Fleiri fréttir Carl Bildt verður utanríkisráðherra Svíþjóðar Fredrik Reinfeldt, nýr forsætisráðherra Svíþjóðar, kynnti ríkisstjórn sína í morgun. Athygli vekur að Carl Bildt, fyrrverandi forsætisráðherra, verður utanríkisráðherra. Ráðherrar eru tuttugu og tveir, þar af tíu konur. Lars Leijonborg, leiðtogi Þjóðarflokksins, verður menntamálaráðherra, Maud Olofsson, leiðtogi Miðjuflokksins, verður atvinnumálaráðherra, og Göran Häggelund, leiðtogi Kristilegra demókrata, verður félagsmálaráðherra. Í ræðu á sænska þinginu sagði Reinfeldt að staðið yrði við gefin loforð um skattalækkanir og breytingar á velferðarkerfinu. 6.10.2006 11:42 Rússar vísa 130 Georgíu mönnum úr landi Rússar ætla að vísa 130 Georgíu mönnum úr landi fyrir að hafa bortið innflytendalög í Rússlandi, að sögn Interfax fréttastofunnar. Spennan á milli ríkjanna virðist síst í rénun. 6.10.2006 11:21 AerLingus hafnar tilboði Rayanair Eigendur meirihluta í flugfélaginu AerLingus, meðal annarra írska ríkið, höfnuðu í gær yfirtökutilboði lággjaldafélagsins Rayanair upp á 130 milljarða íslenskra króna. Rayanair á 16 prósent í félaginu og vildi eignast það allt. 6.10.2006 10:59 Öllum ákærum gegn John Mark Karr vísað frá Dómari í Kaliforníu vísað í dag frá dómi ákæru áhendur John Mark Karr um vörslu barnakláms. Karr hafði áður gefið sig fram í Tælandi og sagðist hafa myrt barnafegurðadrottninguna JonBenet Ramsey árið 1996. Síðar leiddi athugun á erfðaefni í ljós að Karr var ekki morðinginn og því var ákæru í því máli vísað frá. 5.10.2006 23:03 Faldi sig í helli Kínverskur maður hefur gefið sig fram við lögreglu eftir að hafa falið í helli í tæpan áratug. Maðurinn segist hafa verið að fela sig fyrir innheimtumönnum auk þess sem hann er sakaður um að hafa ógnað aðkomufólki með byssu. 5.10.2006 22:57 Ákærður fyrir að smygla dínamíti Bandarískur ferðamaður, sem reyndi að flytja dínamít með sér í farangri heim frá Suður-Ameríku til Bandaríkjanna, var ákærður í dag byrir brot á öryggislöggjöf. Hann gæti átt yfir höfði sér allt að 10 ára fangelsi. 5.10.2006 22:19 Hastert ætlar ekki að víkja Dennis Hastert, forseti fulltrúardeildar Bandaríkjaþings, ætlar ekki að segja af sér vegna hneyslismáls sem nú skekur Repúblíkanaflokkinn. Upp komst um það að fyrrverandi fulltrúardeildarþingmaður, Mark Foley, hefði sent klúr tölvupóstskeyti til ungra drengja sem unnu fyrir þingið. Foley hefur nú sagt af sér og beðist afsökunar á framferði sínu. Hastert segist þó bera fulla ábyrgð á að ekki hafi verið gripið í taumana fyrr. Hann sagðist gera allt sem í sínu valdi stæði til að koma í veg fyrir að svona nokkuð gerðist aftur. 5.10.2006 22:00 Hugsanlega sleppt þrátt fyrir fjöldamorð Bandaríska dómsmálaráðuneytið hefur mótmælt tillögu dómstóls í Bandaríkjunum um að herskáum andstæðingi stjórnar Fídels Kastró, forseta Kúbu, verði sleppt úr fangelsi þrátt fyrir að hann sé borin sökum um að bera ábyrgð á dauða 73 flugfarþega fyrir 20 árum. 5.10.2006 21:45 Rán í beinni útsendingu Löngum hefur verið sagt að armur laganna sé langur. Nýlegir atburðir í Bretlandi færðu sönnur á að almenningur getur framlengt hann enn frekar. Tveir innbrotsþjófar, sem brutust inn í hús í Lancaster á dögunum, vissu ekki betur en þeir væru að athafna sig óséðir í skjóli myrkurs. Svo var þó ekki því húsráðandi horfði á þá láta greipar sópa úr töluverðri fjarlægð í gegnum öryggismyndavél sem hann hafði tengt við farsíma sinn. 5.10.2006 21:30 Verðlaunamynd tryggði gervihendi Níu ára drengur, sem missti vinstri hönd sína í jarðskjálftanum í Pakistan í október í fyrra, hefur fengið gervihendi eftir að þýsk kona sá mynd af honum og ákvað að færa hann undir hendur færustu sérfræðinga á Ítalíu. 