Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Solberg enn í fyrsta sætinu Norski rallkappinn Petter Solberg á Subaru heldur enn forystu í Ástralíurallinu eftir annan dag keppninnar, sem klárast um helgina. Gamla kempan Colin McRae er kominn í þriðja sætið, eftir að Marcus Grönholm féll úr leik eftir að hafa ekið útaf eins og heimsmeistarinn Sebastien Loeb. Solberg hefur 46 sekúndu forskot á McRae. 11.11.2005 17:30
Jewell aftur kjörinn stjóri mánaðarins Paul Jewell, stjóri nýliða Wigan í ensku úrvalsdeildinni, var í dag kjörinn knattspyrnustjóri mánaðarins annan mánuðinn í röð. Þetta er í fyrsta sinn í fjögur og hálft ár sem sami stjóri fær þennan heiður tvisvar í röð. 11.11.2005 17:30
Lék á þremur yfir pari í dag Kylfingurinn Birgir Leifur Hafþórsson lék annan hringinn á lokaúrtökumótinu fyrir Evrópumótaröðina í golfi á þremur höggum yfir pari í dag og er því samtals á fimm höggum yfir pari eftir fyrstu tvo hringina. Birgir er í 84.-97. sæti á mótinu sem fer fram á Spáni, en aðeins þrjátíu fyrstu kylfingarnir komast á Evrópumótaröðina á næsta ári. 11.11.2005 16:28
Byrjunarliðið liggur nokkuð ljóst fyrir Sven-Göran Eriksson, þjálfari enska landsliðsins, hefur gefið sterkar vísbendingar um það hvernig hann mun stilla byrjunarliði sínu upp í æfingaleiknum við Argentínu í Genf á morgun. 11.11.2005 16:13
Einbeitir sér að því að spila á Spáni Framherjinn ungi Fernando Torres hjá Atletico Madrid segist upp með sér yfir áhuga Arsenal á að fá sig í sínar raðir, en tekur fram að það eina sem hann sé að hugsa um í augnablikinu sé að spila með félagsliði sínu og landsliði. 11.11.2005 16:00
Efasemdir uppi um að verkið klárist á réttum tíma Forsvarsmenn fyrir byggingu nýja Wembley-leikvangsins segjast ekkert geta fullyrt um hvort mannvirkið verði tilbúið á tilsettum tíma í vor til að hýsa úrslitaleikinn í enska bikarnum. 11.11.2005 15:00
Detroit með 5. sigurinn í röð Þrír leikir fóru fram í NBA deildinni í körfubolta í gærkvöldi og þar bar hæst að Detroit Pistons skelltu Phoenix Suns á útivelli 111-104 í frábærum leik sem sýndur var í beinni útsendingu á NBATV í nótt. Miami vann nauman útisigur á Houston 88-84 og Atlanta tapaði 5. leiknum í röð, nú gegn LA Clippers 102-95. 11.11.2005 13:00
Prinsinn getur komist á toppinn á ný Fyrrum þjálfari hnefaleikakappans Prince Naseem Hamed, segir að hann eigi fína möguleika á að endurheimta heimsmeistaratitilinn ef hann ákveði að snúa aftur í hringinn, en hinn 31 árs gamli Hamed hefur látið lítið fyrir sér fara í þrjú ár. 11.11.2005 10:00
Njarðvíkingar völtuðu yfir Hamar/Selfoss Fimm leikir voru á dagskrá í úrvalsdeild karla í körfuknattleik í kvöld. Njarðvíkingar völtuðu yfir Hamar/Selfoss 108-68, Fjölnir sigraði ÍR 98-74, Skallagrímur vann Þór 91-65, Grindavík vann Snæfell 95-90 og KR sigraði Hauka 99-80. Leik Hattar og Keflavíkur var frestað vegna leka í íþróttahúsinu á Egilsstöðum. 10.11.2005 21:00
Phoenix - Detroit í beinni útsendingu Það verður sannkallaður stórleikur í beinni á NBA TV í nótt, þar sem Steve Nash og félagar í Phoenix Suns taka á móti Austurdeildarmeisturum Detroit Pistons. Phoenix hefur gengið betur án Amare Stoudemire en menn þorðu að vona, en Detroit er á mikilli siglingu og er eina taplausa liðið í NBA. 10.11.2005 20:30
Gerði nýjan samning við Wigan Varnarmaðurinn Pascal Chimbonda hefur undirritað nýjan fjögurra ára samning við spútniklið Wigan í ensku úrvalsdeildinni, aðeins nokkrum mánuðum eftir að hann kom til félagsins frá Bastia fyrir hálfa milljón punda. 10.11.2005 20:00
