Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Alonso sigurviss á Imola Fernando Alonso segir að lið hans Renault hafi alla burði til að sigra á Imola-brautinni í San Marino um helgina. "Við erum liðið sem allir eru að keppa við sem fyrr og ég er viss um að við verðum í baráttunni um sigurinn í San Marion," sagði Alonso, sem hefur unnið tvær af þremur fyrstu keppnum ársins og hefur 14 stiga forskot í keppni ökuþóra. 19.4.2006 19:15
John Lyall látinn John Lyall, fyrrum stjóri West Ham og Ipswich lést eftir að hafa fengið hjartaáfall í gær, hann var 66 ára gamall. Lyall stýrði West Ham frá árinu 1974 til 1989 og tók við Ipswich árið eftir það. Hann gerði West Ham-liðið tvisvar að bikarmeisturum, árin 1975 og 1980 og kom Ipswich í úrvalsdeildina árið 1991-92. 19.4.2006 18:38
Southgate og Viduka ekki með annað kvöld Varnarmaðurinn Gareth Southgate og Mark Viduka eru meiddir og verða ekki með liði sínum Middlesbrough í fyrri leik liðsins gegn Steua Búkarest í Rúmeníu annað kvöld. Þetta er fyrri leikur liðsins í undanúrslitum Evrópukeppni félagsliða. Viduka er meiddur á læri en Southgate er meiddur á ökkla. 19.4.2006 18:28
Leikur Arsenal og Villareal að hefjast Nú styttist í að flautað verði til leiks á Highbury í leik Arsenal og Villareal í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu, en þetta er fyrri viðureign liðanna. Arsenal teflir fram sínu hefðbundna liði en Freddy Ljungberg kemur þó inn fyrir Jose Antonio Reyes sem er í leikbanni. Tvo fastamenn vantar í vörnina hjá spænska liðinu, markvörðurinn Mariano Barbosa kemur inn fyrir Sebastien Viera og Cesar Arco kemur inn fyrir Juan Manuel Pena. Leikurinn er í beinni á Sýn. 19.4.2006 18:22
Birmingham mætir Blackburn Einn leikur er á dagskrá í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld þar sem Birmingham freistar þess að krækja í gríðarlega mikilvæg stig í botnbaráttunni. Blackburn er í baráttu um Evrópusæti og því er allt undir hjá lærisveinum Mark Hughes sömuleiðis. Steve Bruce, stjóri Birmingham, segir að aldrei komi til greina að segja af sér þó liðið falli niður í fyrstu deild. 19.4.2006 18:11
Upson framlengir við Birmingham Matthew Upson hefur framlengt samning sinn við úrvalsdeildarlið Birmingham til ársins 2008. Varnarmaðurinn knái er meiddur sem stendur og verður frá í sex mánuði, en samningur hans átti að renna út nú í sumar. Upson hefur átt í miklum vandræðum með meiðsli í allan vetur, en stjóri hans Steve Bruce hefur miklar mætur á honum og er ánægður með að vera búinn að tryggja sér þjónustu varnarmannsins áfram. 19.4.2006 17:31
Real hefur augastað á Steven Gerrard Benito Floro, yfirmaður knattspyrnumála hjá Real Madrid, hefur gefið út að Steven Gerrard fyrirliði Liverpool sé einn þeirra leikmanna sem félagið ætli sér að reyna að kaupa í sumar. Gerrard skrifaði sem kunnugt er undir nýjan samning við Liverpool síðasta sumar, en nú hefur Floro gefið það út að hann og brasilíski framherjinn Adriano hjá Inter séu þeir leikmenn sem efstir séu á óskalista spænska félagsins. 19.4.2006 17:21
