Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Glæsilegur sigur Íslendinga á Rússum Íslenska landsliðið í handbolta vann glæsilegan sigur á Rússum í Sviss í dag 34-32, eftir að hafa verið yfir í hálfleik 17-15. Guðjón Valur Sigurðsson skoraði 11 mörk fyrir íslenska liðið og Ólafur Stefánsson gerði 8 mörk. 31.1.2006 16:14
Gríðarlegt áfall fyrir landsliðið Hinn harðskeytti Alexander Petersson, leikmaður íslenska landsliðsins í handbolta, kjálkabrotnaði í leiknum við Rússa í dag og verður því ekki meira með liðinu í keppninni. Þetta er gríðarlegt áfall fyrir íslenska liðið, því Petersson er algjör lykilmaður í liðinu - ekki síst í varnarleiknum. 31.1.2006 22:55
Dallas - Chicago í beinni Leikur Dallas Mavericks og Chicago Bulls verður sýndur í beinni útsendingu á NBA TV á Digital Ísland í kvöld og hefst leikurinn klukkan 01:30. Þarna mætast tvö mjög skemmtileg lið sem koma til með að bjóða upp á góðan körfubolta í nótt. 31.1.2006 22:45
Fulham lagði Tottenham Heiðar Helguson og félagar í Fulham unnu góðan sigur á grönnum sínum í Tottenham í ensku úrvalsdeildinni í kvöld 1-0. Það var Carlos Bocanegra sem skoraði sigurmarkið á lokamínútu leiksins. Heiðar lék allan leikinn með Fulham og fékk reyndar að líta gula spjaldið, en Michael Dawson hjá Tottenham var vikið af leikvelli á 73. mínútu með sitt annað gula spjald fyrir að brjóta á Heiðari. 31.1.2006 21:58
Serbar unnu Norðmenn Lið Serbíu og Svartfjallalands lagði Norðmenn naumlega að velli í kvöld í milliriðli okkar Íslendinga, 26-25. Að loknum fyrsta deginum er íslenska liðið í efsta sæti með fimm stig, Rússar í öðru með fjögur, eins og Króatar, Danir hafa þrjú, Serbar tvö og Norðmenn eru enn án stiga. 31.1.2006 21:18
Jafnt hjá Fulham og Tottenham í hálfleik Nú er kominn hálfleikur í leikjunum fjórum sem standa yfir í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Middlesbrough hefur yfir 2-0 gegn Sunderland á útivelli, jafnt er hjá Wigan og Everton og markalaust er hjá Charlton og West Brom og í leik Fulham og Tottenham. 31.1.2006 20:54
Birmingham kaupir DJ Campbell Hlutirnir hafa verið fljótir að gerast í lífi hins 24 ára gamla framherja DJ Campbell, því í dag var hann keyptur til úrvalsdeildarliðs Birmingham fyrir hálfa milljón punda frá liði Brentford. Fyrir aðeins ári síðan var Campbell á mála hjá utandeildarliðinu Yeading, þar sem hann æfði knattspyrnu aðeins tvisvar í viku. 31.1.2006 20:30
Earnshaw til Norwich Úrvalsdeildarlið West Brom hefur selt lítið notaðan framherja sinn Robert Earnshaw til 1. deildarliðs Norwich fyrir um 3,5 milljónir punda. Earnshaw byrjaði feril sinn hjá Cardiff og er í landsliði Wales. Hann er 24 ára gamall, en hefur fá tækifæri fengið með West Brom í vetur og vildi fara frá félaginu. 31.1.2006 19:15
Króatar lögðu Dani Króatar unnu nauman sigur á dönum í 2. milliriðli EM í handbolta nú undir kvöldið 31-30, eftir að hafa verið yfir 15-14 í hálfleik. Króatar hafa því hlotið 4 stig í riðlinum, en Danir hafa þrjú. Íslenska liðið er á toppi riðilsins með 5 stig. Þá sigruðu Frakkar Slóvena í dag 34-30. 31.1.2006 18:47
