Fleiri fréttir

Einbeitingarleysi felldi okkur

Logi Ólafsson, annar landsliðsþjálfarana, var þokkalega sáttur með frammistöðu sinna manna gegn Pólverjum í gær en sagði það óneitanlega vonbrigði að tapa leiknum með þessum hætti.

Værukær varnarleikur í Varsjá

Það vantaði fjölmarga lykilmenn í íslenska landsliðið í gær og því kjörið tækifæri fyrir aðra til að sanna sig. Sumir nýttu það tækifæri ágætlega en aðrir miður vel. Pólska liðið er að gera frábæra hluti í undankeppni HM og það er enginn skömm að því að tapa naumlega fyrir þessu liði. Leikur íslenska liðsins gekk upp að mörgu leyti en eins og venjulega varð ömurlegur varnarleikur liðinu að falli.

Tími hefnda runninn upp

Enska landsliðið í knattspyrnu tekur í dag á móti því austurríska í undankeppni HM 2006. Leikurinn er sá fyrsti hjá landsliði Englands síðan það tapaði heldur óvænt fyrir Norður-Írum í Belfast í síðasta mánuði. Leikurinn skiptir miklu máli fyrir Englendinga sem heyja harða baráttu við Pólverja um toppsæti riðilsins en þessi lið mætast í næstu viku í lokaumferð riðilsins.

Enn tapar Notts County

Notts County, lið Guðjóns Þórðarsonar í ensku annari deildinni, tapaði enn einum leiknum í kvöld þegar það tók á móti Boston United á heimavelli sínu. Boston hafði sigur 2-1.

Þór og ÍR skyldu jöfn

Leikur Þórs og ÍR í DHL-deild karla í handknattleik í kvöld var æsispennandi og lauk með jafntefli 33-33, en leikið var á Akureyri. Staðan í hálfleik var 18-16 fyrir gestina.

Jafnt hjá Fylki og Aftureldingu

Fylkir og Afturelding skyldu jöfn 26-26 í Árbænum í DHL-deild karla í kvöld, eftir að staðan hafði verið jöfn 13-13 í hálfleik. Arnar Jón Agnarsson var markahæstur í liði Fylkis með 7 mörk og Heimir Örn Árnason skoraði 6, en hjá Aftureldingu skoraði Ernir Hrafn Arnarsson 9 mörk.

Selfoss lagði HK

Selfyssingar gerðu sér lítið fyrir og lögðu HK í Vallaskóla í DHL-deild karla í kvöld, eftir að staðan hafði verið 15-12 fyrir gestina í hálfleik. Ívar Grétarsson og Ramunas Mikalonis skoruðu 7 mörk hvor fyrir heimamenn, en Elías Halldórsson og Valdimar Þórsson skoruðu 7 mörk hvor í liði HK.

Enska U-21 árs liðið tapaði

Enska landsliðið, skipað leikmönnum undir 21 árs, hitaði ekki vel upp fyrir A-landsliðið í gær, þegar það tapaði 2-1 á heimavelli fyrir jafnöldrum sínum frá Austurríki. Carlton Cole kom heimamönnum yfir í fyrri hálfleik, en tvö mörk frá Marc Janco í þeim síðari tryggðu Austurríki sigurinn.

Logi atkvæðamikill

Landsliðsmaðurinn Logi Gunnarsson skoraði 22 stig fyrir lið sitt Bayreuth í gærkvöld, þegar liðið lagði Mainfranken Wurzburg auðveldlega, 99-63 í þýsku annari deildinni. Bayreuth hefur unnið tvo fyrstu leiki sína í deildarkeppninni og hefur Logi farið mjög vel af stað með nýja liðinu sínu.

Ferdinand heldur líklega sæti sínu

Varnarmaðurinn Rio Ferdinand mun að öllum líkindum halda sæti sínu í vörn enska landsliðsins þegar það mætir Austurríki á laugardaginn, en miklar vangaveltur hafa verið um það hvort Sol Campbell myndi taka sæti hans, eftir að Ferdinand hefur verið nokkuð frá sínu besta að undanförnu.

Rooney segist hafa þroskast

Hinn ungi en skapheiti framherji Wayne Rooney hjá Manchester United, heldur því fram að hann hafi þroskast mikið síðan hann gekk í raðir liðsins og segir að aukin ábyrgð sem fylgi því að spila fyrir stórliðið muni verða til þess að flýta fyrir þroska sínum.

