Fleiri fréttir

Baráttan um leikana 2012 hafin

Baráttan um Olympíuleikana árið 2012 er hafin og hún kostar sitt. Þær fimm borgir sem koma til greina sem gestgjafar leikanna eru París, London, New York, Madrid og Moskva. Útlistun borganna á því hvernig þær hyggjast undirbúa og framkvæma leikanna verður skilað til Alþjóða Olympíunefndarinnar í dag.

Ákærður fyrir tengsl við mafíuna

Ítalskur lögreglumaður, sem fékk það verkefni að uppræta mafíustarfsemi, mætir í dag fyrir rétt, til að svara fyrir ásakanir um að tengsl hans við mafíuna hafi orðið öllu nánari en efni stóðu til. Verði hann fundinn sekur bíður hans allt að 10 ára fangelsi.

Boðið lausnargjald

Afganska ríkisstjórnin hefur íhugað að bjóða lausnargjald fyrir þrjá starfsmenn Sameinuðu þjóðanna, sem haldið hefur verið í gíslingu síðan í síðasta mánuði. Mannræningjarnir hafa krafist þess að tuttugu og sex hermenn talibana verði látnir lausir úr fangelsum, ellegar verði gíslarnir myrtir. Þeir segjast ekkert kæra sig um peninga.

Dauðadómum fækkar mjög

Dauðadómar hafa ekki verið færri í Bandaríkjunum í 30 ár en þeir voru á síðastliðnu ári. Þetta er þriðja árið í röð þar sem fækkar á dauðadeildum fangelsa vestan hafs. Alls voru 144 fangar dæmdir til dauða í fyrra, sem er meira en helmingi minna en meðaltal tíu ára þar á undan.

Hákarl ræðst á konu í S-Afríku

Óttast er að kona á áttræðisaldri hafi látið lífið í hákarlsárás á strandlengju í Suður Afríku um helgina. Ekkert hefur spurst til konunnar, en vitni segja að hvítháfur hafi ráðist á hana. Sé saga sjónarvotta rétt, verður að teljast ólíklegt að konan hafi lifað árásina af, en hún var að synda þegar hákarlinn lét til skarar skríða.

Powell segir af sér

Colin Powell, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hefur sagt af sér embætti. Búist er við að Hvíta húsið tilkynni um þetta á næstu mínútum. Davíð Oddsson, utanríkisráðherra, átti að funda með Powell á morgun en ljóst er að sá fundur er í óvissu. Powell segist ætla að halda störfum áfram þar til fundinn hefur verið eftirmaður.

Fjórir segja af sér

Fjórir ráðherrar í Bandaríkjastjórn hafa sagt af sér. Auk Colins Powell, utanríkisráðherra, hafa þau Rod Paige, menntamálaráðherra, Ann Veneman landbúnaðarráðherra og Spencer Abraham, orkumálaráðherra sagt af sér embætti. Davíð Oddsson, utanríkisráðherra, átti að funda með Powell á morgun en ljóst er að sá fundur er í óvissu.

Hneykslismál loks fyrir dóm

Eitt mesta hneykslismál síðari tíma í frönskum stjórnmálum komst loks í dómssali landsins í dag. Fjöldi undirmanna þáverandi forseta Frakklands, Francois Mitterand, eru ákærðir fyrir hleranir á símum meira en 50 stjórnmálamanna, lögfræðinga og fréttamanna.

Uppsögnin breytir litlu

Til stóð að Colin Powell, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, færi til Palestínu í næstu viku til viðræðna við nýja stjórn landsins. Powell hugðist ræða við leiðtoga PLO, Mahmoud Abbas, sem og forsætisráðherrann Ahmed Qurei. Óvíst er hvort af þeim fundi verður.

Meirihluti vill inn

Samkvæmt nýrri skoðanakönnun í Noregi, sem gerð var fyrir norska Ríkisútvarpið og Aftenposten, segist meira en helmingur Norðmanna vilja ganga í Evrópusambandið.

Bardagar halda áfram

Þótt Bandaríkjamenn segist hafa náð borginni Falluja á sitt vald, má búast við því að bardagar haldi áfram þónokkuð ennþá. Stór hluti borgarinnar er í rúst, eftir átökin.

