Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Of hávær í bólinu Kona ein í Þýskalandi var rekin af heimili sínu þar sem nágrannar hennar þóttu unaðsstunur hennar vera of háværar. Konan segist sjálf lifa heilbrigðu kynlífi og talar um ofsóknir. 28.9.2007 11:10
Fannst á lífi eftir átta daga í bílflaki Kona sem saknað hafði verið í átta daga fannst á lífi í bíl á botni gils í Bandaríkjunum - á sama tíma og eiginmaður hennar var að taka lygapróf vegna hvarfsins. Lögregla fann bíl konunnar á botni gils við hraðbraut nálægt Seattle í Washington. Tanya Rider var á leið heim úr vinnu þegar hún fór út af veginum og hrapaði sjö metra niður gilið. 28.9.2007 10:28
Átta ára golfari með holu í höggi Átta ára gamall enskur golfari gerði sér lítið fyrir og sló holu í höggi á golfmóti í Suffolk á Englandi í gær. Þetta væri svo sem ekki í frásögur færandi nema að þetta er í þriðja skiptið sem hinn ungi gólfari nær holu í höggi. 28.9.2007 10:03
Loka fyrir internet í Mjanmar Herstjórnin í Mjanmar hefur lokað fyrir aðgang almennings að interneti til að forðast að myndbrot af blóðugum aðgerðum öryggissveita gegn mótmælendum berist um heiminn. Internet kaffihúsum í höfuðborginni Rangoon og öðrum borgum landsins hefur verið lokað. Bloggarar sem nota internetið til að fá meira en fréttir ritstýrðra fréttastöðva í landinu segjast vera í vandræðum með að koma efni á bloggin. 28.9.2007 09:42
Féllu ofan í eiturefnalaug Níu létust í gær þegar gólfflötur í yfirgefnu húsi í miðhluta Kína lét undan með þeim afleiðingum að fólkið féll ofan í holu sem var full af blásýru. Fólkið var samankomið í húsinu til að ræða útför ungs pilts sem hafði fundist látinn í húsinu sama dag. 28.9.2007 09:34
Leigðu þyrlu undir köttinn Ítölsk hjón leigðu þyrlu fyrir um milljón kr. svo hægt væri að flytja heimilisköttinn frá Róm til eyjarinnar Sardínu. Þetta gerðui þau að sögn þar sem kötturinn, Fufi, er bæði flug- og sjóhræddur. 27.9.2007 20:52
Níu látnir í átökum í Mjanmar Herinn í Mjanmar réðst gegn andófsmönnum í dag með þeim afleiðingum að níu menn, að minnsta kosti, létu lífið og fjöldi manns særðist. Hermenn í óeirðabúningi standa vörð við gaddavírsgirðingar á götum stærstu borgar landsins og heyra mátti skothvelli þegar dimma tók. 27.9.2007 19:14
Níu látnir í Mjanmar í dag Níu manns létust og að minnsta kosti ellefu særðust í aðgerðum öryggissveita hersins í Yangon í Mjanmar í dag. Ríkissjónvarp landsins greindi frá þessu og sagði að 31 hermaður hefði slasast þegar mótmælendur reyndu að afvopna þá. Fregnir hafa borist að því að hermenn hafi skotið á fólkið og lamið með byssusköftum. 27.9.2007 14:17
Spector sóttur aftur til saka Kviðdómi í Bandaríkjunum mistókst að komast að niðurstöðu um það hvort hinn frægi tónlistarmaður Phil Spector hefði myrt leikkonuna Lönu Clarkson fyrir tæpum fimm árum. 27.9.2007 12:30
Þjóðheta Mjanmar - Aung San suu Kyi Líkt og Nelson Mandela hefur Aung San Suu Kyi orðið alþjóðlegt tákn hetjulegrar og friðsamlegrar andstöðu undirokunar og kúgunar. Í langan tíma hefur þessi baráttukona og leiðtogi Lýðræðisflokks landsins verið eina von landa sinna um að tímabil herstjórnarinnar líði einhvern tíman undir lok. 27.9.2007 12:23
