Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Hættur viðræðum við Þrótt Ólafur Þórðarson, fyrrum þjálfari Skagamanna, staðfesti í samtali við NFS í dag að hann væri hættur viðræðum við knattspyrnudeild Þróttar og gaf þá skýringu að félagið hefði ekki verið tilbúið að veita nauðsynlegan tíma til að vinna úr sínum málum áður en hann gæfi svör um framhaldið. NFS hefur heimildir fyrir því að Ólafur hafi verið í viðræðum við Fram, en Ólafur segist vera í viðræðum við tvö félög og neitar að nokkuð upp um hver þau eru. 20.9.2006 15:41
Tapar Liverpool þriðja leiknum í röð? Einn leikur fer fram í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld, en þá tekur Liverpool á móti Newcastle á Anfield. Liverpool hefur tapað tveimur leikjum í röð í deildinni, en talið er líklegt að Rafa Benitez tefli fram sama byrjunarliði í kvöld og í síðasta leik og yrði það þá í fyrsta sinn í 92 leiki sem það gerðist. 20.9.2006 14:45
Stóri-Sam neitar ásökunum Sam Allardyce hefur staðfastlega neitað öllum ásökunum sem hann var borinn í sjónvarpsþættinum Panorama í breska sjónvarpinu í gær, en þar kom fram að hann hefði tekið við mútugreiðslum frá tveimur umboðsmönnum í leikmannakaupum. "Ég vísa öllum ásökunum sem fram komu í þættinum á bug og málið er nú í höndum lögmanna minna," sagði Allardyce í dag, en neitar annars að tjá sig um málið. 20.9.2006 14:23
Skuldir Arsenal jukust um 100 rúmar milljónir punda Peter Hill-Wood, stjórnarformaður Arsenal, tilkynnti í dag að skuldir félagsins hefðu aukist úr 153 milljónum punda í 262 milljónir. Þessi gríðarlega aukning er fyrst og fremst komin til vegna flutnings liðsins á nýja heimavöllinn, Emirates Stadium, en innkoma hjá félaginu var að öðru leiti nokkuð jákvæð enda náði liðið langt í meistaradeild Evrópu. 20.9.2006 14:15
Falsaðar nektarmyndir af konu Woods í umferð Ameríski kylfingurinn Tiger Woods á nú í erfiðleikum með að einbeita sér að keppni á Ryder Cup mótinu, eftir að bresk og írsk blöð birtu í dag falsaðar nektarmyndir af konu hans sem höfðu verið í umferð á netinu. 20.9.2006 13:59
Marion Jones ætti að hætta keppni Heimsmethafinn í 200 og 400 metra hlaupi, Michael Johnson, segir að landa sín Marion Jones ætti að sjá sóma sinn í því að hætta keppni eftir að hún slapp með skrekkinn við að falla á lyfjaprófi á dögunum. Jones hefur lengi verið sökuð um að nota ólögleg lyf til að bæta árangur sinn á hlaupabrautinni, en enn hefur ekkert slíkt sannast á hana. 19.9.2006 22:15
Úrvalsdeildarliðin sluppu með skrekkinn Úrvalsdeildarliðin Watford og Reading sluppu með skrekkinn í kvöld þegar þau lögðu lægra skrifaða andstæðinga sína í enska deildarbikarnum eftir framlengdan leik og vítaspyrnukeppni. Brynjar Björn Gunnarsson spilaði 120 mínútur fyrir Reading þegar liðið vann Darlington í vítakeppni. 19.9.2006 21:51
Haukar lögðu ÍBV Haukastúlkur fögnuðu í kvöld sigri í meistarakeppni HSÍ þegar þær lögðu Eyjastúlkur örugglega í Eyjum 33-24 eftir að hafa verið yfir 14-11 í hálfleik. Þetta var árlegur leikur Íslands- og bikarmeistaranna í kvennaflokki og annað kvöld fer fram meistarakeppnin í karlaflokki þar sem Íslandsmeistarar Fram tekur á móti Stjörnunni í Safamýrinni. 19.9.2006 21:42