Eru dagar Alain Perrin taldir? Milan Mandaric, stjórnarformaður Portsmouth virðist loksins vera að missa þolinmæðina í garð knattspyrnustjórans Alain Perrin, sem hefur aðeins stýrt liðinu til sigurs í fjórum af tuttugu leikjum síðan hann tók við á síðasta tímabili. Það er versti árangur nokkurs stjóra í sögu félagsins. 10.11.2005 19:00
Æsileg barátta um annað sætið Petter Solberg og Marcus Grönholm há nú mikið einvígi um annað sætið í stigakeppni ökumanna á heimsmeistaramótinu í ralli. Nú stendur Ástralíurallið sem hæst og þar hefur Solberg nauma forystu eftir fyrstu tvær sérleiðirnar. Þeir félagar eru hnífjafnir í öðru sæti stigakeppninnar með 71 stig, en eru þó 56 stigum á eftir heimsmeistranum Sebastien Loeb sem þegar hefur tryggt sér titilinn. 10.11.2005 18:00
Ánægður hjá Liverpool Franski sóknarmaðurinn Djibril Cissé hjá Liverpool segist nú vera ánægður í herbúðum liðsins og segist vilja klára samning sinn hjá félaginu. Cissé var mjög ósáttur með að vera ekki í byrjunarliði Liverpool í upphafi leiktíðar, en er nú orðinn markahæstur í liðinu og virðist hafa skipt um skoðun. 10.11.2005 17:00
Látið Crouch í friði Michael Owen hefur biðlað til stuðningsmanna enska landsliðsins að baula ekki á Peter Crouch þegar hann spilar fyrir liðið, því það geti grafið undan sjálfstrausti hans. Áhorfendur bauluðu á Crouch þegar hann spilaði fyrir England gegn Austurríki í síðasta mánuði, en framherjinn leggjalangi hefur ekki skorað mark fyrir Liverpool eða enska landsliðið í 16 leikjum á tímabilinu. 10.11.2005 16:00
Lék á tveimur yfir pari í dag Kylfingurinn Birgir Leifur Hafþórsson úr GKG lauk fyrsta keppnisdegi sínum á lokaúrtökumótinu fyrir Evrópumótaröðina í dag á tveimur höggum yfir pari, eða 74 höggum. Skor er almennt frekar hátt á mótinu og innan við þriðjungur kylfinganna á mótinu á San Rouque vellinum eru á pari eða þar undir. 10.11.2005 15:30
Ívar samdi við Reading til 2008 Ívar Ingimarsson hefur skrifað undir nýjan samning við fyrstu deildar liðið Reading, sem þýðir að hann verður hjá félaginu í þrjú ár til viðbótar. Ívar hefur verið í herbúðum liðsins síðan 2003, en samningur hans hefði runnið út í sumar. 10.11.2005 14:15
Hef ekkert rætt við fulltrúa Arsenal Útsendari frá Arsenal fylgdist með Fernando Torres hjá Atletico Madrid spila um síðustu helgi og það gaf orðrómi um kaup Arsenal á framherjanum byr undir báða vængi í gær. Umboðsmaður Torres segist hinsvegar ekki hafa heyrt í neinum frá Arsenal í meira en eitt og hálft ár. 10.11.2005 14:12
King og Lampard heilir Þrátt fyrir fréttir um hið andstæða í gær, virðist nú sem þeir Ledley King og Frank Lampard verði klárir í slaginn með enska landsliðinu gegn Argentínu á laugardaginn. Talið var að King gæti ekki spilað vegna hnémeiðsla, en bæði hann og Lampard komust í gegn um æfingu með enska liðinu í morgun. 10.11.2005 14:00
Vitali Klitschko hættur Þungavigtarhnefaleikarinn Vitali Klitschko hefur ákveðið að leggja hanskana á hilluna 34 ára gamall vegna þrálátra meiðsla sem hann hefur átt við að stríða á undanförnum mánuðum. Fyrirhuguðum andstæðingi hans Hasim Rahman hefur því verið afhent WBC meistarabeltið, en þeir áttu að berjast núna 12. nóvember. 10.11.2005 13:30
Nowitzki meiddist og Dallas tapaði Tólf leikir voru á dagskrá í NBA deildinni í nótt. Philadelphia sigraði Dallas auðveldlega 112-97 eftir að Dallas var án Dirk Nowitzki lengst af í leiknum, en hann meiddist í baki. Keith Van Horn skoraði 19 stig og hirti 13 fráköst fyrir Dallas, en Allen Iverson skoraði 25 stig fyrir Philadelphia. 10.11.2005 12:00