Fundur þrátt fyrir uppsögn

Colin Powell hefur sagt af sér sem utanríkisráðherra Bandaríkjanna, en mun gegna embættinu áfram þar til eftirmaður er fundinn. Davíð Oddsson, forsætisráðherra á fund með Powell á morgun.

Segist hafa fundið Atlantis

Bandarískur verkfræðingur sem hefur leitað hins horfna meginlands, Atlantis, í tíu ár, segist nú loksins hafa fundið það. Samkvæmt þjóðsögunni sem meðal annars er byggð á skrifum gríska heimspekingsins Platós, var Atlantis háþróað menningarþjóðfélag sem sökk í sæ, þegar guðirnir reiddust íbúunum fyrir græðgi þeirra.

Bjóðast til viðræðna um brotthvarf

Ísraelar buðust í gær til þess að hafa samráð við Palestínumenn um brotthvarf sitt frá landtökubyggðum á Gazasvæðinu gegn því að palestínska heimastjórnin beitti sér gegn hópum herskárra Palestínumanna. Palestínumenn sögðu best að Ísraelar hæfu friðarviðræður á nýjan leik án þess að skilyrða það með einhverjum hætti.

Íranar hætta auðgun úrans

Íranar hafa heitið því að hætta auðgun úrans meðan þeir semja við Evrópuríki um lausn á deilum um kjarnorkuáætlun þeirra. Óvíst er þó hvort þetta sé til frambúðar því það ræðst af niðurstöðum viðræðna við Evrópuríkin.

Dóttir keisarans trúlofast

Einkadóttir japönsku keisarahjónanna mun tilkynna um trúlofun sína á næstu vikum. Unnustinn er almúgamaður og því missir prinsessan alla sína konunglegu titla. Sayako prinsssa er 35 ára gömul og fuglafræðingur að mennt. Hún starfar á rannsóknarstofu, í grennd við Tokyo, og hefur meðal annars rannsakað veirur sem valda hinni svokölluðu fulgflensu.

Samkynhneigðir fái aukin réttindi

"Samkynhneigð pör ættu að njóta meiri réttinda en nú er en það er langt í að stjórnvöld leggi til að hjónabönd samkynhneigðra verði lögleidd," sagði Bertie Ahern, forsætisráðherra Írlands.

Abbas verður forsetaefni Fatah

Mahmoud Abbas, fyrrum forsætisráðherra Palestínu, verður forsetaefni Fatah í forsetakosningunum í Palestínu. Þetta sagði Nabil Shaath, utanríkisráðherra palestínsku heimastjórnarinnar. Hann sagði samhug um þetta innan hreyfingarinnar og ætti í raun aðeins eftir að staðfesta þetta með formlegum hætti.

Hrakin af heimilum sínum með valdi

Ein kona slasaðist og var borin alblóðug út af heimili sínu þegar til átaka kom í Peking. Hundrað lögreglumenn og fjöldi aðstoðarmanna þeirra báru fólk út af heimilum sínum svo rífa mætti húsin og byggja fjölbýlishús í þeirra stað.

Bardagar breiðast út

Bandarískar herþotur vörpuðu sprengjum á vígamenn í Baquba og Falluja í gær þar sem harðir bardagar geisuðu milli vígamanna annars vegar og bandarískra og íraskra hermanna hins vegar. Tugir manna féllu í bardögum sem hafa breiðst út um Írak í kjölfar árásarinnar á vígamenn í Falluja.<font face="Helv" color="#008080"></font>

Powell sagði af sér

Colin Powell lætur af starfi utanríkisráðherra Bandaríkjanna þegar George W. Bush Bandaríkjaforseti hefur valið eftirmann hans. Bush féllst í gær á afsagnarbeiðni Powell og þriggja annarra ráðherra, Ann Veneman sem fer með landbúnaðarmál, Spencer Abraham sem fer með orkumál og menntamálaráðherrans Rod Paige.

