Fleiri
Saka Al Jazeera um undirróður 7.2.2007 14:24 Skaut ítalskan leyniþjónustumann Ítalskur dómari hefur fyrirskipað að bandarískur hermaður skuli leiddur fyrir rétt fyrir að skjóta ítalskan leyniþjónustumann til bana í Írak. Tveir Ítalskir leyniþjónustumenn voru á leið út á flugvöllinn í Bagdad, með ítalska konu sem þeir höfðu fengið lausa úr gíslingu. Bandarískir hermenn segja að bílnum hafi verið ekið á ofsahraða að bandarískri varðstöð við flugvöllinn, og því hafi verið skotið á hann. 7.2.2007 13:51 Sjö bréfasprengjur sendar í Lundúnum Breska lögreglan segir að sjö bréfasprengjur hafi verið sendar þar í landi undanfarnar þrjár vikur, og hvetur fólk til þess að gæta sín í umgengni við póst. Þrír hafa slasast af bréfasprengjum í þessari viku, en ekki hefur verið skýrt opinberlega frá hinum fjórum fyrr en núna. 7.2.2007 13:26 Barnaklámsrassía á vegum austurrísku lögreglunnar Lögregla í Austurríki gerði í gær rassíu hjá alþjóðlegum barnaklámhring í samstarfi við lögreglu í 77 öðrum ríkjum. Alls er 2361 grunaður um aðild að hringnum. Enginn hefur verið handtekinn en tölvur þeirra grunuðu hafa verið haldlagðar. 7.2.2007 11:51 Khodorkovsky segir nýjar ákærur pólitískar Olíujöfurinn Mikhail Khodorkovsky segir nýjar ákærur á hendur honum til þess ætlaðar að koma í veg fyrir að hann losni fyrr úr fangelsi og blandi sér í stjórnmál. Hann segir þessar áætlanir kokkaðar upp í Kreml þar sem Vladímír Pútín ræður ríkjum. 7.2.2007 11:35 Búist við miklum snjó á Bretlandseyjum Búist er við umferðaröngþveiti á Bretlandseyjum í fyrramálið en spáð er snjóstormi í nótt. Búist er við allt að 15 sentímetrum af snjó falli sumstaðar. Þjóðvegaeftirlitið er með 400 saltbíla í viðbragðsstöðu og verður allt gert sem hægt er til að greiða fyrir umferð. 7.2.2007 11:14 Hætta ekki fyrr en niðurstaða fæst Mahmoud Abbas forseti Palestínu hóf viðræður sínar við Khaled Meshaal leiðtoga Hamas í morgun með þeim orðum að viðræðunum yrði ekki slitið fyrr en fylkingar Fatah og Hamas kæmust að sameiginlegri niðurstöðu. Ráðlagt er að viðræðurnar standi í tvo daga en Abdullah konungur Sádí-Arabíu miðlar málum fylkinganna. 7.2.2007 10:44 Mikil flóð í Búrúndí Matvælastofnun Sameinuðu þjóðanna sagði í dag að 2 milljónir manna í Búrúndí væru í hættu á því að svelta vegna mikilla flóða þar undanfarnar vikur. Talið er að fólkið þurfi aðstoð fram í júní til þess að koma í veg fyrir matarskort. Hjálparsamtök hafa beðið um samtals 132 milljónir dollara til þess að geta sinnt starfi sínu í Búrúndí. 6.2.2007 23:45 Mannskæð námusprenging í Kólumbíu Sprenging varð í námu í Kólumbíu í dag. Ein kona lést og átta menn, fjórir námuverkamenn og fjórir björgunarmenn eru í sjálfheldu vegna hennar. Ekkert er vitað um afdrif þeirra. 6.2.2007 23:27 Stofna nefnd til að hjálpa flóttamönnum Utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna sagði frá því í dag að það hefði stofnað sérstaka nefnd sem á að sjá til þess að Bandaríkin hlúi almennilega að flóttamönnum frá Írak. Þingmenn hafa gagnrýnt stjórnvöld fyrir að hafa aðeins leyft 202 Írökum að flytjast til Bandaríkjanna á síðasta ári. 6.2.2007 23:15 Gates vonast eftir hermönnunum heim fyrir áramót Robert Gates, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, sagði að hann vonaðist eftir því að bandarískir hermenn gætu snúið á heim á leið fyrir lok þessa árs. Þetta kom fram á fundi sem hann átti með hermálanefnd öldungadeildar bandaríska þingsins í kvöld. 6.2.2007 22:56 Sjá næstu 50 fréttir
