Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Franck Ribery í byrjunarliði Frakka Þjálfari Frakka Raymond Domenech hefur tilkynnt lið sitt fyrir leikinn á móti Svisslendingum. Uppstillingin er nákvæmlega eins og franska blaðið L'Equipe greindi frá í dag. 12.6.2006 22:11
Ítalir eru til alls líklegir eftir 2-0 sigur Leik Ítalíu og Gana er lokið með 2-0 sigri Ítalíu. Það var Adrea Pirlo sem kom Ítölum yfir á 40. mínútu með góðu skoti fyrir utan vítateig. Vincenzo Iaquinta skoraði seinna markið á 83. mínútu. 12.6.2006 20:55
Markalaust í Árbænum Nú er kominn hálfleikur í viðureign Fylkis og Keflavíkur í Landsbankadeild karla í knattspyrnu, en hvorugu liðinu hefur tekist að skora enn sem komið er. Þá er hinn margfrestaði leikur ÍBV og KR einnig hafinn í Vestmannaeyjum. 12.6.2006 20:07
Ítalir yfir gegn Gana Ítalir hafa yfir 1-0 gegn Gana í hálfleik í viðureign liðanna í e-riðli HM. Það var miðjumaðurinn Andrea Pirlo sem skoraði mark ítalska liðsins á 40. mínútu með glæsilegu langskoti utan teigs. Ítalska liðið hefur nokkuð óvænt boðið upp á skemmtilegan sóknarbolta, en Ganamenn eru þó enn til alls líklegir. 12.6.2006 20:02
1-0 fyrir Ítalíu í hálfleik Það er hálfleikur í leik Ítalíu og Gana á HM. það var Andrea Pirlo sem það skoraði á 40. mínútu með þrumuskoti fyrir utan vítateig eftir sendingu frá Francesco Totti. Ítalir hafa verið sterkara liðið á vellinum. 12.6.2006 19:42
Ítalía - Gana að hefjast Seinni leikur dagsins í e-riðlinum á HM er nú að hefjast og þar er á ferðinni mjög athyglisverður leikur Ítalíu og Gana. Byrjunarliðin eru klár og ítalska liðið getur aftur teflt fram Rómverjanum Francesco Totti sem er stiginn upp úr erfiðum meiðslum. 12.6.2006 18:32
Totti byrjar Kl. 19:00 hefst leikur Ítala og Ganamanna. Þetta gæti orðið spennandi leikur. Það er alltaf búist við miklu af Ítölum en þeir misstigu sig illilega í síðustu keppni. Ganamenn eru stórt spurningarmerki og þeir koma eflaust til þess að reiða sig mikið á dýrasta Afríska knattspyrnumann allra tíma Micheal Essien. Athygli vekur að Francesco Totti er í byrjunarliði Ítala en hann hefur verið meiddur lengi. 12.6.2006 18:26
Shaquille O´Neal sektaður Miðherjinn Shaquille O´Neal hjá Miami Heat hefur verið sektaður um 10.000 dollara fyrir að veita ekki viðtöl eftir tapleikinn gegn Dallas í nótt. Dallas vann leikinn örugglega og hefur náð 2-0 forystu í einvíginu um NBA meistaratitilinn, en O´Neal átti sinn versta leik á ferlinum í úrslitakeppni í gær. 12.6.2006 18:21
Theo Walcott meiddur Táningurinn Theo Walcott hefur ekki geta æft með enska landsliðinu undanfarna daga vegna meiðsla og því er að verða fátt um fína drætti í framlínu enska landsliðsins. Michael Owen lék aðeins rúmar 50 mínútur í fyrsta leiknum og Wayne Rooney er enn meiddur eins og flestir vita. Peter Crouch er því í raun eini brúklegi framherji enska liðsins sem stendur og ekki laust við að menn setji spurningarmerki við val Sven-Göran Eriksson á landsliðshópnum. 12.6.2006 18:13
Einbeitingarleysi okkar kostaði tap Zico, hinn brasilíski þjálfari japanska landsliðsins, segir að hitinn á Fritz Walter-vellinum í dag og einbeitingarleysi leikmanna sinna, hafi kostað sína menn sigurinn. 12.6.2006 18:00
