Fleiri fréttir

Við erum ekki sloppnir enn

Harry Redknapp var hógvær eftir sigur sinna manna í Portsmouth á Middlesbrough í dag, en liðið komst með sigrinum þremur stigum frá fallsvæðinu. Portsmouth hefur unnið fjóra af sex síðustu leikjum sínum og virðist sannarlega líklegra til að bjarga sér frá falli en Birmingham eða West Brom eins og staðan er í dag.

Fimmti titill Lyon í röð

Frönsku meistararnir Lyon tryggðu sér í dag fimmta meistaratitil sinn í röð þegar helstu keppinautar þeirra Bordeaux töpuðu 3-2 fyrir Lille. Lyon er í efsta sæti deildarinnar með 75 stig eftir 33 leiki, en Bordeaux hefur spilað 34 leiki og hefur aðeins 61 stig. Lærisveinar Gerard Houllier eru því franskir meistarar enn eina ferðina.

Öruggur sigur Njarðvíkinga

Njarðvíkingar burstuðu Skallagrím 107-76 í dag og hafa því náð 2-1 forystu í einvíginu um Íslandsmeistaratitilinn. Brenton Birmingham var stigahæsti leikmaður vallarins og skoraði 32 stig fyrir Njarðvíkinga, þar af 8 þriggja stiga körfur, og Jeb Ivey kom næstur með 24 stig. Hjá Skallagrími var Jovan Zdravevski stigahæstur með 17 stig og George Byrd skoraði 16 stig. Næsti leikur er í Borgarnesi á mánudagskvöldið, en sá leikur verður einnig sýndur í beinni útsendingu á Sýn.

Miklir yfirburðir Njarðvíkinga

Njarðvíkingar eru að valta yfir Borgnesinga í þriðja leik liðanna um Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta, en staðan í Njarðvík eftir þrjá leikhluta er 87-64. Það má því væntanlega fara að slá því föstu að Njarðvíkingar fari með sigur af hólmi í dag og geti því tryggt sér titilinn í Borgarnesi á mánudagskvöldið.

Wenger hrósaði Bergkamp

Arsene Wenger var mjög sáttur við frammistöðu sinna manna í sigrinum á West Brom í dag, en liðið náði að yfirvinna jöfnunarmark örvæntingarfullra gestanna seint í leiknum og vinna með tveggja marka mun. Hollendingurinn fljúgandi, Dennis Bergkamp, sýndi að hann er ekki dauður úr öllum æðum og skoraði glæsilegt mark sem innsiglaði sigur heimamanna rétt fyrir leikslok.

Við erum ekki farnir að dansa ennþá

Jose Mourinho er enn með báða fætur á jörðinni þrátt fyrir að hans menn þurfi aðeins fjögur stig úr síðustu fjórum leikjum sínum til að tryggja sér annan Englandsmeistaratitilinn í röð, en hann tók sér þó tíma til að hrósa fyrirliða sínum eftir sigurinn á Bolton í dag.

Sheffield United í úrvalsdeild

Sheffield United tryggði sér í dag veru í ensku úrvalsdeildinni á næsta tímabili og það án þess að stíga inn á völlinn. Leeds náði aðeins jafntefli við Reading og það þýðir að Sheffield United fer beint upp í úrvalsdeild, en Leeds þarf í umspil. Sheffield United lék síðast á meðal þeirra bestu fyrir tólf árum síðan. Ívar Ingimarsson spilaði allan tímann með Reading og Brynar Björn Gunnarsson kom inn í lið Reading á síðustu mínútunum sem varamaður.

Njarðvík með örugga forystu

Njarðvíkingar eru heldur betur í stuði á heimavelli sínum gegn Skallagrími í þriðja leik liðanna í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitilinn í körfuknattleik. Njarðvík hefur yfir 60-37 í hálfleik og fram að þessu er eins og aðeins eitt lið sé á vellinum. Þeir Brenton Birmingham (23 stig) og Jeb Ivey hafa til að mynda skorað samtals 10 þriggja stiga körfur í hálfleiknum og fátt í stöðunni sem bendir til annars en að Njarðvíkingar séu að ná yfirhöndinni í einvíginu. Leikurinn er sýndur beint á Sýn.