Rekin fyrir reykingar eiginmannsins Bæjaryfirvöld í Óðinvéum í Danmörku ráku í gær dagmóður eftir að upp komst að eiginmaður hennar hafði reykt á heimili hjónanna þar sem hún passar börnin. Dagmóðirin sjálf hefur hins vegar aldrei reykt heima hjá sér. 27.9.2007 11:57
Fljúgandi elgur veldur usla Starfsmenn sænska símafyrirtækisins Telia fengu heldur betur óvænta heimsókn á föstudaginn í síðustu viku þegar elgur kom fljúgandi í gegnum glugga skrifstofunnar. Glerbrotum rigndi yfir starfsmenn og kalla þurfti á veiðimann til að aflífa dýrið. 27.9.2007 11:37
Mjanmar: Ljósmyndari skotinn til bana Erlendur ljósmyndari sem talinn er japanskur, var skotinn til bana í mótmælunum í Yangon í Mjanmar í dag. Fréttastofa Reuters hefur þetta eftir sjúkrahúsyfirvöldum á staðnum. Vitni segir manninn hafa fallið til jarðar þegar óeirðalögregla skaut að hópi eitt þúsund mótmælenda. 27.9.2007 11:14
Vilja banna nekt á Everest Samtök fjallgöngugarpa í Nepal vilja banna nekt og tilraunir til ruddalegra meta á Everest fjalli, stærsta fjalli heims. Nepalskur fjallgöngumaður setti met í hæstu nektarsýningu á síðasta ári þegar hann beraði sig í nokkrar mínútur á toppi fjallsins, í 8.848 metra hæð og tíu stiga gaddi. 27.9.2007 10:34
Herstjórnin skýtur að búddamunkum Hermenn herforingjastjórnarinnar í Myanmar skutu aftur að mómælendum í Rangoon stærstu borg landsins í morgun. Vitni segja einn hafa fallið í jörðina í skothríðinni. Talið er að um 70 þúsund manns mótmæli á götum borgarinnar. Hermennirnir ráðast einnig að fólkinu og berja það með byssusköftum. 27.9.2007 10:07
Öryggisráðið vill fulltrúa sinn til Myanmar Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna samþykkti á neyðarfundi sínum í kvöld að hvetja stjórnvöld í Myanmar til að leyfa sérstökum fulltrúa sínum, Ibrahim Gambari að heimsækja landið. Miklar og blóðugar mótmælaaðgerðir hafa verið í landinu gegn stjórnvöld undanfarna daga. 26.9.2007 22:43
Verkfallinu hjá GM lokið Verkfallinu hjá GM lauk í dag eftir aðeins tvo sólarhring og um leið stigu hlutabréf í fyrirtækinu um tæp 9% á markaðinum vestan hafs. Verkfallið var hið fyrsta hjá GM á síðustu rúmu 30 árum en það náði til um 73.000 verkamanna fyrirtækisins. 26.9.2007 20:28
Rather kallar Bush fyrir sem vitni Fréttamaðurinn þekkti Dan Rather lét að því liggja í spjallþætti í kvöld að hann myndi kalla George Bush Bandaríkjaforseta fyrir sem vitni í málaferlum sínum gegn CBS sjónvarpsstöðinni. Rather telur að uppsögn sín hjá CBS árið 2004 hafi verið ólögmæt en hún kom í kjölfar fréttar hans um brokkgengann feril Bush í þjóðvarðliði Texas. 26.9.2007 20:12
Fékk fót í kaupbæti Bandarísk húsmóðir fékk óvæntan kaupauka á dögunum þegar hún keypti sér eldavél á uppboði í Norður Karólínu. Þegar Shannon Whisnant opnaði eldavélina góðu heima hjá sér kom í ljós fótur af manni. 26.9.2007 19:57
Norðmenn veita 60 milljarða í þróunaraðstoð Jens Stoltenberg, forsætisráðherra Noregs, lofaði í dag einum milljarði dollara, jafnvirði um 60 milljarða króna, í stuðning til mæðra og barna í þróunarlöndunum á næsta áratug. 26.9.2007 17:00