Tímabilinu lokið hjá Hermanni Hermann Hreiðarsson hefur verið dæmdur í þriggja leikja bann af aganefnd enska knattspyrnusambandsins fyrir að gefa Luis Boa Morte hjá Fulham olnbogaskot í leik Charlton og Fulham á dögunum. Hermann ákvað að áfrýja ekki dómi sambandsins og missir því af síðustu þremur leikjum sinna manna í deildinni. 19.4.2006 17:15
Meistaradeild VÍS í hestaíþróttum. Staðan í deildinni eftir fimm greinar af átta Með góðum sigri í Gæðingafiminni á hestagullinu Ormi frá Dallandi hefur Alti Guðmundsson færst í hóp fremstu knapanna og ljóst að hann mun blanda sér í baráttu um meistaratitlinn. Í úrslitum Gæðingafiminnar fékk Sigurður Sigurðarson 7, 93 í einkunn en Þorvaldur Árni 7,92. Þetta brot 1/100 réð úrslitum um það hvor þeirra leiðir stigasöfnunina að lokinni Gæðingafiminni. 19.4.2006 11:40
Enn meira um Skeifudaginn á Hvanneyri Laugardaginn 22. apríl n.k. verður haldinn hinn árlegi Skeifudagur við Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri. Þennan dag, eins og verið hefur um áratuga skeið, kynna nemendur í hrossarækt árangur vetrarstarfsins. Morgunblaðsskeifan verður afhent þennan dag en hún er veitt fyrir bestan árangur í tamninga- og reiðkennslunámi vetrarins. 19.4.2006 11:25
Skammarleg framkoma Webber og Iverson Chris Webber og Allen Iverson eru ekki vinsælustu mennirnir í Philadelphia í dag eftir að þeir mættu of seint í síðasta heimaleik liðs síns í gærkvöldi og gerðu eiganda, þjálfara og stuðningsmenn Philadelphia 76ers að fíflum. Þeir félagar áttu reyndar báðir við smávægileg meiðsli að stríða og því stóð ekki til að láta þá spila, en þeir eiga báðir eftir að svara fyrir framkomu sína með sektum eða jafnvel leikbönnum. 19.4.2006 07:00
Arenas og Redd skoruðu báðir 43 stig Sjónvarpsleikurinn á NBA TV í gærkvöldi var hin besta skemmtun en þar bar Washingto sigurorð af Milwaukee á heimavelli sínum 116-103, þar sem Gilbert Arenas hjá Washington og Michael Redd skoruðu 43 stig hvor. Það voru þó heimamenn sem höfðu sigur og eru í góðri stöðu með að ná fimmta sætinu í úrslitakeppninni í Austurdeildinni. 19.4.2006 05:45
Barcelona lagði AC Milan Barcelona vann gríðarlega mikilvægan 1-0 útisigur á AC Milan á San Siro í kvöld í fyrri leik liðanna í undanúrslitum meistaradeildarinnar. Það var Ludovic Giuly sem skoraði sigurmarkið með frábærum hætti eftir góðan undirbúning frá brasilíska snillingnum Ronaldinho. Barcelona er því með pálmann í höndunum fyrir síðari leikinn sem verður á heimavelli liðsins í Katalóníu á Spáni. 18.4.2006 20:47
Stuðningsmenn vilja skammarkrók í enska boltann Fréttavefur BBC greindi í kvöld frá niðurstöðum skoðanakönnunar sem gerð var meðal stuðningsmanna knattspyrnuliða á Englandi, en þar kom fram að meira en helmingur þeirra 43.000 manns sem spurðir voru, vilja að leikmönnum sem gerast sekir um grófar tæklingar verði refsað með því að vera settir í skammarkrók eins og tíðkast í ruðningi þar í landi - ekki ósvipað fyrirbæri og tveggja mínútna brottvísanir í handbolta. 18.4.2006 21:45
