Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Gríðarlega mikilvægur sigur Arsene Wenger sagði að þó hans menn í Arsenal hefðu vissulega ekki verið úr leik í baráttunni um meistaratitilinn þó þeir hefðu tapað fyrir Manchester United á Old Trafford í dag, hefði það verið leikmönnum sínum áfall sem erfitt hefði verið að komast yfir. 17.9.2006 19:21
Barrera varði titil sinn Marco Antonio Barrera varði í nótt WBC titil sinn í fjaðurvigt þegar hann vann sigur á Rocky Juarez í Las Vegas í Bandaríkjunum. Bardaginn var sýndur beint á Sýn og hafði Barrera meiri yfirburði í þetta sinn en í fyrri bardaga þeirra, þar sem honum var dæmdur sigur á umdeildan hátt. 17.9.2006 19:15
Sáttur við rauða spjaldið Jose Mourinho segist ekki mótmæla rauða spjaldinu sem Michael Ballack fékk að líta í leiknum gegn Liverpool í ensku úrvalsdeildinni í dag, en gat þó ekki stillt sig um að senda dómara leiksins smá pillu á blaðamannafundi eftir leikinn. 17.9.2006 19:04
Fluttur á sjúkrahús eftir samstuð Írski markvörðurinn Shay Given hjá Newcastle hefur verið fluttur á sjúkrahús í Lundúnum eftir að hafa lent í samstuði við Marlon Harewood, sóknarmann West Ham í leik liðanna í dag. Given verður á sjúkrahúsi í nótt og fór því ekki norður til Newcastle til með félögum sínum eftir leikinn. Given kenndi sér meins í maganum og því var ákveðið að flytja hann á sjúkrahús. 17.9.2006 18:58
Racing - Barcelona í beinni Leikur Racing Santander og Barcelona er nú að hefjast í beinni útsendingu á Sýn. Það er hinn óviðjafnanlegi Guðjón Guðmundsson sem lýsir leiknum og vonandi fá áhorfendur tækifæri til að sjá landsliðsfyrirliðann Eið Smára Guðjohnsen spreyta sig hjá Katalóníuliðinu, en hann er á varamannabekknum í dag. Síðar í kvöld er svo leikur Real Madrid og Real Sociedad sýndur beint á Sýn. 17.9.2006 17:53
Arsenal stal sigrinum á Old Trafford Arsenal krækti í sinn fyrsta sigur í ensku úrvalsdeildinni í dag þegar liðið lagði Manchester United 1-0 á Old Trafford með marki frá Emmanuel Adebayor þegar fimm mínútur voru til leiksloka. Þetta var fyrsti sigur Arsenal á Old Trafford síðan árið 2002, en Arsenal misnotaði einnig vítaspyrnu þegar Gilberto lét verja frá sér í upphafi leiksins. 17.9.2006 17:08
Newcastle skellti West Ham Leikjunum þremur sem hófust klukkan 14 í ensku úrvalsdeildinni er nú lokið. Newcastle vann góðan 2-0 útisigur á West Ham í Lundúnum, Blackburn skellti Manchester City 4-2 á Ewood Park og Tottenham og Fulham gerðu markalaust jafntefli á White Hart Lane. 17.9.2006 16:02
Jafnt í hálfleik á Old Trafford Staðan í leik Manchester United og Arsenal er jöfn 0-0 þegar flautað hefur verið til leikhlés í viðureign erkifjendanna á Old Trafford. Nokkuð jafnræði hefur verið með liðunum í leiknum, en besta færi leiksins átti Arsenal. Tomasz Kuszczak markvörður United fékk dæmda á sig mjög vafasama vítaspyrnu eftir aðeins tíu mínútna leik, en Kuszczak gerði sér lítið fyrir og varði vítið frá Gilberto. 17.9.2006 15:52
Góður sigur hjá Paul Casey Enski kylfingurinn Paul Casey vann í dag glæsilegan sigur á heimsmótinu í holukeppni sem fram fór á Wentworth vellinum í Lundúnum. Casey sigraði Bandaríkjamanninn Shaun Micheel 10-8 í úrslitum mótsins, en Casey er fyrsti nýliðinn sem vinnur mótið síðan Ernie Els afrekaði það árið 1994. 17.9.2006 15:43