Sam Allardyce sakaður um spillingu Sam Allardyce, knattspyrnustjóri Bolton og einn þeirra sem hvað líklegastir þóttu til að taka við stöðu landsliðsþjálfara Englendinga í sumar, var þungamiðjan í þætti breska sjónvarpsins Panorama, sem sýndur var þar í landi í kvöld, þar sem umfjöllunarefnið var meint spilling í knattspyrnuheiminum á Englandi. 19.9.2006 21:15
Högglengsti kylfingur Íslands Golfklúbbur Garðabæjar og Kópavogs mun um næstu helgi standa fyrir keppninni Högglengsti kylfingur Íslands á Vífilstaðavelli, en keppt verður í karla- og kvennaflokki og allir nota sömu tegund af bolta. 19.9.2006 21:00
Everton marði Peterborough Everton vann í kvöld nauman sigur á þriðjudeildarliði Peterborough í annari umferð enska deildarbikarsins. Það var varamaðurinn Tim Cahill sem tryggði úrvalsdeildarliðinu sigur með marki á 87. mínútu. Úrvalsdeildarliðin sem voru í eldlínunni í kvöld lentu fleiri í vandræðum. 19.9.2006 20:57
Curbishley hefur ekki áhuga á WBA Alan Curbishley, fyrrum knattspyrnustjóri Charlton, hefur staðfest við breska sjónvarpið að hann hafi ekki í huga að taka við stjórn 1. deildarliði West Brom, en hann hafði verið nefndur til sögunnar sem arftaki Bryan Robson sem sagði af sér í gær. Curbishley vill taka við liði í ensku úrvalsdeildinni og er strax farið að kitla að komast aftur í slaginn eftir að hafa látið af störfum hjá Charlton í vor. 19.9.2006 20:15
Óvæntir hlutir að gerast Nú er kominn hálfleikur í viðureignum kvöldsins í enska deildarbikarnum. Everton hefur yfir 1-0 gegn Peterborough í sjónvarpsleiknum á Sýn með marki frá James Beatty, en á öðrum vígstöðvum eru að eiga sér stað nokkuð óvæntir hlutir eins og svo oft í þessari skemmtilegu keppni. 19.9.2006 19:43
Langt í land í máli ÍR og KA/Þórs Skrifstofa KSÍ hefur viðurkennt að hafa gert mistök með því að veita markverði kvennaliðs ÍR keppnisleyfi fyrir úrslitaleikina gegn Þór-KA um laust sæti í Landsbankadeild kvenna, því markvörðurinn var þar með að spila með sínu þriðja liði í sumar sem er bannað. Þetta kom fram í íþróttafréttum NFS í kvöld. 19.9.2006 19:15
Kveikir í mér að sjá konuna í búningnum Enska knattspyrnugoðið David Beckham viðurkenndi í viðtali við útvarpsmanninn og félaga sinn Chris Moyles að það kveikti í sér þegar konan hans gengi um í búningum af sér. Hann segir konu sína Victoriu gjarnan ganga um í keppnistreyjum sínum í húsi þeirra hjóna og viðurkennir að stundum fái hann morgunmat í rúmið frá konunni í treyju hans einni fata. 19.9.2006 17:45
Þrír Blikar í banni í lokaumferðinni Þrír leikmanna Breiðabliks munu taka út leikbann í lokaumferð Landsbankadeildar karla í knattspyrnu um helgina samkvæmt úrskurði aganefndar KSÍ. Þetta eru þeir Nenad Zivanovic, Guðmann Þórisson og Olgeir Sigurgeirsson, en þeir fá allir eins leiks bann eftir að hafa krækt í 6 gul spjöld í deildinni. 19.9.2006 17:03
Shevchenko hefur engar afsakanir Jose Mourinho segir að stjörnuframherjinn Andriy Shevchenko hafi engar afsakanir fyrir því að skora ekki mörk í ensku úrvalsdeildinni, því Chelsea sé að spila nákvæmlega sama leikkerfi og Shevchenko hafi spilað allan sinn feril hjá AC Milan. 19.9.2006 16:39
Boris náði ekki í úrslit Kristinn Óskar Haraldsson, "Boris", varð að bíta í það súra epli að verða annað árið í röð hársbreidd frá því að tryggja sér sæti í úrslitum í keppninni um sterkasta mann heims sem fram fer í Kína. 19.9.2006 16:17
