
Fleiri fréttir

Murdaugh dæmdur í lífstíðarfangelsi
Bandaríski lögmaðurinn Alex Murdaugh hefur verið dæmdur í tvöfallt lífstíðarfangelsi fyrir að myrða eiginkonu sína og son. Murdaugh var dæmdur sekur í nótt en dómskvaðning fór fram nú fyrir skömmu í Suður-Karólínu.

Íbúar Austur-Palestínu óttast langvarandi mengun
Nærri því mánuður er liðinn frá því lest sem bar mikið magn eiturefna fór út af sporinu nærri bænum Austur-Palestínu í Ohio í Bandaríkjunum eru íbúar enn reiðir og óttaslegnir. Margir segjast enn finna fyrir áhrifum frá efnunum sem sluppu út í andrúmsloftið.

Friðarverðlaunahafi dæmdur í fangelsi í Belarús
Yfirvöld í Belarús, eða Hvíta-Rússlandi, hafa dæmt Alex Bialiatski til tíu ára fangelsisvistar. Það er samkvæmt Viasna, mannréttindasamtökum sem hann stofnaði en Bialiatski var dæmdur fyrir að hafa fjármagnað mótmæli í gegn alræðisstjórn Alexanders Lúkasjenka, einræðisherra Belarús.

Dó líknardauða sextán árum eftir að hafa myrt fimm börn sín
Belgísk kona, sem myrti fimm börn sín árið 2007, hefur dáið líknardauða, sextán árum eftir að hún banaði fimm börnum sínum.

Sprengdu brýr við Bakhmut og virðast ætla hörfa
Útlit er fyrir að úkraínskir hermenn ætli sér að hörfa eða séu þegar byrjaðir að hörfa frá Bakhmut í Dónetskhéraði. Rússar hafa gert umfangsmiklar árásir á bæinn um mánaða skeið og hafa nú nærri því umkringt hann.

Afhjúpa nýuppgötvað hólf í Pýramídanum mikla
Egypsk fornleifayfirvöld sviptu hulunni af nýuppgötvuðu og lokuðu hólfi í Pýramídanum mikla í Giza í gær. Óljóst er hver tilgangur hólfsins var en það er ekki aðgengilegt utan frá.

Geta stefnt Trump vegna árásarinnar á þinghúsið
Lögreglumönnum og þingmönnum er heimilt að stefna Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, vegna árásar stuðningsmanna hans á þinghúsið, að mati bandaríska dómsmálaráðuneytisins. Trump heldur því fram að hann njóti friðhelgi fyrir slíkum kröfum.

Murdaugh fundinn sekur um að hafa myrt eiginkonu sína og son
Bandaríski lögmaðurinn Alex Murdaugh var í nótt fundinn sekur um að hafa myrt eiginkonu sína og son í þeim tilgangi að draga athyglina frá margmilljóna dala efnahagsbrotum sínum.

Skilaboð Blinkens til Lavrovs voru einföld og skýr
Skuggi innrásar Rússa í Úkraínu skyggði á öll önnur málefni á fundi utanríkisráðherra 20 helstu iðnríkja heims á Indlandi í dag. Utanríkisráðherra Bandaríkjanna skoraði á Rússa að láta af hernaði sínum og utanríkisráðherra Rússlands sagði aldrei hafa staðið á Rússum að semja við Bandaríkin um örlög Úkraínu.

Rússneskir öfgamenn réðust á þorp í Rússlandi
Yfirvöld í Rússlandi segja hóp skemmdarverkamanna frá Úkraínu hafa gert árásir á þorp í Bryanskhéraði í Rússlandi. Hópur fjar-hægri Rússa sem er andvígur Vladimír Pútín, forseta Rússlands, hefur lýst yfir ábyrgð á atvikinu, sem Pútín hefur lýst sem hryðjuverki.

Óvæntur hliðarfundur á hitafundi
Utanríkisráðherrar Bandaríkjanna og Rússlands hittust stuttlega á óvæntum hliðarfundi á samkomu G20-ríkjanna á Indlandi í dag.

Vöxtur endurnýjanlegrar orku kom í veg fyrir enn meiri aukningu í losun
Heimsbyggðin hélt áfram að auka losun á gróðurhúsalofttegundum vegna orkuframleiðslu í fyrra og hefur hún aldrei verið meiri. Forstjóri Alþjóðaorkumálastofnunarinnar segir að losunin hefði aukist þrefalt meira ef ekki væri fyrir vöxt í endurnýjanlegum orkugjöfum.

Rússneski fáninn málaður á Litlu hafmeyjuna
Enn og aftur hafa skemmdarverk verið unnin á einu helsta kennileiti dönsku höfuðborgarinnar. Rússneski fáninn var í nótt málaður á steininn þar sem Litla hafmeyjan situr við Löngulínu.