Jarðskjálfti upp á 6,5 skók Súmötru Sterkur jarðskjálfti um 6.5 á Richter varð við strendur indónesísku eyjunnar Sumötru í dag. Veðurstofa Indónesíu greindi fré þessu. Upptök skjálftans voru á 70 kílómetra dýpi um 149 kílómetra suðvestur af Painan á Vestur-Súmötru. 26.9.2007 16:20
Myndin er ekki af Maddý Ljósmyndin sem farið hefur eins og eldur í sinu um heimsbyggðina er ekki af Madeleine McCann eins og sumir hafa haldið fram. Fréttastofa Sky sjónvarpsstöðvarinnar segist hafa heimildir fyrir því að stúlkan á myndinni sé frá Marokkó. 26.9.2007 14:58
Einn lést í skotárás hersins í Burma Einn lést og fimm slösuðust þegar herinn í Myanmar skaut byssuskotum að stórum hópi mótmælenda í Yangon í dag. Vitni segja blóðugan líkama munks hafa verið borinn í burtu en ekki er ljóst hvort hann var lífs eða liðinn. Búddamunkar hafa leitt mótmælin í Myanmar sem hófust fyrir mánuði síðan þegar olíuverð hækkaði skyndilega. Þau hafa breiðst út og eru orðin mestu mótmli í landinu í 20 ár. 26.9.2007 11:13
Fjáröflun Guilianis sögð ógeðsleg Rudy Giuliani, fyrrverandi borgarstjóri New York borgar, sem sækist eftir forsetaembætti Bandaríkjanna hefur verið gagnrýndur harkalega fyrir að misnota ímynd hryðjuverkaárásanna á tvíburaturnana til fjáröflunar. Stuðningsmaður hans býður almenningi að styðja Giuliani fyrir 9,11 dollara á mann. 26.9.2007 10:41
Konur afklæðast í kosningabaráttu Konur í nýjum stjórnmálaflokki í Póllandi komu fram naktar í umdeildri auglýsingaherferð fyrir þingkosningar í landinu 21. október. Sjö konur skýla sér á bakvið auglýsingaskilti sem á stendur; „Stjórnmálaflokkur kvenna, Pólland er kona.“ Herferðin hefur vakið mikla athygli í landinu sem er að miklum meirihluta kaþólskt og stjórnað af Kaczynski tvíburunum sem eru afar íhaldssamir. 26.9.2007 10:01
Tvö hundruð handteknir í Búrma Að minnsta kosti tvö hundruð búddamunkar voru handteknir í Rangún, höfuðborg Búrma, í morgun. Hermenn beittu táragasi og kylfum gegn mótmælendum sem höfðu safnast saman í miðborginni og þá skutu þeir einnig viðvörunarskotum yfir höfði mótmælenda. 26.9.2007 08:47
Bauð samföngum sínum upp á pizzur Kjell Inge Rökke, norska auðmanninum sem setið hefur í fangelsi í heimalandi sínu í þrjár vikur hefur verið sleppt úr haldi, viku á undan áætlun. Norskir miðlar greina frá því að hann hafi farið rakleiðis í sumarfrí eftir að afplánun lauk. Hann gleymdi þó ekki samföngum sínum því hann lét það verða sitt fyrsta verk utan múra fangelsisins að panta pizzur handa sambýlingum sínum fyrrverandi. 25.9.2007 23:48
Evrópusambandið aðvarar stjórnvöld í Myanmar Evrópusambandið varar herforingjastjórnina í Myanmar við því að brjóta á bak aftur mótmælin í landinu. Sambandið hótar að herða refsiaðgerðir sínar gegn stjórnvöldum reyni þau að beita hervaldi til þess að koma í veg fyrir mótmælin. 25.9.2007 22:22
Er Madeleine fundin? Interpol rannsakar nú mynd sem spænskir ferðamenn tóku nýlega á ferðalagi í Marokkó. Á myndinni sést lítil ljóshærð stúlka borin á baki konu og líkist sú ljóshærða Madeleine McCann töluvert. Madeleine hefur verið saknað síðan 3. maí s.l. 25.9.2007 19:50
Herforingjastjórninni refsað Bandaríkjaforseti boðar refsiaðgerðir gegn herforingjastjórninni í Myanmar vegna mannréttindabrota. Fjölmenn mótmæli voru í stærstu borg landsins - áttunda daginn í röð - þar sem lýðræðis var krafist. 25.9.2007 18:45