Peterborough - Everton í beinni í kvöld Nokkrir leikir fara fram í enska deildarbikarnum í kvöld og verður leikur Peterborough og Everton sýndur beint á Sýn klukkan 18:30. Peterborough leikur í þriðju deildinni á Englandi og er þar um miðja deild, svo ljóst er að erfitt verkefni bíður liðsins í kvöld gegn einu heitasta liðinu í ensku úrvalsdeildinni. 19.9.2006 15:12
Meiðsli hjá Manchester City Enska úrvalsdeildarliðið Manchester City hefur tilkynnt að markvörðurinn Andreas Isaksson og varnarmaðurinn Hatem Trabelsi verði frá keppni næsta mánuðinn vegna meiðsla og eykur það enn á ófarir liðsins í upphafi leiktíðar, en City er í sautjánda sæti deildarinnar með aðeins fjögur stig að loknum fimm leikjum. 19.9.2006 14:22
Óttaðist að verða seldur frá United Varnarmaðurinn Rio Ferdinand hjá Manchester United greinir frá því í óútkominni bók sinni að hann hafi óttast mjög að verða seldur frá félaginu í kjölfar þess að myndir náðust af honum og Peter Kenyon, yfirmanni knattspyrnumála hjá Chelsea, á veitingahúsi í fyrra. Ferdinand segist aldrei hafa séð Alex Ferguson jafn reiðan og í kjölfarið. 19.9.2006 13:27
Vill komast aftur í ensku úrvalsdeildina Framherjinn Stan Collymore hefur hvergi nærri gefið upp alla von með að snúa aftur til keppni í ensku úrvalsdeildinni, þó hann hafi ekki spilað alvöru leik í mörg ár og sé orðinn 35 ára gamall. Collymore hefur getið sér gott orð sem leikari á síðustu misserum og fór síðast á kostum í stórmyndinni Basic Instinct 2 við hlið kynbombunnar Sharon Stone. 19.9.2006 13:05
Þáttur um spillingu í knattspyrnunni á BBC í kvöld Nú ríkir nokkur titringur á Englandi vegna sjónvarpsþáttarins Panorama sem sýndur verður á BBC sjónvarpsstöðinni í kvöld, en þar verður til rannsóknar meint spilling umboðsmanna og knattspyrnustjóra í landinu. Sagt er að nokkur úrvalsdeildarfélög muni jafnvel fá á baukinn í þættinum, en frekari frétta af málinu er að vænta í kvöld. 19.9.2006 12:48
Lehmann til rannsóknar hjá lögreglu Jens Lehmann, markvörður Arsenal, er nú til rannsóknar hjá lögreglu í Manchester eftir að henni bárust athugasemdir um að markvörðurinn hefði sparkað vatnsbrúsa í átt að stuðningsmönnum United í stúkunni á leik liðanna á sunnudag. 19.9.2006 12:30
Lerner tekinn við stjórnarformennsku hjá Aston Villa Ameríski auðkýfingurinn Randy Lerner hefur nú tekið formlega við stjórnarformennsku hjá enska úrvalsdeildarfélaginu Aston Villa, eftir að Doug Ellis steig af stóli í morgun. Ellis hefur verið í stjórn Villa síðan 1968 og hefur verið gerður að heiðursforseta, en nú tekur Lerner við stjórnartaumunum. Lerner er hársbreidd frá því að eignast 90% hlut í félaginu. 19.9.2006 12:15
Mínus tvö stig í síðustu fimm leikjum Eftir afar gott gengi í fyrri hluta móts í sænsku úrvalsdeildinni hefur Stokkhólmsliðið Hammarby ekki náð sér á strik á undanförnum vikum. Auk þess sem leikur liðsins gegn Djurgården var blásinn af í síðasta mánuði vegna óláta áhorfenda hefur liðið nú ekki unnið síðustu fimm leiki í röð og tapað fjórum þeirra. Hammarby var lengi vel í efsta sæti deildarinnar framan af sumri en er nú fallið í sjötta sæti. Til að bæta gráu á svart voru þrjú stig dregin af liðinu vegna fyrrnefndra óláta. 19.9.2006 00:01