80 þúsund manns fórust í hamförunum og fjölmargir örkumluðust. 5.10.2006 21:15 Óvíst hvort al-Masri er lífs eða liðinn Írakar rannsaka nú erfðaefni úr látnum manni til að kanna hvort hann hafi verið Abu Ayyub al-Masri, nýr leiðtogi al Kaída í Írak. Tvær arabískar sjónvarpsstöðvar fullyrða að hann hafi fallið í loftárásum Bandaríkjamanna fyrr í vikunni. 5.10.2006 19:30 NATO tekið við í Afganistan Atlantshafsbandalagið tók í dag við stjórn öryggismála í Austur-Afganistan úr höndum Bandaríkjahers. Bandalagið hefur þegar tekið við stjórn mála í öðrum landshlutum, þar á meðal í höfuðborginni, Kabúl. 5.10.2006 19:15 Útgefendur Nyhedsavisen gagnrýndir Útgefendur Nyhedsavisen í Danmörku eru gagnrýndir harðlega í dönskum fjölmiðlum í dag fyrir að hafa ekki nú þegar gefið upp hverjir fjármagna útgáfu blaðsins. Hagfræðingur, sem hefur kannað málið fyrir danska blaðamannafélagið, segir þetta ótrúverðugt. Blaðið kemur út í fyrsta sinn á morgun. 5.10.2006 19:00 Rússar ræða beint við fulltrúa Norður-Kóreu Rússensk stjórnvöld segjast hafa verið í beinu sambandi við ráðamenn í Norður-Kóreu til að reyna að fá þá ofan af því að gera tilraunir með kjarnorkuvopn. Stjórnvöld í Pyongyang tilkynntu í fyrradag að slíkar tilraunir væru fyrirhugaðar. Alþjóðasamfélagið hefur varað Norðurkóreumenn við því að gera prófanir á slíkum vopnum. 5.10.2006 18:10 Reinfeldt nýr forsætisráðherra Svíþjóðar Fredrik Reinfeldt, leiðtogi sænska Hægriflokksins, var kjörinn forsætisráðherra Svíþjóðar í atkvæðagreiðslu á þingi í dag. Á morgun mun Reinfeldt kynna nýja ríkisstjórn sína og stefnumál hennar. 5.10.2006 17:51 Grænfriðungar stýra fiskverslun í Englandi 5.10.2006 16:49 OPEC hækkar verð á olíu 5.10.2006 16:08 Rússar þjarma enn að Georgíu Rússar hertu í dag enn tökin á smáríkinu Georgíu, með því að loka fyrirtækjum sem Georgíumenn eiga í Rússlandi, og frysta atvinnuleyfi. Þá eru þeir að undirbúa að stórhækka verð á gasi sem þeir selja til Georgíu, sem væri gríðarlegt áfall fyrir efnahag landsins. 5.10.2006 15:35 Hópur sjakala réðst á þorp í Indlandi Flytja þurfti 35 manns á sjúkrahús eftir að hópur af sjakölum réðst á þorp, í Austur-Indlandi, í gær. 5.10.2006 14:50 Risa hafeðlur fundnar á Svalbarða Norskir vísindamenn hafa fundið beinagrindur af risa-hafeðlum, sem þeir segja að hafi verið jafnvel enn skelfilegri en landeðlan Tyrannosaurus Rex, sem kölluð er Grameðla, á íslensku. 5.10.2006 14:07 Færeyingur fær umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs Náttúru- og umhverfisverðlaunin 2006 til Færeyja Afburða framlag til rannsókna á sviði loftslagsbreytinga Færeyingurinn Bogi Hansen prófessor og rithöfundur hlýtur Náttúru- og umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs árið 2006. Verðlaunin eru 350.000 danskra króna. Þema verðlaunanna í ár var loftslagsbreytingar og aðlögun að loftslagsbreytingum. 