Óttast um öryggi sitt vegna nauðgunarsenu Tólf ára afganskur aðalleikari í kvikmyndinni Flugdrekahlauparinn vill að nauðgunaratriði verði klippt úr myndinni. Hann óttast um öryggi sitt og fjölskyldu sinnar vegna þess. Þau verið jafnvel útskúfuð. 25.9.2007 18:45
Danir nálægt lækningu á brjóstkrabbameini Danskir vísindamenn eru þeir fyrstu í heiminum sem hafa greint frumur er geta verið orsök brjóstkrabbameins. Vonir standa til að þetta muni leiða til þess að lækningin verði fundin gegn meininu. Frumurnar sem hér um ræðir líkjast stofnfrumum en grunur hefur leikið á að slíkar frumur séu undirrót brjóstkrabbameins. 25.9.2007 16:28
Fyrirmyndin að Moe fundin Bandarískur grínari, Rich Hall, heldur því fram að hann sé fyrirmyndin að bareigandanum Moe í hinum vinsælu þáttum um Simpsons fjölskylduna. Hann segir að honum hafi ætíð fundist að Moe líktist sér töluvert. 25.9.2007 16:05
Ki-moon segir verkefnin krefjandi Ban Ki-moon framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna sagði í ræðu við upphaf Allsherjarþingsins í dag að leiðtogum heimsins biðu afar krefjandi og niðurdrepandi verkefni. Hann nefndi fátækt, hlýnun jarðar og átökin í Darfur. Þá biðlaði hann einnig til herstjórnarinnar í Burma að halda aftur af sér gagnvart mómælendum sem krefjast lýðræðis. 25.9.2007 14:35
Ekki einkamál stórveldanna Meirihluti jarðarbúa telur hlýnun jarðar af mannavöldum og nauðsynlegt að ríki heims grípi til aðgerða strax. Utanríkisráðherra Íslands segir að lausn verði að finna á vettvangi Sameinuðu þjóðanna - stórveldi megi ekki vera einráð í þeim efnum. Breska ríkisútvarpið, BBC, lét gera umfangsmikla könnun um viðhorf jarðarbúa til umhverfismála. Alls tóku 22 þúsund manns í 21 landi þátt í henni. Samkvæmt niðurstöðum könnunarinnar telja um 65% aðspurðra að grípa verði strax til stórtækra aðgerða til að bregðast við loftlagsbreytingum. Þá telja um 80% að breytingarnar séu fyrst og fremst af mannanna völdum. Flestir kenna iðnaði og samgöngum um aukna mengun í heiminum. Að mati þeirra sem stóðu að könnuninni benda niðurstöður hennar til mikillar afstöðubreytingar meðal fólks í heiminum gagnvart náttúruvernd. Yfir 70% aðspurðra telja nauðsynlegt að ríki heims geri með sér samkomulag um samdrátt í útblæstri gróðurhúsalofttegunda. Ennfremur vilja flestir að samkomulagið nái einnig til ríkja þriðja heimsins sem fái í staðinn fjárhagsaðstoð frá auðugri ríkjum. Ban Ki-moon, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, boðaði í gær til fundar um loftslagsmál. Hann sóttu fulltrúar hundrað og fimmtíu ríkja - þar á meðal Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra, sem ávarpaði fundinn. Hún lagði áherslu á að lausn yrði að finna á vettvangi Sameinuðu þjóðanna. Stór og voldug ríki heims mættu ekki ein forgansraða í þeim efnum. Málið snerti alla heimsbyggðina. 25.9.2007 12:57
Óeirðalögreglumenn gegn munkum Svo virðist sem herforingjastjórnin í Myanmar, áður Búrma, ætli að mæta mótmælum Búddamunka af hörku. Reuters fréttastofan hefur eftir sjónarvottum að vopnaðir óeirðalögreglumenn hefðu verið fluttir til Yangon - stærstu borgar landsins - í morgun. Þar hafa munkarnir mótmælt dag hvern frá því í síðustu viku. 25.9.2007 12:42