Verð ef til vill í Færeyjum næsta sumar Landsliðsfyrirliðinn Ásthildur Helgadóttir heldur áfram að gera það gott í sænsku úrvalsdeildinni þar sem hún leikur með Malmö. Um helgina skoraði hún bæði mörk liðsins í 2-2 jafntefli gegn Linköping á útivelli. Hún er markahæst í deildinni ásamt öðrum leikmanni og hefur skorað 17 mörk. 19.9.2006 00:01
McClaren vill fá Scholes aftur í landsliðið Terry Venables, aðstoðarþjálfari enska landsliðsins, segir að Steve McClaren landsliðsþjálfari hafi sett sig í samband við Paul Scholes hjá Manchester United með það fyrir augum að fá hann til að taka landsliðsskóna fram að nýju í kjölfar þess að Owen Hargreaves fótbrotnaði um helgina. 18.9.2006 21:30
Mótum fjölgar á næsta ári Í dag var ákveðið að fjölga mótum á keppnistímabilinu í Formúlu 1 úr 17 í 18 og útlit er fyrir að San Marino-kappaksturinn á Imola muni halda áfram eftir allt. Þetta var ákveðið á fundi í París í dag, þar sem Alþjóða akstursíþróttasambandið og fulltrúar bílaframleiðenda og keppnisliðanna komu saman. 18.9.2006 20:15
Vonast enn eftir landsliðssæti Varnarmaðurinn Sol Campbell hjá enska úrvalsdeildarliðinu Portsmouth segist enn ekki hafa gefið upp alla von með að spila fleiri leiki fyrir hönd enska landsliðsins, en þessi 32 ára gamli fyrrum fastamaður í liðinu hefur byrjað leiktíðina afar vel með Portsmouth. 18.9.2006 19:30
Handboltavertíðin hefst á morgun Á morgun hefst handboltavertíð vetrarins með formlegum hætti þegar kvennalið ÍBV og Hauka leiða saman hesta sína í Vestmannaeyjum í meistarakeppni HSÍ. Á miðvikudaginn er svo komið að körlunum þar sem Fram og Stjarnan eigast við í Framhúsinu. Báðir leikirnir hefjast klukkan 19. 18.9.2006 19:15
Stefnan sett á 100.000 áhorfendur Knattspyrnusamband Íslands greinir frá því á vef sínum í dag að ekki sé ólíklegt að aðsóknarmetið í efstu deild karla í knattspyrnu verði slegið um næstu helgi þegar lokaumferð Landsbankadeildarinnar fer fram. Stefnan er sett á að fá 100 þúsund manns á völlinn í fyrsta sinn. 18.9.2006 18:15
Peterborough - Everton í beinni annað kvöld Sýn verður með beinar útsendingar frá leikjum í enska deildarbikarnum annað kvöld og á miðvikudagskvöldið, en þá fer fram fjöldi leikja í keppninni. Annað kvöld verður viðureign Peterborough og Everton í beinni útsendingu og hefst útsending klukkan 18:35 og á sama tíma á miðvikudagskvöldið verður leikur Scunthorpe í beinni á sama tíma. 18.9.2006 17:46
Einn besti dagur í lífi mínu Jose Antonio Reyes, leikmaður Real Madrid á Spáni, skoraði sitt fyrsta mark fyrir félagið í gærkvöld þegar það lagði Real Sociedad 2-0 á heimavelli sínum. Reyes var að spila sinn fyrsta heimaleik fyrir félagið og sagðist ekki hafa geta beðið um betri byrjun. 18.9.2006 17:30
Meistaradeildin á Fjölvarpinu Eurosport hefur gert samning við Handknattleikssamband Evrópu um beinar útsendingar frá meistaradeildinni í handbolta og verða leikir þýsku liðanna allir í beinni útsendingu næstu þrjú árin. Þetta þýðir að þeim sem hafa aðgang að fjölvarpinu á Digital Ísland geta séð Íslensku leikmennina fara á kostum með liðum sínum í vetur. 18.9.2006 17:04
Hætti hjá Renault vegna óvissu um framtíð liðsins Heimsmeistarinn Fernando Alonso hjá Renault, sem gengur í raðir McLaren á næsta tímabili, hefur gefið það upp að hann hafi ákveðið að yfirgefa liðið vegna óvissu um framtíð liðsins í Formúlu 1. 18.9.2006 17:00