Ballack verður ekki seldur í janúar Michael Becker, umboðsmaður miðjumannsins Michael Ballack hjá Bayern Munchen, segir að leikmaðurinn verði alls ekki seldur frá Bayern þegar félagaskiptaglugginn opnast í janúar, en fjöldi liða er á höttunum eftir Ballack sem hefur enn ekki gefið upp hvort hann ætli að framlengja samning sinn við Bayern. 9.11.2005 21:00
Ledley King meiddur á hné Nú þykir ólíklegt að varnarmaðurinn Ledley King verði með enska landsliðinu þegar það mætir Argentínumönnum í æfingaleik á laugardaginn, eftir að hann gat ekki æft með liðinu í dag vegna hnémeiðsla. 9.11.2005 19:30
Verður frá í tvo mánuði Miðvallarleikmaðurinn Mark van Bommel hjá Barcelona verður frá keppni í um tvo mánuði eftir að að hann meiddist illa á æfingu með hollenska landsliðinu. Hann fór í aðhlynningu hjá læknum í Amsterdam og hefur verið ráðlagt að fara ekki strax til Barcelona vegna þess að hann er enn mikið bólginn. 9.11.2005 19:00
Philadelphia - Dallas í beinni Leikur Philadelphia 76ers og Dallas Mavericks verður í beinni útsendingu á NBA TV körfuboltastöðinni á Digital Ísland í kvöld. Þarna eru á ferðinni tvö skemmtileg lið, sem hafa á að skipa tveimur af betri leikmönnum heimsins, þeim Allen Iverson og Dirk Nowitzki. 9.11.2005 18:15
Fékk Mike Tyson í heimsókn Tveir kóngar í íþróttaheiminum, knattspyrnuhetjan Diego Armando Maradona og hnefaleikakappinn Mike Tyson, fóru mikinn í sjónvarpsþætti þess fyrrnefnda í argentísku sjónvarpi í gær. Maradona og Tyson eiga ýmislegt sameiginlegt. 9.11.2005 18:00
Sacramento fékk grínið borgað Skondin uppákoma varð fyrir leik Sacramento og Detroit í NBA í nótt. Í upphitun fyrir leik liðanna eru venjulega spiluð myndbrot á risaskjá fyrir ofan völlinn og þegar lið Detroit var kynnt, hafði einhverjum háðfuglinum dottið í hug að sýna myndir af brenndum bílum og ónýtum byggingum, til að gera grín af staðalmyndum um bílaborgina. Þetta fór ekki vel fyrir brjóstið á leikmönnum Detroit. 9.11.2005 16:00
Hannover rekur þjálfarana Þýska úrvalsdeildarliðið Hannover 96 hefur rekið aðalþjálfarann Ewald Lienen og aðstoðarmann hans Michael Frontzeck, eftir að þeir náðu aðeins einum sigri í síðustu átta leikjum með liðið. Lienen er þriðji þjálfarinn sem tekur pokann sinn í úrvalsdeildinni í vetur, en áður höfðu þeir Klaus Augenthaler hjá Leverkusen og Wolfgan Wolf hjá Nurnberg verið látnir fara. 9.11.2005 15:00
Þrælahald stundað í fótbolta Sextán ára knattspyrnumenn frá Afríku fara unnvörpum til Belgíu að reyna fyrirsér í atvinnumennskunni. Fæstir ná að uppfylla þann draum og þeir lenda á bótum hjá belgíska ríkinu. 9.11.2005 14:30
Byrjar strax að æfa aftur Fyrirliði Newcastle, Alan Shearer, er strax kominn aftur heim til Newcastle eftir kviðslitsaðgerð sem hann gekkst undir í Þýskalandi í byrjun vikunnar og hefur þegar byrjað rólegar æfingar. 9.11.2005 14:00
Tibúinn að mæta Argentínu David Beckham hefur átt eftirminnilegar stundir með enska landsliðinu þegar það hefur mætt Argentínumönnum á stórmótum og hlakkar til að mæta þeim í vináttuleik þann 12. næstkomandi. 9.11.2005 13:00
Verðum að ná í 20 stig fyrir jól Birmingham hefur gengið skelfilega í ensku úrvalsdeildinni það sem af er leiktíð og liðið situr nú í 19. sæti deildarinnar með aðeins sex stig úr fyrstu tólf leikjunum. Steve Bruce hefur sett liðinu markmið og ætlar því að vera komið með 20 stig um jólin. 9.11.2005 12:15
Detroit enn taplaust Detroit Pistons heldur áfram sigurgöngu sinni í upphafi leiktíðar í NBA og í gær rúllaði liðið yfir Sacramento á útivelli 102-88. Milwaukee Bucks tapaði sínum fyrsta leik, en Los Angeles Lakers byrjar ágætlega. 9.11.2005 11:00