Kastaði upp í beinni útsendingu Sænskur sjónvarpsþáttastjórnandi fær mesta áhorfið á YouTube um þessar mundir. Eva Nazemson var að stýra spurningaþætti í beinni á TV4 sjónvarpsstöðinni þegar hún kastaði skyndilega upp. Karlkyns þátttakandi hafði hringt inn og var að leysa orðaþraut þegar Eva sneri sér óvænt til hliðar og ældi. 25.9.2007 12:20
Eftirvænting eftir ræðu Ahmadinejad Árlegur fundur Allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna hefst í New York í dag. Leiðtogar munu þá ávarpa þingið og er beðið með nokkurri eftirvæntingu eftir ræðu Bandaríkjamanna og Írana. Gert er ráð fyrir að Bush Bandaríkjaforseti ræði um mannréttindi og frelsi. Mahmoud Ahmadinejad forseti Íran mun líklega endurtaka yfirlýsingu um að kjarnorkuáætlun landsins sé einungis í friðsamlegum tilgangi. 25.9.2007 11:46
Amman hittir lestarstöðvarstúlkuna Kínversk amma stúlkunnar sem skilin var eftir á lestarstöð í Ástralíu í síðustu viku er komin til Nýja Sjálands til að sækja Qian Xun Xue og skipuleggja jarðaför dóttur sinnar. Xue Naiyin faðir stúlkunnar er grunaður um að hafa myrt móðurina og skilið stúlkuna eftir á lestarstöð í Melbourne í Ástralíu. Málið hefur vakið gríðarlega athygli um heim allan. 25.9.2007 11:20
Herforingjastjórn Burma á neyðarfundi Herforingjastjórnin í Burma hélt í dag neyðarfund til að ákveða viðbrögð við stærstu mótmælum gegn stjórninni í 20 ár. Engar upplýsingar hafa fengist af fundinum. Uppreisnarmenn segja að 22. herdeild stjórnarinnar hafi verið send til Yangon þar sem mótmælin fara fram. Herdeildin er fræg fyrir að hafa brotið á bak aftur mótmælin árið1988 þar sem þrjú þúsund manns letust. 25.9.2007 10:50
Orð Kate þungamiðja rannsóknarinnar Breska blaðið Daily Mail greinir í dag frá fyrstu viðbrögðum Kate McCann eftir að Madeleine hvarf. Fyrsta vitnið af viðbrögðunum hefur nú komið fram í fjölmiðlum. Charlotte Pennington barnfóstra, segir að Kate hafi öskrað: „Þeir hafa tekið hana, þeir hafa tekið hana.“ 25.9.2007 09:40
Nauðgaði tíu ára gamalli stúlku Danska lögreglan handtók í morgun karlmann á fimmtugsaldri sem grunaður er um að hafa nauðgað tíu ára gamalli stúlku í Sonderborg í gær. Maðurinn nam stúlkuna á brott og nauðgaði henni tvisvar áður en hann lét sig hverfa. 25.9.2007 08:40
Bush boðar aðgerðir gegn yfirvöldum í Myanmar George W. Bush, forseti Bandaríkjanna, ætlar á morgun að tilkynna um hertar aðgerðir gegn stjórnvöldum í Myanmar. Aðgerðunum verður beint að helstu leiðtogum landsins en ólga hefur verið í Myanmar síðustu daga í kjölfar mótmæla sem búddamunkar standa fyrir. 24.9.2007 19:38
Fordæmislaus fundur SÞ um hnattræna hlýnun Fordæmislaus leiðtogafundur um hnattræna hlýnun var haldinn á vettvangi Sameinuðu þjóðanna í New York í dag. 150 ríki áttu fulltrúa á fundinum - þar á meðal Ísland. Bandaríkjaforseti mætti ekki. 24.9.2007 18:45
Bíllaust í Brussel Brusselbúar voru duglegir að skilja bíla sína eftir heima í gær. Evrópskri samgönguviku lauk þar í borg með bíllausum degi - ólíkt því sem var í Reykjavík. 24.9.2007 18:45