Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Pat Riley verður áfram með Miami Hinn sigursæli þjálfari Pat Riley, sem þjálfaði Miami Heat og stýrði liðinu til NBA meistaratitilsins í vor, hefur tilkynnt að hann muni þjálfa liðið áfram á næstu leiktíð. Riley hefur legið undir feldi í allt sumar og í dag gaf Miami út yfirlýsingu þar sem fram kemur að Riley verði áfram þjálfari liðsins. 23.8.2006 17:11
Federer gerir atlögu að þriðja titlinum í röð Tenniskappinn Roger Federer mun halda áfram að skrá nafn sitt á spjöld sögunnar næstkomandi mánudag þegar hann mætir Kínverjanum Wang Yeu-Tzuoo í fyrstu umferð opna bandaríska meistaramótsins. Federer gerir þar atlögu að því að vinna titilinn þriðja árið í röð, en það hefur aðeins þeim John McEnroe og Ivan Lendl tekist á síðustu áratugum. Mótið hefst á mánudag og stendur yfir til 10. september. 23.8.2006 17:00
Mourinho afar óhress með styrkleikaflokkana Jose Mourinho, stjóri Englandsmeistara Chelsea, segist ekki skilja í því hvernig standi á því að Chelsea lendi í öðrum styrkleikaflokki þegar dregið verði í riðla í meistaradeild Evrópu á morgun, á meðan lið sem Chelsea hefur skotið aftur fyrir sig í deildinni heimafyrir síðustu tvö ár, eru í fyrsta styrkleikaflokki. 23.8.2006 16:05
Sissoko verður frá í tvær vikur Talsmenn enska úrvalsdeildarliðsins Liverpool hafa staðfest að miðjumaðurinn Mohamed Sissoko verði frá keppni í að minnsta kosti tvær vikur eftir að hann var borinn af velli meiddur á hné í Evrópuleiknum gegn Maccabi Haifa í gærkvöldi. Þá varð varnarmaðurinn Stephen Warnock einnig fyrir nokkrum meiðslum í gær, en búist er við því að hann nái sér fyrr en félagi hans. 23.8.2006 16:02
Gatlin fær minnst fjögurra ára bann Forráðamenn alþjóða frjálsíþróttasambandsins hafa gefið það út að bandaríski spretthlauparinn Justin Gatlin muni þurfa að sitja af sér lágmark fjögur ár af þeim átta sem honum voru dæmd í gærkvöld fyrir að falla á lyfjaprófi í annað sinn á ferlinum. Enn á eftir að koma betur í ljós af hverju of hátt magn testósteróns mældist í Gatlin, en þó svo gæti farið að bannið yrði stytt eitthvað, mun hann alltaf þurfa að taka út lágmark fjögurra ára bann að sögn talsmann frjálsíþróttasambandsins. 23.8.2006 15:40
FIFA hótar að vísa Ítölum úr undankeppni EM Alþjóða knattspyrnusambandið, FIFA, hefur hótað að vísa ítalska landsliðinu út úr undankeppni EM 2008 ef forráðamenn Juventus láti ekki af endalausum áfrýjunum sínum á dómnum í knattspyrnuhneykslinu á Ítalíu. Forráðamenn Juventus eru enn að mótmæla því að liðið skuli hafa verið fellt niður um deild og nú er FIFA nóg boðið. 23.8.2006 15:33
Skorað fyrir gott málefni Landsbanki Íslands, aðalstyrktaraðili efstu deildar karla- og kvenna í knattspyrnunni hér á landi, hefur í tilefni af 120 ára afmæli sínu ákveðið að hrinda af stað verkefni sem kallað hefur verið "Skorað fyrir gott málefni." Bankinn ætlar að gefa veglega fjárhæð til styrktar hjartveikum börnum fyrir hvert skorað mark í næstu umferð karla- og kvennadeildarinnar. 23.8.2006 15:26
Domenech fundar með leikmönnum Raymond Domenech hefur boðað þá Liliam Thuram og Claude Makele á fund sinn þar sem hann ætlar að reyna að sannfæra þá um að halda áfram að spila með franska landsliðinu í undankeppni EM 2008. Thuram er leikjahæsti franski landsliðsmaðurinn í HM hópnum í sumar og Makelele hefur enn ekki gefið upp hvort hann gefi áfram kost á sér í landsliðið. Thuram er 34 ára gamall og spilar með Barcelona, en Makelele er 33 ára og spilar með Chelsea. 23.8.2006 15:00
