem fyllti mælinn fyrir sig hjá Arsenal þegar hann fékk ekki að koma við sögu í úrslitaleik meistaradeildarinnar í vor, en Spánverjinn tjáði sig um brotthvarf sitt frá enska liðinu þegar hann var kynntur til sögu á blaðamannafundi hjá Real Madrid í dag. 8.9.2006 21:30
Framlengir við Milan til 2011 Ítalski landsliðsmaðurinn Andrea Pirlo hjá AC Milan hefur framlengt samning sinn við félagið til ársins 2011. Gamli samningurinn hans náði til ársins 2008, en greinilegt er að félagið vill ekki missa þennan öfluga miðjumann úr röðum sínum. Þá framlengdi Georgíumaðurinn Kakha Kaladze einnig samning sinn við Milan á dögunum og hefur hann sömuleiðis bundið sig til ársins 2011. 8.9.2006 13:16
Auglýsingar á búningi Barcelona í fyrsta sinn Spænska knattspyrnustórveldið Barcelona mun í fyrsta skipti í sögunni bera auglýsingar framan á búningum sínum á þriðjudagskvöldið þegar liðið mætir Levski Sofia í meistaradeildinni. Hér er þó ekki um hefðbundna auglýsingu að ræða, heldur ber liðið merki barnahjálpar sameinuðuþjóðanna. Forseti Barcelona mun á morgun undirrita sérstakan styrktarsamning við samtökin og talið er að spænska félagið muni láta um 1,5 milljónir evra af hendi rakna til styrktar þessu góða málefni. 7.9.2006 20:45
Ferguson stakk mig í bakið Hollenski framherjinn Ruud Van Nistelrooy hjá Real Madrid segir að Sir Alex Ferguson hjá Manchester United hafi stungið sig í bakið þegar hann ákvað að tefla honum ekki fram í úrslitaleik deildarbikarsins í vor. 7.9.2006 13:49
Keisarinn er ekki bjartsýnn Franz Beckenbauer, forseti Bayern Munchen, er ekki bjartsýnn á að liðið nái góðum árangri í Meistaradeild Evrópu í vetur. Félagið hefur misst bæði Michael Ballack og Ze Roberto en fengið Mark van Bommel, Lukas Podolski og Daniel van Buyten til liðsins í þeirra stað. 7.9.2006 00:01
Útskrifaður af spítala Fyrrum landsliðsmaðurinn Gianluca Pessotto hefur verið útskrifaður af sjúkrahúsi í Tórínó eftir meinta sjálfsvígstilraun hans í júní. Pessotto starfaði sem framkvæmdastjóri Juventus og slasaðist lífshættulega þegar hann stökk út um glugga í höfuðstöðvum liðsins. Ítalska blaðið Gazzetta dello Sport segir að Pessotto hafi brosað út að eyrum og gert að gamni sínu þegar hann var fluttur heim á leið með sjúkrabifreið í dag. 5.9.2006 17:15
Verður skrítið að leika gegn Chelsea Eiður Smári Guðjohnsen sló rækilega í gegn í sínum fyrsta leik með Barcelona í spænsku deildinni, en hann skoraði sigurmarkið gegn Celta Vigo. Félag hans kynnir Eið rækilega til leiks á heimasíðu sinni þessa dagana. Eiður var í athyglisverðu spjalli á heimasíðunni í gær þar sem hann ræddi meðal annars um hvernig það yrði fyrir hann að mæta Chelsea í Meistaradeildinni með Barcelona. 5.9.2006 00:00
Galatasaray spilar heimaleikina á Ólympíuleikvangnum Stuðningsmenn Liverpool munu eflaust fagna tíðindum sem bárust frá Tyrklandi í dag, þegar forráðamenn Galatasaray tilkynntu að liðið muni leika heimaleiki sína í meistaradeildinni á Ólympíuleikvangnum í Istanbul. Það var einmitt á þeim velli þar sem Liverpool tryggði sér sigurinn ótrúlega á AC Milan í úrslitum keppninnar í fyrra, en Liverpool er í riðli með Galatasaray, Bordeaux og PSV Eindhoven og mætir Galatasaray á útivelli í byrjun desember. 4.9.2006 22:00
Senna framlengir við Villarreal Miðjumaðurinn Marcos Senna hjá Villarreal hefur framlengt samning sinn við félagið um þrjú ár. Senna er þrítugur og fæddist í Brasilíu, en er með spænskt ríkisfang og er í landsliðshóp Spánverja. Manchester United hafði augastað á miðjumanninum knáa í sumar, en hann hefur nú ákveðið að ljúka ferlinum hjá spænska liðinu. 4.9.2006 18:00
Chelsea gæti átt eftir að sjá eftir sölunni á Eiði Smára Brasilíski knattspyrnusnillingurinn Ronaldinho hjá Barcelona, segir að Chelsea eigi eftir að sjá eftir því að hafa selt Eið Smára Guðjohnsen og spáir því að ef til vill gæti Íslendingurinn knái átt eftir að reynast fyrrum félögum sínum erfiður þegar liðin mætast í meistaradeildinni enn einu sinni í næsta mánuði. 4.9.2006 17:46
Framlengir samning sinn við Atletico Madrid Framherjinn skæði Fernando Torres hefur samþykkt að framlengja samning sinn við Atletico Madrid um eitt ár, eða til ársins 2009. Torres er 22 ára gamall og hefur um árabil verið einn eftirsóttasti framherji Evrópu, en hann er staðráðinn í að vera áfram í herbúðum Madrídarliðsins. Torres mun undirrita nýja samninginn þegar hann snýr aftur frá Norður-Írlandi með spænska landsliðinu í vikunni. 4.9.2006 17:30
Vilja fá Larsson til baka Forráðamenn Barcelona vilja ólmir fá hinn sænska Henrik Larsson til baka til félagsins, þó ekki til að spila með liðinu heldur til að að gefa honum og stuðningsmönnum félagsins tækifæri til að kveðjast formlega. Larsson komst í sögubækur félagsins með innkomu sinni í úrslitaleik Meistaradeildarinnar á síðustu leiktíð þar sem hann lagði upp bæði mörk Barca gegn Arsenal en sneri til Helsingborgar í heimalandi sínu í sumar. 4.9.2006 00:00
Þiggur ekki laun frá Real Madrid Zinedine Zidane, fyrrum fyrirliði franska landsliðsins og leikmaður Real Madrid, neitar að taka við launagreiðslum frá Real Madrid þótt hann eigi fullan rétt á þeim. Zidane ákvað sem kunnugt er að leggja skóna á hilluna í sumar þrátt fyrir að eiga eitt ár eftir af samningi sínum við Real og ákvað spænska félagið að verða við þeirri ósk snillingsins gegn því að hann ynni sem útsendari og sendiherra fyrir félagið á þessu keppnistímabili. 4.9.2006 00:00
Uppgjörið og viðtöl: Tindastóll - Grindavík 101 - 109 | Grindavík er Íslandsmeistari Körfubolti