5.10.2006 13:40 Aftökurútur auka framboð líffæra Fréttastofa Sky segir Kínastjórn nota aftökurútur í þeim tilgangi að taka þúsundir manna af lífi ár hvert. Í frétt sem fréttastofan flutti fyrr á árinu komu fram tengsl milli aftökukerfis Kína og mikillar uppsveiflu í líffærasölu. Einungis tvö ár eru þangað til Kína heldur næstu ólympíuleika, en skilyrði fyrir réttinum til að halda leikana var að mannréttindamál yrðu bætt í landinu. 5.10.2006 12:44 Tilraun N-Kóreu ógnun við friðinn Hörð viðbrögð hafa borist við fyrirhuguðum kjarnorkutilraunum Norðurkóreumanna en forseti öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna segir tilraunina ógna friði, stöðugleika og öryggi, bæði í Asíu og utan álfunnar. 5.10.2006 11:26 Tækjastuldur í herstöðinni Óprúttnir aðilar hafa farið ránshendi um gömlu herstöðina á Keflavíkurflugvelli. Þar hefur sérhæfðum flugvallarbúnaði verið stolið. Meðal þess sem stolið var er svokallaður töggur eða dráttarbifreið fyrir flugvélar. 5.10.2006 10:47 Ákærur í njósnahneyksli HP Ríkissaksóknari Californíu í Bandaríkjunum hefur ákært fyrrum stjórnarformann Hewlett-Packard tölvufyrirtækisins ásamt fjórum öðrum sem tengjast fyrirtækjanjósnum. Málið fór af stað þegar fyrirtækið gaf upp að að leynilögreglumenn sem það réði í því skyni að komast að leka úr stjórn fyrirtækisins, hefðu leynilega náð í færslur símtala ýmissa yfirmanna, starfsmanna og blaðamanna. 5.10.2006 10:22 Lögregla í liði með dauðasveitum Liðsmenn í íraskir lögreglusveit hafa verið leystir tímabundið frá störfum, allir sem einn, og sendir aftur í þjálfun. Þeir hafa verið sakaðir um að láta ódæði dauðasveita í landinu átölulaus. Mennirnir voru sendir heim eftir að vopnaðir menn rændu nærri 40 manns í Bagdad, höfuðborg landsins, fyrr í vikunni. Nokkrir þeirra sem rænt var féllu síðan fyrir hendi mannræningja sinn. 4.10.2006 21:45 4 bandarískir hermenn féllu í Írak Fjórir bandarískir hermenn féllu í árás nærri Bagdad, höfuðborg Íraks, í dag. Þetta er í annað sinn á tveimur dögum sem mannskæð árás er gerð á hersveitir Bandaríkjamanna nærri höfuðborginni. 4.10.2006 21:30 Myrti aldraða sjúklinga Fyrrverandi hjúkrunarkona á sjúkrahúsi í Texas í Bandaríkjunum gekkst við því fyrir dómi í dag að hafa myrt 10 aldraða sjúklinga í hennar umsjá fyrir nærri sex árum. 4.10.2006 21:30 Hleranir áfram leyfðar Bandarísk stjórnvöld geta áfram stundað hleranir án sérstakrar heimildar á meðan áfrýjun bandaríska dómsmálaráðuneytisins vegna banns á þeim hefur ekki verið tekin fyrir. Þetta var niðurstaða áfrýjunarréttar í Cincinnati í dag. 4.10.2006 20:58 Telur ekki hættu á stríðsátökum Javier Solana, utanríkismálastjóri Evrópusambandsins, telur enga hættu á því að til stríðsátaka komi milli Rússa og Georgíumanna vegna deilna ríkjanna síðustu vikur. Hann hvetur þó deilendur til að gæta hófsemi og sýna stillingu. 4.10.2006 20:45 Sprenging í Pakistan Lögreglan í Pakistan fann í dag sprengiefni í garði nálægt heimili Pervez Musharraf, forseta landsins í borginni Rawalpindi. Það gerðist eftir að sprenging heyrðist þar í borg. Enginn féll eða sæðrist. 4.10.2006 19:59 IRA sagður skaðlaus Írski lýðveldisherinn hefur snúið baki við hryðjuverkum og ekki stafar lengur ógn af samtökunum. Óháð nefnd um afvopnun á Norður-Írlandi hefur komist að þessari niðurstöðu. 