Joe Cole skrifar undir nýjan samning Enski landsliðsmaðurinn Joe Cole undirritaði í dag nýjan fjögurra ára samning við Englandsmeistara Chelsea. Cole er 24 ára gamall og var einn af fyrstu leikmönnunum sem Roman Abramovich keypti til liðsins í stjórnartíð Claudio Ranieri. Honum gekk illa að vinna sér sæti í liðinu framan af, en er nú orðinn einn af lykilmönnunum í liði Jose Mourinho. 12.6.2006 17:54
Öruggur sigur Tékka Tékkar unnu öruggan 3-0 sigur á Bandaríkjamönnum í e-riðli HM í dag. Jan Koller skoraði fyrsta markið með glæsilegum skalla á 5. mínútu, en þurfti síðar að fara meiddur af velli. Tomas Rosicky, leikmaður Arsenal, skoraði annað markið með stórglæsilegu skoti á 36. mínútu og innsiglaði svo sigurinn í síðari hálfleik með öðru marki sínu. 12.6.2006 17:49
Frábær fyrri hálfleikur hjá Tékkum Tékkar hafa sannarlega verið í essinu sínu í fyrri hálfleik gegn Bandaríkjamönnum í leik liðanna í e-riðli. Risinn Jan Koller kom liðinu yfir eftir aðeins 5 mínútur og Tomas Rosicky bætti við öðru marki á 36. mínútu með stórkostlegu langskoti. Tékkar urðu svo fyrir áfalli skömmu fyrir leikhlé þegar Koller var borinn af velli meiddur á læri og svo gæti farið að hann væri því búinn að spila sinn fyrsta og síðasta leik fyrir Tékka í keppninni. 12.6.2006 16:41
Aldrei eitt núll framar! Loksins, hefðbundinni 1-0 hm jarðarför, þar sem leikurinn fjarar út í leiðindum, var snúið til betri vegar, Tim Cahill jarðsetti Japani með tveimur mörkum með fimm mínútna millibili. Þvílíkur snillingur, þótt hann spili með Everton. Ég var orðin vondaufur þegar 20 mínútur voru liðnar af seinni hálfleik, þetta verður enn eitt eitt núll svekkelsið, en ekki aldeilis. 12.6.2006 16:33
Getum vonandi strítt Englendingum Stern John verður einn í framlínu Trinidad og Tobago þegar liðið tekur á móti Englendingum í Nurnberg á fimmtudaginn. Trinidad er þegar orðið eitt af spútnikliðunum í keppninni eftir jafntefli við Svía. 12.6.2006 16:33
Við unnum verðskuldað Guus Hiddink, þjálfari Ástrala, sagði sigur sinna manna á Japan í f-riðli hafa verið fyllilega verðskuldaðan í dag. "Það var eins gott fyrir dómarann að við höfðum sigur, því honum hefði ekki liðið vel ef við hefðum tapað, því hann hefði aldrei átt að leyfa marki Japana að standa. Lið mitt sýndi styrk sinn í dag og gefst aldrei upp, enda er það sá hlutur sem mér þykir vænst um við þetta lið," sagði Hiddink. 12.6.2006 15:48
Leikur Tékka og Bandaríkjamanna að hefjast Nú styttist í að leikur Tékka og Bandaríkjamanna í e-riðli HM hefjist og búið er að tilkynna byrjunarliðin. Milan Baros, leikmaður Aston Villa, er ekki í byrjunarliði Tékka vegna meiðsla og því verður hinn stóri Jan Koller einn í framlínunni. Brian McBride hjá Fulham er í framlínunni hjá Bandaríkjamönnunum. 12.6.2006 15:35
Pfister snýr aftur á bekkinn Hinn þýski Otto Pfister hefur nú hætt við að hætta að þjálfa landslið Tógó á HM og mun stýra liðinu gegn Suður-Kóreu á morgun. Pfister hætti um helgina eftir að launadeila kom upp milli leikmanna og knattspyrnusambandsins, en hefur nú snúið aftur eftir að hann fékk bréf frá forseta knattspyrnusambandsins sem bað hann að endurskoða ákvörðun sína. 12.6.2006 15:16
Frábær sigur Ástrala Ástralir unnu dramatískan sigur á Japönum í opnunarleik f-riðilsins á HM í dag. Shunsuke Yakamura kom Japan yfir í fyrri hálfleik þegar fyrirgjöf hans skoppaði í net Ástrala, en varamaðurinn Tim Cahill var hetja liðsins og skoraði tvö mörk á fimm mínútum í lokin. John Aloisi bætti svo við þriðja markinu í uppbótartíma. 12.6.2006 15:05