Fundu nýja Moai-styttu á Páskaeyju
Vísindamenn á Páskaeyju í Kyrrahafi fundu undir lok febrúar nýja Moai-styttu. Styttan fannst ofan í eldfjallagíg en lítið stöðuvatn var ofan í gígnum áður.

Vo Van Thuong nýr forseti Víetnam
Vo Van Thoung var í gær valinn nýr forseti Víetnam. Hann tekur við af Nguyen Xuan Phuc sem gegndi embættinu í einungis tæp tvö ár og sagði af sér eftir að hafa verið sakaður um spillingu.

G20 ríkin funda á Indlandi
Utanríkisráðherrar G20 ríkjanna koma saman í Nýju Delí á Indlandi í dag.

Kom til átaka í mótmælum í kjölfar lestarslyssins í Grikklandi
Til átaka kom milli mótmælenda og lögreglu fyrir utan höfuðstöðvar grísku lestarstofnunarinnar í Aþenu í gærkvöldi í kjölfar lestarslyssins þar sem staðfest er að 43 hið minnsta týndu lífi. Margir hafa sagt að einungis hafi verið tímaspursmál hvenær slys sem þetta myndi eiga sér stað.

Í basli með að senda hlébarða til Úkraínu
Úkraínumönnum hefur verið lofað tugum vestrænna skriðdreka á næstu vikum og mánuðum. Minnst fjórir hafa þegar verið sendir til landsins og er verið að þjálfa hermenn á skriðdrekana í nokkrum löndum. Ríki Evrópu eiga þó í basli með að standa við stóru orðin og gengur erfiðlega að finna skriðdreka.

Segir fjölmiðlafólk öfundsjúkt út í Tucker Carlson
Kevin McCarthy, forseti Fulltrúadeildar Bandaríkjaþings, varði í gær þá ákvörðun sína að veita Tucker Carlson, hinum umdeilda þáttastjórnenda hjá Fox, einum aðgang að myndefni úr öryggismyndavélum þinghússins frá árásinni á þinghúsið þann 6. janúar 2021. Annað fjölmiðlafólk hefur einnig krafist aðgangs að myndefninu en McCarthy segir þau vera „öfundsjúk“.

Umtöluð réttarhöld að enda komin: „Ég myndi aldrei skaða þau“
Réttarhöld gegn bandarískum lögmanni sem grunaður er um að hafa myrt eiginkonu sína og son eru að enda komin. Mál Alex Murdaughs og morðin hafa vakið mikla athygli og hefur meðal annars verið fjallað um málið í heimildarþáttum á Netflix.

Finnar byrja að girða sig af frá Rússlandi
Framkvæmdir við girðingu á hluta landamæra Finnlands og Rússlands eru hafnar. Finnska landamærastofnunin segir að girðingin verði þriggja metra há með gaddavír ofan á henni. Tilgangurinn sé að tryggja landamærin frekar.

Finnski fjöldamorðinginn Juha Valjakkala látinn
Finnski fjöldamorðinginn Nikita Bergenström, sem áður gekk undir nafninu Juha Valjakkala, er látinn. Hann varð 57 ára gamall. Valjakkala var á sínum tíma dæmdur fyrir að hafa banað heilli fjölskyldu í kirkjugarði í Svíþjóð árið 1988.

Hristi sig og hornin hrundu af
Þjóðgarðsvörðurinn Derek Burgoyne náði myndbandi af því þegar elgur hristi sig og missti í leiðinni horn sín. Afar sjaldgæft er að sjá þegar hornin falla af elgum.

Linda Kasabian úr Manson fjölskyldunni er látin
Linda Kasabian, ein af fylgjendum Charles Manson er látin, 73 ára að aldri.

Murdoch viðurkennir að ýtt hafi verið undir lygar um kosningarnar
Rupert Murdoch, ástralski auðjöfurinn sem á og rekur fjölmiðla um heiminn allan, viðurkenndi við vitnaleiðslur að þáttastjórnendur sjónvarpsstöðvarinnar Fox News, þeirrar vinsælustu í Bandaríkjunum, ýttu undir lygar Donalds Trump, fyrrverandi forseta um kosningarnar 2020. Murdoch viðurkenndi einnig að hafa ekki reynt að grípa inn í.

Tinubu verður forseti Nígeríu
Bola Tinubu, frambjóðandi stjórnarflokksins APC í Nígeríu, verður næsti forseti Nígeríu. Niðurstöður kosninganna voru staðfestar í nótt en alls voru átján manns í framboði.

Þrjátíu og tveir látnir hið minnsta í lestarslysi á Grikklandi
Að minnsta kosti þrjátíu og tveir eru látnir og 85 slasaðir eftir lestarslys á Grikklandi í nótt.