Fleiri fréttir

Der ball ist rund!

Þetta er einföld heimspeki Þjóðverja þegar kemur að því að skilgreina fótbolta: Boltinn er hnöttóttur, der ball ist rund, og jájá. Ellefu leikmenn í hvoru liði, sæmilegur dómari og svo verður þetta að ráðst útfrá lögmálum boltans og bestu leikmanna. Öll liðin eru komin til Þýskalands og bíða nú dauða síns, fer eftir því hver fyrsti leikur er, en samt, þrír leikir og svo er eilífðin framundan.

Cisse missir af HM

Franski framherjinn Djibril Cisse hjá Liverpool tekur ekki þátt í heimsmeistaramótinu með Frökkum. Þetta kom í ljós í kvöld eftir að Cisse var borinn meiddur af velli í æfingaleik gegn Kína og í ljós kom að hann er fótbrotinn á hægri fæti. Ekki er langt síðan Cisse fótbrotnaði illa í leik með Liverpool, en þá var um að ræða vinstri fót hans. Talið er að annað hvort Nicolas Anelka eða Ludovic Giuly muni leysa Cisse af hólmi í landsliðinu.

Rooney með á HM

Talið er nær öruggt að Wayne Rooney muni spila með Englendingum á HM. Á vef BBC Sport er sagt að Rooney hafi unnið kapphlaupið um að komast á HM, og að hann sé nú á leiðinni til Þýskalands.

Öruggur um að komast alla leið

Leikmaður Brasilíu Roberto Carlos segir að Brasilía hafi alltaf komist í úrslitaleikinn á HM, er hann hefur spilað með liðinu. Leikmaðurinn sem oft er mjög sjálfsöruggur sagði einnig að Brasilía myndi hræða Króata er Brassar hefja titilvörn sína á HM.

Englendinga skortir skynsemi

Jens Lehmann, markvörður Arsenal og þýska landsliðsins segir að Englendinga skorti skynsemi til að ná langt á stórmóti. Þessar tvær þjóðir gætu mæst í annarri umferð á heimsmeistaramótinu.

Stefnir á að koma Englandi á óvart

Roque Santa Cruz sem er framherji hjá Bayern Munchen ætlar ásamt liði sínu, Paragvæ, að koma Englendingum verulega á óvart með því að sigra þá í opnunarleik þjóðanna á HM.

Terry vill gullbikar og ekkert minna á HM

John Terry segir að leikmenn enska liðsins séu vanir því að vinna bikara með félagsliðum sínum en þeir eru allir úr silfri og að nú sé kominn tími á að taka alvöru bikar úr gulli með því að sigra HM.

Beckham á leið á Old Trafford?

Svo gæti farið að enski landsliðsmaðurinn David Beckham léki aftur á Old Trafford fljótlega, en fréttir herma að forráðamenn gamla félagsins hans, Manchester United, hafi boðið Real Madrid að spila við sig æfingaleik í fyrstu vikunni í ágúst, þegar ný viðbygging vallarins verður formlega tekin í notkun.

Fylgjast vel með fótboltabullum

Sérsveitir bresku og þýsku lögreglunnar hafa fylgjast náið með fótboltabullum á vikunum fyrir HM og hefur breska lögreglan gripið til þess ráðs að meina þekktum ólátabelgjum að fara úr landi. Sérsveit bresku lögreglunnar er með skrá yfir 3300 menn sem eru á svarta listanum og vel hefur gengið að beina þeim frá Þýskalandi.

Spánverjum lofað risabónusum

Allir leikmenn sem spila á HM sem hefst á föstudag eiga von á ríkulegum bónusum ef liði þeirra gengur vel í keppninni. Breska blaðið Daily Mail greinir frá því að leikmenn spænska landsliðsins eigi von á ríkulegustu bónusunum ef liðið vinnur keppnina og heldur því fram að hver leikmaður spænska liðsins muni fá yfir 400.000 pund fyrir sigur.

Sigurganga Nadal heldur áfram

Spænski tenniskappinn Rafael Nadal heldur sigurgöngu sinni áfram á leirnum og í dag vann hann sigur á Novak Djokovic, eftir að sá síðarnefndi hætti keppni vegna meiðsla. Þetta var 58. sigur Nadal í röð á leirvelli og á hann titil að verja á mótinu. Hann mætir Ivan Ljubicic í undanlúrslitum mótsins á föstudaginn.

Robert Huth á leið til Boro

Þýski varnarmaðurinn Robert Huth hjá Chelsea er á leið til Middlesbrough og gæti gengið frá samningi við félagið um helgina að sögn umboðsmanns hans. Huth hefur verið á tréverkinu hjá Chelsea allar götur síðan hann gekk til liðs við félagið og vildi breyta til.