Mikið fjör á Ewood Park Nú er kominn hálfleikur í þremur leikjum sem standa yfir í ensku úrvalsdeildinni, en öll fjögur mörkin sem litið hafa dagsins ljós komu á Ewood Park, þar sem staðan í leik Blackburn og Manchester City er 2-2. Markalaust er hjá Tottenham og Fulham á White Hart Lane, eins og hjá West Ham og Newcastle á Upton Park. 17.9.2006 14:58
Kuszczak stendur í marki United Nú styttist í leik Manchester United og Arsenal í ensku úrvalsdeildinni, en þessi stórleikur hefst klukkan 15. Byrjunarliðin eru klár og ljóst er að Tomasz Kuszczak stendur í marki Manchester United í stað Edwin van der Sar, sem er veikur. Thierry Henry er ekki í liði Arsenal vegna meiðsla. 17.9.2006 14:50
Glæsimark Drogba tryggði Chelsea sigur Chelsea lagði Liverpool 1-0 í fyrri stórleik dagsins í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Það var Didier Drogba sem skoraði sigurmarkið undir lok fyrri hálfleiks með glæsilegu skoti, en Michael Ballack var vikið af leikvelli í upphafi þess síðari fyrir glórulaust brot. Liverpool sótti nokkuð í sig veðrið í síðari hálfleiknum en náði ekki að nýta sér liðsmuninn og hefur því enn ekki lagt Chelsea í deildinni undir stjórn Rafa Benitez. 17.9.2006 14:17
Ungu leikmennirnir verða að leggja harðar að sér Thierry Henry, fyrirliði Arsenal, segir að ungu mennirnir í liðinu verði að leggja harðar að sér og geti ekki búist við því að hann sjálfur dragi vagninn. 17.9.2006 13:53
Verður frá í minnst sex vikur Enski landsliðsmaðurinn Owen Hargreaves verður frá keppni í lágmark sex vikur efir að staðfest er að hann braut bein í fæti sínum í leik gegn Bielefeld í þýsku úrvalsdeildinni í gær. Þetta þýðir að hann mun missa ef leikjum Englendinga í undankeppni EM í næsta mánuði. 17.9.2006 13:40
Vill frekar halda áfram en vera heima hjá konunni Sir Alex Ferguson segir í samtali við News of the World um helgina að hann ætli sér að halda áfram að stýra Manchester United í að minnsta kosti tvö ár í viðbót, því ef hann hætti störfum - bíði hans ekkert annað en að hanga heima með konu sinni. 17.9.2006 13:30
Chelsea yfir gegn Liverpool Englandsmeistarar Chelsea hafa yfir 1-0 þegar flautað hefur verið til leikhlés í fyrri stórleik dagsins, en leikið er á Stamford Bridge í Lundúnum. Það var Fílstrendingurinn Didier Drogba sem skoraði mark Chelsea á 42. mínútu með frábæru einstaklingsframtaki, en hann fékk háa sendingu inn á teiginn með bakið í markið, sneri af sér varnarmann og skaut viðstöðulausu vinstrifótarskoti framhjá markverðinum. 17.9.2006 13:15
Breiðablik mætir Arsenal Kvennalið Breiðabliks tryggði sér í dag sæti í 8-liða úrslitum Evrópukeppni félagsliða þegar liðið lagði Vitebsk frá Hvíta-Rússlandi 1-0 í lokaleik sínum í 16-liða úrslitunum í Finnlandi. Greta Mjöll Samúelsdóttir skoraði sigurmark Blika skömmu fyrir leikslok og fær Kópavogsliðið nú það erfiða verkefni að mæta Englandsmeisturum Arsenal í 8-liða úrslitunum. 17.9.2006 13:10
Stórt tap fyrir Austurríki Íslenska karlalandsliðið í körfubolta tapaði stórt fyrir Austurríkismönnum ytra í B-deild Evrópumótsins í gærkvöldi, 85-64. Stóru mennirnir í Íslenska liðinu fóru allir útaf með fimm villur í leiknum og eftirleikurinn var heimamönnum auðveldur. Logi Gunnarsson var stigahæstur í íslenska liðinu með 14 stig, en þetta var þriðja tap liðsins í riðlinum í fjórum leikjum. 17.9.2006 13:06