Camara semur við Wigan Framherjinn Henri Camara hefur skrifað undir nýjan þriggja ára samning við enska úrvalsdeildarfélagið Wigan og er því samningsbundinn félaginu til ársins 2009. Ákvæði í gamla samningnum hans gaf til kynna að hann ætti rétt á nýjum og bættum samningi ef liðið héldi sæti sínu í úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð, en gamli samningurinn var til ársins 2008. Camara er frá Senegal og er 29 ára gamall. Hann skoraði 12 mörk í 30 leikjum fyrir Wigan á ótrúlegri fyrstu leiktíð félagsins í úrvalsdeildinni í fyrra. 23.8.2006 14:55
Valsmenn ætla sér stóra hluti Handknattleiksdeild Vals ætlar sér stóra hluti í karla- og kvennaflokki á næstu leiktíð og nú hefur félagið tilkynnt leikmannahópa sína í báðum flokkum fyrir veturinn. Landsliðsmaðurinn Markús Máni Michaelsson hefur sem kunnugt er ákveðið að snúa aftur á Hlíðarenda og þá hefur félagið gert samning við hinn efnilega Ernir Hrafn Arnarson. 23.8.2006 14:17
Anthony setti met í sigri Bandaríkjamanna Carmelo Anthony skoraði 35 stig þegar bandaríska landsliðið í körfubolta lagði sterkt lið Ítala 94-85 á HM í körfubolta í dag. Þetta var fjórði sigur Bandaríkjamanna í röð og tryggði sigurinn liðinu toppsætið í D-riðli. Enginn leikmaður hefur skorað jafn mörg stig og Anthony í landsleik fyrir Bandaríkin, en eldra metið átti Kenny Anderson þegar hann skoraði 34 stig fyrir landsliðið árið 1990. 23.8.2006 13:40
Gefur út yfirlýsingu í dag Enski landsliðsmaðurinn Owen Hargreaves mun í dag gefa út yfirlýsingu á blaðamannafundi hjá Bayern Munchen, þar sem allt eins er búist við því að hann fari fram á að verða seldur frá félaginu. Orðrómur er á kreiki um að leikmaðurinn hafi verið sektaður fyrir að halda því ítrekað fram í fjölmiðlum að hann vilji ganga í raðir Manchester United á Englandi, en hann er samningsbundinn þýska félaginu til ársins 2010. 23.8.2006 13:37
Ég á nóg inni Búlgarski framherjinn Dimitar Berbatov hjá Tottenham var ekki lengi að sýna hvað í honum bjó í gær þegar hann skoraði sitt fyrsta mark á White Hart Lane eftir aðeins sjö mínútur í leik gegn Sheffield United. Þessi mikli markahrókur segist eiga nóg inni. 23.8.2006 12:57
Markus Merk snýr aftur Þýski knattspyrnudómarinn Markus Merk hefur tilkynnt að hann ætli að halda áfram dómgæslu, en hann tók sér frí af persónulegum ástæðum eftir að hann náði sér alls ekki á strik við dómgæslu í riðlakeppninni á HM. Merk hefur almennt verið álitinn besti dómari Þjóðverja, en talið var að hann hefði íhugað að hætta alveg að dæma. Hann segir stuðning kollega sinna hafa orðið þess valdandi að hann ákvað að snúa aftur. 23.8.2006 12:53
Ronaldo á leið til AC Milan? Forráðamenn spænska félagsins Real Madrid munu í dag hitta kollega sína hjá AC Milan þar sem rætt verður um hugsanleg kaup ítalska félagsins á brasilíska framherjanum Ronaldo. AC Milan tryggði sér í gærkvöld sæti í riðlakeppni meistaradeildarinnar og eru forráðamenn félagsins nú að leitast við að styrkja leikmannahóp sinn. 23.8.2006 12:37
Gunnar Heiðar minnir á sig Gunnar Heiðar Þorvaldsson skoraði þrennu fyrir þýska úrvalsdeildarliðið Hannover í gærkvöldi þegar það burstaði lið Luneburg 7-0 í æfingaleik. Gunnar Heiðar hefur enn ekki fengið tækifæri með liðinu í úrvalsdeildinni, en Hannover er í neðsta sæti deildarinnar eftir tvær umferðir. 23.8.2006 12:32
Vona að FH misstígi sig enn frekar Baldur Sigurðsson er leikmaður 14. umferðar landsbankadeildar karla að mati Fréttablaðsins. Hann skoraði bæði mörk Keflavíkur í 2-1 sigri á Íslandsmeisturum FH og verið öflugur með liðinu í allt sumar. 23.8.2006 12:15