Okocha að hætta með Nígeríu

Miðjumaðurinn Jay-Jay Okocha hjá Bolton hefur gefið það út að hann muni líklega hætta að spila með landsliði Nígeríu eftir HM í Þýskalandi næsta sumar, ef liðið kemst þá á mótið.

Gunnar heiðar metinn á 250 millur

Verðmiði Gunnars Heiðars Þorvaldssonar, framherja Halmstad, sem slegið hefur í gegn í sænsku úrvalsdeildinni, er á bilinu 125 til 250 milljónir íslenskra króna. Þetta kemur fram í sænska blaðinu Aftonbladet í gær.

Guðni hundfúll

"Ég fer ekki leynt með að ég er hundfúll með að koma þessu stórefnilega liði ekki í milliriðil," sagði Guðni Kjartansson, þjálfari U19 ára landslið Íslands í knattspyrnu sem tapaði fyrir Króatíu 3-2 í undankeppni Evrópumóts landsliða þegar liðin mættust í Sarajevo í Bosníu í gær og er þar með úr leik.

Hremmingar í Póllandi

Landsliðsframherjinn Heiðar Helguson, leikmaður Fulham, boðaði forföll af persónulegum ástæðum í vináttulandsleikinn gegn Pólverjum annað kvöld en hann verður hins vegar með gegn Svíum á miðvikudaginn. Hannes Þ. Sigurðsson, leikmaður Stoke, var kallaður inn í hópinn í hans stað.

Haukar lögðu HK

Íslandsmeistarar Hauka urðu fyrstir til að vinna nýliða HK í vetur en Haukakonur unnu ellefu marka sigur í leik liðanna í DHL-deild kvenna á Ásvöllum í gær, 43-32. HK-liðið hafði í fullu tré við Hauka í sóknarleiknum en gekk illa að eiga við þær í vörninni auk þess sem Haukar skoruðu 17 marka sinna úr hraðaupphlaupum.

Dagur hugar að heimkomu

Dagur Sigurðsson, fyrrverandi fyrirliði íslenska landsliðsins í handbolta, hefur verið að gera það gott sem spilandi þjálfari austurírska félagsins Bregenz en lið félagsins er komið í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu, annað árið í röð.

Warnock stjóri mánaðarins

Neil Warnock hjá Sheffield United hefur verið kjörinn knattspyrnustjóri septembermánaðar í ensku fyrstu deildinni. United hefur þriggja stiga forskot á toppi deildarinnar og liðið vann m.a. fimm leiki í röð í mánuðinum.

Óvíst með Indriða

Óvíst er hvort Indriði Sigurðsson geti spilað með íslenska landsliðinu í knattspyrnu gegn Pólverjum á morgun. Indriði æfði ekki með liðinu í morgun þar sem hann er með hálsbólgu. Leikurinn fer fram í Varsjá klukkan 15 á morgun og er sýndur beint á Sýn. 

Ziege að hugsa um að hætta

Þýski varnarmaðurinn Christian Ziege óttast að þrálát ökklameiðsli sem hann hefur átt við að stríða lengi séu að neyða hann til að leggja skóna á hilluna. Ziege leikur með Gladbach í þýsku úrvalsdeildinni, en lék áður á Englandi, meðal annars með Liverpool og Tottenham.

Raikkönen slær ekki á orðróminn

Finnski ökuþórinn Kimi Raikkönen er sallarólegur yfir þeim háværa orðrómi að hann sé þegar búinn að undirrita viljayfirlýsingu um að ganga til liðs við Ferrari þegar samningur hans við McLaren rennur út og hefur ekki reynt að neita honum staðfastlega.

Honda íhugar að vera með tvö lið

Forráðamenn Honda íhuga nú að vera með tvö lið í Formúlu 1 á næsta keppnistímabili og því gæti svo farið að liðin yrðu ellefu á næsta tímabili. Honda á í viðræðum við ónafngreinda aðila um að tefla fram öðru liði undir merkjum bílaframleiðandans, sem ætlar sér stóra hluti í framtíðinni.