Prófa nýtt bóluefni gegn alnæmi Suður-Afríka, sem glímir við einn stærsta alnæmisfaraldur í heimi, kynnti í dag áætlun um prófanir á nýju bóluefni gegn alnæmi. Verkefnið er það stærsta sem sem landið hefur tekið þátt í. Verkefnið er styrkt af stjórnvöldum í Suður-Afríku en þau héldu því lengi vel fram að bestu varnirnar gegn alnæmi væru hvítlaukur og rauðrófur. 8.2.2007 20:23
Náttúruleg heimkynni órangútana í hættu Hætt er við því að órangútanar tapi náttúrulegum heimkynnum sínum endanlega á næstu fimmtán árum verði ekkert að gert mjög fljótlega. Skógar Súmötru og Borneó eru heimkynni órangútana en þar er stundað ólöglegt skógarhögg. 8.2.2007 19:52
Snjóþungt víða um Evrópu Vetur konungur hefur farið hamförum víða um Evrópu í dag. Snjóað hefur ótæpilega í Belgíu, Bretlandi og Hollandi og hefur það haft áhrif á samgöngur í löndunum, en ekki síður til þeirra og frá. 8.2.2007 19:45
Hamas og Fatah undirrita samkomulag um þjóðstjórn Leiðtogar Hamas og Fatah hreyfinganna skrifuðu rétt í þessu undir samkomulag um myndun þjóðstjórnar í Palestínu. Samkomulaginu er ætlað að binda enda á átökin í Palestínu en yfir 90 manns hafa látið lífið í átökunum síðan í desember. Hamas mun þó ekki viðurkenna tilverurétt Ísraels 8.2.2007 19:14
Dæmdur til dauða fyrir morð á fóstri Kviðdómur í Texas ríki í Bandaríkjunum dæmdi í gær fyrrum æskulýðsprest til dauða fyrir hafa myrt táningsstúlku og ófætt barn hennar. Þetta er í fyrsta sinn í Texas sem einhver er dæmdur til dauða fyrir að myrða fóstur. 8.2.2007 16:56
Nyhedsavisen kaupir út danska póstinn Danski pósturinn er hættur þáttöku í dreifingu fríblaðsins Nyhedsavisen, og aðstandendur blaðsins fagna því. Sérstakt fyrirtæki, "Morgundreifingin" var stofnuð um dreifingu blaðsins og átti danski pósturinn þar 49 prósent. Restina átti fyrirtækið 365 Media Skandinavia. Danska Samkeppniseftirlitið hafði ýmislegt við þetta að athuga og lagði hömlur á starfsemina. 8.2.2007 16:49
Norður-Kórea gæti brátt afvopnast Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sagði í dag að hún vonist til þess að farið verði að vinna eftir samkomulagi sem náðist árið 2005 um að binda endi á kjarnorkuáætlun Norður-Kóreu. Rice skýrði frá þessu sinni á fundi með utanríkisnefnd öldungadeildar bandaríska þingsins. 8.2.2007 16:33
Brixtofte dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir umboðssvik Peter Brixtofte, fyrrverandi bæjarstóri í Farum í útjaðri Kaupmannahafnar, var í dag dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir umboðssvik í opinberu starfi. Dómnum er ekki hægt að áfrýja eftir því sem fram kemur á vef Jótlandspóstsins. 8.2.2007 16:06
Hamas og Fatah nálgast samkomulag Hamas og Fatah hreyfingarnar hafa náð samkomulagi um hverjir munu skipa flestar stöður í væntanlegri þjóðstjórn Palestínu. Sagt var frá þessu í dag. Aðeins á eftir að velja innanríkisráðherra Palestínu. 8.2.2007 15:43