300% viss um að spila á HM

Enski landsliðsframherjinn Wayne Rooney fór í myndatöku í dag sem væntanlega mun skera endanlega úr um möguleika hans til að vera með á HM sem hefst á föstudaginn. Rooney sjálfur er mjög bjartsýnn og segist raunar vera 300% viss um að geta verið með í keppninni.

Southgate tekur við Middlesbrough

Gareth Southgate hefur verið ráðinn knattspyrnustjóri enska úrvalsdeildarliðsins Middlesbrough, þrátt fyrir að hafa ekki til þess tilskilin leyfi. Forráðamenn félagsins vonast eftir því að fá undanþágu fyrir hann í kjölfar þess að félagið leyfði Steve McClaren að taka við enska landsliðinu þó hann væri samningsbundinn Boro.

Með sama bílstjóra og Eros Ramazotti

Þorsteinn J er kominn til Þýskalands þar sem allir hafa skoðun á HM. Tyrkneski leigubílstjórinn sem keyrði Þorstein og félaga vissi heldur betur hvað væri í gangi. Hann sagði Kosta Ríkamenn með samsæri gegn Þjóðverjum og að Íranar væru með skuggalegt lið. Lesið nýjustu bloggfærslu Þorsteins hér á HM-vefnum.

Alfreð þegar búinn að gera betur en Viggó og Guðmundur

Alfreð Gíslason er þegar búinn að gera betur en fyrirrennarar hans í landsliðsþjálfarastólnum, Viggó Sigurðsson og Guðmundur Guðmundsson. Íslenska landsliðið vann Danmörku 34-33 í fyrsta leik Alfreðs í KA-húsinu í gær en fyrsti leikurinn undir stjórn Viggós tapaðist, 28-29, fyrir Þjóverjum og íslenska landsliðið gerði 21-21 jafntefli við Hollendinga í fyrsta leiknum undir stjórn Guðmundar Guðmundssonar.

Rooney sannfærður um að allt fari vel í dag

Wayne Rooney, landsliðsmaður Englands er sannfærður um að þegar hann í dag fer í lokarannsókn og segir til um hvort hann spili á HM eða ekki að hann nái í gegn og spili með enska liðinu á HM sem byrjar eftir tvo daga. Leikmaðurinn hefur verið frá vegna meiðsla síðan í enda apríl en hann meiddist í leik gegn Chelsea í ensku deildinni. England á að spila sinn fyrsta leik á laugardaginn gegn Paragvæ.

Poll ætlar að verða harður á HM

Graham Poll, milliríkjadómari frá Englandi sem mun dæma á HM sem byrjar í vikunni segir að hann ætli að vera með skýra og harða línu í dómgæslu sinni. Hann segir að hart verði tekið á leikmönnum sem eru að fara viljandi í menn bara til að brjóta á þeim.

Kewell allur að koma til

Kewell meiddist á ökkla í sigri Liverpool í úrslitaleik FA Cup keppninnar í seinasta mánuði og hafa þau verið að plaga hann síðan. Kewell, sem skoraði gegn Hollendingum á föstudaginn mun spila sinn fyrsta alvöru leik á miðvikudaginn gegn Liechtenstein en síðast spilaði hann alvöru landsleik á síðasta ári gegn Uruguay í umspili liðsins um HM sæti.

Eros Ramazzotti á HM

HM er á hreinu, þótt stuttur tími sé í fyrsta leik: Leigubílstjóri sem ók mér, Guðjóni Guðmundssyni og Birni Sigurðssyni, alla leið frá Friedrichshafen til Munchen, er með kenningu: Kosta Ríka liðið er að blöffa, þeir hafa tapað og tapað æfingaleikjum, viljandi. Þeir eru að blekkja heimsveldið, koma svo mjög sterkir í opnunarleikinn og gera rósir. Fín kenning.

Sigur í fyrsta leiknum undir stjórn Alfreðs Gíslasonar

Íslenska landsliðið í handbolta vann eins marks sigur á Dönum, 34-33, fyrir troðfullu KA-húsi á Akureyri í kvöld. Þetta var fyrsti landsleikurinn undir stjórn Alfreðs Gíslasonar. Danir voru aðeins yfir einu sinni í leiknum (1-2) en íslenska liðið var með tveggja marka forskot í hálfleik, 18-16. Snorri Steinn Guðjónsson var markahæstur í íslenska liðinu með sex mörk.

KR lagði Blika í sveiflukenndum leik

KR-ingar lögðu nýliða Breiðabliks 3-2 í lokaleik 5. umferðar Landsbankadeildar karla í kvöld. Rógvi Jacobsen kom heimamönnum yfir 1-0 og þannig var staðan í hálfleik. Kristján Óli Sigurðsson og Marel Baldvinsson (víti) komu Blikum yfir, en Sigmundur Kristjánsson og Grétar Hjartarson tryggðu KR sigurinn með mörkum á 78. og 81. mínútu.