Scaloni til West Ham West Ham fékk í dag argentínska landsliðsmanninn Lionel Scaloni að láni út leiktíðina frá spænska liðinu Deportivo La Coruna. West Ham mun þó ekki geta keypt leikmanninn þó hann standi sig vel með liðinu, en þetta er vissulega góður fengur fyrir Alan Pardew og hans menn. 31.1.2006 18:30
Blackburn fær liðsstyrk Úrvalsdeildarlið Blackburn gekk frá samningi við tvo leikmenn nú rétt áðan. Fyrst keypti það David Bentley frá Arsenal og gerði við hann langtímasamning, en hann hefði verið í láni hjá Blackburn síðan í haust. Þá fær liðið franska sóknarmanninn Florent Sinama Pongolle hjá Liverpool að láni út leiktíðina. 31.1.2006 17:33
Fjórir leikir á dagskrá í kvöld Fjórir leikir verða á dagskrá í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld. Hermann Hreiðarsson og félagar í Charlton taka á móti West Brom, Heiðar Helguson og félagar í Fulham mæta Tottenham, Sunderland tekur á móti Middlesbrough og Wigan mætir Everton. Tveir síðastnefndu leikirnir hefjast klukkan 19:45, en hinir fyrri klukkan 20. 31.1.2006 17:30
City hafnaði boði Boro í Barton Middlesbrough er sagt hafa boðið Manchester City 4 milljónir punda í miðjumanninn Joey Barton í dag, en City neitaði því um hæl. Talið er að forráðamenn City vilji fá nær 6 milljónum fyrir Barton, en helst vilja menn þar á bæ auðvitað halda í hann, þó hann hafi farið fram á að verða seldur frá félaginu í gær eftir að lítið gekk í viðræðum um nýjan samning hans. 31.1.2006 16:45
Þjóðverjar völtuðu yfir Úkraínu Þjóðverjar voru ekki í vandræðum með Úkraínumenn í 1. milliriðlinum á EM í handbolta í dag og sigruðu 36-22 eftir að hafa verið með aðeins tveggja marka forystu í leikhléi. Florian Kehrmann var markahæstur hjá Þjóðverjum með 9 mörk og Henning Fritz varði 21 skot í markinu. 31.1.2006 16:44
Enn selur Tottenham Tottenham losaði sig við enn einn leikmanninn í dag þegar miðjumaðurinn Michael Brown var seldur til Fulham í dag fyrir óuppgefna upphæð, en liðin eigast einmitt við í úrvalsdeildinni í kvöld. Brown hefur ekki átt fast sæti í liðinu á leiktíðinni og fagnar því að fara til Fulham í þeirri von að fá að spila meira. 31.1.2006 16:26
Íslendingar yfir gegn Rússum í hálfleik Íslenska landsliðið í handknattleik hefur yfir 17-15 gegn Rússum þegar flautað hefur verið til leikhlés. Ólafur Stefánsson hefur skorað 6 mörk, Guðjón Valur 5 og Snorri Steinn er með 5 mörk, þar af eitt úr vítakasti. 31.1.2006 15:27
Argentínumaður til Portsmouth Úrvalsdeildarlið Portsmouth hefur fengið til sín enn einn leikmanninn áður en félagaskiptaglugganum á Englandi lokar í kvöld. Í dag fékk félagið Argentínumanninn Andres D´Allessandro að láni út leiktíðina, en hann er ungur landsliðsmaður sem spilar á miðjunni og kemur frá Wolfsburg í Þýskalandi. 31.1.2006 14:30