Allt undir hjá Washington og Milwaukee Það verður allt í járnum í kvöld þegar Washington Wizards og Milwaukee Bucks mætast í NBA deildinni, en leikurinn verður í beinni útsendingu á NBA TV á Digital Ísland. Fjögur lið eru enn að kljást um uppröðun í síðustu fjögur sætin inn í úrslitakeppnina í Austurdeildinni og eru nánast jöfn í einum hnapp, en auk þessara liða eru Indiana og Chicago með nánast sömu stöðu og vilja t.d. öll forðast það í lengstu lög að mæta Detroit Pistons í fyrstu umferðinni. 18.4.2006 21:36
Grosswallstadt burstaði Gummersbach Íslendingaliðin Grosswallstadt og Gummersbach áttust við í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld og er skemmst frá því að segja að Grosswallstadt valtaði yfir andstæðinga sína 32-20. Einar Hólmgeirsson skoraði 7 mörk fyrir Grosswallstadt og Alexander Petersson skoraði 5 mörk. Guðjón Valur Sigurðsson skoraði 5 mörk fyrir Gummersbach og Róbert Gunnarsson skoraði 3 mörk. 18.4.2006 21:25
Wigan lagði Aston Villa Nýliðar Wigan báru sigurorð af Aston Villa 3-2 í leik kvöldsins í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Wigan var skrefinu á undan allan leikinn og vann mikinn baráttusigur, sem heldur vonum liðsins um Evrópusætið á lífi enn sem komið er. Henry Camara skoraði tvö mörk fyrir Wigan og Jimmy Bullard eitt, en hjá Villa voru það Juan Pablo Angel og Liam Ridgewell. 18.4.2006 20:57
Shearer ætlar að taka sér gott frí Framherjinn Alan Shearer ætlar ekki að vinna sem þjálfari hjá liði Newcastle á næsta keppnistímabili þegar hann verður búinn að leggja skóna á hilluna, heldur ætlar hann að taka sér frí frá knattspyrnu í óákveðinn tíma. 18.4.2006 20:32
Barcelona komið yfir Barcelona er komið í mjög vænlega stöðu í einvíginu við AC Milan, en Ludovic Giuly var rétt í þessu að koma Barcelona yfir á San Siro eftir glæsilega sendingu frá Ronaldinho. Markið er Börsungum gríðarlega mikilvægt, en þeir eiga síðari leikinn eftir á heimavelli. Markið kom á á 57. mínútu og var einstaklega vel að því staðið hjá Barcelona. 18.4.2006 20:00
Markalaust á San Siro í hálfleik Nú er kominn hálfleikur í fyrri viðureign AC Milan og Barcelona á San Siro í Mílanó í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu en hvorugu liðinu hefur tekist að skora. Það var Gilardino hjá Milan sem komst næst því að skora þegar hann átti skot í stöngina á marki Barcelona. Leikurinn er í beinni útsendingu á Sýn. 18.4.2006 19:39
Mido stefnir á að vera með gegn Arsenal Framherjinn Mido hjá Tottenham stefnir á að ná byrjunarliðssæti hjá liðinu fyrir leikinn gegn Arsenal um næstu helgi, en það er einhver mikilvægasti leikur Tottenham í háa herrans tíð. Mido hefur átt við erfið nárameiðsli að stríða og var hans sárt saknað í leiknum gegn Manchester United í gær. Martin Jol segir Mido líklega geta byrjað að æfa á fullu á næstu tveimur dögum og á von á að geta teflt honum fram gegn Arsenal um helgina. 18.4.2006 19:25
Byrjunarliðin klár Nú styttist í að flautað verði til leiks í fyrri undanúrslitaleik AC Milan og Barcelona í Meistaradeildinni, en leikurinn er sýndur í beinni útsendingu á Sýn. AC Milan hefur unnið keppnina sex sinnum en Barcelona aðeins einu sinni. Milan hefur aldrei fallið úr keppni í undanúrslitunum. Búið er að tilkynna byrjunarliðin og hér fyrir neðan má sjá hvaða leikmenn hefja leikinn mikilvæga á San Siro. 18.4.2006 18:26