Meiddur í nára og lék ekki Landsliðsframherjinn Gunnar Heiðar Þorvaldsson lék ekki með liði sínu Hannover í þýsku úrvalsdeildinni vegna meiðsla. Eftir því sem fram kemur á heimasíðu Hannover tognaði Gunnar Heiðar lítillega á æfingu fyrir helgi og gat ekki leikið með af þeim sökum. 17.9.2006 00:01
FH Íslandsmeistari - ÍBV fallið FH-ingar eru Íslandsmeistarar í knattspyrnu þriðja árið í röð eftir öruggan 4-0 sigur á Víkingi á heimavelli sínum í Kaplakrika. Á sama tíma lögðu Skagamenn baráttuglaða Eyjamenn 4-2 á Skipaskaga og sendu ÍBV því niður um deild. 16.9.2006 17:46
Sendir landsliðsmönnum sínum aðvörun Steve McClaren hefur sent þeim leikmönnum sem verið hafa inn og út úr enska landsliðshópnum aðvörun og segir að ef menn ætli sér að vinna sér fast sæti í liði sínu - verði þeir á sama hátt að vera fastamenn í félagsliðum sínum. 16.9.2006 22:15
Deportivo lagði Villarreal Einn leikur fór fram í spænska boltanum í kvöld. Deportivo La Corunia bar sigurorð af Villarreal 2-0 á heimavelli sínum, þar sem Juan Capdevila skoraði bæði mörk Deportivo. Leikurinn var sýndur beint á Sýn. 16.9.2006 21:50
Barrera mætir Rocky Juarez Bardagi Marcos Antonio Barrera og Rocky Juarez verður aðal viðburður kvöldsins þegar Sýn verður með beina útsendingu frá hnefaleikum frá Las Vegas í Bandaríkjunum. Þetta verður í annað sinn sem þeir mætast í titilbardaga, en hinum mexíkóska var dæmdur sigur á stigum í fyrri bardaganum og þótti sú ákvörðun mjög umdeild. Útsending hefst klukkan eitt eftir miðnætti. 16.9.2006 21:27
Varar við of mikilli bjartsýni Harry Redknapp hefur varað stuðninsmenn Portsmouth við of mikilli bjartsýni í kjölfar þess að liðið náði toppsætinu í ensku úrvalsdeildinni með sigri á Charlton í dag. Portsmouth hefur hvorki tapað leik né fengið á sig mark það sem af er deildarkeppninni, en stjórinn vill ekki að stuðningsmenn fari að byggja skýjaborgir. 16.9.2006 21:00
Deportivo yfir í hálfleik Nú stendur yfir leikur Deportivo la Corunia og Villarreal í spænsku deildinni og hefur Deportivo 1-0 yfir þegar flautað hefur verið til hálfleiks. Þorsteinn Gunnarsson lýsir leiknum beint á Sýn, en það var Capdevila sem skoraði mark Deportivo í fyrri hálfleik. 16.9.2006 20:54
Stórsigur hjá Gummersbach Sjö leikir fóru fram í þýsku úrvalsdeildinni í handknattleik í dag. Guðjón Valur Sigurðsson fór á kostum þegar Gummersbach burstaði Grosswallstadt 35-22 en þessi lið berjast í toppbaráttunni í deildinni. Þá töpuðu Viggó Sigurðsson og félagar í Flensburg mjög óvænt fyrir Kronau Östringen á útivelli 31-30. 16.9.2006 20:11
Segir dómara leggja lið sitt í einelti Paul Jewell var ekki par ánægður með frammistöðu dómarans Alan Wiley eftir 2-2 jafnteflið við Everton í dag, en hann segir dómara í ensku úrvalsdeildinni allt of spjaldaglaða á sitt lið á meðan stóru liðin sleppi ítrekað með sömu brot. 16.9.2006 19:54
Boðar tiltekt í hópnum David Moyes var ekki par kátur með að hans menn næðu aðeins 2-2 jafntefli við Wigan á heimavelli sínum í ensku úrvalsdeildinni í dag. Moyes gagnrýndi leikmenn sína fyrir að fá á sig tvö óþarfa mörk og boðar breytingar í hóp sínum í kjölfarið. 16.9.2006 19:44