Hnepptu mæðgur í þrældóm og pyntuðu Fimmtíu og fimm ára gömul ungversk kona er látin eftir að nágrannar hennar pyntuðu hana og þrítuga dóttur hennar svo mánuðum skipti. Einn karlmaður og tvær konur hafa verið handteknar vegna málsins. Þetta gerðist í litlu þorpi í miðju Ungverjalandi. 8.2.2007 15:21
Áttavilltur flugmaður lenti á vegi Eftirlaunaþegi lenti flugvél á nýjum vegi í Bretlandi í þeirri trú að hann hefði fundið lendingarbraut flugvallar skammt frá. Flugmaðurinn áttaði sig á mistökunum þegar flugvélin fór yfir hraðahindrun á veginum. Engin umferð var á veginum í Leominster í Herefordshire, en maðurinn lenti þrátt fyrir að taka eftir gangstétt og ljósastaurum samkvæmt fréttavef Sky. 8.2.2007 15:04
Skutu hunda sér til gamans Verðir í búlgörskum almenningsgarði hafa valdið deilum meðal embættismanna eftir að þeir skutu hund rússnesks ræðismanns - af því að þeim leiddist. Rússneski konsúllinn í borginni Russe í Búlgaríu krefst aðgerða eftir að labrador hundurinn hans, Mecho, var skotinn til bana af vörðunum, en þeir notuðu hann sem skotmark í hæfniskeppni. 8.2.2007 15:00
„Beygðu STRAX í norður“ Bandaríski flotinn hefur opinberlega sagt að þessi frásögn eigi ekki við rök að styðjast, en hún er sögð vera til í skjalasafni yfirmanns bandaríska flotans, og þetta á að hafa gerst árið 1995. Um er að ræða talstöðvar-viðskipti bandarísks herskips sem var á siglingu undan strönd Kanada, skammt frá Halifax. Bandaríska herskipið kallar upp í talstöð sinni: 8.2.2007 14:30
Sex leikvangar opnir fyrir áhorfendum á Ítalíu um helgina Ítalska ríkisstjórnin tilkynnti í dag að opna mætti sex knattspyrnuleikvanga fyrir áhorfendum um helgina en aðrir yrðu lokaðir þar til viðeigandi ráðstafanir hefðu verið gerðar sem tryggðu öryggi áhorfenda. Vellirnir sem um ræðir eru í Róm, Genúa, Siena, Cagliari, Tórínó og Palermo. 8.2.2007 14:18
Ungabarn tekið upp í skuld Serbneskur spítali hefur neitað að af henda móður nýfætt barn sitt þar til hún hefur greitt fyrir sjúkrahúsvistina. Senija Roganovic frá Macedóníu fæddi barn sitt á Neonatology sjúkrahúsinu í Belgrad fyrir tveimur mánuðum. Barninu hefur verið haldið á spítalanum síðan, þar sem konan hefur ekki greitt 600 þúsund króna reikning fyrir tíu daga dvöl sína og barnsins á spítalanum. 8.2.2007 13:50
Norður-Kóreumenn vilja semja Norður-Kóreumenn eru tilbúnir að hefja vegferð í átt til þess að láta af kjarnorkuáætlunum sínum. Þetta segja embættismenn frá Suður-Kóreu en viðræður sex ríkja um kjarnorkumál Norður-Kóreu hófust í morgun í Peking í Kína. 8.2.2007 12:35
NASA: Betra eftirlit með geðheilsu starfsmanna Geimferðastofnun Bandaríkjanna, NASA, ætlar að herða eftirlit með geðheilsu geimfara eftir að þeir hafa verið ráðnir til starfa. Þetta var ákveðið eftir að fréttir bárust af langferð geimfarans Lisu Nowak sem reyndi að ræna öðrum starfsmanni sem hún hélt að væri keppinautur um ástir þess þriðja. 8.2.2007 12:30