Barátta Lundúnaliðanna heldur áfram

Nú stefnir í æsilegan lokasprett milli erkifjendanna í norðurhluta Lundúna, Arsenal og Tottenham um sæti í Meistaradeildinni á næsta keppnistímabili. Bæði lið unnu leiki sína í dag og eiga eftir að mætast innbyrðis á lokasprettinum. Þá vann Portsmouth gríðarlega mikilvægan sigur í botnbaráttunni.

Lyon hyggst fá Drogba í sumar

Franska knattspyrnufélagið Lyon er á höttunum eftir Didier Drogba, sóknarmanni Chelsea og ætlar að freista þess að fá hann til liðs við sig í sumar. Jean-Michel Aulas, forseti Lyon segir í viðtali við The Sun í dag að það sé ýmislegt sem gefi til kynna félaginu takist að fá Drogba í sumar.

Biður stuðningsmennina afsökunar

Bob Murray, stjórnarformaður Sunderland, hefur beðið stuðningsmenn liðsins afsökunar á afleitu gengi þess í vetur. Sunderland féll formlega úr úrvalsdeildinni í gær þegar það gerði jafntefli við Manchester United, en örlög félagsins voru í raun ráðin fyrir óralöngu því Sunderland var með áberandi lakastan árangur allra liða í deildinni í vetur.

Chelsea með aðra höndina á titlinum

Chelsea tók enn eitt skrefið í dag og er nú með aðra höndina á enska meistaratitlinum í fótbolta eftir 0-2 útisigur á Bolton í í dag. John Terry og Frank Lampard skoruðu mörk Chelsea á 44. mínútu og 59 mínútu. Chelsea er nú með 9 stiga forskot á toppi deildarinnar þegar fjórar umferðir eru eftir og getur tryggt sér titilinn á mánudaginn með sigri á Everton. Eiður Smári Guðjohnsen var ekki í leikmannahópi Chelsea í dag, annan leikinn í röð.

Mark Hughes hefur áhuga á Fowler

Mark Hughes, knattspyrnustjóri Blackburn hefur látið í ljós áhuga sinn á að næla í framherjann Robbie Fowler frá Liverpool ef hann nær ekki að krækja sér í áframhaldandi samning við þá rauðu.

Silja sigraði í grindahlaupi á móti í USA

Hlaupagarpurinn og frjálsíþróttakonan úr FH, Silja Úlfarsdóttir vann sigur í 400 metra grindahlaupi sem fram fór í Knoxville í Tennessee í Bandaríkjunum í gærkvöldi. Silja hljóp á 57.93 sekúndum sem er 1.31 sek frá persónulegu meti hennar í greininni.

Eiður ekki með gegn Bolton

Eiður Smári Guðjohnsen er ekki í leikmannahópi Chelsea sem heimsækir Bolton í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag en leikur liðanna hófst á Rebook stadium nú fyrir hádegið. Þetta er annar leikurinn í röð hjá Chelsea þar sem Eiður er ekki í hópnum hans Jose Mourinho en ekki er sérstaklega vitað til þess að um veikindi eða meiðsli sé að ræða í tilfelli Eiðs.

Ásthildur Helgadóttir situr fyrir svörum

Ein besta knattspyrnukona sem Ísland hefur alið situr fyrir svörum hjá Fréttablaðinu og á Vísir.is í dag. Á forsíðu Vísis hefur verið hægt að senda spurningar á Ásthildi sem hún hefur nú svarað og afraksturinn má lesa hér á Vísi og í Fréttablaðinu í dag.

Óraunhæfar væntingar á Rooney

Sir Alex Ferguson hjá Manchester United var ekki í góðu skapi eftir jafnteflið dýra við Sunderland í gærkvöldi, en það þýddi að vonir United um að ná Chelsea eru orðnar mjög litlar, rétt eins og vonir Sunderland um að halda sér í úrvalsdeildinni. Ferguson benti á að leikurinn í gær hefði undirstrikað að Englendingar gætu ekki hengt vonir sínar um að sigra á HM í herðarnar á tvítugum pilti.

Barcelona með aðra höndina á titlinum

Barcelona hélt sínu striki í titilvörninni á Spáni með góðum 1-0 sigri á Villareal í gær og hefur því 14 stiga forystu á Valencia og Real Madrid, sem þó eiga leik til góða. Aðeins fimm umferðir eru eftir í spænsku úrvalsdeildinni. Það var Kamerúninn Samuel Eto´o sem skoraði sigurmark Barcelona á 11. mínútu leiksins í gær, hans 24. í vetur.