Gatlin í átta ára keppnisbann Ferill bandaríska spretthlauparans Justin Gatlin er líklega á enda runninn eftir að hinn 24 ára gamli heims- og Ólympíumeistari og heimsmethafi í 100 metra hlaupi var í kvöld dæmdur í 8 ára keppnisbann fyrir að hafa í apríl fallið á lyfjaprófi í annað sinn á ferlinum. Hann hefur verið sviptur heimsmeti sínu í 100 metra hlaupi sem hann átti ásamt Asafa Powell. 22.8.2006 21:38
Malbranque til West Ham? Breska sjónvarpið telur sig hafa heimildir fyrir því að enska úrvalsdeildarfélagið West Ham muni reyna að fá til sín franska miðjumanninn Steed Malbranque frá Fulham áður en félagaskiptaglugginn lokar um mánaðarmótin. Malbranque hefur verið settur út í kuldann hjá Fulham og hefur Chris Coleman knattspyrnustjóri þegar lýsti því yfir að hann muni aldrei aftur spila leik fyrir félagið. 22.8.2006 22:15
Maccabi er hörkulið Peter Crouch, hinn leggjalangi markaskorari Liverpool, sagði að leikmenn Maccabi Haifa hefðu ekki verið nein lömb að leika sér við eftir að liðin skildu jöfn í síðari leik sínum í forkeppni meistaradeildar Evrópu. 22.8.2006 21:30
Phillips farinn til West Brom Enska 1. deildarfélagið West Brom fékk liðsstyrk í dag þegar það keypti fyrrum landsliðsframherjann Kevin Phillips frá Aston Villa á 700 þúsund pund. Villa samþykkti einnig kauptilboð fyrrum félaga Phillips í Sunderland í leikmanninn, en hann kaus að ganga heldur til liðs við West Brom. Phillips er 33 ára gamall og hefur skrifað undir tveggja ára samning. 22.8.2006 21:21
Auðvelt hjá Tottenham Tottenham vann í kvöld góðan 2-0 sigur á nýliðum Sheffield United í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Dimitar Berbatov opnaði markareikning sinn fyrir Lundúnaliðið á 7. mínútu og Jermaine Jenas bætti við öðru markinu 10 mínútum síðar. Tottenham réði ferðinni lengst af en náði ekki að bæta við mörkum. Watford og West Ham skildu jöfn 1-1 með mörkum frá Marlon King og Bobby Zamora. 22.8.2006 20:51
Naumt hjá Liverpool Liverpool er komið í riðlakeppni meistaradeildar Evrópu eftir 1-1 jafntefli við ísraelska liðið Maccabi Haifa á hlutlausum velli í Kænugarði í kvöld. Liverpool vann því samanlagt 3-2. Peter Crouch kom enska liðinu yfir á 54 mínútu með góðum skalla en ísraelska liðið svaraði aðeins örfáum mínútum síðar. Lengra komust Maccabi-menn þó ekki og Liverpool slapp með skrekkinn. 22.8.2006 20:32
Tottenham yfir gegn Sheffield United Leikmenn Tottenham Hotspur eru að eiga nokkuð náðugan dag gegn Sheffield United í viðureign liðanna í ensku úrvalsdeildinni og hafa yfir 2-0 í leikhléi. Dimitar Berbatov skoraði sitt fyrsta mark fyrir Tottenham á 7. mínútu og Jermaine Jenas bætti öðru við aðeins 10 mínútum síðar. Robbie Keane átti stóran þátt í báðum mörkunum og nýliðarnir frá Sheffield virðast fá svör eiga við leik Lundúnaliðsins. 22.8.2006 19:53
Crouch kemur Liverpool yfir Peter Crouch hefur komið Liverpool yfir 1-0 gegn Maccabi Haifa í leik liðanna í Kænugarði, en hann skoraði með skalla á 54. mínútu eftir laglegan undirbúning frá Jermain Pennant. Liverpool er því komið í 3-1 samanlagt í einvígi liðanna og ætti að vera komið með annan fótinn áfram. Hægt er að fylgjast vel með stöðu mála í leikjum kvöldsins á úrslitaþjónustunni hér á Vísi. 22.8.2006 19:47
Jafnt í hálfleik í Kænugarði Staðan í leik Maccabi Haifa og Liverpool er 0-0 þegar flautað hefur verið til leikhlés í viðureign liðanna í forkeppni meistaradeildarinnar í Kænugarði. Þá hefur spænska liðið Osasuna yfir 1-0 gegn þýska liðinu Hamburger SV í sömu keppni og AC Milan náði forystunni snemma á útivelli gegn Rauðu Stjörnunni frá Belgrad. 22.8.2006 19:36