Borgaði með grínpeningaseðli

Kona sem var ákærð fyrir þjófnað verður ekki látin svara til saka eftir að hún greiddi aftur fyrir vörur sem hún keypti upphaflega með fölsuðum peningaseðli. Lögmaður hennar sagði að hún hefði ekki haft hugmynd um að 200 dollara seðillinn með mynd af núverandi Bandaríkjaforseta væri ekki löglegur gjaldmiðill.

Íslensk börn tala ekki dönsku

Skólastjóri grunnskóla í einu af svokölluðum Íslendingahverfum í Danmörku, hefur hrist upp í mörgum foreldrum, með ummælum sínum um að íslenskir unglingar neiti að tala dönsku í skólanum. Skólastjórinn segir að munur á skólakerfum leiði til þess að erfitt sé fyrir íslenska nemendur að aðlagast.

Cheney á sjúkrahús

Dick Cheney, varaforseti Bandaríkjanna, var í gærkvöldi fluttur á sjúkrahús vegna andnauðar. Cheney hefur átt við hjartasjúkdóma að stríða og fékk fyrir þremur árum gangráð. Rannsóknir leiddu ekkert óeðlilegt í ljós, og fékk Cheney að fara heim að rannsóknunum loknum. Talsmaður hans sagði ástæðu andnauðarinnar vera kvef.

Enn tekist á í Fallujah

Bandarískar hersveitir kljást enn við síðustu skæruliðana í borginni Fallujah, að sögn talsmanna hersins. Átökin koma í veg fyrir að sendisveitir rauða hálfmánans komist inn í borgina með neyðarbirgðir. Íbúi í Fallujah, sem Reuters-fréttaþjónustan ræddi við, sagði fjölskyldu sína mjög illa haldna sökum vatns- og matarskorts.

Bannað að auglýsa ruslfæði

Auglýsingar fyrir ruslfæði verða bannaðar í bresku sjónvarpi á barnatíma, það er að segja á milli klukkan sex og níu á kvöldin. Heilbrigðisráðherra Bretlands vill að skyndibitastaðir og matvælaframleiðendur gangist inn á reglur þessa efnis, en hótar ellegar lagasetningu.

Eldur í „Rave"-klúbbi í Hollandi

Einn fórst og sex slösuðust þegar eldur kviknaði í "Rave"-klúbbi í Amsterdam í morgun. Nokkur hundruð manns voru á staðnum þegar eldur kviknaði í yfirgefnu iðnaðarhúsnæði þar sem hústökumenn höfðu komið sér upp skemmtistað. Þykkar reykjarmökk lagði frá staðnum og þurfti fimmtán slökkvibíla með mannskap til að ráða niðurlögum eldsins.

Aðgerðum ekki lokið í Fallujah

Bandarískar hersveitir kljást enn við síðustu skæruliðana í borginni Fallujah, að sögn talsmanna hersins, þó að íröksk yfirvöld hafi í gær lýst því yfir að aðgerðum í borginni væri lokið. Andspyrnan við hersetuliðið fer vaxandi í norðurhluta landsins.

Jóakim tekinn fyrir hraðakstur

Jóakim Danaprins, hefur verið kærður til lögreglu fyrir háskalegan akstur á hraðbraut í gærkvöldi. Synir Jóakims, prinsarnir Nikolai og Felix, voru einnig í bílnum.

Kerry aftur á þingið

John Kerry mun snúa sér aftur að þingstörfum í bandarísku Öldungadeildinni í næstu viku. Búast má við heldur átakalitlu þingi næsta árið en Repúblikanar eru með góðan meirihluta í báðum deildum þingsins og svo að sjálfssögðu forsetann sjálfan, George Bush.

Cheney í lagi

Dick Cheney, varaforseti Bandaríkjanna, var í gærkvöldi fluttur á sjúkrahús vegna andnauðar. Cheney hefur átt við hjartasjúkdóma að stríða, hefur fengið hjartaáfall í fjórgang og fékk fyrir þremur árum gangráð. Rannsóknir á sjúkrahúsinu í gær leiddu ekkert óeðlilegt í ljós, og fékk Cheney að fara heim að rannsóknunum loknum. Talsmaður hans sagði ástæðu andnauðarinnar vera veirusýking in hálsi.