Ben Gordon skaut Washington í kaf

Chicago Bulls heldur dauðahaldi í áttunda sætið í Austurdeildinni í NBA eftir nauman en gríðarlega mikilvægan sigur á Washington Wizards í nótt 103-101. Ben Gordon var maðurinn á bak við sigur Chicago, en hann skoraði 32 stig í leiknum og hitti úr öllum níu þriggja stiga skotum sínum sem er jöfnun á NBA meti Latrell Sprewell frá árinu 2003.

Skeifudagur á Hvanneyri

Þann 22. apríl verður haldinn hinn árlegi Skeifudagur við Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri. Þennan dag, eins og verið hefur um áratuga skeið, kynna nemendur í hrossarækt árangur vetrarstarfsins. Morgunblaðsskeifan verður afhend þennan dag en hún er veitt fyrir bestan árangur í tamninga- og reiðkennslunámi vetrarins.

Þetta var ekki gáfulegt hjá honum

Harry Redknapp var mjög ánægður með að ná jafntefli við Arsenal í ensku úrvalsdeildinni í kvöld eftir að hans menn lentu undir snemma leiks, en hann var ekki jafn hrifinn af markaskorara sínum Lomana Lua Lua, sem sneri sig á ökkla og þurfti að fara meiddur af velli eftir heljarstökkin sín frægu í fangaðarlátunum.

Óvæntur stórsigur Espanyol

Espanyol varð í kvöld spænskur bikarmeistari eftir að liðið vann stórsigur á Real Zaragoza 4-1 á Santiago Bernabeu vellinum í Madrid. Espanyol komst yfir strax á annari mínútu leiksins og sigur liðsins var í raun aldrei í hættu eftir það, þó ekki hefði liðið áberandi yfirburði á vellinum. Sigurinn tryggir Espanyol sæti í Evrópukeppni félagsliða á næstu leiktíð. Leikurinn var sýndur beint á Sýn Extra.

Roma mætir Inter í úrslitum

Roma tryggði sér í kvöld sæti í úrslitum ítölsku bikarkeppninnar þegar liðið lagði Palermo 1-0 á heimavelli sínum. Það var gamla kempan Damiano Tommasi sem skoraði sigurmark Rómverja á 30. mínútu. Roma tapaði fyrri leiknum 2-1 en kemst áfram á marki skoruðu á útivelli. Liðið mætir Inter Milan í úrslitum keppninnar.

Yao Ming gæti misst úr hálft ár

Carroll Dawson, framkvæmdastjóri Houston Rockets, segir að kínverski miðherjinn Yao Ming þurfi að gangast undir uppskurð eftir að hann fótbrotnaði í leik gegn Utah Jazz í fyrrinótt og verði væntanlega frá keppni í fjóra til sex mánuði í kjölfarið. Þetta þýðir að Ming verður varla kominn almennilega í gang með liði Houston á ný fyrr en halla tekur í næstu jól.

Bayern í úrslitin

Þýskalandsmeistarar Bayern Munchen tryggðu sér í kvöld sæti í úrslitaleik þýsku bikarkeppninnar þegar liðið lagði smálið St.Pauli 3-0 í undanúrslitunum. Owen Hargreaves kom Bayern yfir á 15. mínútu leiksins og það var svo Claudio Pizarro sem innsiglaði sigurinn með tveimur mörkum á fimm mínútum undir lok leiksins. Bayern mætir Frankfurt í úrslitaleik keppninnar um mánaðarmótin.

Middlesbrough í undanúrslitin

Middlesbrough tryggði sér í kvöld sæti í undanúrslitum enska bikarsins þegar liðið lagði Hermann Hreiðarsson og félaga í Charlton 4-2 í skemmtilegum leik á Riverside. Hasselbaink, Viduka, Rochemback og Morrison skoruðu mörk Boro í kvöld, en Hughes skoraði fyrir Charlton en hitt markið var sjálfsmark hjá Gareth Southgate. Boro mætir West Ham í undanúrslitunum.

Arsenal tapaði dýrmætum stigum

Arsenal tapaði í kvöld tveimur gríðarlega mikilvægum stigum í baráttunni um Meistaradeildarsæti í ensku úrvalsdeildinni þegar liðið náði aðeins jafntefli 1-1 á útivelli við baráttuglaða Portsmouth-menn á Fratton Park. Portsmouth nældi sér hinsvegar í dýrmætt stig í botnbaráttuni. Thierry Henry skoraði fyrir Arsenal á 37. mínútu, en Lua-Lua jafnaði fyrir heimamenn á 66. mínútu.