Reyes fer ekki til Real Madrid Arsene Wenger segir að ekkert verði af því fyrir lokun félagaskiptagluggans að Jose Antonio Reyes fari til Real Madrid eins og mikið hefur verið rætt um í fjölmiðlum undanfarnar vikur. Wenger segir að engin tilboð hafi borist frá spænska félaginu og því sé leikmaðurinn ekki að fara neitt. 22.8.2006 19:30
Breiðablik mætir Val í úrslitum Það verða bikarmeistarar Breiðabliks sem mæta Val í úrslitum Visabikarsins í knattspyrnu eftir að liðið vann 2-0 sigur á Fjölni á heimavelli sínum í Kópavogi í kvöld. Áður höfðu Valsstúlkur lagt Stjörnuna 2-1 og það verður því sannkallaður draumaúrslitaleikur í kvennaflokki í ár. Erna B. Sigurðardóttir og Edda Garðarsdóttir skoruðu mörk Blika í kvöld. 22.8.2006 19:29
Valur í úrslitaleikinn Valsstúlkur tryggðu sér í kvöld sæti í úrslitaleik Visabikarsins í knattspyrnu þegar þær lögðu Stjörnuna 2-1 í undanúrslitaleik á Valbjarnarvelli. Björk Gunnarsdóttir kom gestunum yfir í upphafi síðari hálfleiks, en þær Katrín Jónsdóttir og Rakel Logadóttur tryggðu Val sigurinn með mörkum um miðjan hálfleikinn. 22.8.2006 19:13
Gerrard á bekknum hjá Liverpool Leikur Maccabi Haifa og Liverpool í forkeppni meistaradeildar Evrópu hefst nú klukkan 18:30 og verður sýndur í beinni útsendingu á sjónvarpsstöðinni Sýn. Steven Gerrard er á varamannabekknum hjá Liverpool í Kænugarði. 22.8.2006 18:23
PSV samþykkir tilboð Blackburn í Ooijer Hollenska knattspyrnufélagið PSV Eindhoven hefur samþykkt kauptilboð enska úrvalsdeildarfélagsins Blackburn í hollenska landsliðsmanninn Andre Ooijer. Hann er 32 ára gamall og kaupverðið er sagt í kring um 2,1 milljón punda. Ooijer mun væntanlega skrifa undir tveggja ára samning við enska félagið fljótlega. 22.8.2006 17:45
Boumsong til Juventus Franski landsliðsmaðurinn Jean Alain Boumsong hefur gengið frá samningi við ítalska liðið Juventus. Newcastle er talið hafa fengið um 3,3 milljónir punda fyrir hinn 26 ára gamla miðvörð, sem aldrei náði sér á strik í ensku úrvalsdeildinni. 22.8.2006 17:30
Leikur Vals og Stjörnunnar að hefjast Leikur Vals og Stjörnunnar í undanúrslitum Visa-bikarsins í kvennaflokki er nú hafinn á Valbjarnarvelli og klukkan 17:30 hefst hin undanúrslitaviðureignin, en þar eigast við Breiðablik og toppliðið í fyrstu deild, Fjölnir. 22.8.2006 17:03
Stjarnan fer til Króatíu Í dag var dregið íum hvaða lið mætast í fyrstu umferðum Evrópukeppni félagsliða og bikarhafa í handbolta. Bikarmeistarar Stjörnunnar mæta Agram Medvescak frá Zagreb í annari umferð Evrópukeppni bikarhafa og Haukar úr Hafnarfirði mæta annað hvort rúmenska liðinu HCM Constanta eða ítalska liðinu Conversano. Fyrri leikir íslensku liðanna fara fram ytra um mánaðarmótin september/október. 22.8.2006 16:30
Enska knattspyrnusambandið kærir Fulham Enska úrvalsdeildarfélagið Fulham hefur fengið á sig kæru frá enska knattspyrnusambandinu fyrir að hafa ekki hemil á stuðningsmönnum sínum í sigurleiknum gegn Chelsea á Craven Cottage þann 19. mars síðastliðinn. Mikill hiti var í leikmönnum í viðureign liðanna og sömu sögu var að segja eftir að flautað var af, því þá ruddust stuðningsmenn beggja liða inn á völlinn. Fulham fær frest til 5. september til að svara fyrir sig í málinu. 22.8.2006 15:55
Smith í góðu formi í gær Framherjinn Alan Smith spilaði 66 mínútur með varaliði Manchester United í gær þegar það burstaði Preston 7-2. Smith sagðist allur vera koma til eftir leikinn og ætlar að spila einn eða tvo varaliðsleiki í viðbót áður en hann snýr aftur í aðalliðiði. Talið er að Smith gæti jafnvel komið inn í leikmannahóp United fyrir leikinn gegn Tottenham þann 9. september, en aðeins 185 dagar eru síðan hann fótbrotnaði mjög illa í leik gegn Liverpool. 22.8.2006 15:51