Einn leikur í kvöld Einn leikur verður á dagskrá í ensku úrvalsdeildinni í kvöld, þegar Wigan tekur á móti Aston Villa. Wigan hefur gengið frekar illa að undanförnu og hefur ekki náð sigri í síðustu fjórum leikjum. Nýliðarnir eru þó talsvert fyrir ofan Villa í töflunni og vilja eflaust næla í sigur á heimavelli sínum í kvöld. 18.4.2006 17:45
Orðinn hundleiður á spurningum um framtíð sína Thierry Henry brást hinn versti við á blaðamannafundi í dag þegar hann var enn eina ferðina spurður út í framtíð sína hjá Arsenal. Blaðamannafundurinn var hugsaður fyrir viðureign Villarreal og Arsenal í Meistaradeildinni, en þegar blaðamenn spurðu Henry út í framtíð hans hjá Arsenal, lét sá franski þá heyra það. 18.4.2006 17:37
Carlsley áfrýjar rauða spjaldinu Lee Carlsley, leikmaður Everton, hefur ákveðið að áfrýja rauða spjaldinu sem hann fékk í leiknum gegn Chelsea um páskahelgina. Stjóra Everton þótti spjaldið alls ekki sanngjarnt en ef spjaldið stendur, mun Carlsley missa af restinni af tímabilinu. Hann hefur ekki komið mikið við sögu í vetur vegna erfiðra meiðsla. 18.4.2006 17:15
Svartsýnn á að Shearer nái sér Freddy Shepherd hjá Newcastle segist óttast að ferli Alan Shearer sé lokið eftir að hann meiddist á hné í leik gegn Sunderland um helgina, en bætir við að hann muni þó aldrei afskrifa mann eins og Shearer. Aðeins þrír leikir eru eftir af tímabilinu og það kemur væntanlega í ljóst á fimmtudag hvort fyrirliðinn hefur spilað sinn síðasta leik á ferlinum. 18.4.2006 16:30
Hrafnsmessa á morgun Enn bætast við stórstjörnur á Hrafnssýninguna 19.apríl í Ölfushöllinni. Má þar nefna topp klárhestinn og glæsi stóðhestinn Leikni frá Vakursstöðum, knapi á Leikni er hinn ungi Valdimar Bergstad. Bræðurna; Eldjárn frá Tjaldhólum, knapi Guðmundur Björgvinsson og Borða frá Fellskoti, knapi á honum er Brynjar Jón Stefánsson. Það er ekki ofsögum sagt að þeir bræður séu í topp formi, “ glæsihestar”. Síðast en ekki síst má nefna að Hans Kjerulf er lagður af stað suður með hestagullið Laufa frá Kollaleiru og eina moldótta sem lyftir létt yfir vinkilinn. 18.4.2006 15:43
Schumacher ákveður sig fljótlega Ross Brawn hjá Ferrari segir að Michael Schumacher muni að öllum líkindum taka ákvörðun um framtíð sína á allra næstu mánuðum, en mikið hefur verið rætt um hvort hann hætti að keppa eða gangi jafnvel til liðs við Renault. 18.4.2006 15:30
Kirkland verður áfram ef liðið heldur sér uppi Markvörðurinn Chris Kirkland sem spilað hefur sem lánsmaður hjá West Brom í vetur segist vel geta hugsað sér að ganga til liðs við félagið til frambúðar, svo fremi sem það haldi sér í úrvalsdeildinni. Kirkland er leikmaður Liverpool, en hefur fengið að vita að hann sé ekki inni í myndinni sem aðalmarkvörður þar á bæ. Framtíð markvarðarins er því með öllu óráðin - því ekki er útlitið gott hjá liði West Brom í fallbaráttunni. 18.4.2006 15:02