Iverson ósáttur við nýjar reglur

Allen Iverson, leikmaður Philadelphia 76ers í NBA deildinni, er einn þeirra sem eru afar óhressir með reglur sem taka gildi í vetur, sem snúa að klæðaburði leikmanna á keppnisferðalögum. David Stern hefur í huga að beita þá leikmenn sektum sem ekki ganga um í snyrtilegum jakkafötum á leið til og frá keppni með liðum sínum.

Arnór með 7 mörk

Arnór Atlason skoraði sjö mörk og Sigfús Sigurðsson þrjú þegar Magdeburg burstaði Wilhelmshavener, 45-22, í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í gærkvöldi. Gylfi Gylfason skoraði fjögur mörk fyrir Wilhelmshavener.

Bent ætlar á HM

Framherjinn knái hjá Charlton, Darren Bent, segist gera sér grein fyrir að hann verði að halda áfram að skora grimmt ef hann ætli sér að komast í enska landsliðshópinn fyrir HM í Þýskalandi næsta sumar, en mikil samkeppni er meðal framherjanna sem koma til greina í liðið.

Gretzky tapaði fyrsta leiknum

Hokkígoðsögnin Wayne Gretzky tapaði fyrsta leik sínum sem þjálfari í NFL deildinni í íshokkí í gærkvöld, þegar lið hans Phoenix Coyotes lá 3-2 fyrir Vancouver Canucks. Þetta var fyrsta umferðin í NFL deildinni á þessu tímabili, eftir að síðasta tímabil fór í hundana vegna harðvítugra kjaradeilna og verkfalls.

Nistelrooy í áflogum

Það var heitt í kolunum á landsliðsæfingu hjá Hollendingum í dag, því Ruud van Nistelrooy var tekinn á teppið af Marco van Basten þjálfara og látinn biðjast afsökunar á því að hafa sparkað í landa sinn Ron Vlaar, varnarmann AZ Alkmaar.

Meistararnir mætast í Keflavík

Góðgerðaleikir KKÍ fara fram á sunnudaginn en þar mætast Íslands- og bikarmeistarar karla og kvenna í Meistarakeppninni en sú venja hefur skapast að ágóði leikjanna rennur til góðgerðarmála.

Arnór, Sigfús og Alfreð slógu met

Arnór Atlason, Sigfús Sigurðsson og þjálfarinn Alfreð Gíslason í Magdeburg, slógu nýtt met í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta með 23ja marka sigri á botnliði Wilhelmshavener HV í fyrrakvöld, 45-22.

Nýtt lið sem hleypur inn á völlinn

"Undirbúningurinn hefur ekki verið upp á það besta. Það vantar marga lykilmenn og nánast nýtt lið sem hleypur inn á völlinn. Flestir leikmannanna eru ungir að árum og að stíga sín fyrstu skref og oft ná þeir að spila upp fyrir sig í svona leikjum," sagði Ásgeir Sigurvinsson, landsliðsþjálfari Íslands, við Fréttablaðið

Kemst ekki inn á lokamótið

Birgir Leifur Hafþórsson, kylfingur úr GKG, tekur ekki þátt í lokamótinu á Áskorendamótaröðinni í golfi sem hefst á Tenerife á Kanaríeyjum á morgun.

Meistararnir áfram

Bikarmeistarar ÍR eru komnir í 16 liða úrslit bikarkeppninnnar í handbolta karla. Liðið sigraði Víking/Fjölni í ótrúlegum markaleik, 47-36 í eina leik kvöldsins þar sem lið í deildakeppninni mættust á heimavelli sínum í Austurbergi. Alls fóru fimm leikir fram í gærkvöldi.

Helena áfram með KR

Helena Ólafsdóttir hefur verið ráðinn þjálfari KR í Landsbankadeild kvenna. Helena, sem er KR-ingur í húð og hár tekur við liðinu af Írisi Björk Eysteinsdóttur en Helena hafði leyst hana af í sumar eftir að Íris Björk þurfti að fara í barneingnarfrí.

Birgir Leifur með milljón á árinu

Kylfingurinn Birgir Leifur Hafþórsson úr GKG hefur unnið sér inn rétt um eina milljón íslenskra króna á Áskorendamótaröðinni á þessu ári og er í 83. sæti fyrir lokamótið sem fram fer um helgina á Tenerife.