Steven Gerrard varð að hætta fyrr á æfingu

Enski landsliðsmaðurinn Steven Gerrard, varð að hætta á æfingu með landsliðinu vegna bakverkja, en Sven-Goran Eriksson landsliðsþjálfari Englendinga segir þetta ekkert alvarlegt.

Veigar Páll skoraði fyrir Stabæk

Veigar Páll Gunnarsson var á skotskónum í norska boltanum kvöld þegar lið hans Stabæk gerði 2-2 jafntefli við meistara Valerenga. Veigar Páll kom heimamönnum í Stabæk yfir í leiknum þegar hann skoraði sitt 7. mark í deildinni fram hjá landa sínum Árna Gauti Arasyni, en gamla kempan Tore Andre Flo skoraði bæði mörk Valerenga.

Fyljgast vel með olnbogum leikmanna

Forseti FIFA, Sepp Blatter hefur beðið þá dómara sem að dæma á HM, að gæta sérstaklega vel að því að leikmenn séu ekki að reka olnbogann í andstæðinginn og brjóta jafnvel tennur í mönnum.

Annað áfall fyrir Valsmenn

Valsmenn hafa orðið fyrir öðru áfalli á skömmum tíma því nú er ljóst að varnarjaxlinn Valur Fannar Gíslason verður frá keppni í um sex vikur eftir að hann skaddaði liðbönd í hné í leiknum gegn Víkingi í í Landsbankadeildinni í gærkvöld. Valur staðfesti þetta í íþróttafréttum NFS í kvöld, en skammt er síðan fyrirliðinn Sigurbjörn Hreiðarsson kinnbeinsbrotnaði.

Carlos í salti fram yfir kosningar

Forráðamenn Real Madrid gáfu það upp í samtali við breska fjölmiðla í dag að brasilíski bakvörðurinn Roberto Carlos færi ekki frá félaginu fyrr en eftir forsetakosningarnar sem fyrirhugaðar eru þann 2. júlí næstkomandi. Carlos hefur verið orðaður sterklega við ensku meistarana í Chelsea, en nú verður einhver bið á því að lausn fáist í máli hans.

KR tekur á móti Breiðablik

Einn leikur fer fram í Landsbankadeild karla í kvöld þegar KR-ingar taka á móti nýliðum Breiðabliks í vesturbænum. Þetta er lokaleikurinn í 5. umferð deildarinnar. Liðin hafa bæði hlotið sex stig úr fyrstu fjórum leikjum sínum. Hægt verður að fyglgjast vel með gangi mála í leiknum á Boltavaktinni hér á Vísi.

Tíðinda að vænta á morgun

Enskir fjölmiðlar greina frá því í dag að boðað hafi verið til blaðamannafundar hjá úrvalsdeildarliði Middlesbrough á morgun þar sem tíðinda er að vænta varðandi ráðningu knattspyrnustjóra. Varnarmaðurinn Gareth Southgate hefur verið orðaður við stöðuna, en hann hefur þó ekki tilskilin leyfi til að taka við starfinu.

Federer í undanúrslitin

Roger Federer tryggði sér í dag sæti í undanúrslitum opna franska meistaramótsins í tennis þegar hann lagði Mario Ancic 6-4, 6-3 og 6-4. Federer er efstur á styrkleikalista tennissambandsins og mætir David Nalbandian eða Nikolay Davydenko í næstu umferð.

Keppnin er búin, Tékkar unnu!

Reyndar er það sýndarkeppni sem er búin og hún átti sér stað í leikjatölvu. Electronic Arts sem eru framleiðendur tölvuleiksins „FIFA World Cup 2006" létu keppnina fara fram í sýndarheimi leiksins. Það voru Tékkar sem báru sigur úr bítum, unnu Brasilíumenn 2-1 í spennandi úrslitaleik.

Næsta keppni gæti markað nýtt upphaf

Michael Schumacher segist vera mjög ánægður með þróun Ferrari-bílsins á síðustu vikum og á von á því að breski kappaksturinn um næstu helgi marki nýtt upphaf fyrir liðið.

Koller til Mónakó

Tékkneski framherjinn Jan Koller hefur ákveðið að ganga í raðir franska liðsins Mónakó, en Koller var með lausa samninga hjá þýska liðinu Dortmund þar sem hann hefur spilað í fjögur ár. Koller er 33 ára gamall og hefur gert tveggja ára samning við franska liðið. Hann gat lítið spilað á síðustu leiktíð vegna meiðsla, en hefur nú náð sér að fullu og verður í eldlínunni með Tékkum á HM sem hefst á föstudaginn.