Roy Keane leggur skóna á hilluna Knattspyrnugoðsögnin Roy Keane hjá Glasgow Celtic hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna vegna þrálátra meiðsla á mjöðm. Keane gerði garðinn frægan hjá Manchester United lengst af á ferlinum og vann alla titla þá titla sem knattspyrnumanni standa til boða með liðinu. Keane verður minnst sem eins af betri leikmönnum í sögu Manchester United og ensku úrvalsdeildarinnar. 12.6.2006 13:24
Leikmenn Englands óánægðir með skiptingarnar Leikmenn enska landsliðsin voru síður en svo ánægðir með skiptingarnar sem að Sven Göran Erikson gerði í leiknum gegn Paragvæ á föstudaginn. Leikmennirnir voru bæði hissa og ráðvilltir yfir ákvörðunum Sven Görans og sást það greinilega í andlitum þeirra þegar skiptingarnar áttu sér stað. 12.6.2006 12:45
Keane leggur skóna á hilluna Roy Keane hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna en hann hefur átt í erfiðleikum með að hrista af sér meiðsli á mjöðm sem hafa verið að hrjá hann á undanförnu tímabili. 12.6.2006 12:41
Athyglisverðir leikir á dagskrá Þrír leikir eru á dagskrá á HM í dag. Ástralía spilar við Japan klukkan 13.00. Klukkan 16.00 mætast svo Tékkar og Bandaríkjamenn. Dagurinn endar svo með leik Ítalíu og Ghana klukkan 19.00. 12.6.2006 10:28
Dallas valtaði yfir Miami Flestir bjuggust við að annar leikur Dallas Mavericks og Miami Heat í úrslitarimmu NBA deildarinnar yrði æsispennandi, en annað átti sannarlega eftir að koma á daginn. Dallas-liðið var betra á öllum sviðum leiksins í nótt og vann auðveldan 99-85 sigur og hefur náð 2-0 forystu í einvíginu. 12.6.2006 05:41
Figo, þú sem ert á himnum Ég sé hálfvegis eftir því að hafa talað heldur illa um Louis Figo í 442 á Sýn í kvöld, reyndar ekki mjög illa, en við hverju býst maður af sjálfum Frelsaranum, sem steig upp til himna hjá Barcelona, en féll svo í neðra þegar hann fór til Real Madrid. Hann er án efa einn af þeim allra bestu. 12.6.2006 00:03
Dallas - Miami í beinni á Sýn í kvöld Annar leikur Dallas Mavericks og Miami Heat í lokaúrslitum NBA deildarinnar í körfubolta fer fram í Dallas í kvöld. Dallas vann fyrsta leikinn á fimmtudag og eftir leik kvöldsins færist einvígið til Flórída, þar sem næstu þrír leikir fara fram. Leikur kvöldsins verður í beinni útsendingu á Sýn í kvöld og hefst klukkan eitt eftir miðnætti. 11.6.2006 21:45
FH tapaði fyrstu stigum sínum á Kópavogsvelli Íslandsmeistarar FH töpuðu sínum fyrstu stigum í Landsbankadeildinni í sumar þegar liðið varð að gera sér að góðu 1-1 jafntefli gegn skipulögðum Blikum í Kópavogi. Daði Lárusson kom heimamönnum yfir með sjálfsmarki um miðbik leiksins, en Tryggvi Guðmundsson jafnaði fyrir gestina á 70. mínútu. Skömmu síðar var Guðmundi Sævarssyni vikið af leikvelli og meistararnir töpuðu þar með sínum fyrstu stigum á leiktíðinni. 11.6.2006 21:04
Portúgalar lögðu Angóla Portúgalar lögðu Angóla 1-0 í lokaleik dagsins í d-riðlinum á HM. Það var Pauleta sem skoraði markið strax í upphafi, en hafi einhver haldið að framhaldið byði upp á markasúpu, átti annað eftir að koma á daginn. Portúgalar og Mexíkóar eru því komnir með 3 stig á toppi riðilsins, en Mexíkó lagði Íran 3-1 fyrr í dag. 11.6.2006 20:51
Hollendingar hvað? Serbarnir voru hálfvolgir í seinni hálfleik, en aldrei sérlega hættulegir og því miður, þegar hægri bakvörðurinn fær gult spjald fyrir að tefja, þá er hart í ári, alger óþarfi, Hollendingar eiga að gera það sem þeir gera best, sækja, sækja, sækja, og spila. 11.6.2006 20:36