Útilokar að spila aftur í ensku úrvalsdeildinni David Beckham segir ekki koma til greina fyrir sig að spila aftur í ensku úrvalsdeildinni af þeirri einföldu ástæðu að hann geti ekki hugsað sér að spila gegn Manchester United. "Ég er stuðningsmaður Manchester United og elska félagið, svo ég gæti aldrei farið í búning annars liðs og spilað á móti þeim," sagði fyrrum landsliðsfyrirliðinn sem vonast enn til að vinna titil með spænska liðinu Real Madrid áður en hann leggur skóna á hilluna. 18.9.2006 16:15
Leroy Lita sleppur Framherjinn Leroy Lita hjá enska úrvalsdeildarfélaginu Reading, verður ekki sóttur til saka fyrir að skalla mann á næturklúbbi á dögunum eftir að lögreglan í Bristol ákvað að hætta við að höfða mál gegn honum í ljósi þess að maðurinn sem kærði hann dró vitnisburð sinn til baka. 18.9.2006 15:36
Schumacher launahæstur þrátt fyrir að vera hættur Umboðsmaður þýska ökuþórsins Michael Schumacher fullyrðir í samtali við þýska blaðið Bild, að Schumacher muni hala inn meiri tekjur en helstu keppinautar hans Kimi Raikkönen og Fernando Alonso á næsta ári - þó hann setjist aldrei upp í bíl. 18.9.2006 15:21
Hnémeiðslin munu ekki ógna ferli Owen Bandaríski sérfræðingurinn Richard Steadman hefur lofað enska landsliðsframherjanum Michael Owen að hnémeiðsli hans muni ekki ógna ferli hans sem knattspyrnumanns. Owen fór í aðgerð hjá Bandaríkjamanninum á dögunum og er sagður á ágætum batavegi. 18.9.2006 14:58
Boro semur um kaupverð á Woodgate Gareth Southgate, knattspyrnustjóri Middlesbrough í ensku úrvalsdeildinni, segir að félagið hafi þegar komist að samkomulagi við spænska félagið Real Madrid á miðverðinum Jonathan Woodgate, sem gekk í raðir enska liðsins sem lánsmaður á dögunum. 18.9.2006 14:16
Shay Given fór í aðgerð Írski landsliðsmarkvörðurinn Shay Given gekkst undir aðgerð á kvið á sjúkrahúsi í London í nótt eftir að hafa lent í slæmu samstuði í leik með liði sínu Newcastle gegn West Ham í gær. Given verður frá keppni í einhvern tíma í kjölfarið, en enn hefur ekki verið gefið upp hve lengi hann verður frá. 18.9.2006 14:05
Bryan Robson hættur hjá WBA Stjórn enska 1. deildafélagsins West Brom hefur komist að samkomulagið við Bryan Robson um að hann láti af störfum sem knattspyrnustjóri félagsins. Robson náði að halda liðinu í úrvalsdeildinni á undraverðan hátt árið 2004, en liðið féll niður um deild í vor og hefur ekki staðið undir væntingum það sem af er þessari leiktíð. 18.9.2006 14:01
Dáist að Jose Mourinho Roy Keane, stjóri Sunderland og fyrrum fyrirliði Manchester United, viðurkennir að hann dáist að Jose Mourinho sem knattspyrnustjóra og segir að Portúgalinn hafi sálræna yfirburði á alla aðra stjóra í deildinni. 17.9.2006 21:45
Real Madrid lagði Sociedad Real Madrid lagði Real Sociedad 2-0 á heimavelli sínum í lokaleik kvöldsins í spænska boltanum. Jose Antonio Reyes skoraði sitt fyrsta mark fyrir Real og kom liðinu yfir þegar langt var liðið á síðari hálfleik, en það var svo varamaðurinn David Beckham sem gerði út um leikinn með marki á lokamínútunni. Ekki er hægt að segja að hafi verið glæsibragur á leik Real, en Fabio Capello þjálfari er enn að slípa það saman eftir miklar breytingar í sumar. 17.9.2006 21:30