Dæmdur fyrir að gera 11 ára stúlku ófríska Dómstóll í Frakklandi dæmdi ungan mann í átta mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa haft mök við og gert 11 ára stúlku ófríska. Dómurinn féllst ekki á ásakanir fjölskyldu stúlkunnar um að maðurinn hefði nauðgað henni, en hann var átján ára þegar atvikið varð. Stúlkan fæddi barnið í mars á síðasta ári og hafa foreldrar hennar hjálpað henni að annst það. Í dómsorði segir að manninum hefði átt að vera ljóst að sökum ungs aldurs hefði stúlkan ekki haft andlegan þroska til að stunda kynlíf. 8.2.2007 11:42
Handtóku meintan vopnainnflytjenda Bandaríski herinn hefur sent frá sér yfirlýsingu um að maðurinn sem þeir handtóku í árás á menntamálaráðuneytið í Írak í morgun sé lykilaðili í ólöglegum innflutningi vopna inn í landið. Þeir nafngreindu manninn ekki en í fréttum frá íröskum embættismönnum í morgun kom fram að þetta hafi verið Hakim Zamili, aðstoðarmenntamálaráðherra landsins, sem er stuðningsmaður sjítaklerksins Moqtada al-Sadr. 8.2.2007 10:41
Ólga á ný í Kosovo Bæði Serbar og Albanar eru ósáttir við tillögur Sameinuðu þjóðanna um framtíð Kosovo-héraðs, og báðir munu efna til mótmæla um helgina. Serbar eru ósáttir við að í tillögunum er gert ráð fyrir að Kosovo verði skilið frá Serbíu og fái aðild að alþjóðastofnunum. Albanar eru ósáttir við að í tillögunum er ekki að finna orðið "sjálfstæði." 8.2.2007 10:33
Kynlíf eða ný föt? Þegar kemur að fötum þá vita konur hvað þær vilja. Það kom í ljós í könnun sem var lögð fyrir 1.000 konur í Bandaríkjunum. Flestar þeirra sögðust tilbúnar að gefa kynlíf upp á bátinn í 15 mánuði ef þær fengju fataskáp fullan af nýjum fötum. Tvö prósent þeirra sagði að þær væru tilbúnar að hætta að lifa kynlífi í þrjú ár fyrir nýju fötin. 61% þeirra bætti síðan við að það væri mun verra að týna uppáhaldsflíkinni en að sleppa rúmfræði í heilan mánuð. 7.2.2007 23:32
Tölvuleikir bæta sjón Rannsóknir sýna að tölvuleikir bæta sjónina, sérstaklega þeir sem áreita augað mikið. Þeir sem spila í nokkra klukkutíma á dag eru um 20 prósent fljótari að greina bókstafi á blaði sem birtast innan um önnur tákn, sem er próf sem er notað af augnlæknum. 7.2.2007 21:54
Átök á milli Ísraela og Líbana Líbanski herinn skaut í kvöld á ísraelska hermenn sem voru að leita að sprengjum á landamærum ríkjanna tveggja. Þetta kom fram í fréttum hjá herútvarpi Ísraels. Samkvæmt fregnum skutu ísraelskir hermenn til baka en ekkert mannfall var hjá þeim. Talsmaður ísraelska hersins sagði að þeir héldu að einhverjir hermanna Líbana hefðu fallið í átökunum. 7.2.2007 21:45
Forsætisráðherra Sómalíu styrkir völd sín Forsætisráðherra Sómalíu, Ali Mohamed Gedi, stokkaði upp í ríkisstjórn sinni í dag til þess að auka áhrif sín í henni, þóknast ættbálkum og halda sig við loforð um þjóðstjórn í landinu. Ríkisstjórnin er nú að reyna að auka völd sín í Sómalíu eftir að íslamska dómstólaráðið var rekið frá völdum. 7.2.2007 21:30
NASA að bæta eftirlit með geimförum Geimferðastofnun Bandaríkjanna, NASA, sagði í dag að hún myndi fara yfir starfsreglur er varða eftirlit með heilsu og geðheilsu geimfara eftir að þeir eru ráðnir. Hingað til hefur ekkert eftirlit verið með geðheilsu þeirra eftir að þeir hefja störf. 7.2.2007 21:15