4.10.2006 19:00 Taka Íslendinga til fyrirmyndar Norðmenn opna Barnahús að íslenskri fyrirmynd en þar er sinnt málefnum barna sem grunur leikur á að hafi sætt kynferðislegri áreitni eða ofbeldi. 4.10.2006 19:00 Barist í Nígeríu Til skotbardaga kom milli herskárra Nígeríumanna og liðsmanna í stjórnarher landsins í óshólmum Nígeríu síðdegis. Skipts var á skotum nálægt olíudælustöð Royal Dutch Shell á austurhluta svæðisins. 4.10.2006 17:45 Barnaníðingum verður lítið ágengt 4.10.2006 16:58 Njósnahnettir sjá sprengjuundirbúning í N-Kóreu Bandarískir njósnagervihnettir hafa séð óvenjulega umferð á nokkrum stöðum sem Norður-Kórea gæti notað til þess að sprengja tilraunakjarnorkusprengju eins og þeir tilkynntu í gær að þeir ætlauðu gera. 4.10.2006 16:22 Sjötíu prósent Grænlendinga reykja 4.10.2006 15:54 Ný leið til þess að ræna flugvél Flugfélögin hafa fengið nýtt vandamál að kljást við. Hvernig getur einn óvopnaður farþegi rænt farþegaþotu í millilandaflugi og neytt áhöfnina til að lenda þar sem hann segir? 4.10.2006 15:29 Ótrúleg heppni 4.10.2006 14:40 Hættuleg sauna-böð 4.10.2006 14:32 Banvænt megrunarlyf 4.10.2006 14:23 Vill leysa upp ríkisstjórn Hamas 4.10.2006 13:27 Stærri vöðvar - minni heili Steralyf sem stækka vöðva íþróttamanna, geta líka stuðlað að minnkun heilans samkvæmt nýrri rannsókn sem sýnir að inntaka vöðva-steralyfja stuðli að tapi á heilafrumum. Áður var vitað að sterar auka framleiðslu karlhormónsins testesteróns sem leiðir til að árásarhneigð og reiði ágerist. 4.10.2006 13:16 Löngu látinn 4.10.2006 13:02 Brjóstin björguðu Búlgörsk kona getur þakkað silikonbrjóstum að hún slapp vel frá alvarlegu bílslysi. Silikonpúðarnir í brjóstum hinnar 24 ára gömlu konu virkuðu sem loftpúðar þegar hún lenti í hörðum árekstri við annan bíl. Breska blaðið Standard sagði að konan hefði keyrt yfir á rauðu ljósi, á annan bíl á stórum gatnamótum í Ruse. 4.10.2006 12:31 Sjá næstu 50 fréttir
Carl Bildt verður utanríkisráðherra Svíþjóðar Fredrik Reinfeldt, nýr forsætisráðherra Svíþjóðar, kynnti ríkisstjórn sína í morgun. Athygli vekur að Carl Bildt, fyrrverandi forsætisráðherra, verður utanríkisráðherra. Ráðherrar eru tuttugu og tveir, þar af tíu konur. Lars Leijonborg, leiðtogi Þjóðarflokksins, verður menntamálaráðherra, Maud Olofsson, leiðtogi Miðjuflokksins, verður atvinnumálaráðherra, og Göran Häggelund, leiðtogi Kristilegra demókrata, verður félagsmálaráðherra. Í ræðu á sænska þinginu sagði Reinfeldt að staðið yrði við gefin loforð um skattalækkanir og breytingar á velferðarkerfinu. 6.10.2006 11:42
Rússar vísa 130 Georgíu mönnum úr landi Rússar ætla að vísa 130 Georgíu mönnum úr landi fyrir að hafa bortið innflytendalög í Rússlandi, að sögn Interfax fréttastofunnar. Spennan á milli ríkjanna virðist síst í rénun. 6.10.2006 11:21
AerLingus hafnar tilboði Rayanair Eigendur meirihluta í flugfélaginu AerLingus, meðal annarra írska ríkið, höfnuðu í gær yfirtökutilboði lággjaldafélagsins Rayanair upp á 130 milljarða íslenskra króna. Rayanair á 16 prósent í félaginu og vildi eignast það allt. 6.10.2006 10:59
Öllum ákærum gegn John Mark Karr vísað frá Dómari í Kaliforníu vísað í dag frá dómi ákæru áhendur John Mark Karr um vörslu barnakláms. Karr hafði áður gefið sig fram í Tælandi og sagðist hafa myrt barnafegurðadrottninguna JonBenet Ramsey árið 1996. Síðar leiddi athugun á erfðaefni í ljós að Karr var ekki morðinginn og því var ákæru í því máli vísað frá. 5.10.2006 23:03