Cech ætlar að vera með gegn Liverpool Tékkneski markvörðurinn Petr Cech segist staðráðinn í að spila með liði sínu Chelsea gegn Liverpool í undanúrslitum enska bikarsins á laugardaginn, en hann þurfti að fara af velli meiddur á hné í deildarleik um páskana. "Ég skarst illa á fætinu í leiknum, en í ljós kom að þetta var ekkert alvarlegt svo ég er bjartsýnn á að geta spilað gegn Liverpool," sagði Cech. 18.4.2006 14:56
Ætlar ekki að taka Ronaldinho úr umferð Carlo Ancelotti er mjög bjartsýnn á að hans menn í AC Milan nái að slá Barcelona út úr undanúrslitum Meistaradeildarinnar, en liðið er nú í þriðja sinn í undanúrslitum á síðustu fjórum árum. Ancelotti ætlar ekki að setja sérstakan mann til höfuðs brasilíska snillingsins Ronaldinho og segir varnarmenn sína fullfæra um að halda aftur af honum. 18.4.2006 14:06
Nú þurfum við að sanna okkur Frank Rijkaard segir að öll lið gangi í gegn um það að þurfa að komast fram úr sér sterkari og reyndari liðum til að verða Evrópumeistarar og segir að nú sé kominn tími til fyrir sína menn í Barcelona að gera einmitt það gegn AC Milan í fyrri leik liðanna í Meistaradeildinni í kvöld. Leikur liðanna verður í beinni útsendingu á Sýn og hefst útsending klukkan 18:30 í kvöld. 18.4.2006 13:49
San Antonio tók efsta sætið í Vesturdeildinni Meistarar San Antonio tryggðu sér í nótt efsta sætið í Vesturdeildinni þegar liðið burstaði Utah Jazz á heimavelli sínum 115-82 og verður liðið því með heimavallarréttinn alla leið í úrslitin. Manu Ginobili skoraði 18 stig fyrir San Antonio og nýliðinn Deron Williams skoraði sömuleiðis 18 fyrir Utah. 18.4.2006 13:03
Hungrið í hámarki Fyrri leikur stórliðanna AC Milan og Barcelona í undanúrslitum meistaradeildar Evrópu fer fram á Ítalíu í kvöld en leiksins er beðið af mikilli eftirvæntingu. Meiðsli eru í sóknarlínum beggja liða en Henrik Larsson fór meiddur af velli í leik Barcelona gegn Villareal í spænska boltanum á föstudag og getur ekki leikið í kvöld. 18.4.2006 00:01
Njarðvíkingar Íslandsmeistarar Njarðvíkingar tryggðu sér í kvöld Íslandsmeistaratitilinn í körfuknattleik karla þegar liðið lagði Skallagrím í Borgarnesi í fjórðu viðureign liðanna 81-60. Njarðvíkingar eru vel að titlinum komnir eftir að frábær varnarleikur var lykillinn að fyrsta sigri félagsins á Íslandsmótinu síðan árið 2002. Brenton Birmingham hjá Njarðvík var kjörinn verðmætasti leikmaður úrslitaeinvígisins. 17.4.2006 21:40
Ferill Shearer mögulega á enda Framherjinn Alan Shearer gæti hafa spilað sinn síðasta leik í úrvalsdeildinni á ferlinum, en hann meiddist á fæti í leik Newcastle og Sunderland í dag. Hann fer í myndatöku á morgun og þá verður skorið um hversu alvarleg meiðsli hans eru. Shearer sjálfur segist óttast að ballið sé búið, en hann hefur skorað 206 mörk í 404 leikjum fyrir Newcastle. 17.4.2006 22:16
West Brom náði aðeins í eitt stig West Brom er þremur stigum frá því að komast upp að hlið Portsmouth og bjarga sér frá falli úr ensku úrvalsdeilidnni í knattspyrnu eftir að liðið gerði markalaust jafntefli við Bolton á heimavelli sínum í kvöld. Möguleikar West Brom eru þó ekki sérstaklega góðir þegar þrjár umferðir eru eftir. 17.4.2006 22:05