Ítalski boltinn hefst að nýju um helgina Knattspyrnusamband Ítalíu sagði frá því í dag að knattspyrnuleikir myndu hefjast að nýju um næstu helgi. Stjórnvöld á Ítalíu samþykktu í dag hertar öryggisráðstafanir til þess að reyna að koma í veg fyrir óeirðir á knattspyrnuleikjum. 7.2.2007 21:00
Apple og Apple semja Apple-tölvurisinn og Apple, útgáfufélag Bítlanna, hafa grafið stríðsöxina og bundið enda á þriggja áratuga lagadeilur um rétt til nafns og vörumerkis. Þetta gæti þýtt að Bítlalög verði í boði hjá iTunes og öðrum tónlistarveitum á netinu í fyrsta sinn. 7.2.2007 19:45
Íslendingar taldir tengjast barnaklámshring í Austurríki Kynferðisbrotadeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu hefur, síðan um áramótin, rannsakað mál þriggja Íslendinga sem taldir eru tengjast barnaklámhring í Austurríki. 7.2.2007 19:30
7 bréfasprengjur á Bretlandseyjum Breska lögreglan greindi frá því í dag að sjö bréfasprengjur hafi verið sendar á Bretlandseyjum undanfarnar þrjár vikur. Ein slík sprakk í Wales í dag og særði þrjá en það er fjórða sprengjan sem springur á fimm dögum. 7.2.2007 19:13
Bræður vilja ekki berjast Bræður hafa barist á banaspjótum í Palestínu síðustu vikur og mánuði og mannfall verið mikið. Forvígismenn fylkinga Hamas og Fatah reyna að stilla til friðar. Palestínskir bræður, sem fylgja sitt hvorri fylkingunni, særðust í sömu árásinni fyrir nokkrum dögum. Þeir segjast berjast fyrir bandamenn sína en samt geti þeir aldrei miðað byssu hvor á annan. 7.2.2007 19:09
Reyndu að fella internetið Óþekktir tölvuþrjótar reyndu í gær að ráða niðurlögum þeirra 13 tölva sem sjá um að stjórna stórum hluta umferðar á internetinu. Árásin stóð yfir í rúmar tólf klukkustundir og virtist koma frá Suður-Kóreu. Milljónir tölva um allan heim, sem sýktar voru með vírusum sem gerðu tölvuþrjótum kleyft að ná stjórn á þeim, voru notaðar í árásinni. 7.2.2007 18:42
Dönsku fríblöðin höggva skörð í lestur hinna Fríblöðin í Danmörku virðast hafa haft talsverð áhrif á blöðin sem fyrir voru. Miðað við janúar á síðasta ári, hefur Berlingske Tidende misst tíu prósent lesenda sinna, Jyllandsposten um 16 prósent sinna lesenda og Århus Stiftstidende heil 29 prósent. Aðeins Politiken virðist hafa staðið af sér hrinuna, en þar fjölgaði lesendum um tvö prósent. 7.2.2007 16:41
Royal sögð köld og sjálfselsk Segolene Royal, frambjóðandi sósíalista í forsetakosningunum í Frakklandi, fær ekki góða einkunn í bók sem fyrrverandi aðstoðarkona hennar hefur skrifað. Evelyne Pathouot vann fyrir Royal 1997-1997 og hefur átt í málaferlum við hana út af vangoldnum launum. Hún vinnur nú hjá einum þingmanna franska hægri flokksins UMP. 7.2.2007 15:40
Danir undrandi á hjónabandi Alexöndru Alexandra prinsessa, fyrrverandi eiginkona Jóakims Danaprins, ætlar að gifta sig aftur hinn 3. mars næstkomandi. Með því slitna öll tengsl hennar við dönsku konungsfjölskylduna. Eiginmaður hennar verður hinn 27 ára gamli ljósmyndari Martin Jörgensen. Margir Danir eru furðu lostnir yfir þessari ákvörðun prinsessunnar. 7.2.2007 14:53
Skaut ítalskan leyniþjónustumann Ítalskur dómari hefur fyrirskipað að bandarískur hermaður skuli leiddur fyrir rétt fyrir að skjóta ítalskan leyniþjónustumann til bana í Írak. Tveir Ítalskir leyniþjónustumenn voru á leið út á flugvöllinn í Bagdad, með ítalska konu sem þeir höfðu fengið lausa úr gíslingu. Bandarískir hermenn segja að bílnum hafi verið ekið á ofsahraða að bandarískri varðstöð við flugvöllinn, og því hafi verið skotið á hann. 7.2.2007 13:51