Faldi sig í helli Kínverskur maður hefur gefið sig fram við lögreglu eftir að hafa falið í helli í tæpan áratug. Maðurinn segist hafa verið að fela sig fyrir innheimtumönnum auk þess sem hann er sakaður um að hafa ógnað aðkomufólki með byssu. 5.10.2006 22:57
Ákærður fyrir að smygla dínamíti Bandarískur ferðamaður, sem reyndi að flytja dínamít með sér í farangri heim frá Suður-Ameríku til Bandaríkjanna, var ákærður í dag byrir brot á öryggislöggjöf. Hann gæti átt yfir höfði sér allt að 10 ára fangelsi. 5.10.2006 22:19
Hastert ætlar ekki að víkja Dennis Hastert, forseti fulltrúardeildar Bandaríkjaþings, ætlar ekki að segja af sér vegna hneyslismáls sem nú skekur Repúblíkanaflokkinn. Upp komst um það að fyrrverandi fulltrúardeildarþingmaður, Mark Foley, hefði sent klúr tölvupóstskeyti til ungra drengja sem unnu fyrir þingið. Foley hefur nú sagt af sér og beðist afsökunar á framferði sínu. Hastert segist þó bera fulla ábyrgð á að ekki hafi verið gripið í taumana fyrr. Hann sagðist gera allt sem í sínu valdi stæði til að koma í veg fyrir að svona nokkuð gerðist aftur. 5.10.2006 22:00
Hugsanlega sleppt þrátt fyrir fjöldamorð Bandaríska dómsmálaráðuneytið hefur mótmælt tillögu dómstóls í Bandaríkjunum um að herskáum andstæðingi stjórnar Fídels Kastró, forseta Kúbu, verði sleppt úr fangelsi þrátt fyrir að hann sé borin sökum um að bera ábyrgð á dauða 73 flugfarþega fyrir 20 árum. 5.10.2006 21:45
Rán í beinni útsendingu Löngum hefur verið sagt að armur laganna sé langur. Nýlegir atburðir í Bretlandi færðu sönnur á að almenningur getur framlengt hann enn frekar. Tveir innbrotsþjófar, sem brutust inn í hús í Lancaster á dögunum, vissu ekki betur en þeir væru að athafna sig óséðir í skjóli myrkurs. Svo var þó ekki því húsráðandi horfði á þá láta greipar sópa úr töluverðri fjarlægð í gegnum öryggismyndavél sem hann hafði tengt við farsíma sinn. 5.10.2006 21:30
Verðlaunamynd tryggði gervihendi Níu ára drengur, sem missti vinstri hönd sína í jarðskjálftanum í Pakistan í október í fyrra, hefur fengið gervihendi eftir að þýsk kona sá mynd af honum og ákvað að færa hann undir hendur færustu sérfræðinga á Ítalíu. 80 þúsund manns fórust í hamförunum og fjölmargir örkumluðust. 5.10.2006 21:15
Óvíst hvort al-Masri er lífs eða liðinn Írakar rannsaka nú erfðaefni úr látnum manni til að kanna hvort hann hafi verið Abu Ayyub al-Masri, nýr leiðtogi al Kaída í Írak. Tvær arabískar sjónvarpsstöðvar fullyrða að hann hafi fallið í loftárásum Bandaríkjamanna fyrr í vikunni. 5.10.2006 19:30
NATO tekið við í Afganistan Atlantshafsbandalagið tók í dag við stjórn öryggismála í Austur-Afganistan úr höndum Bandaríkjahers. Bandalagið hefur þegar tekið við stjórn mála í öðrum landshlutum, þar á meðal í höfuðborginni, Kabúl. 5.10.2006 19:15
Útgefendur Nyhedsavisen gagnrýndir Útgefendur Nyhedsavisen í Danmörku eru gagnrýndir harðlega í dönskum fjölmiðlum í dag fyrir að hafa ekki nú þegar gefið upp hverjir fjármagna útgáfu blaðsins. Hagfræðingur, sem hefur kannað málið fyrir danska blaðamannafélagið, segir þetta ótrúverðugt. Blaðið kemur út í fyrsta sinn á morgun. 5.10.2006 19:00
