Fleiri fréttir

Tyrkir kjósa þing að ári

Tyrkneska þingið samþykkti í dag að boða til þingkosninga að ári. Áður höfðu stjórnmálaskýrendur í Tyklandi gert því skóna að Réttlætis- og þróunarflokkurinn, sem situr í ríkisstjórn, ætlaði að boða til kosninga hið fyrsta.

Fela sig meðal maríúana-plantna

Kanadískir hermenn sem berjast nú við Talíbana í Afganistan hafa mætt heldur óvenjulegum vegtálma á ferð sinni. Þar eru að ræða skóglendi þar sem þriggja metra háar maríúana-plöntur vaxa. Erfiðlega hefur reynst að finna þá Talíbana sem þar fela sig.

Refsivert að tala um annað en þjóðarmorð

Neðri deild franska þingsins samþykkti í dag frumvarp um að refsivert verði að halda fram að Tyrkir hafi ekki framið þjóðarmorð á Armenum í fyrri heimsstyrjöldinni. Tyrkir eru fjúkandi reiðir og hyggjast gera allt sem í þeirra valdi stendur til að koma í veg fyrir að efri deild og forseti geri frumvarpið að lögum.

Íbúar í New York voru slegnir

Sá sem flaug lítilli einkavél á byggingu í New York í gærkvöldi reyndist vera hafnarboltastjarna úr New York Yankees-liðinu. Íslendingur, sem býr í næstu götu, segir borgarbúa hafa verið slegna og óttast að um hryðjuverk væri að ræða, en lögregluyfirvöld hafa útilokað að svo sé.

Starfsemin flutt á Grundartanga

Stjórn Elkems, móðurfélags Járnblendiverksmiðjunnar á Grundartanga, mun leggja það til á morgun að loka verksmiðjunni í Ålvik í Noregi og flytja starfsemina á Grundartanga. Þetta var fullyrt í fréttum norska ríkissjónvarpsins í kvöld.

Ford á sjúkrahús

Gerald Ford, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, var fluttur í sjúkrahús í Kaliforníu í dag. Ford, sem er 93 ára, gengst þar undir rannsóknir. Ekki hefur fengist gefið upp hvað hrjáir hann en hann er ekki sagður illa haldinn.

Fengu að hitta Guantanamo fanga

Fulltrúar Rauða krossins hafa fengið aðganga að 14 grunuðum hryðjuverkamönnum sem fluttir voru í leynifangelsum bandarísku leyniþjónustunnar, CIA, til gæslu í fangabúðunum í Guantanamo á Kúbu. Bandaríski herinn greindi frá þessu í dag.

Ofbeldi gegn börnum oft hulið og samþykkt

Ofbeldi gegn börnum er oft hulið og jafnvel samþykkt í samfélaginu. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna um ofbeldi gegn börnum sem kynnt var á allsherjarþingi samtakanna í gær.

Myndband veldur pólitískri deilu

Pólitísk deila hefur sprottið upp í Bretlandi eftir að þingmaður Verkamannaflokksins birti myndband á vefnum sem er skopstæling af myndbandi formanns Íhaldsflokksins. David Cameron formaður Íhaldsflokksins heldur úti vefsíðu þar sem hann talar við vefmyndavél (WebCameron) eins og kjósendur, og veltir upp ýmsum málum og skoðunum sínum á þeim.

Amish skólinn jafnaður við jörðu

Amish skólinn þar sem fimm stúlkur voru skotnar til bana af óðum byssumanni 2. október var jafnaður við jörðu í morgun. Amish fólkið sem rak skólann í Nickle Mines í Pennsylvaníu í Bandaríkjunum ákvað að láta rífa bygginguna, en skólahald hefur verið fært á nærliggjandi bóndabæ.

Ban verður eftirmaður Annans

Allsherjarþing Sameinuðu Þjóðanna mun hittast á morgun og skipa Ban Ki-moon utanríkisráðherra Suður Kóreu í embætti næsta aðalritara Sameinuðu Þjóðanna. Tæpir þrír mánuðir eru þangað til Ban tekur við stjórn af Kofi Annan sem lætur af störfum 1. janúar næstkomandi eftir tíu ár í embættinu.

Orhan Pamuk hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels

Tyrkneski rithöfundurinn Orhan Pamuk hlaut Nóbelsverðlaunin í bókmenntum fyrir um klukkustund. Pamuk er fimmtíu og fjögurra ára og hefur gefið út átta skáldsögur. Verk hans hafa notið mikillar hylli bæði í heimalandinu og annars staðar, en þau hafa verið þýdd á meira en fjörutíu tungumál en þó ekki á íslensku.

Flugvél flaug á byggingu í New York

Lítilli einkaflugvél var flogið inn í 50 hæða háhýsi á Manhattan eyju í New York undir kvöld að íslenskum tíma. Skráður eigandi að flugvélinni er Cory Lidle, hafnaboltaleikari hjá New York Yankees. Talið er að hann hafi flogið vélinni og hafi látið lífið, ásamt flugkennara sem var með honum.

Tólf látnir í lestarslysinu í Lorraine-héraði

Tólf eru látnir og um tuttugu slasaðir eftir lestarslysið í Lorraine-héraði í Frakklandi í morgun þar sem farþegarlest og flutningalest rákust saman. Áreksturinn varð í Zoufftgen, nærri landamærunum að Lúxemborg, en farþegalestin var á leið til Nancy.