Miklu betri en Beckham Brasilímaðurinn Juninho Pernambucano hefur að mati sérfræðinga tekið krúnuna af sjálfum David Beckham sem helsti aukaspyrnusérfræðingur heims. 9.11.2005 08:00
Ceres 4 þrekþjálfari Þróttar Kennarinn, þjálfarinn, tónlistarmaðurinn og athafnamaðurinn Hlynur Áskelsson, sem einhverjir kunna að þekkja sem Ceres 4 en aðrir sem Köttara númer tvö, hefur tekið að sér þrek- og úthaldsþjálfun Þróttar og mun þar af leiðandi bera ábyrgð á því að leikmenn liðsins geti hlaupið heilan fótboltaleik næsta sumar. 9.11.2005 07:45
Loksins hættur í boltanum Hollenski varnarmaðurinn Winston Bogarde hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna fyrir fullt og allt, en þessi fyrrverandi landsliðsmaður hefur verið í tómu rugli síðustu ár eftir að hafa verið á ofurlaunum í fimm ár hjá Chelsea án þess að spila neitt af viti. 9.11.2005 07:15
HK sterkara á endasprettinum en Afturelding Það var ekkert gefið eftir í leik Aftureldinngar og HK í 16-liða úrslitum SS-bikarsins í gær n Kópavogsbúar gerðu góða ferð í Mosfellsbæinn þar sem þeir sigruðu Aftureldingu, 28-23. 9.11.2005 07:00
Ætlar að eyða í janúar Alex Ferguson, stjóri Man. Utd, staðfesti við enska fjölmiðla í gær að hann hyggðist styrkja leikmannahóp sinn verulega þegar leikmannaglugginn opnast á ný í janúar. 9.11.2005 06:00
Sektað um 700 þúsund á árinu Knattspyrnusamband Íslands hefur alls verið sektað um ríflega 700 þúsund krónur á tímabilinu vegna áminninga sem leikmenn íslenska landsliðsins hafa hlotið í undankeppni HM. 9.11.2005 05:45
Memphis-Seattle í beinni Einn leikur verður í beinni útsendingu á NBA TV í nótt, en það er viðureign Memphis Grizzlies og Seattle Supersonics. Memphis hefur unnið tvo leiki og tapað einum, en Seattle hefur spilað tvo leiki og unnið annan þeirra. Pau Gasol er stigahæstur í liði Memphis með rúm 25 stig að meðaltali í leik, en Ray Allen hefur skorað rúmt 31 stig í leik fyrir Seattle. Leikurinn hefst klukkan eitt í nótt. 8.11.2005 22:00
Bikarmeistararnir úr leik Bikarmeistarar ÍR eru úr leik í SS-bikarnum í handbolta, en íR-ingar töpuðu fyrir Fylki í 16-liða úrslitum keppninnar í kvöld 31-28. HK vann Aftureldingu 28-23, Aðallið FH sigraði FH Elítuna 31-28 og Fram valtaði yfir FH B 48-14. 8.11.2005 21:00
Graham Rix þjálfar Hearts Í dag var staðfest að fyrrum þjálfari Portsmouth, Graham Rix hefði verið ráðinn aðalþjálfari úrvalsdeildarliðs Hearts í Skotlandi. Á næstunni er svo fyrirhugað að ráða yfirmann knattspyrnumála til félagsins, en allir menn í þessum stöðum voru látnir fara eða sögðu upp fyrir stuttu vegna deilna við eiganda félagsins. 8.11.2005 18:00
Ég á skilið að vera í landsliðinu David James, markvörður Manchester City segir að trú hans á sjálfan sig hafi gert honum kleift að vinna sér aftur inn sæti í enska landsliðinu, en James missti sæti sitt í liðinu eftir skelfilega frammistöðu gegn Dönum á Parken í ágúst. 8.11.2005 17:59
Rooney má ekki vera undir pressu Landsliðsþjálfari Þjóðverja telur að enska landsliðið hafi fulla burði til að verða heimsmeistari í Þýskalandi á næsta ári, en segir að Englendingar verði að gæta þess að setja ekki of mikla pressu á hinn unga Wayne Rooney. 8.11.2005 17:15
Á yfir höfði sér frekari refsingu Lauren Robert gæti átt yfir höfði sér aðra refsingu sína á stuttum tíma frá félagi sínu Portsmouth, eftir að hann gagnrýndi liðið harðlega í viðtölum eftir tapið gegn Wigan um helgina. 8.11.2005 16:30