Rússar ræða beint við fulltrúa Norður-Kóreu Rússensk stjórnvöld segjast hafa verið í beinu sambandi við ráðamenn í Norður-Kóreu til að reyna að fá þá ofan af því að gera tilraunir með kjarnorkuvopn. Stjórnvöld í Pyongyang tilkynntu í fyrradag að slíkar tilraunir væru fyrirhugaðar. Alþjóðasamfélagið hefur varað Norðurkóreumenn við því að gera prófanir á slíkum vopnum. 5.10.2006 18:10
Reinfeldt nýr forsætisráðherra Svíþjóðar Fredrik Reinfeldt, leiðtogi sænska Hægriflokksins, var kjörinn forsætisráðherra Svíþjóðar í atkvæðagreiðslu á þingi í dag. Á morgun mun Reinfeldt kynna nýja ríkisstjórn sína og stefnumál hennar. 5.10.2006 17:51
Rússar þjarma enn að Georgíu Rússar hertu í dag enn tökin á smáríkinu Georgíu, með því að loka fyrirtækjum sem Georgíumenn eiga í Rússlandi, og frysta atvinnuleyfi. Þá eru þeir að undirbúa að stórhækka verð á gasi sem þeir selja til Georgíu, sem væri gríðarlegt áfall fyrir efnahag landsins. 5.10.2006 15:35
Hópur sjakala réðst á þorp í Indlandi Flytja þurfti 35 manns á sjúkrahús eftir að hópur af sjakölum réðst á þorp, í Austur-Indlandi, í gær. 5.10.2006 14:50
Risa hafeðlur fundnar á Svalbarða Norskir vísindamenn hafa fundið beinagrindur af risa-hafeðlum, sem þeir segja að hafi verið jafnvel enn skelfilegri en landeðlan Tyrannosaurus Rex, sem kölluð er Grameðla, á íslensku. 5.10.2006 14:07
Færeyingur fær umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs Náttúru- og umhverfisverðlaunin 2006 til Færeyja Afburða framlag til rannsókna á sviði loftslagsbreytinga Færeyingurinn Bogi Hansen prófessor og rithöfundur hlýtur Náttúru- og umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs árið 2006. Verðlaunin eru 350.000 danskra króna. Þema verðlaunanna í ár var loftslagsbreytingar og aðlögun að loftslagsbreytingum. 5.10.2006 13:40
Aftökurútur auka framboð líffæra Fréttastofa Sky segir Kínastjórn nota aftökurútur í þeim tilgangi að taka þúsundir manna af lífi ár hvert. Í frétt sem fréttastofan flutti fyrr á árinu komu fram tengsl milli aftökukerfis Kína og mikillar uppsveiflu í líffærasölu. Einungis tvö ár eru þangað til Kína heldur næstu ólympíuleika, en skilyrði fyrir réttinum til að halda leikana var að mannréttindamál yrðu bætt í landinu. 5.10.2006 12:44
Tilraun N-Kóreu ógnun við friðinn Hörð viðbrögð hafa borist við fyrirhuguðum kjarnorkutilraunum Norðurkóreumanna en forseti öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna segir tilraunina ógna friði, stöðugleika og öryggi, bæði í Asíu og utan álfunnar. 5.10.2006 11:26
Tækjastuldur í herstöðinni Óprúttnir aðilar hafa farið ránshendi um gömlu herstöðina á Keflavíkurflugvelli. Þar hefur sérhæfðum flugvallarbúnaði verið stolið. Meðal þess sem stolið var er svokallaður töggur eða dráttarbifreið fyrir flugvélar. 5.10.2006 10:47
Ákærur í njósnahneyksli HP Ríkissaksóknari Californíu í Bandaríkjunum hefur ákært fyrrum stjórnarformann Hewlett-Packard tölvufyrirtækisins ásamt fjórum öðrum sem tengjast fyrirtækjanjósnum. Málið fór af stað þegar fyrirtækið gaf upp að að leynilögreglumenn sem það réði í því skyni að komast að leka úr stjórn fyrirtækisins, hefðu leynilega náð í færslur símtala ýmissa yfirmanna, starfsmanna og blaðamanna. 5.10.2006 10:22
