Fleiri fréttir

Foreldrar Alan Johnston standa fyrir stuðningsvökum

Foreldrar blaðamannsins Alan Johnston standa fyrir stuðningsvöku fyrir son sinn í Skotlandi. Þau hafa sleppt 100 blöðrum í loftið - einni fyrir hvern dag sem Johnston hefur verið í haldi samtaka sem kalla sig „Her Íslams“ á Gaza svæðinu.

Hauskúpa fornpöndu fundin

Fyrsta hauskúpan af forfeðrum risapöndunnar fannst á dögunum í kalksteinshelli í Suður-Kína. Bandarísku og kínversku vísindamennirnir sem fundu kúpuna telja hana vera um tveggja milljón ára gamla.

Skógarbirnir í útrýmingarhættu

Skógarbirnir eru í mikilli útrýmingarhættu í Evrópsku Ölpunum. Aðeins er vitað af 38 skógarbjörnum á fjallasvæðunum samkvæmt skráningu umhverfissinna. Ekki er vitað um neinn skógarbjörn í Þýskalandi.

Dómur mildaður yfir fyrrverandi ráðherra í Víetnam

Áfrýjunardómstóll í Víetnam hefur mildað refsingu yfir fyrrverandi aðstoðarviðskiptaráðherra landsins, Mai Van Du. Van Du var upprunalega dæmdur til 14 ára fangelsisvistar fyrir að þiggja mútur. Áfrýjunardómstóllinn stytti þann dóm niður í 12 ár.

Faðir Madeleine rændur

Gerry McCann, faðir Madeleine McCann sem rænt var í Portúgal í maí, var rændur í London. Hann fór til London til að funda um áframhaldandi leit að dóttur sinni. Þegar hann var nýkominn var veskinu hans rænt, sem varð til þess að hann mætti of seint á fundina.

Kornabarn finnst skammt frá heimili barnshafandi konu sem er saknað

Nýfætt stúlkubarn fannst á tröppum við hús í aðeins 70 km fjarlægð frá heimili barnshafandi konu sem hefur verið saknað síðan síðastliðinn miðvikudag í Ohio. Læknar staðfesta að barnið hafi fæðst innan við 24 tímum áður en það fannst og hafði naflastrengurinn ekki verið fjarlægður.

ESA leitar að sjálfboðaliðum í sýndargeimferð

Evrópska geimferðastofnunin er að leita að sjálfboðaliðum til þess að taka þátt í sýndarferð til Mars. Í tilrauninni munu sex manns eyða 17 mánuðum lokuð inni í stórum einangrunarklefa.

Ákærðar fyrir manndráp

Tveimur hjúkrunarfræðingum, á Minningarsjúkrahúsinu í New Orleans hefur verið boðið friðhelgi gegn því að vitna fyrir sérstökum kviðdómi. Konurnar voru taldar bera ábyrgð á láti fjögurra sjúklinga sem voru lagðir inn eftir fellibylinn Katrínu,

Aftur dæmdur í lífstíðarfangelsi

James Kopp, 52 ára bandaríkjamaður hefur verið dæmdur í annað lífstíðarangelsi. Kopp var upprunalega dæmdur fyrir að myrða fóstureyðingalæknirinn Barnett Sepian með skytturiffli árið 1998. Nú hefur alríkisdómstóll dæmt hann aftur í lífstíðarfangelsi, fyrir sama glæp en á öðrum forsendum.

Stjórnvöld setja stéttarfélögum úrslitakost

Yfirvöld í Suður-Afríku hafa sett opinberum starfsmönnum úrslitakost en þeir eru nú í verkfalli sem hefur enst í þrjár vikur. Stéttarfélög hafa til klukkan fjögur í dag að íslenskum tíma til þess að taka tilboði stjórnvalda. Tilboðið hljómar upp á 7,5 prósent launahækkun og hækkun á húsnæðisbótum.