Ítalir, Grikkir og Tyrkir áfram Ítalir, Grikkir og Tyrkir tryggðu sér í dag sæti í 16-liða úrslitunum á HM í körfubolta sem fram fer í Japan. Áður höfðu Bandaríkjamenn tryggt sæti sitt þar, en öll fjögur liðin hafa unnið sigra í þremur fyrstu leikjum sínum á mótinu. 22.8.2006 15:27
Phillips á förum frá Villa Fyrrum landsliðsmaðurinn Kevin Phillips er á förum frá enska úrvalsdeildarfélaginu Aston Villa, en félagið hefur samþykkti kauptilboð frá 1. deildarfélögunum Sunderland og West Brom í framherjann. Phillips lék á sínum tíma með Sunderland, en Bryan Robson segist viss um að hann geti sannfært hann um að ganga í raðir West Brom. 22.8.2006 15:00
Maccabi - Liverpool í beinni á Sýn í kvöld Síðari leikur Maccabi Haifa og Liverpool í forkeppni meistaradeildar Evrópu verður sýndur beint á Sýn í kvöld klukkan 18:25. Leikurinn verður spilaður í Kænugarði í Úkraínu vegna eldfims ástands sem ríkir í Ísrael þessa dagana, en enska liðið hefur nauma 2-1 forystu eftir fyrri leikinn og þarf því að halda vel á spöðunum í kvöld. 22.8.2006 14:20
Todd fer ekki í leikbann Varnarmaðurinn Andy Todd fer ekki í leikbann með liði sínu Blackburn í ensku úrvalsdeildinni eftir að hann fékk rauða spjaldið sem hann fékk gegn Portsmouth um helgina dregið til baka eftir áfrýjun. Todd var sendur af velli fyrir að hafa brotið á framherjanum Kanu hjá Portsmouth, en dómurinn þótti afar strangur. Ástralski landsliðsmaðurinn Lucas Neill fékk einnig að líta rauða spjaldið fyrir brot á Kanu í sama leik. 22.8.2006 14:17
Bayern hótar að kæra Man Utd Forráðamenn Þýskalandsmeistara Bayern Munchen hafa nú fengið sig fullsadda af sápuóperunni í kring um enska landsliðsmanninn Owen Hargreaves og hafa nú hótað að kæra Manchester United til FIFA ef félagið hættir ekki að lýsa yfir áhuga sínum á að kaupa leikmanninn. Hargreaves er samningsbundinn Bayern til ársins 2010. 22.8.2006 14:11
Wenger hefur gert tilboð í Gallas Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, segir að hann sé búinn að gera tilboð í franska varnarmanninn William Gallas hjá Chelsea, en segir engan botn vera kominn í mál Ashley Cole. Wenger segir jafn líklegt að hann verði áfram í herbúðum Arsenal eins og hann fari til Chelsea. 22.8.2006 14:03
Inter samþykkir tilboð Newcastle Ítölsku meistararnir Inter Milano hafa samþykkt 10 milljón punda tilboð enska úrvalsdeildarfélagsins Newcastle í sóknarmanninn Obafemi Martins og að sögn stjórnarformanns Newcastle er það nú alfarið í höndum hins 21 árs gamla framherja að klára að semja um kaup og kjör svo af félagaskiptum hans geti orðið. 22.8.2006 13:52
Auðvelt hjá Bandaríkjamönnum Bandaríkjamenn tryggðu sér í dag sæti í 16-liða úrslitunum á HM í körfubolta þegar þeir lögðu Slóvena nokkuð örugglega í Sapporo 114-95. Sigur Bandaríkjamanna var aldrei í hættu í dag en á morgun mætir liðið sterku liði Ítala sem er taplaust í keppninni til þessa. Dwyane Wade var stigahæstur Bandaríkjamanna með 20 stig, LeBron James skoraði 19 stig og Elton Brand skoraði 16 stig. 22.8.2006 13:28
Speed framlengir hjá Bolton Miðjumaðurinn Gary Speed hefur framlengt samning sinn við enska úrvalsdeildarfélagið Bolton um tvö ár. Speed er 36 ára gamall fyrrum landsliðsmaður Wales og kom til Bolton frá Newcastle fyrir tveimur árum. Sam Allardyce segist mjög ánægður með ákvörðun Speed að vera áfram hjá félaginu og segir hann koma með ómetanega reynslu inn í leikmannahóp liðsins. 21.8.2006 21:15