Lögregla í liði með dauðasveitum Liðsmenn í íraskir lögreglusveit hafa verið leystir tímabundið frá störfum, allir sem einn, og sendir aftur í þjálfun. Þeir hafa verið sakaðir um að láta ódæði dauðasveita í landinu átölulaus. Mennirnir voru sendir heim eftir að vopnaðir menn rændu nærri 40 manns í Bagdad, höfuðborg landsins, fyrr í vikunni. Nokkrir þeirra sem rænt var féllu síðan fyrir hendi mannræningja sinn. 4.10.2006 21:45
4 bandarískir hermenn féllu í Írak Fjórir bandarískir hermenn féllu í árás nærri Bagdad, höfuðborg Íraks, í dag. Þetta er í annað sinn á tveimur dögum sem mannskæð árás er gerð á hersveitir Bandaríkjamanna nærri höfuðborginni. 4.10.2006 21:30
Myrti aldraða sjúklinga Fyrrverandi hjúkrunarkona á sjúkrahúsi í Texas í Bandaríkjunum gekkst við því fyrir dómi í dag að hafa myrt 10 aldraða sjúklinga í hennar umsjá fyrir nærri sex árum. 4.10.2006 21:30
Hleranir áfram leyfðar Bandarísk stjórnvöld geta áfram stundað hleranir án sérstakrar heimildar á meðan áfrýjun bandaríska dómsmálaráðuneytisins vegna banns á þeim hefur ekki verið tekin fyrir. Þetta var niðurstaða áfrýjunarréttar í Cincinnati í dag. 4.10.2006 20:58
Telur ekki hættu á stríðsátökum Javier Solana, utanríkismálastjóri Evrópusambandsins, telur enga hættu á því að til stríðsátaka komi milli Rússa og Georgíumanna vegna deilna ríkjanna síðustu vikur. Hann hvetur þó deilendur til að gæta hófsemi og sýna stillingu. 4.10.2006 20:45
Sprenging í Pakistan Lögreglan í Pakistan fann í dag sprengiefni í garði nálægt heimili Pervez Musharraf, forseta landsins í borginni Rawalpindi. Það gerðist eftir að sprenging heyrðist þar í borg. Enginn féll eða sæðrist. 4.10.2006 19:59
IRA sagður skaðlaus Írski lýðveldisherinn hefur snúið baki við hryðjuverkum og ekki stafar lengur ógn af samtökunum. Óháð nefnd um afvopnun á Norður-Írlandi hefur komist að þessari niðurstöðu. 4.10.2006 19:00
Taka Íslendinga til fyrirmyndar Norðmenn opna Barnahús að íslenskri fyrirmynd en þar er sinnt málefnum barna sem grunur leikur á að hafi sætt kynferðislegri áreitni eða ofbeldi. 4.10.2006 19:00
Barist í Nígeríu Til skotbardaga kom milli herskárra Nígeríumanna og liðsmanna í stjórnarher landsins í óshólmum Nígeríu síðdegis. Skipts var á skotum nálægt olíudælustöð Royal Dutch Shell á austurhluta svæðisins. 4.10.2006 17:45
Njósnahnettir sjá sprengjuundirbúning í N-Kóreu Bandarískir njósnagervihnettir hafa séð óvenjulega umferð á nokkrum stöðum sem Norður-Kórea gæti notað til þess að sprengja tilraunakjarnorkusprengju eins og þeir tilkynntu í gær að þeir ætlauðu gera. 4.10.2006 16:22
Ný leið til þess að ræna flugvél Flugfélögin hafa fengið nýtt vandamál að kljást við. Hvernig getur einn óvopnaður farþegi rænt farþegaþotu í millilandaflugi og neytt áhöfnina til að lenda þar sem hann segir? 4.10.2006 15:29
Stærri vöðvar - minni heili Steralyf sem stækka vöðva íþróttamanna, geta líka stuðlað að minnkun heilans samkvæmt nýrri rannsókn sem sýnir að inntaka vöðva-steralyfja stuðli að tapi á heilafrumum. Áður var vitað að sterar auka framleiðslu karlhormónsins testesteróns sem leiðir til að árásarhneigð og reiði ágerist. 4.10.2006 13:16
Brjóstin björguðu Búlgörsk kona getur þakkað silikonbrjóstum að hún slapp vel frá alvarlegu bílslysi. Silikonpúðarnir í brjóstum hinnar 24 ára gömlu konu virkuðu sem loftpúðar þegar hún lenti í hörðum árekstri við annan bíl. Breska blaðið Standard sagði að konan hefði keyrt yfir á rauðu ljósi, á annan bíl á stórum gatnamótum í Ruse. 4.10.2006 12:31