Skotárás á Abbas

Skotárás var gerð þegar Mahmoud Abbas, fyrrverandi forsætisráðherra Palestínu, kom að greftrunarstað Jassirs Arafat síðdegis í dag. Talið er að Abbas hafi verið skotmark palestínsku skæruliðana sem réðust inn í tjaldið sem er við gröfina, en Abbas er forsetaefni Fatah-hreyfingar Arafats og þykir líklegur til að taka við forystuhlutverki meðal Palestínumanna.

Hermanna minnst með Valmúa

Elísabet Englandsdrottning lagði í dag blómsveig við skör minnismerkis um fallna hermenn í Lundúnum. Athöfnin er árlegur viðburður og fer fram þann sunnudag sem næst er lokadegi fyrri heimsstyrjaldarinnar. Valmúinn er ljóðrænt tákn fyrir þá sem látið hafa lífið fyrir frelsi þjóðar sinnar og bera margir Bretar því valmúanælur þessa dagana.

Harmleikur í Fallujah

Mannlegur harmleikur blasir við í borginni Fallujah í Írak. Þrátt fyrir yfirlýsingar um að bardögum þar sé lokið heldur sprenguregnið áfram og óöldin breiðist út.

Abbas býður sig fram

Mahmud Abbas, leiðtogi Frelsishreyfingar Palestínumanna og fyrrum forsætisráðherra landsins, mun bjóða sig fram sem næsti leiðtogi Palestínumanna í stað Jassers Arafat sem lést síðastliðinn fimmtudag.

Heill heilsu eftir sjúkrahússdvöl

Dick Cheney, varaforseti Bandaríkjanna, segist vera heill heilsu eftir að hafa gengist undir rannsóknir á sjúkrahúsi í Washington í fyrradag.

Látinna hermanna minnst

Árleg minningarathöfn um þá bresku hermann sem hafa fallið í stríði var haldin í London í gær. Elísabet Englandsdrottning var viðstödd athöfnina ásamt m.a. Tony Blair forsætisráðherra og Karli Bretaprins, sem hélt upp á 56 ára afmæli sitt þennan sama dag. Sonur hans, Vilhjálmur, tók þátt í athöfninni í fyrsta sinn.

Falluja í hendur Bandaríkjanna

Eftir tæplega vikulanga bardaga segjast bandarískir og íraskir hermenn í Falluja í Írak hafa náð stjórn á næstum allri borginni, en hún var áður undir yfirráðum skæruliða.

Ný tækifæri hafa opnast

George W. Bush Bandaríkjaforseti og Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, segja að ný tækifæri hafi opnast til að koma á friði í Mið-Austurlöndum

Tveir skotnir til bana

Tveir meðlimir öryggissveita Palestínu voru skotnir til bana þegar Mahmud Abbas, leiðtogi öryggisráðs Palestínu, heimsótti tjald sem hafði verið sett upp í Gaza-borg til minningar um Jasser Arafat, fyrrum leiðtoga Palestínumanna.

Dauðadómum fækkar

Þrjátíu ár eru liðin síðan jafn fáir einstaklingar voru dæmdir til dauða í Bandaríkjunum og á síðasta ári.

Skemmdir unnar

Robert Ballard, sem fann flak skemmtiferðaskipsins Titanic fyrir tæpum tveimur áratugum, er ósáttur við þær skemmdir sem hafa orðið á flakinu á undanförnum árum.

Kvörtunum rignir inn

Mannréttindadómstóll Evrópu í Strassborg er að drukkna í kvörtunum frá almennum borgurum. Þetta kemur fram í danska dagblaðinu Jyllands-Posten.

Harði diskurinn í frysti

Saga af framkvæmdastjóra sem setti harða diskinn úr tölvunni í frysti er efst á lista yfir furðulegustu ráð sem fólk notar í von um að bjarga gögnum úr tölvunum sínum.

Ekki eitrað fyrir Arafat

Philippe Douste-Blazy, heilbrigðisráðherra Frakklands, segir enga ástæðu til að ætla að eitrað hafi verið fyrir Jasser Arafat, forseta Palestínu, sem lést á sjúkrahúsi í París síðastliðinn fimmtudag.

Sjá næstu 50 fréttir