Gunnar Heiðar með gegn Svíum

"Póllandsleikurinn á föstudaginn er úr sögunni en ég reikna fastlega með því að verða klár í slaginn gegn Svíum," sagði Gunnar Heiðar Þorvaldsson í samtali við Fréttablaðið eftir að hann kom úr læknisskoðun í gær. Hann meiddist í ökkla gegn Djurgården á mánudaginn og leist ekki á blikuna eftir leikinn.

Valur í vandræðum

Guðbjörg Gunnarsdóttir, markvörður Vals í knattspyrnu hefur átt við erfið veikindi að stríða undanförnu og getur líklega ekki leikið með liðinu á Laugardalsvelli gegn Potsdam í 8 liða úrslitum Evrópukeppninnar í knattspyrnu á sunnudag. Sandra Sigurðardóttir markvörður Stjörnunnar mun líklega standa í marki Vals í fyrri leiknum í það minnsta.

Þarf metnaðarfyllra starfsumhverfi

Jóhannes Karl Guðjónsson, knattspyrnumaður hjá Leicester City, segist tilbúinn til þess að gefa kost á sér í landsliðið á nýjan leik. "Ég er tilbúinn til þess að gefa kost á mér á nýjan leik þegar metnaðarfyllra starfsumhverfi skapast."

Bætt afkoma hjá Tottenham

Úrvalsdeildarfélagið Tottenham Hotspurs lagði fram ársreikninga sína í morgun og þar sýndi félagið fram á bætta afkomu frá árinu þar á undan. Eftir að 2,7 milljóna punda halli var á rekstri félagsins á árinu 2003-04, hefur það nú sýnt fram á 4,1 milljón punda hagnað á síðasta reikningsári.

Ferdinand ósáttur við sjálfan sig

Varnarmaðurinn Rio Ferdinand segist ekki sáttur við frammistöðu sína það sem af er tímabilinu með Manchester United og enska landsliðinu og viðurkennir að hann hafi ekki staðið sig sem skyldi fram til þessa. Hann segist þó hafa skapgerð til að breyta því og koma sér í toppform á ný.

Moyes hélt krísufund

David Moyes, stjóri botnliðs Everton í ensku úrvalsdeildinni, hélt krísufund með leikmönnum sínum í kjölfar tapsins gegn Manchester City um helgina. Everton er í neðsta sæti deildarinnar með aðeins þrjú stig og hefur aðeins náð að skora eitt mark í leikjunum sjö sem það hefur spilað.

Breiðablik ræður þjálfara

Knattspyrnudeild Breiðabliks hefur gengið frá ráðningu fjögurra þjálfara sem annast munu meistaraflokk og annan flokk liðsins á næsta keppnistímabili. Guðmundur Magnússon hefur verið ráðinn sem aðalþjálfari kvennaliðsins í stað Úlfars Hinrikssonar.

Everton vill Gunnar Heiðar

Stuðningsmannasíða enska úrvalsdeildarfélagsins Everton greindi frá því nú skömmu undir hádegið að félagið hafi hug á að fá markamaskínuna Gunnar Heiðar Þorvaldsson. Gunnar Heiðar sem leikur með Halmstad í Svíþjóð hefur skorað alls 23 mörk í 34 leikjum fyrir sænska liðið á tímabilinu og hefur sú frammistaða vakið mikla athygli víðsvegar um Evrópu.

Cissé ósáttur hjá Liverpool

Franski framherjinn Djibril Cisse hjá Liverpool segir að hann muni ekki sætta sig við að vera á varamannabekknum hjá liðinu í allan vetur og segist muni hugsa sér til hreyfings ef ástandið lagast ekki fljótlega.

Eriksson í vandræðum með bakverði

Sven-Göran Eriksson, landsliðsþjálfari Englendinga, á í mesta basli með að velja í bakvarðastöðurnar í liðinu fyrir leikinn gegn Austurríkismönnum um helgina, eftir að í ljós kom að Ashley Cole verður frá í nokkrar vikur vegna meiðsla.

Hannes í landsliðið í stað Heiðars

Hannes Þ. Sigurðsson, leikmaður Stoke City, hefur verið kallaður inn í íslenska landsliðshópinn fyrir leikinn við Pólverja á föstudaginn í stað Heiðars Helgusonar hjá Fulham, sem hefur fengið að sleppa leiknum af persónulegum ástæðum.

Sjá næstu 50 fréttir