Tottenham kaupir miðjumann Úrvalsdeildarlið Tottenham Hotspurs hefur fest kaup á egypska miðjumanninum Hossam Ghaly frá Feyenoord í Hollandi og hefur hann skrifað undir langtímasamning við félagið. Yfirmaður knattspyrnumála hjá Tottenham segist þekkja vel til leikmannsins og segist vera búinn að fylgjast með honum í átta ár, eða síðan hann var 17 ára gamall. 31.1.2006 14:15
Miami lagði LA Clippers Miami vann í nótt sigur á LA Clippers í skemmtilegum leik 118-114, þar sem leikmenn Miami gerðu út um leikinn í lokin með góðri vítanýtingu. Dwayne Wade var þeirra atkvæðamestur með 28 stig og 11 stoðsendingar, en Elton Brand skoraði 31 stig fyrir Clippers og Cuttino Mobley skoraði 28 stig og gaf 11 stoðsendingar. 31.1.2006 13:43
Með nýjan samning á borðinu Tékkneski markvörðurinn Petr Cech hjá Chelsea er sagður muni skrifa undir nýjan langtímasamning við félagið á allra næstu dögum. Cech hefur verið algjör lykilmaður í velgengni liðsins síðan hann kom til Englands sumarið 2004. Núverandi samningur hans rennur þó ekki út fyrr en árið 2008. 30.1.2006 21:30
Snæfell burstaði Hött Snæfell burstaði Hött 101-77 á Egilsstöðum í kvöld, en leiknum var frestað í gærkvöldi vegna ófærðar. Höttur er því enn í neðsta sæti deildarinnar með aðeins fjögur stig úr 15 leikjum, en Snæfellingar eru nú í því sjöunda með 16 stig. 30.1.2006 21:08
Óvænt tap hjá meisturunum Túnisar töpuðu óvænt 3-0 fyrir Gíneu í lokaleik C-riðilsins í Afríkukeppninni í knattspyrnu í kvöld og því var það Gínea sem hafnaði í efsta sæti riðilsins og mætir liðinu sem endar í öðru sæti í D-riðlinum. Túnis mætir efsta liðinu í sama riðli í 16-liða úrslitunum. Þá vann Zambía sigur á Suður-Afríku 1-0, en þar var lítið í húfi því hvorugt liðið kemst áfram í keppninni. 30.1.2006 20:45
Joey Barton vill fara frá City Miðjumaðurinn Joey Barton hjá Manchester City hefur farið fram á að verða seldur frá félaginu eftir að uppúr slitnaði í viðræðum hans við félagið um nýjan samning. Forráðamenn City vilja ekki uppfylla kröfu hins 23 ára gamla leikmanns og reyna nú allt til að tala um fyrir honum. 30.1.2006 20:00
Portsmouth fær liðsstyrk Úrvalsdeildarlið Portsmouth hefur bætt við sig tveimur leikmönnum á lánssamningi út leiktíðina, en þetta eru Serbinn Ognijen Koroman frá Terek Groznyi í Rússlandi og Wayne Routledge frá Tottenham, en sá síðarnefndi er fjórði leikmaðurinn sem Portsmouth fær frá Lundúnaliðinu á stuttum tíma. 30.1.2006 18:30
Dublin til Glasgow Glasgow Celtic hefur fest kaup á gamla refnum Dion Dublin frá Leicester City og hefur gengið frá samningi við hinn 36 ára gamla leikmann út leiktíðina. Dublin er fjölhæfur leikmaður og lék áður undir stjórn Gordon Strachan hjá Coventry. 30.1.2006 18:15
Rodman segist geta spilað aftur í NBA Skrautfuglinn Dennis Rodman segist eiga nóg inni í körfuboltanum eftir að hann gerði ágætt mót með liði Brighton Bears í enska körfuboltanum um helgina. Rodman skoraði fjögur stig og hirti sjö fráköst í sigri liðsins á Guildford Heat 91-88 um helgina. 30.1.2006 17:30
Zebina fer ekki frá Juventus Varnarmaðurinn Jonathan Zebina mun ekki fara frá ítölsku meisturunum Juventus til Tottenham í janúarglugganum eins og enska liðið hafði vonast til. Kom á daginn að Fabio Capello vildi ekki að leikmaðurinn færi frá liðinu núna, en þó er ekki loku fyrir það skotið að Tottenham kaupi Frakkann í sumar. 30.1.2006 17:00