Blikar yfir gegn FH Nú er kominn hálfleikur í viðureign Breiðabliks og FH í Landsbankadeildinni og hafa heimamenn nokkuð óvænt 1-0 forystu. Það var enginn annar en Daði Lárusson, markvörður FH, sem skoraði markið sem skilur liðin að, þegar hann sló knöttinn í eigið net eftir hornspyrnu Blika. Íslandsmeistararnir hafa verið meira með knöttinn í hálfleiknum, en Blikar leika skipulagðan varnarleik. 11.6.2006 20:04
Portúgal yfir í hálfleik Portúgalar hafa yfir 1-0 gegn Angóla þegar flautað hefur verið til leikhlés í viðureign liðanna í d-riðlinum á HM. Það var Pauleta sem skoraði mark portúgalska liðsins strax á 4. mínútu, en Portúgalarnir hafa verið mun sterkari í hálfleiknum. 11.6.2006 19:48
Powell jafnaði heimsmetstímann Spretthlauparinn Asafa Powell jafnaði heimsmet sitt og Justin Gatlin í 100 metra hlaupi í Gateshead á Englandi í dag þegar hann hljóp vegalengdina á 9,77 sekúndum. Þetta er í annað sinn á rúmu ári sem Powell nær þessum tíma og er einvígi þeirra tveggja þann 28. júlí nk því beðið með gríðarlegri eftirvæntingu. 11.6.2006 19:22
Portúgalskt mark eftir aðeins fjórar mínútur Það stefnir í langt og erfitt kvöld fyrir Angólamenn því Portúgalar eru komnir í 1-0 eftir aðeins fjórar mínútur í leik þjóðanna í D-riðli HM í knattspyrnu. Markið skoraði Pauleta eftir frábæran undirbúning Luis Figo en Pauleta var líka kominn einn í gegn eftir aðeins 15 sekúndur. Portúgalir eru líklegir til þess að skora mörg mörk í þessum leik haldi þeir áfram af sama krafti það sem eftir er leiksins. 11.6.2006 19:03
Þórður Þorgeirsson sigraði A flokk gæðinga á úrtökumóti Geysis Þórður Þorgeirsson sigraði A flokk gæðinga á úrtökumóti Geysis, Sindra, Smára og Loga sem fram fór um helgina með 8,60 í einkunn. Ævar Örn Guðjónsson varð í öðru sæti á Bergþóri frá Feti með 8,48. Ísleifur Jónasson sigraði B flokk á Röðli frá Kálfholti með 8,78 og Árni Björn Pálsson hafnaði í öðru sæti á Tign frá Teigi ll með einkunina 8,59. Maríanna Magnúsdóttir sigraði Ungmennaflokk með einkunina 8,43 á Tý frá Þúfu og Helga Björk Helgadóttir varð í öðru sæti á Eydísi frá Djúpadal með 8,43. 11.6.2006 18:39
Heldur sigurganga Íslandsmeistara FH áfram? Íslandsmeistarar FH mæta nýliðum Breiðabliks á Kópavogsvelli klukkan 19.15 í sjöttu umferð Landsbankadeild karla og geta með sigri náð átta stiga forustu á toppi deildarinnar. Með sigri mun FH-liðið, fyrst allra liða í sögu tíu liða efstu deildar karla, ná annað árið í röð 18 stigum af 18 mögulegum í fyrstu sex umferðum Íslandsmósins. Blikar reyna hinsvegar að enda þriggja leikja taphrinu sína. 11.6.2006 18:35
Nauðsynlegt að vinna fyrsta leikinn Portúgalar taka á móti Angóla í lokaleik dagsins á HM í Þýskalandi. Þetta er seinni leikur dagsins í D-riðli en Mexíkó vann Íran 3-1 fyrr í dag í sama riðli. Leikurinn hefst klukkan 19.00 og er í beinni útsendingu á Sýn. Þjálfari Portúgala Luis Felipe Scolari segir nauðsynlegt að liðið vinni fyrsta leikinn. 11.6.2006 18:26
Ennþá ósigraðir undir stjórn Marco Van Basten Hollendingar hafa ekki tapað alvöru landsleik undir stjórn Marco Van Basten. Hollenska liðið sem vann Serbíu og Svartfjallaland 1-0 í fyrsta leik sínum á HM í Þýskalandi, hefur nú spilað 13 leiki undir stjórn Van Basten í undan- og úrslitakeppni HM, unnið 11 og gert 2 jafntefli. Markatalan í þessum 13 leikjum er 28-3 Hollendingunum í vil. 11.6.2006 18:02