Spurðu Loga Geirsson Vísir og Fréttablaðið bjóða lesendum sínum að spyrja handboltakappann, Loga Geirsson, spjörunum úr. Hvað hefur þú alltaf viljað vita um Loga? Skráðu þína spurningu hér að neðan og fylgdust síðan með á Vísi og Fréttablaðinu sunnudaginn 30. apríl þegar svör Loga verða birt. Hægt er að senda spurningar til miðnættis miðvikudaginn 26. apríl. 17.4.2006 21:55
Öruggur sigur Chelsea Chelsea vann í dag öruggan 3-0 sigur á Everton á heimavelli sínum Stamford Bridge og er því komið með aðra höndina á Englandsbikarinn annað árið í röð. Frank Lampard, Didier Drogba og Michael Essien skoruðu mörk Chelsea í dag, en Lee Carlsley var rekinn af leikvelli hjá Everton í upphafi síðari hálfleiks í stöðunni 1-0 fyrir Chelsea. 17.4.2006 15:57
Ekkert kampavín hjá Chelsea í dag Manchester United vann í dag góðan útisigur á Tottenham í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu og kom þar með í veg fyrir að Chelsea gæti tryggt sér meistaratitilinn með sigri á Everton í dag. Tvö mörk frá Wayne Rooney á fyrsta hálftímanum komu United í veglega stöðu, en Jermaine Jenas minnkaði muninn fyrir heimamenn á 52. mínútu. Tottenham sótti hart að marki United það sem eftir lifði leiks, en varð að sætta sig við fyrsta tap sitt á heimavelli í átta mánuði. 17.4.2006 14:02
King er úr leik hjá Tottenham Miðvörðurinn Ledley King spilar ekki meira með liði sínu Tottenham Hotspurs á leiktíðinni eftir að í ljós koma að hann brákaði bein á fæti sínum í viðskiptum við Duncan Ferguson hjá Everton á laugardaginn. Meiðslin setja stórt strik í reikninginn fyrir Tottenham í baráttunni um sæti í Meistaradeildinni og það sama má segja um vonir leikmannsins um sæti í enska landsliðinu á HM í sumar. 17.4.2006 08:26
Ljóst hvaða lið ná í úrslitakeppnina Los Angeles Lakers, Sacramento Kings og Chicago Bulls tryggðu sér í nótt sæti í úrslitakeppninni í NBA þegar aðeins þrjár umferðir eru eftir af deildarkeppninni. Þá vann Detroit 64. leik sinn í vetur sem er félagsmet og ljóst að liðið verður með heimavallarréttinn alla úrslitakeppnina. 17.4.2006 06:31
Meistaradeildin lykillinn að ákvörðun Henry Emmanuel Adebayor, félagi Thierry Henry hjá Arsenal, segist viss um að gengi liðsins í Meistaradeildinni á næstu vikum muni skera úr um það hvort Henry vilji verða áfram hjá félaginu eða fara eitthvað annað. Henry á enn eftir að framlengja samning sinn við Lundúnaliðið og um fátt annað hefur verið meira rætt á Englandi í vetur. 16.4.2006 21:00
Scolari líklega út úr myndinni Brasilíski þjálfarinn Luiz Felipe Scolari verður tæplega einn þeirra sem koma helst til greina sem næsti þjálfari enska landsliðsins í knattspyrnu. Scolari, sem er núverandi þjálfari Portúgala, segist ekki ætla að taka neinar ákvarðanir um framtíð sína fyrr en að heimsmeistaramótinu loknu, en Englendingar hafa sem kunnugt er ákveðið að tilkynna nafn næsta þjálfa fyrir HM í Þýskalandi í sumar. 16.4.2006 20:15
Celtic afhentur bikarinn í dag Skotlandsmeisturum Glasgow Celtic var í dag afhentur meistarabikarinn í skosku úrvalsdeildinni eftir jafntefli á heimavelli gegn Hibernian. Celtic hafði reyndar tryggt sér titilinn í umferðinni á undan en það vantaði þó ekki að væri mikið um dýrðir á heimavelli liðsins þegar flautað var til leiksloka í dag. 16.4.2006 19:15