Hlutur stjórnarinnar má ekki gleymast

Fyrrum fyrirliði Tottenham, Gary Mabbutt, segir að menn eigi það til að gleyma hlut stjórnar félagsins þegar rætt er um gott gengi Tottenham í ensku úrvalsdeildinni í vetur, en liðið er í ágætri stöðu til að komast í Meistaradeildina á næsta tímabili.

Boro yfir gegn Charlton

Middlesbrough hefur yfir 2-1 gegn Charlton í leik liðanna á Riverside um sæti í undanúrslitum enska bikarsins. Fabio Rochemback kom heimamönnum yfir á 10. mínútu en Bryan Hughes jafnaði fyrir Charlton aðeins rúmum tveimur mínútum síðar. Það var svo James Morrison sem kom Boro aftur yfir á 26. mínútu. Leikurinn er sýndur beint á Sýn. Arsenal hefur yfir 1-0 gegn Portsmouth á útivelli í úrvalsdeildinni.

Tap fyrir Hollandi

Íslenska kvennalandsliðið tapaði 2-1 fyrir Hollendingum í æfingaleik þjóðanna sem fram fór í Hollandi í kvöld. Heimamenn komust yfir 1-0 eftir hálftíma leik, en Hólmfríður Magnúsdóttir jafnaði metin fyrir íslenska liðið. Sigurmark hollenska liðsins kom svo á 58. mínútu.

Hefur mikinn áhuga á John Hartson

Milan Mandaric hefur mikinn áhuga á að fá framherjann John Hartson til Portsmouth í sumar, en Hartson fer væntanlega frá skosku meistununum að tímabilinu loknu.

Andre Miller rausnarlegur við háskólann sinn

Bakvörðurinn Andre Miller hjá Denver Nuggets er ekki búinn að gleyma því hvað háskólaganga hans í Utah reyndist honum vel á sínum tíma og í gær gaf Miller hvorki meira né minna en 500.000 dollara eða 38 milljónir króna til gamla skólans síns. Peningana á meðal annars að nota til að byggja upp íþróttaaðstöðuna við skólann.

Rangers sleppur vel

Knattspyrnufélagið Glasgow Rangers sleppur með aðeins 9.000 punda sekt eftir ólæti stuðningsmanna félagsins fyrir síðari leikinn gegn Villareal í Meistaradeildinni á dögunum. Stuðningsmenn skoska liðsins köstuðu grjóti í liðsrútu spænska liðsins og voru sakaðir um kynþáttafordóma í garð leikmanna Villareal. Þeir voru hinsvegar sýknaðir af þeim ákærum þar sem ekki fundust nægilegar sannanir fyrir þeim.

HBO ætlar að gera Hatton að stórstjörnu

Ameríski kapalsjónvarpsrisinn HBO hefur lofað breska hnefaleikaranum Ricky Hatton að gera hann að stórstjörnu í Bandaríkjunum. Hatton hefur lengi dreymt um frægð og frama í Bandaríkjunum og nú hefur HBO lofað honum að gera hann jafn stóran þar í landi og hann er í heimalandinu. Hann berst við Luis Collazo í Bandaríkjunum þann 13. maí.

Þjálfarinn rekinn

Íslendingalið Stoke City hefur sagt upp samningi hollenska þjálfarans Jan de Koning eftir að hann og knattspyrnustjórinn Johan Boskamp tóku enn eina rimmuna. Þeim félögum hefur komið afar illa saman á síðustu misserum og því hefur félagið afráðið að láta Koning víkja. Hann segist þó alls ekki eiga sökina á deilunum, en hefur óskað félaginu alls hins besta í framtíðinni og er horfinn á braut.

Stórsýningin "Þeir allra sterkustu"

Nú er verið að leggja síðustu hönd á dagskrá og undirbúning stórsýningarinnar " Þeir allra sterkustu". Aðgöngumiða er verið að selja í versluninni Líflandi og einnig verður selt við innganginn í skautahöllinni á laugardag en húsið opnar kl. 19:00.