Mexíkóbúar unnu Írani með tveimur mörkum Mexíkó vann Íran 3-1 í fyrsta leik D-riðils á HM í Þýskalandi en Mexíkóbúar tryggðu sér sigurinn með tveimur mörkum á síðustu 15 mínútum leiksins. Omar Bravo skoraði tvö marka Mexíkó í leiknum og var valinn maður leiksins en varamaðurinn Antonio Zinha átti þó mikinn þátt í sigrinum því hann kom inn á í hálfleik, lagði upp seinna mark Bravo og skoraði síðan þriðja markið sem innsiglaði sigurinn. 11.6.2006 17:52
Vorum búnir að skoða Svíana mun betur en þeir okkur "Þetta var frábær leikur hjá okkur. Við vorum greinilega búnir að skoða Svíana mun betur en þeir okkur. Það var mjög gott fyrir okkur að fá mjög erfiða leiki á móti Dönunum því við gátum unnið mjög mikið úr mistökunum sem við vorum að gera þar," sagði þjálfarinn Alfreð Gíslason í viðtali við Geir Magnússon í útsendingu RÚV strax eftir 32-28 sigur íslenska handboltalandsliðsins á Svíum í fyrri umspilsleik þjóðanna um sæti á HM í Þýskalandi 2007. 11.6.2006 17:46
Á eftir að ráðast á síðustu mínútunum í Höllinni "Þetta var frábært og ég er mjög sáttur. Vörnin var frábær, Birkir í markinu var líka flottur og nýtingin í sókninni var góð og það gekk eigilega allt upp hjá okkur," sagði fyrirliðinn Ólafur Stefánsson fyrir íslenska handboltalandsliðsins í viðtali við Geir Magnússon í útsendingu RÚV strax eftir leik. Ísland vann glæsilegan fjögurra marka sigur, 32-28, og er í góðum málum fyrir seinni leikinn um næstu helgi. 11.6.2006 17:22
Tölfræðin úr sigrinum glæsilega á Svíum Íslenska landsliðið vann stórglæsilegan fjögurra marka sigur á Svíum, 32-28, í Globen í dag en þetta var fyrri umspilsleikur þjóðanna um sæti á HM í Þýskalandi 2007. Íslenska landsliðið vann síðustu ellefu mínútur leiksins 8-2 þar sem Einar Hólmgeirsson skoraði fjögur af sex mörkum sínum í leiknum. Snorri Steinn Guðjónsson var markahæstur með 7 mörk þar af 5 úr vítum. 11.6.2006 17:01
Frábær sigur á Svíum Íslenska karlalandsliðið í handknattleik vann frækinn sigur á Svíum á útivelli í dag 32-28 og er því komið í vænlega stöðu fyrir síðari leikinn sem verður hér heima á þjóðhátíðardaginn. Sigurvegarinn í einvígi liðanna tryggir sér sæti á HM í Þýskalandi sem fram fer á næsta ári. Snorri Steinn Guðjónsson var markahæstur með 7 mörk og Einar Hólmgeirsson skoraði 6 mörk. 11.6.2006 16:38
Nadal lagði Federer í úrslitum Spænski tennisleikarinn Rafael Nadal sigraði Roger Federer í úrslitum Opna franska meistaramótsins í dag 1-6, 6-1, 6-4 og 7-6 og eyðilagði þar með draum Federer um að hreppa alla fjóra stóru titlana. Nadal hefur því unnið alla 14 leikina sem hann hefur spilað á Roland Garros á ferlinum. 11.6.2006 16:26
Aftur frestað í Eyjum Leik ÍBV og KR í Landsbankadeild karla sem fara átti fram á Hásteinsvelli í dag, hefur enn á ný verið frestað vegna ófærðar. Leikurinn hefur verið færður þangað til annað kvöld klukkan 19:15. 11.6.2006 16:21
KR-ingar á eftir fyrsta deildarsigrinum í Eyjum síðan 1997 Leikur ÍBV og KR í 6. umferð Landsbankadeild karla í knattspyrnu, sem var frestað í gær vegna þess að ekki var hægt að fljúga til Vestmannaeyja, hefur verið settur á klukkan 19:15 á morgun á Hásteinsvellinum. KR-ingar hafa ekki unnið deildarleik í Eyjum síðan 1997 og Eyjamenn eru án sigurs í síðustu fjórum leikjum sínum í Landsbankadeildinni. 11.6.2006 16:00