Nú eru jólin Framherjinn Robbie Fowler var kynntur til sögunnar sem nýjasti liðsmaður Liverpool á blaðamannafundi í dag, þar sem hann sagði að framvegis yrði hver dagur eins og jóladagur hjá sér eftir að hann fékk að snúa aftur á gamlar slóðir. 30.1.2006 16:30
Ballack fær engan draumasamning Forráðamenn Bayern Munchen láta nú í það skína að litlir peningar verði handbærir til að bjóða Michael Ballack risasamning, en núverandi samningur hans rennur út í sumar. Ballack hefur fram að þessu ekki viljað ræða nýjan samning og hefur verið orðaður við lið á Englandi og á Spáni. 30.1.2006 16:00
Gary Neville hafnar ákæru knattspyrnusambandsins Gary Neville hefur hafnað ákæru enska knattspyrnusambandsins í kjölfar fagnaðarláta hans eftir að Manchester United skoraði sigurmark sitt gegn Liverpool á dögunum og hefur farið fram á fund með sambandinu fljótlega. Neville þótti storka stuðningsmönnum Liverpool með því að hlaupa í átt til þeirra og benda á merki United á treyju sinni. 30.1.2006 15:40
Campo verður frá í tíu vikur Læknar úrvalsdeildarliðs Bolton hafa nú staðfest að miðjumaðurinn Ivan Campo verði frá keppni í að minnsta kosti tíu vikur vegna fótbrotsins sem hann hlaut í leiknum gegn Arsenal á dögunum. "Ég held að þetta sé verra brot en það sem hann hlaut síðast og á varla von á að sjá hann aftur fyrr en þá í fyrsta lagi undir lok tímabilsins," sagði Sam Allardyce, stjóri Bolton. 30.1.2006 15:30
Birmingham fær Latka að láni Úrvalsdeildarlið Birmingham hefur fengið tékkneska u-21 árs landsliðsmanninn Martin Latka að láni út leiktíðina, en hann kemur frá Slavia Prague og er hávaxinn og sterkur varnarmaður. "Menn mæla sterklega með þessum strák og hann er ungur, sem er alltaf betra," sagði Steve Bruce, stjóri Birmingham. 30.1.2006 15:15
Federer ætlar að vinna alla stóru titlana Tenniskappinn Roger Federer, sem um helgina vann opna ástralska meistaramótið í annað sinn á ferlinum, segist ætla að reyna allt sem hann getur til að vinna opna franska meistaramótið og komast þar með í hóp fárra spilara sem hafa verið handhafar allra stóru titlana í einu. 30.1.2006 14:45
Fjórði sigur Woods á Buick-mótinu Tiger Woods hristi af sér slenið í byrjun og vann sinn fjórða sigur á ferlinum á Buick Invitational mótinu á PGA mótaröðinni í golfi sem lauk í gærkvöldi. Woods vann nauman sigur á annari holu í bráðabana eftir spennandi einvígi við Jose Maria Olazabal, eftir að þeir höfðu lokið keppni á 10 undir pari eins og nýliðinn Nathan Green. 30.1.2006 14:30
70% líkur á að Wembley verði tilbúinn Áströlsku verktakarnir sem standa að byggingu nýja Wembley-vallarins í London, hafa nú varað við því að verkinu gæti seinkað um nokkurn tíma og segja að útlit sé fyrir að séu 70% líkur á að hægt verði að halda úrslitaleikinn í enska bikarnum þar þann 13. maí eins og til stóð. 30.1.2006 14:15