Jafnt hjá Watford og Villa Watford og Aston Villa skildu jöfn 0-0 á Vicarage Road í ensku úrvalsdeildinni í dag, þar sem markverðir beggja liða voru í aðalhlutverki og komu í veg fyrir að öðru liðinu tækist að stela sigrinum. Villa hafði mikla yfirburði framan af leiknum, en heimamenn tóku við sér í síðari hálfleik og segja má að jafnteflið hafi verið sanngjörn niðurstaða. 16.9.2006 18:26
Hargreaves líklega fótbrotinn Enski landsliðsmaðurinn Owen Hargreaves hjá Þýskalandsmeisturum Bayern Munchen þurfti að fara meiddur af velli eftir 25 mínútna leik í tapinu gegn Bielefeld í dag og nú eftir nánari skoðun er óttast að hann sé fótbrotinn. Hargreaves var mikið orðaður við lið Manchester United í sumar, en forráðamenn Bayern harðneituðu að selja hann. Hargreaves spilaði á miðjunni hjá Bayern ásamt Mark Van Bommel. 16.9.2006 17:42
Stórtap fyrir Norðmönnum Íslenska kvennalandsliðið í körfubolta tapaði stórt fyrir Norðmönnum 69-47 í leik liðanna í Evrópukeppinni sem fram fór í Keflavík í dag. Þetta var fyrsti heimaleikur landsliðsins í Evrópukeppni. Birna Valgarðsdóttir var stigahæst í íslenska liðinu með 14 stig, en næsti leikur þess verður við Íra í Keflavík eftir viku. 16.9.2006 17:33
Markasúpa á Skaganum Nú er kominn hálfleikur í viðureignum dagsins í Landsbankadeildinni, en hér er um að ræða næst síðustu umferð mótsins. FH-ingar eru komnir langt með að tryggja sér þriðja Íslandsmeistaratitilinn í röð, en þeir hafa 2-0 forystu gegn Víkingi á heimavelli sínum og ráða algjörlega ferðinni. Fimm mörk litu dagsins ljós í fyrri hálfleiknum. 16.9.2006 16:49
FH-ingar hafa náð forystu Íslandsmeistarar FH virðast staðráðnir í að misnota ekki enn eitt tækifærið til að tryggja sér þriðja titilinn í röð, en liðið hefur náð 1-0 forystu gegn Víkingi í Kaplakrika. Fjórir aðrir leikir standa nú yfir í næst síðustu umferð deildarinnar og hægt er að fylgjast náið með gangi mála á Boltavaktinni hér til hliðar á Vísi.is. 16.9.2006 16:20
HK í Landsbankadeildina Kópavogsliðið HK tryggði sér í dag sæti í Landsbankadeildinni ásamt Fram á næstu leiktíð, þrátt fyrir að tapa 1-0 fyrir Safamýrarliðinu í lokaumferðinni í dag. Á sama tíma tapaði Fjölnir 1-0 fyrir KA fyrir norðan og því hélt HK öðru sætinu í deildinni. 16.9.2006 16:14
Góður sigur hjá Reading Íslendingalið Reading nældi sér í þriðja sigur sinn í ensku úrvalsdeildinni í dag þegar liðið lagði nýliða Sheffield 2-1 á útivelli. Kevin Doyle og Seol Ki-Hyeon skoruðu mörk Reading, en Rob Hulse minnkaði muninn fyrir heimamenn. Everton og Wigan skildu jöfn 2-2 í hörkuleik þar sem Paul Scharner skoraði tvö mörk fyrir Wigan, en þeir Andy Johnson og James Beatty mörk Everton. Bolton og Middlesbrough gerðu markalaust jafntefli. 16.9.2006 16:06
Óvænt úrslit í dag Nokkuð var um óvænt úrslit í þýsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag, en sex leikir voru á dagskrá. Meistarar Bayern Munchen fengu 2-1 skell fyrir Bielefeld á útivelli og Werder Bremen tapaði 3-2 á heimavelli fyrir Stuttgart. Úrslit dagsins og markaskorara má sjá á Boltavaktinni hérna neðar á síðunni. 16.9.2006 15:43