Bandaríkin og Ísrael lofa Abbas aðstoð

George Bush, forseti Bandaríkjanna, segist ætla að hjálpa Mahmoud Abbas, ásamt Ísrael, í baráttunni gegn Hamas samtökunum sem nú stjórna Gaza svæðinu. „Við vonumst til að Abbas verði styrktur svo að hann geti leitt Palestínu í aðra átt," sagði Bush í byrjun fundar með forsætisráðherra Ísrael, Ehud Olmert.

Hæstiréttur í Kúveit breytir dauðadómi

Hæstiréttur í Kúveit hefur breytt dauðadómi, yfir fjórum málaliðum sem tengdir eru Al Quaeda, í lífstíðardóm. Um leið voru staðfestir lífstíðardómar yfir tveimur öðrum mönnum sem tengdir eru Al Qaeda.

Aðalstign Salman Rushdies vekur hörð mótmæli

Mikil alda mótmæla hefur riðið yfir Pakistan í kjölfar þess að rithöfundurinn Salman Rushdie var sæmdur aðalsnafnbót. Ráðherra trúmála í ríkisstjórn Pakistans hefur sagt að ákvörðunin auki hættuna á sjálfsvígsárásum þar sem múslimar séu á þeirri skoðun að Rushdie hafi móðgað Íslam.

Atlantis yfirgefur geimstöðina

Bein útsendingu var frá brottför Atlantis af Alþjóðlegu geimstöðinni á Vísi.is í dag. Flugstjóri á Atlantis er Rick Sturckow. Áhöfnin fékk nýlega nýjan meðlim, Clayton Anderson, sem er flugvirki og leysir af Suni Williams.

Fimm Danir flæktir í barnaklámshring

Fimm Danir eru tengdir barnaklámshringnum sem breska lögreglan upprætti fyrir skömmu. Mennirnir eru ákærðir fyrir vörslu barnakláms og einn af þeim var nýlega dæmdur fyrir misnotkun á tveimur börnum, samkvæmt ríkislögreglunni í Danmörku.

12% af heilbrigðiskostnaði fer í sykursýki

Nýjar rannsóknir sýna að gífurlegur hluti af því sem eytt er í heilbrigðismál í Bandaríkjunum fer í meðferð fyrir sykursjúkt fólk. Rannsóknin er byggð á gagnagrunni yfir lyfjakostnað frá 2005 og var framkvæmd af tölfræðistofnun og sýnir að um 12% af öllum kostnaði til heilbrigðismála fer í aðhlynnun sykursjúkra.

Níu slökkviliðsmenn létust í eldsvoða

Níu slökkviliðsmenn létust í Sofa Superstore húsgagnaversluninni í Charleston, Suður-Karólínu, í Bandaríkjunum þegar bygging hrundi í eldsvoða.

Fjórir létust í flóði í Texas

Fjórir létust í Gainesville í Texas í gær þegar flæddi yfir bæinn. Tilkynnt hefur verið um nokkra sem eru týndir. Fjöldi fólks beið á þökum húsa sinna eftir hjálp. Þrjár þyrlur voru notaðar við björgunaraðgerðirnar.

Börnum nauðgað í beinni útsendingu

Lögreglan í Kanada, Ástralíu og Bandaríkjunum aðstoðaði lögregluna í Bretlandi við að uppræta umfangsmikill alþjóðlegan barnaklámhring. Hópurinn notaði netið til að dreifa barnaklámi en á síðunni mátti sjá börnum nauðgað í beinni útsendingu.

Lögreglan frelsar fólk sem haldið var í bankaráni í Frakklandi

Franska lögreglan hefur frelsað alla gíslana sem teknir voru í bankaráni í Frakklandi fyrr í morgun. Tveir ræningjar fóru inn í bankann klukkan átta í morgun að íslenskum tíma og héldu þar sex manns. Fljótlega létu þeir tvo gísla lausa en lögregla frelsaði síðar þá fjóra sem eftir voru.

Á áttunda tug látnir eftir að bílsprengja sprakk í Írak

Sjötíu og fimm eru látnir og hundrað og þrjátíu særðir eftir að bílsprengja sprakk nærri Sjía moskvu í miðborg Bagdad í írak í morgun. Aðeins eru um þrjár vikur frá því mannskæð bílsprengja felldi um tuttugu manns á sama svæði.