Young boðinn nýr samningur

Charlton hefur boðið varnarmanninum Luke Young nýjan samning í kjölfar þess að leikmaðurinn hefur verið orðaður við West Ham. Stjórn félagsins er ekki hrifinn af því að missa landsliðsmanninn og því hefur verið ákveðið að bjóða honum nýjan samning.

Clijsters í undanúrslit

Belgíska tenniskonan Kim Clijsters vann í dag góðan sigur á Martinu Hingis á opna franska meistaramótinu 7-6, (7-5) og 6-1 og komst þar með í undanúrslit á mótinu. Clijsters sló Hingis einnig út á opna ástralska meistaramótinu í janúar. Clijsters mætir nú Justine Henin-Hardenne í undanúrslitnum, en sú vann auðveldan sigur á Anna-Lena Groenefeld, 7-5 og 6-2.

Engar stórar breytingar fyrirhugaðar

Joe Dumars, forseti NBA liðs Detroit Pistons, hefur gefið það út að engar stórar breytingar verði gerðar á liðinu í sumar, svo framarlega sem félagið nær samningum við miðherjann Ben Wallace. Dumars segir jafnframt að framtíð Flip Saunders þjálfara sé ekki í neinni hættu.

Baldasano ætlar að ráða Eriksson

Arturo Baldasano, sem býður sig fram í embætti forseta Real Madrid í annað sinn, segist hafa gert munnlegt samkomulag við Sven-Göran Eriksson um að taka við knattspyrnustjórastöðunni hjá félaginu, nái kann kosningu.

Paul Robinson er óánægður með boltann

Paul Robinson, aðalmarkvörður Englendinga á HM, er ekki sáttur við nýja HM boltann. Boltinn sem að er án sauma þykir sá tæknilegasti og fullkomnasti sem notaður hefur verið á HM, en margir hafa látið óánægju sýna í ljós með boltann, þar á meðal Brasilíumenn.

Ballack tæpur fyrir opnunarleikinn

Óvísst er hvort að fyrirliði Þjóðverja, Michael Ballack, verði með Þjóðverjum í opnunarleik HM á Föstudaginn. Ballack hefur átt við meiðsli að stríða í kálfa og hvíldi á æfingu þýska liðsins í gær. Juergen Klinsmann, landsliðsþjálfari Þýskalands, mun væntanlega kalla á Tim Borowski inn í byrjunarliðið verði Ballack ekki klár.

Zambrotta verður ekki með á móti Gana

Ítalir munu verða án varnarmannsins Gianluca Zambrotta í fyrsta leik sínum á HM, gegn Gana á Mánudaginn. Varnarmaðurinn snjalli, Alessandro Nesta, er einnig tæpur fyrir leikinn.

Basten kallar á tvo unga leikmenn

Marco van Basten, landsliðsþjálfari Hollands, hefur kallað á 2 unga leikmenn inní hóp Hollands. Nigel de Jong og Stijn Schaars, ungir leikmenn úr 21 árs liði Hollendinga, munu æfa með Hollendingum og verða tilbúnir að koma inn í hópinn, en Hollendingar hafa átt í miklum meiðslavandræðum upp á síðkastið.

Framsókn og HM slást um athyglina

Þosteinn J spáir í fréttirnar, á Íslandi er Halldór að hætta en úti í heimi er HM að byrja og flestum sama um Halldór. Ballack og félagar eru komnir til Berlínar og Þorsteinn heldur til Munchen síðdegis í dag til þess að færa okkur fréttir af HM, ef þær komast þá að fyrir Framsóknarflokknum.

Þriðjudagur, þrír dagar í HM

Hver er stærsta frétt vikunnar? Á mælikvarða stjórnmálanna hér í túninu heima er það sjálfsagt afsögn Halldórs Ásgrímssonar, á heimsmælikvarða er ein stærsta fréttin hinsvegar að HM byrjar á föstudaginn, eftir slétta þrjá daga.

„Kewell á eftir að skína á HM“

Rafael Benitez, knattspyrnustjóri Liverpool, segir að hann eigi von á því að Harry Kewell eigi eftir að skína á HM í Þýskalandi sem hefst síðar í vikunni. Benitez segir að síðasta tímabil hafi verið það besta hjá Kewell fyrir Liverpool og býst við að leikmaðurinn verði mikilvægur hlekkur fyrir Ástralíumenn á HM.

Ronaldo með blöðrur á fætinum

Ronaldo framherji Brasilíu er viss um að hann verði klár fyrir fyrsta leik Brasilíumanna á HM, en hann missti af æfingu í gær(Mánudag) vegna þess að 5 blöðrur höfðu myndast á vinstri fæti kappans.

Sjá næstu 50 fréttir