Loksins sigur hjá Hannover Þýska úrvalsdeildarliðið Hannover vann í gærkvöld sinn fyrsta leik í þýsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu þegar liðið lagði granna sína í Wolfsburg 2-1 á útivelli. Hannover skaust upp af fallsvæðinu með sigrinum, en Gunnar Heiðar Þorvaldsson kom ekki við sögu hjá Hannover í leiknum. 16.9.2006 15:32
Reading í fínum málum í hálfleik Íslendingalið Reading hefur yfir 2-0 í hálfleik á útivelli gegn Sheffield United í ensku úrvalsdeildinni. Kevin Doyle og Seol Ki-Hyeon skoruðu mörk Reading. Staðan í leik Bolton og Middlesbrough er jöfn 0-0, líkt og í leik Everton og Wigan. 16.9.2006 14:50
Wayne Rooney hefur ekki gert neitt Harðjaxlinn Roy Keane er enn með munninn fyrir neðan nefið og í helgarviðtali við breska blaðið The Sun, segir Keane meðal annars að hann haldi aðeins sambandið við sjö af fyrrum félögum sínum í Manchester United og segir að þó Wayne Rooney hafi vissulega bjarta framtíð fyrir sér - þurfi fólk ekkert að missa sig yfir honum, því hann hafi ekki unnið okkurn skapaðan hlut á knattspyrnuvellinum hingað til. 16.9.2006 14:38
Sár vonbrigði að ná ekki í landsliðið David Beckham hefur gefið það upp að sér hafi sárnað mikið þegar Steve McClaren landsliðsþjálfari Englendinga tilkynnti honum að hann hefði ekki valið hann í hóp sinn eftir HM. Beckham er staðráðinn í að vinna sér sæti í hópnum á ný. 16.9.2006 14:23
Ívar í byrjunarliði Reading Ívar Ingimarsson er að venju í byrjunarliði Reading í dag, en liðið sækir nýliða Sheffield United heim í ensku úrvalsdeildinni í dag. Brynjar Björn Gunnarsson er á varamannabekk Reading, sem náði raunar forystu í leiknum eftir aðeins 15 sekúndur og þar var að verki Kevin Doyle. Þá eru einnig á dagskrá leikir Bolton og Middlesbrough og Wigan og Everton tekur á móti Wigan. 16.9.2006 14:10
Frábær byrjun Portsmouth Portsmouth hefur heldur betur byrjað vel í ensku úrvalsdeildinni og í fyrsta leik dagsins unnu lærisveinar Harry Redknapp góðan sigur á Hermanni Hreiðarssyni og félögum í Charlton 1-0 og eru fyrir vikið komnir í toppsæti deildarinnar með 13 stig eftir 5 leiki. Það var Lomana Lua Lua sem skoraði sigurmark Portsmouth eftir að hafa komið inn sem varamaður, en liðið hefur enn ekki fengið á sig mark í úrvalsdeildinni. 16.9.2006 13:59
Chelsea á höttunum eftir hinum nýja Ronaldinho Enska úrvalsdeildarfélagið Chelsea er að sögn Sky-sjónvarpsstöðvarinnar að fylgjast mjög náið með brasilíska undrabarninu Anderson hjá Porto, en sá er aðeins 17 ára gamall og er almennt álitinn besti leikmaður Suður-Ameríku á sínum aldri. 15.9.2006 21:30
Orðaður við bandaríska landsliðið Sænski knattspyrnuþjálfarinn Sven-Göran Eriksson, sem lét af störfum sem landsliðsþjálfari Englendinga eftir HM í sumar, er nú orðaður við stöðu landsliðsþjálfara Bandaríkjanna. Fréttir frá Bandaríkjunum herma að Eriksson hafi átt fund með knattspyrnusambandinu þar í landi, en auk hans hafa þeir Jurgen Klinsmann og Jose Pekerman verið nefndir til sögunnar sem líklegir eftirmenn Bruce Arena. 15.9.2006 20:30
Zlatan verður ekki með Svíum gegn Íslendingum Framherjinn Zlatan Ibrahimovic verður ekki með landsliði Svía þegar það sækir okkur Íslendinga heim í undankeppni EM í byrjun næsta mánaðar. Zlatan átti fund með Lars Lagerback í gær og þar var ákveðið að hann yrði ekki með landsliðinu í október þegar það mætir Íslendingum og Spánverjum í riðlakeppninni. 15.9.2006 20:00