Evrópuþingið hafnar þröngri skilgreiningu á vodka

Evrópuþingið hefur hafnað tillögu frá þingmönnum landa í vodkabeltinu svokallaða, Póllandi, Finlandi, Eystrasaltsríkjunum, Svíþjóð og Danmörku, um að herða lagalega skilgreiningu á vodka. Löndin vildu að vodka yrði skilgreint sem drykkur sem væri búinn til úr korni eða kartöflum. Meirihluti þingmanna vildi hins vegar opnari skilgreiningu.

Skammdræg eldflaug frá Norður Kóreu hafnaði í Japanshafi

Norður Kóreumenn skutu í dag á loft skammdrægri eldflaug sem hafnaði í Japanshafi, að því er japanska fréttastofan NHK hefur eftir þarlendum yfirvöldum. Fréttirnar af eldflaugarskotinu þykja koma á viðkvæmum tíma, því vonir standa til að viðræðum um kjarnorkuafvopnun Norður Kóreu verði haldið áfram í júlí.

Þrír vinir taka eigið líf á vikutímabili

Bæjarbúar þorps í N-Írlandi eru í uppnámi eftir að þrír ungir vinir hafi framið sjálfsvíg á aðeins vikutímabili. Lee Walker, Wayne Browne og James Topley eru allir taldnir hafa hengt sig. Síðast var það Walker sem tók líf sitt á föstudaginn. Internetið er talið eiga þátt í atvikunum.

Mikið mannfall í Afganistan

Talið er að yfir 100 manns, bæði óbreyttir borgarar og hermenn hafi látist, og nokkrir særst í átökum milli afganskra NATO hersveita og Talíbana í suður Afganistan á þremur dögum.

Svartbjörn drap ellefu ára gamlan dreng

Svartbjörn drap ellefu ára gamlan dreng sem var í útilegu með fjölskyldu sinni í American Fork Canyon, nokkrum kílómetrum fyrir utan Salt Lake City, aðfaranótt sunnudags.

Mikið mannfall í Afganistan

Að minnsta kosti hundrað manns þar á meðal óbreyttir borgarar, lögreglumenn og herskáir Talibanar hafa látið lífið í hörðum bardögum sem geisað hafa í suðurhluta Afganistan síðustu daga. Bardagarnir hafa aðalleg geisað í Uruzgan-héraðinu.

Sprengjuleit við Hvíta húsið

Fjölmiðlamiðstöð nálægt Hvíta húsinu var rýmd í dag. Það var gert eftir að sprengjuleitarhundur sýndi viðbrögð við bifreið sem verið var að nota í tengslum við heimsókn ísraelska forsætisráðherrans Ehud Olmert til landsins.

Umhverfisvænir bílar koma illa út úr öryggisprófunum

Sænskir bílasérfræðingar greina frá því að 18 af hverjum 37 umhverfisvænum bílum uppfylla ekki lágmarks öryggiskröfur og koma illa út úr árekstarprófunum. Á sama tíma og ríkið ýtir undir kaup á umhverfisvænum bílum með skattafríðindum eru settar hömlur á bíla með sérstakan öryggisbúnað.

Nokkurra mánaða börnum bjargað frá barnaníðingum

Bresku lögreglunni hefur tekist að koma upp um barnaklámhring sem teygir anga sína til þrjátíu og fimm landa. Lögreglan bjargaði þrjátíu og einu barni úr klóm barnaníðinganna á meðan á rannsókn málsins stóð, sum þeirra voru aðeins nokkurra mánaða gömul.

Ný ríkisstjórn Abbas hefur stuðning lykilaðila

Ný Neyðarstjórn Mahmoud Abbas forseta Palestínu hefur stuðning lykilaðila í alþjóðasamfélaginu. Bandaríkjastjórn og Evrópusambandið ætla að hefja fjárhagsaðstoð við stjórnvöld í Palestínu á nýjan leik eftir um eins og hálfs árs hlé.