Fjárlagahalli í Bandaríkjunum 17 þúsund milljarðar á þessu ári

Fjárlagahalli í Bandaríkjunum á þessu fjárlagaári nemur um 248 milljörðum bandaríkjadala, jafnvirði um 17 þúsund milljarða króna. Frá þessu greindi fjármálaráðuneyti Bandaríkjanna í dag. Tekjur ríkissjóðs Bandaríkjanna hafa aldrei verið meiri en á þessu ári og ekki heldur útgjöld en engu að síður er fjárlagahallinn minni en í fyrra þegar hann var 319 milljarðar bandaríkjadala, um 21.700 milljarða króna.

Sterling uppvíst að annarri gjaldtöku

Flugfélagið Sterling, sem nýverið varð uppvíst að því að innheimta opinberan flugskatt af hverjum farþega í Svíþjóð án þess að skatturinn væri til, er nú uppvíst af annarri gjaldtöku án þess að viðskiptavinirnir viti af.

10 létust í lestarslysi í Frakklandi

Að minnsta kosti 10 manns létust og tuttugu slösuðust í lestarslysi í Frakklandi í dag þegar farþegalest lenti í árekstri við vöruflutningalest sem kom úr gagnstæðri átt. Áreksturinn varð kl. 10.45 að íslenskum tíma í Zoufftgen í Norð-austurhluta landsins. Farþegalestin var á leið frá Lúxemborg til Nancy og hafði skipt um lestarteina, þar sem verið var að gera við teinana sem lestin átti að vera á.

Önnur kjarnorkusprengja

Japanskir fjölmiðlar segja frá því að hugsanlega hafi önnur kjarnasprengja verið sprengd í Norður Kóreu. Stjórnvöld í Pyongyang líta svo á að aukist þrýstingur Bandaríkjamanna jafngildi það stríðsyfirlýsingu. Þeir hafa hótað frekari kjarnatilraunum, en segjast einnig tilbúnir til bæði viðræðna og átaka.

Alvarlegt lestarslys í Frakklandi

Að minnsta kosti níu eru látnir og um tuttugu slasaðier eftir að farþegalest og flutningalest rákust saman í norðausturhluta Frakklands nú fyrir hádegið. Fregnir af slysinu eru enn óljósar og því gæti tala látinna átt eftir að hækka.

Saddam Hussein mætir aftur í dómsal

Saddam Hussein, fyrrverandi forseti Íraks, sneri aftur í dómsalinn í Bagdad í dag en dómari henti honum þaðan út í gær fyrir háreysti. Hussein og sex fyrrverandi samstarfsmenn hans innan ríkisstjórnar Íraks sæta nú réttarhöldum vegna ákæru um stríðsglæpi og þjóðarmorð á Kúrdum í valdatíð Husseins.

Vilja refsiaðgerðir

Fastaríki öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna reyna nú að koma sér saman um aðgerðir gegn Norður-Kóreu eftir tilraun þeirra síðarnefndu með kjarnorkusprengju aðfaranótt mánudags. Kínverjar virðast hafa misst þolinmæðina gagnvart Kim Jong-Il og eru reiðubúnir að samþykkja harðar refsiaðgerðir. Innrás kemur þó ekki til greina.

Fjórir fórust

Fjórir fórust þegar leiguflugvél frá færeyska flugfélaginu Atlantic Airways rann út af flugbrautinni í Storð í Vestur-Noregi í morgun. Sextán voru um borð og náðu hinir tólf að komast sjálfir út úr flakinu, rétt áður en það varð alelda.

Neyðarástand vegna flóða í Grikklandi

Miklar rigningar hafa orsakað skyndiflóð víða í Grikklandi síðasta sólarhringinn. Gríska ríkisstjórnin hefur lýst yfir neyðarástandi, en hundruð húsa hafa eyðilagst í flóðunum. Brýr og vegir í mörgum héruðum norður og miðhluta landsins hafa eyðilagst og járnbrautarteinar skolast burt og einangrað þannig fjölda íbúa við borgina Volos.

Frakkar æfir vegna reykingarbanns

Franskir reykingarmenn eru æfir vegna ákvörðunar franskra stjórnvalda um að banna reykingar á kaffihúsum og börum. Bannið tekur gildi árið 2008. Dominique de Villepin, forsætisráðherra Frakklands, tilkynnti í fyrradag að reykingar yrðu bannaðar í Frakklandi á flestum opinberum stöðum frá febrúar á þessu ári og á börum, veitingastöðum og næturklúbbum ellefu mánuðum síðar.

Utanríkisráðherra Qatar og forseti Palestínu hittast

Utanríkisráðherra Qatar fundaði með yfirvöldum í Palestínu í gær í von um að sætta andstæðar fylkingar í forystu stjórnarinnar. Sjeik Hamad Bin Jasseem hitti forseta Palestínu og yfirmann Fatah flokksins, Mahmoud Abbas, í þeirri von að með samvinnu verði aðstoð vesturlanda á Gaza og vesturbakkanum komið á aftur.

Sjá næstu 50 fréttir