Fleiri fréttir

Glock: Ég ók eins hratt og ég gat

Þýski ökuþórinn Timo Glock hjá Toyota er næstvinsælasti Formúlukappinn í Bretlandi í dag eftir að hafa hleypti Lewis Hamilton framúr sér í síðustu beygjunni í Brasilíukappakstrinum í gær.

Hamilton hrósað í hástert

Breski forsætisráðherran Gordon Brown er á meðal þeirra sem hafa hrósað landa sínum Lewis Hamilton í hvívetna eftir að hann fagnaði meistaratitilinum í Formúlu 1 í gær.

Harrington vill fara frá Warriors

Framherjinn Al Harringon virðist ekki eiga framtíð fyrir sér hjá Golden State Warriors í NBA deildinni. Hann fór fram á að vera skipt frá félaginu fyrir skömmu og þjálfari hans Don Nelson virðist vera alveg til í að losna við hann.

AC Milan á toppinn á Ítalíu

Stjörnulið AC Milan komst í gærkvöld á toppinn í ítölsku A-deildinni í knattspyrnu í fyrsta skipti í vetur eftir 1-0 sigur á Napoli á heimavelli. Gestirnir voru lengi aðeins með 10 menn á vellinum eftir brottvísun í fyrri hálfleik.

Hamilton: Ég er orðlaus

Lewis Hamilton átti ekki til orð eftir dramatískan Brasilíukappaksturinn í dag þar sem hann tryggði sér heimsmeistaratitilinn eftir ótrúlega dramatíska keppni.

Meistararnir töpuðu í lokaumferðinni

Lokaumferð norsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu fór fram í dag. Íslendingalið Stabæk tapaði í dag 1-0 fyrir Tromsö en hafði þegar tryggt sér titilinn.

Hamilton tryggði sér titilinn á síðustu metrunum

Lewis Hamilton hjá McLaren varð í dag yngsti ökumaðurinn til að verða heimsmeistari í Formúlu 1 þegar hann náði fimmta sætinu í Brasilíukappakstrinum. Heimamaðurinn Felipe Massa kom fyrstur í mark, en það nægði honum ekki til sigurs í stigakeppninni.

Þýskaland: Hoffenheim enn efst

Nýliðar Hoffenheim eru enn í efsta sæti þýsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu eftir leiki helgarinnar. Liðið vann 4-1 sigur á Karlsruhe í gær og hefur 25 stig, einu meira en Leverkusen sem lagði Wolfsburg 2-0 í gær.

Kalmar á titilinn vísan

Kalmar er komið með aðra höndina á meistaratitilinn í sænsku úrvalsdeildinni eftir 6-0 stórsigur á Norrköping í næst síðasta leik sínum í deildinni í dag.

Ronaldo boðnar 30 milljónir á viku?

Breska blaðið News of the World segir að Manchester United sé að undirbúa nýtt samningstilboð handa Cristiano Ronaldo sem myndi færa honum tæplega 30 milljónir króna í vikulaun.

Adams vill fá Vieira til Portsmouth

Tony Adams, stjóri Portsmouth, segist ætla að hafa samband við kollega sinn Jose Mourinho hjá Inter með það fyrir augum að kaupa miðjumanninn Patrick Vieira til Englands á ný.

Indiana skellti meisturunum

Fjórtán leikir voru á dagskrá í NBA deildinni í körfubolta í nótt. Óvæntustu úrslit kvöldsins voru líklega stórsigur Indiana á meisturum Boston 95-79.

Svanasöngur Coulthards í úrslitamótinu

Þó mest athygli sé á titilslag Lewis Hamilton og Felipe Massa í Formúlu 1 mótinu í Brasilíu í dag, þá fær Skotinn David Coulthard sinn skerf af athygli. Hann ekur í sínu síðasta Formúlu 1 móti eftir fjórtán ár í íþróttinni.

Alonso: Hamilton er í góðri stöðu

Fernando Alonso er tvöfaldur meistari og þekkir meistarabaráttuna í lokamótinu vel . Hann varð meistari 2005 og 2006 í Brasilíu. Hann hefur gefið það út að hann vilji sjá Felipe Massa sem meistari eftir mótið á morgun og hann ræsir fyrir aftan Lewis Hamilton og við hlið Heikki Kovalainen.

Cordoba skaut Inter á toppinn

Ivan Cordoba skoraði sigurmark Inter Milan í kvöld þegar liðið vann 3-2 sigur á botnliði Reggina í ítölsku A-deildinni.

Wenger: Þeir voru ferskari en við

Arsene Wenger sagði lið Stoke hafa unnið vel fyrir sigrinum á hans mönnum í Arsenal í dag. Stoke vann 2-1 sigur þar sem innköst frá Rory Delap reyndust liðinu enn og aftur dýrmæt.