Fær 100 þúsund pund í skaðabætur

Knattspyrnumaðurinn Wayne Rooney og unnusta hans höfðu í dag betur í málssókn á hendur bresku blöðunum The Sun og News of the World fyrir að birta fréttir af því að Rooney hafi lagt hendur á unnustu sína á næturklúbbi fyrir um ári síðan. Útgáfunni var gert að greiða Rooney 100.000 pund í skaðabætur, en framherjinn ungi ákvað að láta hverja einustu krónu renna til góðgerðarmála.

Stórleikur Detroit og Cleveland í beinni

Það verður sannkallaður stórleikur í beinni útsendingu úr NBA körfuboltanum á Sýn í kvöld þar sem efsta lið deildarinnar Detroit Pistons tekur á móti LeBron James og félögum í Cleveland Cavaliers. Leikurinn er merkilegur fyrir þær sakir að sigur í kvöld þýðir að Detroit setur félagsmet yfir flesta sigra á einu tímabili, en sigur fer líka mjög langt með að tryggja liðinu heimavallarréttin alla leið í úrslitakeppninni sem hefst fljótlega.

Maradona er besti knattspyrnumaður allra tíma

Franski knattspyrnumaðurinn Eric Cantona sem sló í gegn með Manchester United á sínum tíma, segir að Diego Maradona sé bestir knattspyrnumaður allra tíma - betri en sjálfur Pele.

Gert að hvíla í þrjá mánuði

Austurríska bakverðinum Emmanuel Pogatetz hjá Middlesbrough hefur verið sagt að taka sér hlé frá knattspyrnuiðkun í þrjá mánuði eftir að hann lenti í ljótu samstuði í leik í Evrópukeppninni á dögunum þar sem hann nefbrotnaði og brákaði kinnbein. Læknar hafa ráðlagt honum að hvíla í þennan tíma, ella geti hann átt á hættu að missa sjónina.

Middlesbrough - Charlton í beinni á Sýn

Síðari leikur Middlesbrough og Charlton í átta liða úrslitum enska bikarsins verður sýndur í beinni útsendingu á sjónvarpsstöðinni Sýn í kvöld og hefst útsending klukkan 18:55. Liðin skildu jöfn í fyrri viðureigninni á The Valley, en í kvöld verður leikið til þrautar og sigurvegarinn mætir liði West Ham í undanúrslitum keppninnar á Villa Park þann 23. apríl.

Vill Campbell í landsliðið

Arsene Wenger segir að þó hann hafi um nóg annað að hugsa en enska landsliðið, voni hann sannarlega að varnarmaðurinn Sol Campbell komist í hópinn og spili með Englendingum á HM. Landsliðsþjálfarinn Sven-Göran Eriksson hefur þegar lofað Campbell sæti í hópnum ef hann nær að vinna sér sæti í byrjunarliði Arsene Wenger áður en leiktíðinni lýkur á Englandi og nú er útlit fyrir að Campbell verði í byrjunarliðinu þegar Arsenal mætir Portsmouth á Fratton Park í kvöld.

Espanyol - Zaragoza í beinni á Sýn Extra

Úrslitaleikurinn í spænska bikarnum verður sýndur í beinni útsendingu á Sýn Extra klukkan 18:30 í kvöld, en það verður viðureign Real Zaragoza og Espanyol. Leikurinn verður svo sýndur á Sýn um leið og bikarleik Middlesbrough og Charlton lýkur. Þjálfarar liðanna eru litlir vinir og hafa sent hvor öðrum sterk skot í fjölmiðlum undanfarna daga.

Bygging nýja vallarins staðfest

Borgaryfirvöld í Liverpool hafa nú staðfest á ný upphafleg áform knattspyrnufélagsins Liverpool um byggingu á nýjum leikvangi á Stanley Park sem er í næsta nágrenni Anfield, núverandi völl félagsins. Nýja mannvirkið mun taka um 60.000 manns í sæti og reiknað er með að það muni kosta um 160 milljónir punda. Unnið er að því að fjármagna byggingu vallarins sem á að vera lokið innan fjögurra ára.

Býr sig undir að Curbishley hætti

Peter Varney, framkvæmdastjóri Charlton, segir að félagið neyðist til að taka mið af því í sumar að Alan Curbishley knattspyrnustjóri verði ráðinn landsliðsþjálfari Englands og láti af störfum hjá Charlton, þar sem hann hefur starfað í hvorki meira né minna en 15 ár.

Sjá næstu 50 fréttir