Rútuslys í Þýskalandi

Að minnsta kosti þrettán manns létust og um 30 slösuðust í rútuslysi í Þýskalandi í dag. Fjörtíu og átta eldri borgarar voru í rútunni þegar slysið varð á þjóðveginum á milli Halle og Magdeburg í austur Þýskalandi. Fólkið var frá Hopsten i norðvestur Þýskalandi.

Hamasliðar gefa mannræningjum frest til miðnættis

Hamassamtökin í Palestínu sem ráða nú yfir Gasa svæðinu, hafa gefið mannræningjunum sem hafa breska blaðamanninn Alan Johnston í haldi, frest til miðnættis til þess að sleppa honum. Verði ræningjarnir ekki við kröfu samtakanna hyggjast þeir beita valdi til þess að frelsa hann úr prísund sinni.

Reyna að stöðva flutning vopna frá Íran

Fjölþjóðlegt herlið í Írak hefur í dag staðið í bardgögum í austurhluta landsins með það að markmiði að koma í veg fyrir flæði hermanna og hergagna frá Íran til Íraks. Í tilkynningu frá Bandaríkjaher kemur fram að um 20 vígamenn hafi fallið í bardögunum.

31 barni bjargað úr klóm barnaníðinga

Alþjóðlegt lögreglulið hefur upprætt alþjóðlegan barnaklámhring. 700 manns eru grunaðir í málinu og herma fregnir að 31 barni hafi verið bjargað úr klóm níðinganna. Níðingsverkin voru í sumum tilfellum sýnd í beinni útsendingu á Netinu.

Viðræður um framtíð Vestur-Sahara hefjast í dag

Stjórnvöld í Marokkó og uppreisnarmenn í Polisario, sem berjast fyrir sjálfstæði Vestur-Sahara, hefja viðræður um framtíð svæðisins í dag. Upphaflega var Vestur-Sahara nýlenda Spánverja.

Eftirlitsmenn fara til Norður-Kóreu

Eftirlitsmenn frá Alþjóðakjarnorkumálastofnuninni munu fara til Norður-Kóreu í næstu viku til þess ræða lokun á kjarnofninum í Yongbyon. Embættismenn í Norðu-Kóreu báðu um heimsóknina.

Ísrealar loka Gaza

Ísraelar hafa lokað á alla vöruflutninga til Gaza svæðisins. Hamas samtökin stjórna nú Gaza svæðinu og með þessum aðgerðum eru ísraelsk stjórnsvöld að reyna að einangra Hamas algjörlega. Á sama tíma eru Ísraelar að hefja stuðning við bráðabirgðarstjórn Fatah hreyfingarinnar.

Gianfranco Ferre látinn

Ítalski tískufrömuðurinn Gianfranco Ferre lést í Mílanó á Ítalíu í dag 62 ára að aldri. Gianfranco var lagður inn á spítala á föstudaginn eftir að hann fékk heilablóðfall.

Forseti Súdan hleypir friðagæsluliðum til Darfur

Omar al-Bashir forseti Súdan hefur samþykkt að hleypa friðargæsluliðum Sameinuðu þjóðanna til Darfur án nokkurra skilyrða. Ofbeldi og átök í héraðinu hafa kostað meira en tvö hundruð þúsund manns lífið og um tvær og rúmlega tvær milljónir hafa hrakist frá heimilum sínum.

Mikil fjölgun í hópi Síberíutígrisdýra

Vel gengur að reisa við stofn Síberíutígrisdýra sem eru í mikilli útrýmingarhættu. Á ræktunarstöð kattardýra í Kína hefur tegundinni borist góður liðsauki með fæðingu 84 kettlinga frá því í mars á þessu ári. Í tilkynningu frá ræktunarstöðinni segir að kettlingunum heilsist vel og að von sé á að 13 læður fæði til viðbótar á næstu fjórum mánuðum.

Ný alpagöng opnuð

Lengstu landlægu lestargöng í heimi voru vígð á föstudaginn. Göngin eru 34 kílómetra löng og tengja Þýskaland og Ítalíu í gegnum Alpafjöllin.

Sjá næstu 50 fréttir