Tottenham færði Liverpool fyrsta tapið

Tottenham varð í kvöld fyrsta liðið til að leggja Liverpool að velli í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Tottenham vann dramatískan 2-1 sigur í blálokin á leik sem var eign gestanna lengst af.

Ferguson: Við hefðum átt að skora tíu mörk

Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United, segir að hans menn hefðu átt að skora miklu fleiri mörk en raun bar vitni þegar þeir lögðu kraftaverkalið Hull 4-3 í dag.

Keflavík og FH mætast í fyrstu umferð

Í dag var dregið í töfluröð fyrir næstu leiktíð í Landsbankadeildunum. Stórleikir eru í bæði karla- og kvennaflokki í fyrstu umferðinni.

Logi minnti á sig

Logi Geirsson var maður leiksins í dag þegar íslenska landsliðið gerði 31-31 jafntefli við Norðmenn í undankeppni EM. Logi skoraði 13 mörk í leiknum.

Naumt hjá United - Arsenal tapaði fyrir Stoke

Mikið fjör var í leikjum toppliðanna í ensku úrvalsdeildinni í dag. Manchester United vann 4-3 sigur á spútnikliði Hull, Chelsea valtaði yfir Sunderland 5-0 og Arsenal tapaði 2-1 fyrir Stoke.

Massa fremstur á ráslínu á heimavelli

Felipe Massa á Ferrari náði besta tíma í síðustu tímatöku ársins og er í kjörstöðu fyrir kappaksturinn á morgun. Lewis Hamilton varð fjórði í tímatökunni og er á eftir Jarno Trulli og Kimi Raikkönen.

Stjarnan marði FH

Fjórir leikir voru á dagskrá í N1 deild kvenna í dag. Topplið Stjörnunnar marði FH 30-29 og Haukar lögðu Fram 25-22. HK lagði Fylki 27-18 og Valur burstaði Gróttu 33-14.

Saha tryggði Everton sigur á Fulham

Franski framherjinn Louis Saha skoraði sitt fyrsta mark fyrir Everton í dag þegar hann tryggði því 1-0 sigur á Fulham í fyrsta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni.

Hugarfarið lykillinn að sigri Blika í Keflavík

"Þetta er nú kannski bara það skemmtilega við körfuboltann. Það er ýmislegt óvænt í þessu," sagði Einar Árni Jóhannsson þjálfari Breiðabliks eftir að hans menn unnu góðan sigur á Keflavík 107-86 á útivelli í gær.

Alonso enn að hrekkja toppliðin

Spánvejrinn Fernando Alonso náði besta tíma á lokaæfingu keppnisliða á Inerlagos brautinni í Brasilíu. Hann varð 0.071 sekúndu á undan Lewis Hamilton.

Messi tippar á Liverpool

Argentínumaðurinn Leo Messi hjá Barcelona tippar á að það verði Liverpool sem standi uppi sem sigurvegari í Meistaradeild Evrópu næsta vor.

Arsenal er illa við að vera mætt af hörku

Varnarmaðurinn Abdoulaye Faye hjá Stoke segir sína menn geta veitt Arsenal góða samkeppni í dag þar sem Lundúnaliðinu sé ekki vel við það þegar því er mætt af hörku.

Pavlyuchenko vildi ekki fara til Tottenham

Móðir framherjans Roman Pavlyuchenko hjá Tottenham segir son sinn ekki hafa haft nokkurn áhuga á að fara til Englands í sumar. Hún segir hann hafa verið ánægðan í Rússlandi þar sem hann lék með Spartak í Moskvu.

Garnett vann sigur í 1000. leiknum

Sjö leikir fóru fram í NBA deildinni í nótt. Kevin Garnett spilaði sinn 1000. leik á ferlinum þegar hann fór fyrir liði Boston í 96-80 sigri liðsins á Chicago.

Alonso: Fremstu sex eiga góða möguleika á sigri

Fernando Alonso náði besta tíma í æfingu kepppnisliða í dag og ekur í hádeginu á lokaæfingu keppisliða fyrir tímatökuna sem er síðdegis í dag. Hann telur tíma simn slembilukku, en hann gæti blandað sér í toppslaginn. Felipe Massa var með næst besta tíma í gær og Lewis Hamilton var níundi, en þeir berjast um titilinn í lokamóti ársins.

Norðmenn yfir í hálfleik

Norðmenn hafa yfir 16-13 gegn Íslendingum hálfleik í leik liðanna í undankeppni EM í Drammen í Noregi.

Sjá næstu 50 fréttir