Liverpool og Manchester United mætast á Anfield Nú rétt áðan var dregið í fimmtu umferð ensku bikarkeppninnar og þar ber hæst að Liverpool og Manchester United mætast á Anfield. Leikirnir fara fram helgina 18. febrúar. 30.1.2006 13:46
Ásgeir Örn í landsliðshópinn Ásgeir Örn Hallgrímsson, leikmaður Lemgo í Þýskalandi, hefur verið kallaður inn í íslanska landsliðshópinn í stað Vilhjálms Halldórssonar og er væntanlegur á æfingu liðsins í kvöld. 30.1.2006 13:40
Ellefu sigrar í röð hjá Detroit Skorunarmaskínan Kobe Bryant mátti sín lítils gegn efsta liði deildarinnar Detroit Pistons í nótt þegar lið hans LA Lakers lá fyrir Pistons 102-93 á útivelli. Bryant skoraði 39 stig í leiknum en mátti sín lítils gegn öflugri liðsheild Detroit, þar sem fimm leikmenn skoruðu 10 stig eða meira þó liðið væri langt frá sínu besta. 30.1.2006 11:45
Við vildum vinna þennan leik Viggó Sigurðsson var nokkuð vonsvikinn eftir tapið gegn Ungverjum í lokaleik liðsins í C-riðli í dag og sagðist hafa vonast eftir að klára riðilinn með stæl, þó úrslit leiksins í dag skipti engu máli upp á framhaldið. 29.1.2006 20:58
Naumur sigur Keflvíkinga á KR Keflvíkingar lögðu KR 95-92 í æsispennandi leik í vesturbænum í kvöld, þar sem úrslitin réðust á lokasekúndum leiksins. Njarðvíkingar lögðu Þór 82-74, Fjölnir lagði Hamar 113-103, Grindavík sigraði ÍR 113-98 og Skallagrímur lagði Hauka í Borgarnesi 112-94. Leik Hattar og Snæfells var frestað þangað til á morgun. 29.1.2006 21:33
Danir efstir í riðlinum Danir tryggðu sér í kvöld efsta sætið í C-riðlinum á EM í Sviss þegar þeir lögðu Serba og Svartfellinga með 33 mörkum gegn 29. Danir hirtu með því efsta sæti riðilsins og fara áfram í milliriðil með okkur Íslendingum með þrjú stig í farteskinu líkt og íslenska liðið. Serbarnir fara einnig áfram, en án stiga. 29.1.2006 21:05
Auðveldur sigur Barcelona Barcelona heldur áfram sigurgöngu sinni í spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu og í dag vann liðið öruggan útisigur á Mallorca 3-0. Argentínumaðurinn Lionel Messi skoraði tvö mörk fyrir Barcelona og Ludovic Giuly skoraði eitt, en Börsungar léku manni fleiri síðasta stundarfjórðinginn eftir að Tuzzio var vikið af velli í liði Mallorca. 29.1.2006 20:32
Kamerún áfram Kamerúnar tryggðu sér í dag áframhaldandi þáttöku í Afríkukeppninni þegar liðið lagði Kongó 2-0 með mörkum frá Samuel Eto´o og Geremi Nijtap. Kongómenn komast þrátt fyrir tapið áfram á markamun, en þeir voru með hagstæðari markatölu í B-riðli en Angólar sem sigruðu Tógó 3-2 í dag. 29.1.2006 20:22
Línur að skýrast fyrir milliriðilinn Íslenska landsliðið í handknattleik mun leika með Serbum, Dönum, Norðmönnum, Rússum og Króötum í milliriðlinum á EM í Sviss, en keppni í riðlinum hefst á þriðjudag. 29.1.2006 20:04
Liverpool áfram Liverpool er komið áfram í fimmtu umferð enska bikarsins eftir 2-1 sigur á Portsmouth á útivelli í dag. John Arne Riise og Steven Gerrard skoruðu mörk Liverpool í fyrri hálfleik, en Sean Davis minnkaði muninn fyrir heimamenn í þeim síðari. 29.1.2006 20:00