Sjö bréfasprengjur sendar í Lundúnum Breska lögreglan segir að sjö bréfasprengjur hafi verið sendar þar í landi undanfarnar þrjár vikur, og hvetur fólk til þess að gæta sín í umgengni við póst. Þrír hafa slasast af bréfasprengjum í þessari viku, en ekki hefur verið skýrt opinberlega frá hinum fjórum fyrr en núna. 7.2.2007 13:26
Barnaklámsrassía á vegum austurrísku lögreglunnar Lögregla í Austurríki gerði í gær rassíu hjá alþjóðlegum barnaklámhring í samstarfi við lögreglu í 77 öðrum ríkjum. Alls er 2361 grunaður um aðild að hringnum. Enginn hefur verið handtekinn en tölvur þeirra grunuðu hafa verið haldlagðar. 7.2.2007 11:51
Khodorkovsky segir nýjar ákærur pólitískar Olíujöfurinn Mikhail Khodorkovsky segir nýjar ákærur á hendur honum til þess ætlaðar að koma í veg fyrir að hann losni fyrr úr fangelsi og blandi sér í stjórnmál. Hann segir þessar áætlanir kokkaðar upp í Kreml þar sem Vladímír Pútín ræður ríkjum. 7.2.2007 11:35
Búist við miklum snjó á Bretlandseyjum Búist er við umferðaröngþveiti á Bretlandseyjum í fyrramálið en spáð er snjóstormi í nótt. Búist er við allt að 15 sentímetrum af snjó falli sumstaðar. Þjóðvegaeftirlitið er með 400 saltbíla í viðbragðsstöðu og verður allt gert sem hægt er til að greiða fyrir umferð. 7.2.2007 11:14
Hætta ekki fyrr en niðurstaða fæst Mahmoud Abbas forseti Palestínu hóf viðræður sínar við Khaled Meshaal leiðtoga Hamas í morgun með þeim orðum að viðræðunum yrði ekki slitið fyrr en fylkingar Fatah og Hamas kæmust að sameiginlegri niðurstöðu. Ráðlagt er að viðræðurnar standi í tvo daga en Abdullah konungur Sádí-Arabíu miðlar málum fylkinganna. 7.2.2007 10:44
Mikil flóð í Búrúndí Matvælastofnun Sameinuðu þjóðanna sagði í dag að 2 milljónir manna í Búrúndí væru í hættu á því að svelta vegna mikilla flóða þar undanfarnar vikur. Talið er að fólkið þurfi aðstoð fram í júní til þess að koma í veg fyrir matarskort. Hjálparsamtök hafa beðið um samtals 132 milljónir dollara til þess að geta sinnt starfi sínu í Búrúndí. 6.2.2007 23:45
Mannskæð námusprenging í Kólumbíu Sprenging varð í námu í Kólumbíu í dag. Ein kona lést og átta menn, fjórir námuverkamenn og fjórir björgunarmenn eru í sjálfheldu vegna hennar. Ekkert er vitað um afdrif þeirra. 6.2.2007 23:27
Stofna nefnd til að hjálpa flóttamönnum Utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna sagði frá því í dag að það hefði stofnað sérstaka nefnd sem á að sjá til þess að Bandaríkin hlúi almennilega að flóttamönnum frá Írak. Þingmenn hafa gagnrýnt stjórnvöld fyrir að hafa aðeins leyft 202 Írökum að flytjast til Bandaríkjanna á síðasta ári. 6.2.2007 23:15
Gates vonast eftir hermönnunum heim fyrir áramót Robert Gates, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, sagði að hann vonaðist eftir því að bandarískir hermenn gætu snúið á heim á leið fyrir lok þessa árs. Þetta kom fram á fundi sem hann átti með hermálanefnd öldungadeildar bandaríska þingsins í kvöld. 6.2.2007 22:56